NT - 23.02.1985, Blaðsíða 2

NT - 23.02.1985, Blaðsíða 2
Laugardagur 23. febrúar 1985 ■ Hljómsveitin Fílharmónía á hljómleikum. Sjómenn ítrekuðu kröfur sínar í gær Utgerðarmenn höfnuðu þeim aftur Bein útsending frá Royal Festival Hall - til styrktar hljómlistarhöll ■ Enn einn árangurslaus sáttafundur var haldinn í deiiu sjómanna og útgerðar- manna í gærdag. Deiluaðilar komu fyrir sáttasemjara og ítrekuðu sjómenn kröfur sín- ar frá 19. þessa mánaðar. Ekki var um neinar undir- tektir að ræða frá útvegs- mönnum og sleit sáttasemj- ari fundi klukkan 18. Ekkert markvert gerðist á fundinum utan þess að samn- inganefndir sjómanna svör- uðu bréfi því sem útgerðar- menn sendu þeim í gær. í bréfinu sagði m.a. að samn- ' F.F.S.Í. og S.S.Í. teiji að þar sem staðfest dæmi eru þess að skip hófu veiðiferð eftir að verkfall hófst, sé brostin sú regla kjarasamn- ings sem segir að heimilt sé að ljúka veiðiferð sem hafin er áður en verkfall hefst. Guðjón A. Kristjánsson forseti F.F.S.Í. taldi að í Ijós hefði komið á fundi þeim sem haldinn var í gær að vilji útgerðarmanna til þess að ræða málin af alvöru væri ekki fyrir hendi. „Það er greinilegt að Kristján vill ekki fá fram sáttatillögu eins og málin eru í dag. Ég hygg að hann sé að kanna afstöðu útgerðarmanna til olíuverðs- hækkunarinnar." í samtali við Kristján Ragnarsson framkvæmda- stjóra LfÚ kom fram að ekkert hefði gerst á fundin- um. Aðspuröur hvort vilji útgerðarmanna til sátta færi dvínandi, svaraði Kristján því til að hann vísaði öllum slíkum ásökunum á bug. Óskar Vigfússon sagði að sjómenn hefðu lagt áherslu á sínar kröfur, og hefði þeim verið hafnað. „Og þar við situr rnálið". Að sögn Guðlaugs Þor- valdssonar ríkissáttasemjara verður tekin ákvörðun á morgun, um það hvenær næsti fundur verður boðað- ■ Næstkomandi þriðjudags- kvöld kl. 19.25 hefst bein út- sending útvarpsins frá Royal Festival Hall í Lundúnuni, þar sem hljómsveitin Fílharmónía Skák: Jusupov tefl- irfjöltefli ■ Sovéski stórmeistarinn Jus- upov teflir fjöltefli við a.m.k. 25 manns á mánudagskvöld. Taflið fer fram að Vatnsstíg 10, kl. 19.30 og er á vegum Menningar- samfcika íslands og Ráðstjórn- arríkjanna. Þáttaka tilkynnist í síma 17928, á sunnudag kl. 14-16 og mánudag eftir kl. 17. Saga Ólafsvíkur ■ Gísli Ágúst Gunnlaugsson sagnfræðingur hefur verið ráð- inn til að skrifa sögu Ólafsvíkur í tilefni þess að árið 1987 verða liðin 300 ár frá því að þar var Iöggiltur verslunarstaður. efnir til hátíðartónleika til styrkt- byggingu tónleikahúss í Reykja- vík. Stjórnandi á hljómleikun- um verður Vladimir Ashkenazy og Elisabeth Söderström syngur einsöng með hljómsveitinni, en kynnir í beinni útsendingu verð- ur Jón Múli Árnason. Þetta mun verða í fyrsta skipti sem tónlist er endurvarpað til landsins um gervihnött og í stereó, og því markar þessi útsending tímamót í sögu ríkis- útvarpsins, að því er fram kem- ur í fréttatilkynningu þaðan. Það er urn þúsund manna áhugahópur tónelskenda, sem síðastliðin tvö ár hefur unnið ötullega að því að safna fjár- magni í byggingu tónlistarhúss- ins. Að sögn Ármanns Arnar Ármannssonar, eins af forystu- mönnum byggingarinnar, þá hafa þegar safnast hátt á aðra milljón króna í sjóðinn, og í næsta mánuði mun verða efnt til norrænnar arkitektasamkeppni um hönnun hússins. Standa vonir til að húsið verði komið í notkun eftir sex ár. Meðal gesta á hátíðartón- leikunum á þriðjudagskvöld, verða Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands og Karl Breta- prins. Dómur um réttindi launþega: Mönnum ekki frjálst að velja sér stéttarfélag ■ Siglufjarðarbæ var ekki skylt að semja um laun starfsmanna sem gengið höfðu úr verkalýðsfé- laginu Vöku í Starfsmannafélag Siglufjarðar, þar sem stjórn Vöku hafði ekki samþykkt úrsögn starfs- mannanna úr félaginu. Þetta er niðurstaða dóms sem nýlega var kveðinn upp hjú bæjarfógeta- enibættinu á Siglufirði. Mál þetta reis árið 1983 þegar starfsmenn dagheimilis á Siglufirði gengu úr Vöku í Starfsmannafélag Siglufjarðar. Lög Vöku kveða á um að ekki sé heimilt að segja sig úr félaginu án samþykkis stjórnar og það samþykki