NT


NT - 12.02.1985, Side 9

NT - 12.02.1985, Side 9
Þriðjudagur 12. febrúar 1985 9 Gyllenhammar hefur ýmsu að segja frá í íslandsferðinni: Álfafoss semur um 1,4 millj. trefla til Sovét í ár: 100. hver Rússi með íslenskan tref il ■ Sænska stórfyrirtækið Volvo hagnaðist vel á síðasta ári, eða um 7 milljarðasænskra króna; það jafngildir 32 mill- jörðum íslenskra króna. Hagn- aður er svo sem engin nýjung hjá Volvo - þetta var fjórða hagnaðarárið í röð - en for- ráðamenn fyrirtækisins geta þó kæst yfir því að rekstraraf- gangurinn varð helmingi meiri í fyrra en árið áður, 1983. Þessi velgengni gefur tilefni til að búast við Per Gyllen- hammar, aðalforstjóra Volvo, hressum í bragði þegar hann heimsækir ísland í næsta mán- uði í boði Verslunarráðs. Gyll- enhammar hefur setið við Stjórnvölinn hjá Volvo í fjór- Danir tryggja gegn stjórn- unarmistökum ■ Ættu stjórnendur fyrir- tækja, eða fyrirtækin sjálf fyrir þeirra hönd. að tryggja sig fyrir hugsanlegum mistökum í starfi? Því ætti fytjrtækið að sitja uppi með áfall sem ein- hver stjórnanda þess átti sök á, en hefur engin tök á að bæta að fullu fyrir? Það er altént hægt að skipta um stjórnendur, en eftir situr fyrirtækið e.t.v. í óbjargandi stöðu. Það kann að hljóma undar- lega að hægt sé að tryggja gegn slíkum nristökum. Þetta mun þó vera hægt a.m.k. í Dan- mörku, og nokkuð stundað af dönskum fyrirtækjum, einkum þeim sem reka atvinnustarf- semi í öðrum löndum en heimalandinu. Ogþessa örygg- isleið hafa menn þar í landi rifjað upp nú þegar einn af stærstu bönkum landsins, Kronebanken, á sér litla við- reisnarvon í framhaldi af hrapalegum mistökum stjórn- enda hans fyrir lok síðasta árs. En það er önnur lilið á þessari tryggingarleið heldur en fjármunirnir sem kunna að bjargast vegna hennar. Hvaða áhrif hefur svona stuð- púði á starfshætti stjórnend- anna? Sumir halda því fram að þegar ábyrgð stjórnendanna yrði með þessum hætti minnkuð, þá gerðust þeir um leið værukærari í starfi. Trygg- ingin myndi virka sem eins konar deyfilyf. Það er væntanlega vegna þessarar hættu, og þeirrar hug- myndar sem hún gæti gefið af fyrirtækinu, sem danskirtregð- ast yfirleitt við að viðurkenna gildi tryggingarinnar - jafnvel þeir sem sjálfir hafa keypt tryggingu. ■ Björgólfur Guðmundsson, forstjóri, skýrir stöðuna á hlut- hafafundi Hafskips. 80 milljóna hluta- fjárútboð Hafskips ■ Almennur hluthafafundur Hafskips h.f. samþykkti um helgina tillögu stjórnar félags- ins um að efna til 80 milljóna króna hlutafjáraukningar í fé- laginu. Var tillagan samþvkkt án mótatkvæða. Um 200 manns sátu hlut- hafafundinn, og fóru þau með umboð um 70% atkvæða hlutafjár. Ragnar Kjartansson og Björgólfur Guðmundsson gerðu grein fyrir stöðu félags- ins, og þeim erfiðleikum sem það á nú við að glíma. Jafn- framt skýrðu þeir áform félags- ins um að endurskipuleggja starfsemina og hefja nýja sókn jafnt heima sem heiman. ■ Álafoss hf. og sovéska fyrirtækið Raznoexport undir- ntuðu nýlega samning um sölu á 1,4 milljónum ullartrefla til Sovétríkjanna. í íslenskum krónum er verðmæti sámnings- ins um 145 milljónir króna. Samningurinn er nánast eins og samningur sem gerður var um 1,5 millj. trefla á síðasta ári. Þá störfuðu um 100 manns við treflaframleiðsluna