NT - 29.12.1984, Blaðsíða 11
Erlendur annáll "I 984
Laugardagur 29. desember 1984 11
OKTOBER
Bretar slógu tvö met í októbermán-
uði, þótt ekki ylli það mikilli gleði.
Pundið hafði aldreiverið lægra gagn-
vart Bandaríkjadollar, sem hækkaði
og hækkaði og hækkaði... Atvinnu-
leysi hafði heldur aldrei verið meira í
Bretlandi síðan í kreppunni. Heildar-
fjöldi atvinnuleysingja var um 3.3
milljónir eða 13.6% af vinnufærum
mönnum.
Aðfaranótt 12. október var Marg-
aret Thatcher forsætisráðherra hætt
komin er sprengja sprakk á hóteli í
Brighton, þar sem hún dvaldi ásamt
fjölmörgum samráðherrum sínum í
tilefni af flokksþingi íhaldsmanna.
Fjórir létust í tilræðinu, sem írska
lýðveldish'ernum var kennt um.
Tveir Græningjar í v-þýska þinginu
gerðust heldur kjaftaglaðir er þeir
sögðu að forseti þingsins væri asni og
að Kohl kanslari hefði þegið mútur
frá Flick-auðhringnum. Var þeim
samstundis vísað á dyr. Tveir þýskir
stjórnmálamenn hafa þegar þetta er
skrifað sagt af sér embætti vegna Flick
málsins, Otto Lambsdorff viðskipta-
ráðherra og Raincr Barzel, þingfor-
seti. Hefur mál þetta mjög rýrt þýska
stjórnmálamenn trausti almennings.
Ekki var hún heldur traustvekjandi
þýska konan sem dæmd var fyrir að
ráða þrjá eiginmenn sína, föður sinn
og aldraða frænku af dögum. Ástæð-
an? Fórnarlömbin voru henni til
skapraunar. Aðferðin? Hún gaf þeim
bláberjabúðinga, vel kryddaða með
eitri.
Marcos, einræðisherra á Filippseyj-
um, mátti þola enn citt skakkafallið.
Nú þegar nefnd sem rannsakaði
morðið á höfuðandstæðing lians Ben-
igno Aquino komst að þeirri niður-
stöðu að háttsettir herforingjar og
nánir samstarfsmenn Marcosar hefðu
staðið að baki morðinu.
í lok októbermánaðar fannst lík
pólska andófsklerksins Jerzy Popiel-
uszko í einu uppistöðulóni árinnar
Vislu. Honum hafði verið rænt ellefu
dögum áður. Böndin bárust fljótt að
foringjum í öryggislögreglunni og
hafa nú fjórir þeirra verið ákærðir
fyrir að myrða klerk. Jaruselski Pól-
landsleiðtogi þótti sigla laglega í gegn-
um þetta viðkvæma mál, sem að sögn
sérfræðinga hefði getað hleypt öllu í
bál og brand á nýjan ieik.
Forsætisráðherra Indverja. Indira
Gandhi, var myrt af tveim lífvörðum
sínum sem töldust til Sikka.
Rajiv Gandhi, sonur Indiru
Gandhi, tók við forsætisráðherra-
embættinu að móður sinni látinni.
Fyrsta verk hans var að hvetja Ind-
verja til stillingar og bæla niður miklar
óeirðir sem brutust út eftir að fréttist
um morð Indiru. Hindúar kenndu
Sikkum um morðið og í mörgum
stórborgum Indlands voru Sikkar of-
sóttir og sums staðar voru þeir jafnvel
brenndir til bana.
Hollenskur dómstóll ákvað að reka
níu erlendar konur úr landi sem
sögðust vera að læra galdra í djöflahá-
skóla. Dómstóllinn sagði djöfladýrk-
un þeirra eiga meira skylt við kynsvall
en galdra.
Svetlana, dóttir Stalín. fékk aftur
sovéskan ríkisborgararétt eftir að
hafa gerst pólitískur flóttamaður árið
1967. Eftir heimkomuna bar hún
Vesturlöndum illa söguna.
250.000 manns voru við útför
pólska andófsprestsins Jerzy Popiel-
uzko. Prír pólskir leyniþjónustumenn
voru kærðir fyrir morðið.
Sandinistar unnu mikinn sigur í
almennum kosningum í Nicaragua en
fengu þó ekki eins mikið fylgi og þeir
höfðu búist við. Útlendingar, sem
komu til Nicaragua til að fylgjast með
kosningunum, sögðu að þær hefðu
■ Ættingjar Indiru Gandhi fylgdust með því þegar síðustu líkamsleifum hennar var brennt.
