NT - 23.02.1985, Blaðsíða 8
Laugardagur 23. febrúar 1985 8
þúsund manns síðastliðið
suniar, svo Ijóst er að þetta
mæltist vel fyrir hjá ferða-
mönnum. Örn Ingi sagði að
auk kaffiveitinganna hefði
ungt og hresst fólk, sem sann-
aði æskufjör landsins, verið
með uppákontur ýmiskonar til
að lífga uppá andrúmsloftið.
Um síðast liðin áramót var
stofnað nýtt rekstrarfélag um
Laxdalshús, af Erni Inga og
fleirum. Frá þeim tíma hefur
verið boðið uppá mat með
léttum veitingum á föstudaga-,
laugardags- og sunnudags-
kvöldum. Matreiðslumeistarar
Sjallans sjá um veitingarnar.
Þess má geta að vinsælt hefur
verið að fara og fá sér að borða
í Laxdalshúsi og svo á sýningu
hjá leikfélagi Akureyrar á
eftir. Þegar forseti íslands, frú
Vigdís Finnbogadóttir, kom á
síðustu sýningu á leikritinu Ég
er gull og gersemi á dögunum,
bauð Laxdalshús forsetanum
ásamt leikurum og starfsliöi
leikhússins í mat að aflokinni
sýningu.
Enn urn sinn ntun húsið
eingöngu verða opið um
helgar, en með hækkandi sól,
eða um leið og fólk vill þiggja,
vcrður aftur farið af stað með
kaffihúsið og útileikhúsið. Sú
nýbreytni verður þó á að einnig
verður boðið uppá mat. Fyrir-
hugað er að fjölga garðborðun-
um um helming, auk þess sem
baðstofusalurinn mun verða
tekinn í notkun bráðlega, og
rúntar hann um 50 manns.
Einnig er á dagskrá að byggja
■ Laxdalshús á Akureyri.
NT-mynd: Björn I*. Vo};ar
leiksvið úti í garði, svo og reisa
laufskála, þannig að hægt sé að
borða úti. Hvort tveggja yrði
síðan tekið niður að hausti.
Með tilkomu hins nýja bað-
stofusalar batnar öll aðstaða í
húsinu til muna. Það hefur
einnig þær breytingar í för
með sér að einn af litlu sölun-
unt á neðri hæðinni verður
tekinn undir setustofu með
bólstruðum bekkjum, þar sent
fólk getur setið og spjallað í ró
og næði.
Baðstofusalurinn gerir
einnig drauma um tengsl við
menningu ýmis konar að veru-
leika. Þar er góð aðstaða til
tónlistarflutnings og upplestra.
Gert er ráð fyrir glerlistargall-
eríi og þar væri unnt að halda
málverka- og Ijósmyndasýn-
ingar. Slíkir viðburðir fara þó
eftir áhuga þeirra er staðinn
sækja og það er einnig undir
þeim komið, eða öllu heldur
aðsókninni hvert áframhald
verður á rekstri hússins. Þótt
allt sé hægt,ef viljinn er fyrir-
hendi, þá er það alltaf spurn-
ingin um bókhaldið og lífsaf-
komuna í nútíðarþjóðfélagi
Laxadalshús var upphaflega
nýtt sem íbúðarhús, og má
geta þess að húsiðisem er um
140 fermetrar, hýsti um skeið,
þegar mest var, fjórar fjöl-
skyldur með 40 meðlimi. Ekki
var þó alltaf svo margt unt
manninn í Laxdalshúsi, því sá
maður sem húsið er kennt við,
Eggert Laxdal bjó einn í hús-
inu. Eggert þessj var nteð best
stæðu ntönnum á Akureyri á
sínunt tíma og hélt hann miklar
garðveislur sem voru rómaðar
á Akureyri og víðar. Segja má
og því var lokað. Að sögn
Arnar Inga virtust Akureyr-
ingar ekki finna sig í að sækja
staðinn, og margar spurningar
hefði hann fengið þess efnis,
hvort hann væri búinn að loka,
eða hvenær hann myndi loka.
A sólríkum dögunt norðlensks
sumars var hins vegar oft set-
inn Svarfaðardalur, og færri
komust að en vildu. Einungis
neðri hæðhússinsvarí noktun,
en einnig voru borð fyrir unt 30
manns úti í garðinum. Laxdals-
hús rnun nær eina útikaffihúsið
á íslandi. Þangað komu um tíu
■ Þann 9. júní 1984 opnaði
Örn Ingi kaffihús í elsta húsi
Akureyrar, Laxdalshúsi, en
það var reist árið 1795. Frá
opnunardegi og framundir
haustnætur var húsið rekið sem
slíkt, en þá fór ferðamönnum
fækkandi og um leið brast
rekstrargrundvöllur hússins,
■ Vigdís Finnhogadóttir,
forscti og Sveinn Einarsson,
lcikstjóri, við komuna í Lax-
dalshús.
Mynd: K.G.A.
Hér hef ég aldrei
heyrt fólk deila
- segir listamaðurinn Örn Ingi sem rekur matsölustað með
menningarlegu ívafi í Laxdalshúsi á Akureyri
Sigfús og Vilhjálmur öruggir á Akureyri
■ Selfyssingarnir Sigfús
Þórðarson og Vilhjálmur Þ.
Pálsson, unnu Minningarmót-
ið á Akureyri, sem haldið var
um síðustu helgi.
