NT - 23.02.1985, Blaðsíða 22
11
Laugardagur 23. febrúar 1985 22
Iþröttir
Þorleifur Ananíasson
- leikur brátt sinn 500. leik fyrir KA
Frá Gylfa Krislján.ssyni fréttamanni NT á
Akureyri:
■ Þegar Þorleifur Ananíasson
handknattleiksmaður í KA hóf
að leika með meistaraflokki
félagsins, voru margir þeir er
leika með honum í liðinu í dag
ekki fæddir. Þetta var árið
1964 og allt síðan hefur Leibbi
eins og hann er kallaður verið í
fullu fjöri með KA.
Nú nálgast sá merkilegi
áfangi hjá honum að leika sinn
500. leik í meistaraflokki KA,
■ Gunnar Gunnarsson í Sporthúsinu á Akureyri og Karl
Frímannsson skíðaþjálfari.
Karl semur við
Atomic umboðið
Frá Gylfu Kristjánssyni, fréttamanni NT á
Akureyri:
■ Sporthúsið á Akureyri og
Atomic-umboðið á íslandi hafa
gert samning við Karl Frí-
mannsson sem er einn af þjálf-
urum Skíðaráðs Akureyrar.
í samtali við Dag sögðuþeir
Karl og Gunnar Gunnarsson
hjá Sporthúsinu að samningar
sem þessi væru mjög algengir á
milli framleiðenda skíðavara
annarsvegar og þjálfara og af-
reksmanna í skíðaíþróttinni
og hefur aðeins einn hand-
knattleiksmaður hérlendis náð
þeim áfanga áður að leika svo
marga leiki með sama félaginu
í meistaraflokki, en það er
Birgir Björnsson FH.
Leikir Þorleifs eru orðnir
495 talsins, og nú um helgina
bætast tveir við er KA leikur
gegn Fram og HK í 2. deildinni.
Um næstu helgi á KA svo að
leika aðra tvo leiki í 2. deildinni
og þá vantar Þorleif aðeins
einn leik í 500 leikja áfangann.
Fyrirhugað er að setja upp
sérstakan leik af því tilefni á
Akureyri, en ekki hefur verið
ákveðið hverjir verða andstæð-
ingar KA þá. Rætt hefur verið
um að reyna að fá FH-inga til
þess leiks, eða setja saman
úrvalslið til þess að mæta KA,
hinsvegar. Karl fékk afhent frá
Atopric-umboðinu og Sport-
húsinu Atomic skíði og stafi,
Salomon skó og bindingar og
auk þess allan annan útbúnað
svo sem skíðagalla, gleraugu
o.fl.
Karl er sem fyrr sagði einn af
þjálfurum Skíðaráðs Akureyr-
ar í vetur. Hann sér um þjálfun
þriggja keppnisliða, 10-12 ára,
14-16 ára og einnig er hann
bæði með karla- og kvennalið
Akureyrar.
Bikar-
glíma
■ Bikarglíma Glímu-
sambands íslands verður
haldin í íþróttahúsi Mela-
skóla á morgun og hefst
hún kl. 14:00. Keppendur
að þessu sinni eru 13.
Real góðir
íkörfu
■ Real Madrid burstaði
Maccabi Tel Aviv í
undanúrslitum Evrópu-
keppni meistaraliða í
körfuknattleik í gær í
Madrid.
Spánverjar skoruðu
100 stig en ísraels-
mennirnir aðeins 76.
Staðan í hálfleik var 51-38
fyrir Real.
Leiðrétting
■ í blaðinu í gær var
sagt að Skíðaráð Reykja-
víkur hefði staðið fyrir
skíðamóti framhaldsskól-
anna. Það er ekki rétt,
Skíðafélag Reykjavíkur
hélt mótið.
1 og að Alfreð Gíslason yrði
fenginn til þess að leika með
KA.
Þorleifur hefur um langt ára-
bil verið styrkasta stoð KA-
liðsins, og hann lætur ótrúlega
lítið á sjá þrátt fyrir að árunum
hafi fjölgað. Oftlega var hann
orðaður við landslið hér á árum
áður sem einn albesti línumað-
ur landsins, en menn hafa haft
á orði að hann hafi ekki fengið
landsleiki vegna þess að hann
bjó á Akureyri og KA hefur
yfirleitt leikið í 2. deild.
Þorleifur Ananíasson hefur leikið 495 leiki með KA.
Kvennaknattspyrna:
Blóðtaka hjá Val
- tvær stúlkur úr liðinu leika á Ítalíu
■ Tvær íslenskar knattspyrnu-
stúlkur, Bryndís Valsdóttir og
Kristín Briem, leika nú knatt-
spyrnu með ítölsku fyrstudeild-
arliði í knattspyrnu. Giugliano,
og munu ekki leika með Val í
fyrstudeildarkeppninni í
sumar. Er það mikil blóðtaka
fyrir Valsliðið, sem lengi hefur
verið í toppbaráttunni í
kvennaboltanum, var m.a.
bikarmeistari á síðasta ári og
barðist við Breiðablik og Akra-
nes um íslandsmeistaratitilinn
harðri baráttu.