fékkst ekki í þessu tilfelli. Bæjarstjórn Siglu- fjarðar neitaði síðan að semja um laun þessara starfsmanna í kjara- samningum á þeim forsendum að þeir væru ekki formlega séð full- gildir meðlimir Starfsmannafélags Siglufjarðar og vegna forgangs- réttarsamnings við verkalýðsfélag- ið. Starfsmannafélagið stefndi þá bæjarstjórninni fyrir dóm og féll sá dómur á þá lund að bæjarstjórn- in var sýknuð. Starfsmannafélag Siglufjarðar er innan BSRB og samkvæmt upplýsingum Haraldar Steinþórs- sonar framkvæmdastjóra BSRB var meiningin sú að láta reyna á það fyrir dómstólum hvert væri gildi laganna um kjarasamninga BSRB og reglugerða sem um þá fjalla. Haraldur vildi ekki tjá sig um dóminn þar sem hann hafði ekki enn séð hann en sagði að mál þetta gæti haft víðtæk áhrif þar sem landamæri milli félaganna væru víða óljós. Sumsstaðar væru bæjarstarfsmenn í starfsmannafé- lögum og sumsstaðar ekki og því gæti risið ágreiningur um það hvaða stéttarfélög skuli vera í fyrirsvari fyrir starfsfólk. Axel Axelsson, formaður Starfsmannafélags Siglufjarðar sagði í samtali við NT að spurning- in væri um hvort starfsmenn Starfsmannafélags Siglufjarðar væru opinberir starfsmenn eða ekki. „Dómurinn lítur ekki á SFS sem stéttarfélag samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. Við vissum það raunar að félagið væri ekki stéttarfélag samkvæmt þeim lögum, en það er fullgilt og iögverndað stéttarfélag samkvæmt lögum nr. 29/1976 um kjarasamn- ingaopinberrastarfsmanna. Dóm- urinn tekur ekki mið af því að til eru tvenn lög í landinu um stéttar- félög,“ sagði Axel, „og enga af- stöðu til þess hvort bænum beri skylda til að semja við SFS eða ekki. Þeir sem að dómnum standa hengja sig einfaldlega í það atriði að forgangsréttarákvæði Vöku sé í fullu gildi, án þess að taka afstöðu til þess hvort verkalýðsfé- lögum sé stætt á að sniðganga önnur stéttarfélög einsog þau séu ekki til staðar." Góðgerða- starfsemi ■ Ýmis góðkunn fyrirtæki styrkja Hvöt, kvenfélag Sjálfstæðisllokksins, með nokkurri peningaupphæð. Styrkveitingar þessar fara þannig fram að fyrirtækin kaupa styrktarlínur á bak- síðu fréttabréfs Hvatar. Ýmsum kann að þykja hálfskrýtið að fyrirtæki skuli þannig kjósa að merkja sig opinberlega ákveðnum stjórnmálaflokki en þó tekur Eftirtalin fyrlrtækl óska sin getlð i fréttabrefi Hvatar: nú fyrst steininn úr þegar ríkisfyrirtæki á borð við Brunabótafélag íslands skreytir þennan lista með nafni sínu. Okkur sem holurn stein- inn, þykir hins vegar ekkert furðurlegt að sjá Happdrætti S.Í.B.S. meðal styrktaraðila Hvatar. S.Í.B.S. er eins konar góðgerðafyrirtæki og að styrkja kvenfélagið Hvöt hlýtur að heyra undir þess konar starfsemi! Munaði litlu ■ Þessum stúlum við úr út- lendu blaði. Bandaríkjamað- ur nokkur hafði óskaplegan áhuga á að komast í þúsund feta klúbbinn sem svo er kallaður en til hans fá þeir einir að teljast sem klifrað hafa þúsund fet upp eftir húsvegg. Maðurinn varði 17 klukku- stundum í þessa klifur- mennsku og valdi til farar- innar ónefnda byggingu í Texas, þar sent allt er svo stórt, eins og ntenn vita. Menn geta svo ímyndað sér vonbrigði mannsins þegar hann konist loks upp á þak byggingarinnar eftir 17 tíma stanslaust erfiði og fékk að vita að húsið væri ekki nema 997 feta hátt. Fonnaður AJþýftuftokkt: Myndi reka Nordal Ég ætla nú að byggja minn eigin seðlabanka vinur! Jón tók helgina snemma ■ Grafarþörgn varð þegar Helgi Skúli Kjartansson, krati, afsakaði fjarveru Jóns Baldvins á fundi í MH síðast- liðið fimmtudagskvöld. „Jón Baldvin neyddist nefnilega til að taka helgina snemma að þessu sinni,“ sagði Helgi eins og ekkert væri. Dropateljarinn sat furðu lostinn í stól sínum og hugs- aði; er það nú orðið svona slæmt hjá krötunum. Á fund- um bera þeir út fylleríssögur um hvor annan og svo frani- vegis. En skýringin kom nokkr- um málsgreinum seinna hjá Helga. helgarnar hjá Jóni voru semsagt í því fólgnar að flandra um landið á fundar- herferðum og núna hafði hann skellt sér austur fyrir fjall. Semsagt engin misklíð milli Jóns og Helga...

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.