149
Sigfús og Vilhjálmur byrj-
uðu að spila saman aftur í
haust eftir nokkurt hlé en þeir
voru hér í dentíð óumdeilan-
lega sterkasta bridgepar lands-
ins utan Reykjavíkur. Og þeir
hafa þegar náð sínum fyrri
styrkleika og gott betur því
þetta er annað helgarmótið
sem þeir vinna í vetur.
70 pör tóku þátt í mótinu á
Akureyri sem haldið var til
minningar um Angantý Jó-
hannesson og Mikael Jónsson.
‘ 22 pör komust áfram í úrslita-
keppnina.
Bræðurnir Asgrímur og Jón
Sigurbjörnssynir frá Siglufirði
unnu undankeppnina en í úr-
slitakeppninni tóku Sigfús og
Vilhjálmur snemma forustuna
og héldu henni til loka.
Röð efstu para varð þessi:
Sigfús Þórðarson -
65
Vilhjálmur Þ. Pálsson
Eiríkur Helgason -
Jóhannes Jónsson
Jón Baldursson -
Þórarinn Sigþórsson 57
Þórarinn B. Jónsson -
Páll Jónsson 53
Hörður Arnþórsson -
Örn Arnþórsson 44
Spilað var í reyklausu lofti í
Síðuskóla á Akureyri
Heiisubridge 1985
Hin árlega tvímennings-
keppni heilbrigðisstétta, sem
hlotið hefur nafniö Hcilsu-
bridge var háð 13. febrúar. Að
þessu sinni var spilað um veg-
legan farandbikar auk verö-
launapeninga en öll verðlaun
voru gefin af Delta h/f. Þegar
reiknimeistari hafði fengið
nægilega langan tíma til að
reikna sig í efsta sætið leit röö
efstu para þannig út:
1. Þórður Harðarson -
SigurðurB. Þorsteinss. 129
2. Reynir Kjartansson -
Kjartan Kjartansson 126
3. Ólöf Jónsdóttir -
Gísli G. Hafliðason 122
4. Runólfur Pálsson -
Hrafnkell Óskarsson 121
5. Jóhanna Kjartansdóttir -
BcrnharðGuömundss. 115
Meðalskor 110 stig
Frá Bridgedeild
Skagfirðinga
Að þrcntur umferðum
óloknum, eftir 12 umferðir, er
staða efstu sveita hjá félaginu
í aðalsveitakeppni félagsins
þessi:
Guðrún Hinriksdóttir 253
Magnús Torfason 244
Gísli Stefánsson 229
Hjálmar Pálsson 198
Óli Andreasson 196
Breiðholti. 10 sveitir taka þátt
í mótinu í hvorunt tlokki en
fjórar efstu sveitirnar munu
spila í úrslitum sem verða um
aðra helgi.
Spilamennska hefst í dag kl.
18.00 en kl. 13.00 á morgun.
Islandsmót kvenna
ogyngri spilara
íslandsmót kvenna og yngri
spilara í sveitakeppni hófst í
gærkvöldi í Gerðubergi í
Bridgehátíð 1985
Skráningu í tvímennings-
keppni Bridgehátíðar 1985
lýkur n.k. mánudag, 25. febrú-
ar. Þegar hafa um 30 pör sótt
um þátttöku. Skráningu í
Opna Flugleiðamótið í sveita-
keppni lýkur miðvikudaginn
6. mars.
Hægt er að skrá sig hjá
Bridgesambandi íslands, s. 91-
18350, eða hjá Jóni Baldurs-
syni á kvöldin ísíma 91-77223.
Nú er öruggt að Ólyntpíu-
meistarar Pólverja koma á
mótið en einnig er víst að ítalir
koma ekki þar sem þeir voru
skráðir á annað mót á sama
tínia.
Guðmundur Sv. Hermannsson
Bridgedeild Breiðfirðinga
Röð efstu para í aðaltví-
menning félagsins hefur lítið
breyst frá fyrri kvöldum, nú
þegar 30 umferðum er lokið af
47. Þetta er staðan nú:
Halldór Jóhannesson -
Ingvi Guðjónsson 509
Bjarni Jónsson
Sveinn Jónsson 443
Gísii Víglundsson -
Þórarinn Árnason 429
Bragi Erlendsson -
Ríkarður Steinbergss. 405
Baldur Ásgeirsson -
Magnús Halldórsson 376
Hans Nielsen -
Lárus Hermannsson 279
Birgir Sigurðsson -
Öskar Karlsson 254
Bridgedeild Rangæinga
Að sjö umferðum loknum í
aðalsveitakeppni félagsins er
staða efstu sveita þessi:
Lilja Halldórsdóttir 151
Sigurleifur Guðjónsson 140
Baldur Guðmundsson 137
Gunnar Helgason 133
Bridgedeild Húnvetninga
Staðan eftir 7 umnferðir í
aðalsveitakeppni félágsins er
þessi:
Jón Oddsson 111
Hreinn Hjartarson 107
Halldóra Kolka 104
Valdemar Jóhannsson 96
Halldór Magnússon 93
Bridgefélag Reykjavíkur
Nú er aðaltvímennings-
keppni B.R. hálfnuð og hafa
Sínton Símonarson og Jón Ás-
björnsson og Stefán Pálsson
og Rúnar Magnússon gott for-
skot á næstu pör. Eina nýja
parið í toppbaráttunni er Stef-
án Guðjohnsen og Þórir Sig-
urðsson, sern eru komnir í 4
sætið.
Athyglisvert er að 30 pör af
42 eru í plús svo mínusinn
virðist safnast á fárra hendur.
Þau pör sent hafa yfir 100
stig eru:
Símon Símonarson -
Jón Ásbjörnsson 291
Stefán Pálsson -
li