á Áia- fossi. Framleiðslan gekk að óskum og allir treflarnir voru af- greiddir á réttum tíma. Áætlað er að svipaður fjöldi muni starfa við treflaframleiðsluna í ár. Möguleikar eru taldir á að um einhvern viðbótarsamning geti orðið að ræða síðar á árinu. í árslok ætti a.m.k. 100. hver Rússi að hafa eignast nýlegan íslenskan ullartrefil. En íslendingarhafaseltSov- étmönnum fleiri trefla en þess- ar 3 milljónir í ár pg í fyrra. Fyrsti samningur Álafoss og Raznoexport var gerður árið Nýtt skipulag hjá Arnarflugi ■ Nýju stjórnskipulagi hefur verið komið á hjá Arnarflugi. Felur skipulagið í sér að rekstr- inum er skipt í fjögur svið, og hafa verið ráðnir deildarstjór- ar yfir þremur. Guðmundur Hauksson er deildarstjóri fjármálasviðs, Magnús Odds- son deildarstjóri markaðssviðs og Þórður Jónsson deildar- stjóri stjórnunarsviðs. Starf deildarstjóra tæknisviðs hefur verið auglýst laust til umsóknar meðal starfsfólks Arnarflugs. Þrátt fyrir 22% fjölgun far- þega í millilandaflugi og 106% aukningu í vöruflutningum milli landa, en svipuðu innan- iandsflugi, þá varð um 50 millj- óna króna tap á rekstri Arnar- flugs á síðasta ári. Segja Arn- arflugsmenn aðalástæðuna vera skakkaföll sem félagið varð fyrir á erlendri starfsemi í byrjun ársins, sérstaklega í Nígeríu. ■ Frá undirritun treflasamningsins. T.v. viö borðið eru fulltrúar Álafoss, Steinar Jónasson og Pétur Eiríksson. 1976. ÞáhefurSambandiðflutt árin. Því mun treflasalan til árum vera orðin um 5 milljónir út á aðra milljón trefla síðustu Sovétríkjanna á síðustu tíu trefla. tán ár. Hann tók við forstjóra- starfinu af tengdaföður sínum, en hafði áðurstarfað hjá trygg- ingafélaginu Skandia og setið í forstjórastóli, sem hann erfði frá föður sínum. En Gyllen- hammar hefur fyrst og fremst aflað sér viðurkenningar fyrir eigin frammistöðu. Hann hef- ur m.a. vakið athygli fyrir óvenjulegar stjórnunar- og fjárfestingarleiðir. Bandaríska vikuritið Newsvveek valdi hann nýlega sérlegan fulltrúa fyrir framsæknustu forstjóra í Evr- ópu um þessar mundir. Volvo er nú 19. stærsta fyrir- tækiö í Evrópu. Meginþungi starfsbminnar er ennþá í bif- reiðaframleiðslu, en að frum- kvæði Gyllenhammars hefur Volvo eignast hlut í nokkrum orkufyrirtækjum; þá á fyrir- tækið ennfremur hlut að fram- leiðslu á síld, niðursuðuvör- um og drykkjarvatni! ■ Per Gyllenhainmar, aðalforstjóri Volvo. Nú má milli- færa í tölvu- bönkunum ■ Nú geta þeir sem nota tölvubanka Iðnaðarbank- ans fært sjálfir á milli rcikninga sinna í bankan- um. Þeir geta fært peninga af sparireikningi á tékka- reikning og öfugt. Áður gátu menn cin- göngu tekið út peninga í tölvubankanum. Síðasta skrefíð í virkjun bankans verður að gera fólki kleift að leggja inn á reikninga sína með því að setja inn- leggið sjálft í sérstök um- slög og stimpla upphæðina inn í tölvuna - innlögnin er svo yfirfarin af starfs- ntönnum Iðnaðarbank- ans. Fjórir tölvubankar hafa veriö teknir í notkun, í útibúum Iðnaðarbankans við Lækjargötu, Háa- leitisbraut, Hafnarfiröi og nú síðast á Akureyri. Unnið er að uppsetningu tölvubanka í Garðabæ. Geta þeir sem eiga reikning í einhverju útibú- anna notað tölvubanka í hvaða útibúi sem er.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.