NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 12.02.1985, Qupperneq 3

NT - 12.02.1985, Qupperneq 3
Þriðjudagur 12. febrúar 1985 Að hafa gaman af erninum - dýrasta hobbý sem hægt er að veita sér: 3 „Tjón mitt af völdum arnarins um 400.000 kr. síðustu 2 ár“ ■ Dregin út verðlaun í orðabókargetrauninni. segir Sveinn í Miðhúsum í Reykhólahreppi ■ Ég hef haft gaman af ernin- um, en það er dvrasta hobbý sem nokkur maður getur veitt sér. Hvað mig sjálfan snertir er meðaltjónið af völdum arnarins t.d. um 400 þúsund krónur á árunum 1983 og 1984. Hér var dúntckjan lengi vel uin 40 kg á ári, en fór svo ofan í 17-18 kg árið 1983 og náði aðeins 20 kg í fyrrasumar, eingöngu vegna þess hve mikið var af erni hér. I’epr kílóið af æðardún er kom- ið yfir 10 þús. krónur tel ég menn ckki hafa leyfi til að forsóma þessa atvinnugrein, sagði Sveinn Guðmundsson, í Miðhúsum í Keykhólahreppi. Viö hér á Vesturlandi eruni heldur óhressir meö ofstjórnina á lífríkinu hér - í þessum eina landsfjórðungi sem haldiö hefur arnastofninum Iifandi. Síöan eru ýmis félög-t.d. Arnavina- félagið, eins og við köllum þaö að senda okkur hinar og þessar ákúrur. í ööru lagi teljum við stjórn menntamálaráðuneytis- ins í þessu máli alranga og að þar sé beinlínis stuðlað að því að útrýma stofninum, sagði Sveinn. Ég tel að við sem húum í lífríkinu verðum aö Iráfa ein- Itvern rétt til að stjórna því-en að sú stjórn sé ekki eingöngu í höndum einhverra hávaða- sanira Itópa í þéttbýlinu. Það á t.d. enginn bóndi sieti í stjórn Náttúruverndarráðs - þannig að það er að komast svolítið styrj- aldarástand í þetta. Með þess- um Itávaða sumra náttúruvernd- armanna - öfgamannanna í hópnum - kalla þeir beinlínis á andspyrnu og þá harða and- spyrnu - að nienn fari að gera hluti sern þeir myndu annars ekki gera, sagði Sveinn. Þegar Sveinn var spurður álits á notkun svefnlyfja til að eyða vargfugli, sagðist Sveinn telja kröfur æðarræktarbænda í því máli í fyllsta máta eðlilegar. Þetta er ódýrasta vörnin og árangursríkasta til að halda vargfuglastofnunum í skefjum. Við Breiðafjörðinn norðan- verðan sagði Sveinn að hrafni hafi fjölgað stórlega á undan- förnum árum. þannig að ntenn standi nú ekki síður í baráttu við hann en mávfuglana. Til þess að Italda við arnar- stofninunt, án þess að hann valdi miklum skaða á einstökum svæðum, sagðist Sveinn hafa þá tillögu fram að færa að erninum yrði dreift víöar um landið. Þar kvaðst Itann t.d. hafa fýlabyggð- ir í Skaftafellssýslum í Ituga og síðan önnur svæði þar sem fólk hefur áhuga á að fá örn til sín. Kvaðst Sveinn telja þetta frem- ur vandalítið í framkvæmd. Eitt og eitt arnarpar í varpi valdi ekki svo miklum skaða. 10 orðabækur í verðlaun! ■ Dregið hefur verið í verð- launagetraun sem Bókaútgáfan Örn og Örlygur efndi til á síð- asta ári í tengslum við útgáfu ensk-íslensku orðabókarinnar. Margar lausnir bárust en hinir tíu heppnu eru: Dröfn Vil- hjálmsdóttir Seljubraut 22, Hjördís Gunnarsdóttir Vest- urbrún 16, Ágústa Hugrún Ing- ólfsdóttir Skúlagarði N-Þing- eyjarsýslu, Guðrún Emilsdóttir Hólmgarði 29, Baldur Stein- grímsson Austurgerði 11, Krist- ín Sigurðardóttir Giljalandi 6, Erling Aðalsteinsson Framnes- vegi 88, Sigríður Pétursdóttir Giljalandi 23, Erla Gissurar- dóttir Furugrund 30 og Sigríður Gunnarsdóttir Meistaravöllum 33. Verðlaun í getrauninni voru eintak af umræddri orða- bók en þátttakendur svöruðu fjórum spurningum sem reyndu á þekkingu þeirra á enskri tungu. Stærðfrædikeppni í framhaldsskólum Stærðfræðingar brjóta heilann: ■ Nemendum í framhalds- skólum landsins gefst kostur á að spreyta sig í stærðfræði- keppni nú á næstunni. Það eru félag raungreinakennara í fram- haldsskólum og íslenska stærð- fræðifélagið sem að keppninni standa. Send hafa verið út 10 dæmi sem nemendur eiga að glíma við heima og síðan skila lausnum á eins mörgunt dæm- anna og þeir vilja fyrir 18. febrúar. Sérstök viðurkenning verður veitt fyrir frumlegar lausnir á einstökum dæmum. Þeim sem bestu lausnunum skila verður boðið til loka- keppni í Reykjavík þar sem keppt verður í að leysa verkefni á ákveðnum tíma. Keppnin er kostuð af IBM á íslandi. Þess má geta að íslendingum hefur verið boðið að taka þátt í Ólympíuleikunum í stærðfræði í Finnlandi næsta sumar, en það er alþjóðleg keppni nemenda á framhaldskólastigi. Danir bjóða einbýlishús ■ Dönsk stjórnvöld hafa til- kynnt Félagi íslenskra rithöf- unda að einum íslenskum rit- höfundi verði gefinn kostur á eins árs dvöi í Danmörku og afnot af einbýlishúsi á Jótlandi nteð öllum fríðindum. Danir nefna húsið „skipstjórahús" og er það ætlaö norrænum rithöf- undum. sem hafa skilað um- sóknum fyrir 1. mars ár hvert. Jónas Guðmundsson, for- maður Félags ísl. rithöfunda veitir þeim sem áhuga hafa, nánari upplýsingar. Hæsti vinningur 25.000 Vinningar að heildarverðmæti kr. 100.000.- Stjórnin

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.