Bryndís, Kristín og þriðja
Valsstúlkan, Helena Onnu-
dóttir fóru í ferðalag um Evr-
ópu í haust. Þær komu til
Giugliano á Italíu eftir að hafa
dvalist um tíma í Grikklandi,
og þá gerðist það að þær stöllur
hittu einn af forráðamönnum
fyrstudeildarliðs Giugliano að
máli fyrir tilviljun. Komst hann
þar með að því að þær væru
knattspyrnukonur frá íslandi,
og bauð þeim að reyna sig á
æfingu. Það varð endanlega úr
að þær Bryndís og Kristín á-
kváðu að prófa að leika með
liðinu úr því að þeim bauðst
það, en Helena sneri heim.
A Ítalíu er atvinnumennska
að nokkru leyti í kvennaknatt-
spyrnu, þar leika m.a. tvær af
sterkustu knattspyrnukonum
heims frá Norðurlöndum, Pia
Sundhagen frá Svíþjóð, og
Lone Smith Hansen frá Dan-
mörku. Þær stöllur, Bryndís og
Kristín munu fá greiðslur frá
Iiðinu sem duga þeim til fram-
færslu, en þær munu nú vera að
leita að vinnu í Giugliano.
Giugliano varð í 8. sæti í 1.
deildinni á Ítalíu í fyrra, en þar
keppa 12 lið. Liðið er þó ekki
svo ýkja sterkt, og segir Bryn-
dís að Valur sé með sterkara
lið. ítalskur kvennafótbolti er
þó mjög sterkur á heimsmæli-
kvarða, ítalir eru taldir í flokki
með sterkustu þjóðum heims,
svo sem Svíþjóð, Danmörk og
Englandi. En mikill munur er á
sterkustu liðunum og þeim
veikari í deildinni.
Keppnistímabilinu á Ítalíu
lýkur í ágúst, svo að þó stúlk-
urnar komi heim að loknu
keppnistímabilinu ytra, ná þær
ekki að leika með Val í sumar.
Knattspyrna:
Fjör í S-Ameríku
■ Suður-Ameríkuliðin undir-
búa sig nú af miklum krafti
fyrir undankeppni HM sem
hefst í sumar og leika marga
æfingaleiki. I gær fóru tveir
slíkir leikir fram: Chile og Kol-
ombía gerðu jafntefli 1-1. Kól-
ombíumenn tóku forystuna á
34. mínútu með marki Viafores
en Chilebúar náðu að jafna á
síðustu stundu. Letelier skor-
aði mark þeirra á 89. mínútu.
Hinn leikurinn var í Equador
þar sem Bólivíumenn voru í
heimsókn. Ekki sóttu þeir gull
í greipar heimamanna, því
leikurinn fór 3-0 fyrir Equador.
Staðan í hálfleik var 1-0, Mald-
onado skoraði á 22. mínútu en
í seinni hálfleik bættu þeir Ben-
itez á 65. mín. og Villafuerte á
70. mín. um betur. 24.600
áhorfendur sáu leikinn.
Hlyr og litríkur
vetur
Vertu hlýlega klædd í vetur í
fallegum og hlýjum hnésokkum
eða sokkabuxum frá
Fjölmargir klæðilegir litir
Þér líður vel í
ub'r<§■: mmST/l . I H
merióha r
simi 82700
KA vann Þór
- á Akureyrarmótinu í handbolta
Frá Gylfa Krístjánssyni iréttamanni NT á Akureyri:
■ KA sigraði Þór með einu marki í fyrri leik
liðanna í Akureyrarmótinu í handknattleik.
Leikurinn var æsispennandi undir lokin og það
var ekki fyrr en á lokasekúndum leiksins að KA
hafði fram sigur 26:25.
Nokkuð var um forföll í báðum liðum og
vantaði KA t.d. tvo lykilmenn. Leikurinn var
mjög jafn, jafnt á öllum tölum upp í 7:7 en Þór
leiddi í hléinu 13:11.
Sami barningurinn var í síðari hálfleik, barist
um hvern bolta og staðan var 15:15 þegar
nokkuð var búið þá. Liðin voru yfir til skiptis
eftir það, en tókst hvorugu að ná afgerandi
forskoti. Þórsarar hefðu þó átt að ná öðru
stiginu a.m.k., þeir voru mark yfir er ein og hálf
mínúta var eftir og þeir höfðu boltann.
Þeir töpuðu boltanum og er 40 sek. voru tii
leiksloka skoraði Anton Pétursson jöfnunar-
markið 25-25 og þegar 4 sek. voru eftir skoraði
hann svo sigurmarkið. Þess má geta að Anton
er sonur Péturs Antonssonar sem lék með FH
hér á árum áður.
Markahæstu leikmenn liðanna voru Friðjón
Jónsson með 9 fyrir KA og Sigurður Pálsson
fyrir Þór með 12 mörk.