NT - 23.02.1985, Blaðsíða 23
íþróttamaður Reykjavíkur:
Bjarni Friðriksson
■ Bjarni Friðriksson var
kjörinn íþróttamaður Reykja-
víkur í gær. Bjarni náði eins og
alþjóð er kunnugt frábærum
árangri í íþrótt sinni á síðasta
ári og sannaði sig meðal bestu
júdómanna heims. Mót þau
sem hann keppti í á alþjóða-
vettvangi á síðasta ári voru
mörg og alltaf náði hann að
standa sig frábærlega og var
sjálfum sér og þjóð sinni til
sóma sem eftirbreytniverður
íþróttamaður.
Bjarni varð þriðji í 95 kg
flokki á 'Olympíuleikunum í
Los Angeles og var eini íslend-
ingurinn sem komst á verð-
launapall, raunar síðan Vil-
hjálmur Einarsson lék það af-
rek árið 1956. Bjarni varð
Norðurlandameistari í opnum
flokki á síðasta ári og annar í
95 kg flokki.
Islandsmeistaratitla Bjarna
mætti telja lengi dags og önnur
afrek.
■ Bjarni Friðriksson jú-
dókappi var í gær kjörinn
íþróttamaður Reykjavík-
ur. Bjarna þarf ekki að
kynna', hann vann ótal af-
rek á síðasta ári og er hann
þegar byrjaður að safna
verðlaunum á þessu. Hann
varð annar á opna skoska
meistaramótinu um
daginn.
Laugardagur 23. febrúar 1985 23
Punktar
■ Belgar urðu sigursælir
í þriðja árlega alþjóðlega
maraþonhlaupi Filippseyja
um helgina, en hlaupið var
í Manila. Belgar urðu í
tveimur efstu sætum í
karlaflokki og í efsta sæti í
kvennaflokki.
Jose Revjin, 37 ára að
aldri, sigraði á 2 klst.
21:11.1 mín.,oglandi hans
Luke Wageman, 25 ára,
sem hljóp á 2 klst, 25:46,9
mín. varð annar Douglas
Curtis frá Bandaríkjunum
varð þriðji.á 2 klst, 27:44,9
Denise Bersadent frá
Belgíu sigraði í kvenna-
flokki, hljóp á 2.48:48,0.
Önnur varð Leslie Watson
frá Bretlandi á 3.12:08,0
og þriðja Caroline Rogers
fráBretlandiá 3.14:23,0...
■ ...Tveir leikmenn hjá
Chelsea hafði skrifað undir
nýja samninga við félagið.
Þeir Nigel Spackman, sem
gerði 4 ára samning og
miðvörðurinn sterki Joe
McLaughlin gerði 5 ára
samning. Hann er nú
meiddur eftir leikinn gegn
Sunderland í mjólkurbik-
arkeppninni, handleggs-
brotinn.
B-keppnin í Noregi:
Norðmenn
unnu loks
- núítalí 26-23
Frá Amþrúdi Kurlsdóttur fréttamanni
NT í Noregi:
■ Þriðja umferð var leikin í HM-b í
Noregi í gærkvöldi. 8 leikir fóru fram og
úrslit urðu þessi:
A-riðill: Spánn-Tékkóslóvakia 20-22,
Noregur-Ítalía 26-23
B-ríðill: Finnland-Kongó 33-21,
Sovétríkin-Frakkland 24-18
C-riðill: Holland-Kuwait 22-15,
A.-Þýskaland-Búlgaria 24-13
D-riðill: Ísrael-USA 25-27,
Pólland-Ungverjaland 29-25
Eftir þessa leiki eru úrslit riðlanna
kunn og sömuleiðis ljóst hvaða lið leika
um 13.-16. sætið og þá sem C-þjóðir.
Það verða ísrael, Ítalía, Kongó og
Kuwait. Aðrar þjóðir í keppninni leika
um 1.-12. sæti. Efstu lið í riðlunum eru
Tékkóslóvakía í A-riðli með 6 stig,
Sovétríkin í B-riðli, með 6 stig, A,-
Þýskaland í C-riðli með 6 stig og í
D-riðli Pólland með 6 stig.
Norðmenn leika við Sovétmenn á
sunnudaginn, Bandaríkin við A-Þýska-
land. Búlgaría við Ungverjaland, Hol-
land við Pólland-Spánverjar leika gegn
Finnum, Tékkar gegn Frakklandi.
„Nú skall hurð nærri hælum“ sögðu
Norðmenn eftir sigur gegn ítölum. Þeg-
ar 10 mín. voru búnar af seinni hálfleik
var staðan 20-14 fyrir Noreg en þá
skoruðu ítalir þrjú í röð og minnkuðu
muninn í 20-17. Þá voru tveir ítalir
reknir útaf og Norðmenn komust í
23-17 og það bjargaði þeim líklega.
Seinustu mínúturnar voru hrein slags-
mál og 7 ítölum var vikið af velli en 6
Norðmönnum.
Norðmenn eru í riðli með Frökkum,
Finnum og Sovétmönnum og þeir verða
að vinna bæði Finna og Frakka til að
halda sér meðal B-þjóða.
Helgarsportið
■ Tveir leikir verða í úrvals-
deildinni í körfubolta um helg-
ina. í dag kl. 14.00 leika Haukar
og KR í Hafnarfirði og á morg-
un leika ÍR og UMFN í Selja-
skóla kl. 14.00.
Þrír leikir verða í 1. deild
karla, Þór og ÍBK leika seinni
leik sinn fyrir norðan í dag kl.
14.00 og á samta tíma eigast við
Fram og Reynir í Hagaskóla.
UMFL og UMFG leika í Njarð-
vík kl. 14.00. í 1. deild kvenna
leika KR og ÍS í Hagaskóla í dag
kl. 15.30 og á ntorgun leika í
Hafnarfirði Haukar og ÍR.
í handboltanum verður leikið
í 2. deild karla í dag. Þá mætast
Frani og KA í Laugardalshöl!
kl. 20.15 og í Hafnarfirði leika
Haukar og Þór, Akureyri kl.
20.00
Á morgun verða tveir leikir í
1. deild karla. UBK tekur á
nióti Víkingum og síðan Stjarn-
an á móti Þrótti. Báðir leikirnir
verða í Digranesi, sá fyrri hefst
kl. 20.00.
Ný Corolla - ný viðmiðun.
Hin nýja Corolla 1300 er hönnuð
til að vera fremst meðal jafningja og
gæðaflokki ofar en verðið segir til um. Léttbyggð og sparneytin 1,3 lítra, 12 ventla vélin
-er kraftmikil, enda nýjasta framlag Toyota til betrumbóta — sumir segja byltingar — á bíl
vélum. Aksturseiginleikar gerast vart betri. Framhjóladrif og 1. flokks fjöðrunar-og stýris
búnaður skapa mikinn stöðugleika og rásfestu. Farþega-og farangursrýmið stenst allan
samanburð hvað varðar nýtingu, þægindi og hagkvæmni.
Þú getur treyst Toyota Corolla — því ánægðum eigendum fjölgar stöðugt um allan heim.
TOYOTA
071
Nybýlavegi 8 200 Kópavogi S. 91-44144