■ Mikil hungursneyð ríkir nú í Eþíópíu og mörgum öðrum Afrikuríkjum.
farið heiðarlega fram þrátt fyrir ásak-
anir Bandaríkjastjórnar um hið gagn-
stæða.
Aðrar kosningar vöktu samt miklu
meiri athygli, en það voru forseta-
kosningarnar í Bandaríkjunum.
Frambjóðandi demókrata, Walter
Mondale, gekk berserksgang í lok
kosningabaráttunnar en það dugði
honum samt ekki til að konia í veg
fyrir stórsigur Reagans.
ítalska leikritaskáldið Dario Fo
fékk að fara til Bandaríkjanna eítir
mikið stapp við bandarísk yifrvöld
sem töldu skoðanir lians óæskilegar.
Það var ekki fyrr en Bandaríkjaforseti
skarst sjálfur í leikinn að Dario Fo
fékk vegabréfsáritun enda er Banda-
ríkjaforseti sjálfur leikari.
Vinir bandarískra auðmanna í
Chilc brugðust harkalega við mót-
mælaaðgerðum stjórnarandstæðinga
og Pinochet hershöfðingi lýsti yfir
neyðarlögum og lét handtaka fjölda
fátæklinga sem hann grunaði um
hættulegar skoðanir.
Hungursneyðin í Afríku er sögð ná
til níu milljóna manna og alþjóðlegar
hjálparstofnanir hvetja ríkisstjórnir
og almenning á Vesturlöndum til að
auka matvælaaðstoð við sveltandi
Afríkubúa.
í Ijós kom að Gaddafi Líbýuleiðtogi
lék á Frakka þegar hann sagðist
myndu draga alla líbýska hermenn
burt úr Chad urn leiö og Frakkar.
Mitterrand Frakklandsforseti varð
fyrir miklu aðkasti heimafyrir vcgna
þcss að hafa látið Gaddafi leika á sig.
Palestínumcnn héldu þing í Jórdan-
íu þrátt fyrir miklar innbyrðis deilur.
Stuðningsmenn Yasser Árafats voru
einráðir á þinginu cn andstæðingar
hans sátu scm fastast á Sýrlandi og
sóttu ekki þingið.
Fyrirtæki auðhringsins Union Car-
bide í Bhopal í Indlandi var helsta
fréttacfni mánaðarins. Gaseitrun frá
fyrirtækinu leiddi um 2500 manns til
dauða, aðallega fátæklinga sem
bjuggu í nágrenni verksmiðjunnar.
'Auk þess sködduðust um 125.000.
manns. Til að byrja með státuðu
talsmenn Union Carbide sig af því að
þeir hafi af góðmennsku sinni látið
um cina milljón dollara renna til
hjálparstarfsins í Bhopal. Þessi upp-
hæð reyndist þó litlu mciri en árslaun
aðalframkvæmdastjóra Union Carbi-
dc.
Desntond Tutu, friðarverðlauna-
hafi Nóbels og biskup í Suður-Afríku
átti fund með Reagan forseta og
þingmörínum í Washington. Hann
gagnrýndi stefnu Reaganstjórnarinn-
ar í málefnum Suður-Afríku harðlega
og sagði að hún ætti samstarf við
þjóðfélagskerfi scm væri ekki síður
„illt, ókristilegt og ósiðlcgt cn nasism-
inn“. Yngstu börn Róberts Kennedys
heitins voru handtekin í mótmælaað-
gerðum við sendiráð Suður-Afríku í
Washington.
Frá Kína bárust þær fréttir að
Kínverjar væru enn fylgismenn marx-
isma-leninisma þrátt fyrir að kenning-
ar frumkvöðlanna hæfðu að ýmsu
leyti ekki aðstæðum nú á dögum.
Fáum dögum síðar, 19. desember,
undirrituðu Zhao Ziyng forsætisráð-
herra Kína og Margaret Thatcher
sögulegan samning sem tryggir Kín-
verjum yfirráð yfir borgríkinu Hong
Kong eftir 1997. Thatcher tókst með
sérstökum lífgunaraðgerðum að
lengja líf kapítalsimans í Hong Kong
um allt að fimmtíu ár eftir að Kínverj-
ar taka við Hong Kong.
Verkfall breskra kolanámamanna
stendur enn við lok desember. Verk-
fallsmönnum barst óvænt hjálp frá
stéttarbræðrum sínum í Sovétríkjun-
um. Úkraínskir kolanámuverkamenn
sendu rúblur að andvirði 130.00 doll-
ara til stuðnings þeim bresku. Send-
ingunni fylgdu hvatningarorðin „Ör-
eigar allra landa, sameinumst".