NT - 23.02.1985, Page 3
Laugardagur 23. febrúar 1985 3
%íl.gæðaflokk % í háan gæðaflokk
Ferskfiskur Saltfiskur Fryst flök
Lifandi blóðgaður 98.4 91.8 70.5
Dauðblóðgaður (4 klst) 63.3 58.3 18.3
Verðhækkun 12.3%
Vísindamenn fordæma fræðslu-
mynd sjávarútvegsráðuneytisins
Ráðuneytið gerir ráð fyrir dauðblóðgun þorsks sem sjálfsögðum hlut
■ Rannsóknarstofnun fisk-
iðnaðarins hefur gagnrýnt þau
vinnubrögð sem sjávarútvegs-
ráðuneytið sýnir til fyrimyndar í
vinnslu í myndinni, „Á fiski-
slóð“ og vitnar þar til rannsókna
sem sýna að vinnubrögð sem
þarna eru sýnd minnka verð-
mæti fisksins verulega.
Pað atriði sem hér er átt við
er þegar skipverjar á togaranum
Kolbeinsey taka inn 40 tonna
hal af þorski. Segir í fréttatil-
kynningu Rannsóknarstofnun-
arinnar að svo sé af myndinni að
skilja að lítið sé við þessi vinnu-
brögð að athuga. Um þessi
vinnubrögð segir Rannsóknar-
stofnunin:
„Gera má ráð fyrir að það
taki 12 menn u.þ.b. 8 klst. að
■ Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins segir að í fræðslumynd um
veiðar og meðferð afla sé beinlínis gert ráð fyrir að stór hluti afla
sé dauðblóðgaður en taflan hér að ofan sýnir verðmætarýrnun sem
af því verður.
Háskólinn:
Brautskrán-
ing í dag
■ í dag fer fram brautskráning
kandídata frá Háskóla íslands
og hefst athöfnin í hátíðarsal
háskólans kl. 14.00. Að þessu
sinni verða brautskráðir 52
kandídatar, þar af fimmtán í
viðskiptagreinum, tólf í raun-
greinum og sjö úr heimspeki-
deild.
blóðga og slægja 40 tonn af
þorski. Pannig hafa a.m.k. 20
tonn af umræddum fiski legið
óaðgerð í móttöku skipsins í
meira en 4 klst.“ Þá vitnar
stofnunin til rannsókna sinna
sem sýna verulega verðmæta-
rýrnun á fiski sem er dauðslægð-
ur, þ.e. slægður fjórum tímum
eftir hal.
Eru það tilmæli Rannsóknar-
stofnunarinnar að fræðslu-
myndin verði lengd og gerð
grein fyrir þessu atriði sérstak-
lega. Sem kunnugt er var um-
rædd mynd sýnd í sjónvarpi 20.
þessa mánaðar.
■ Páll Guðmundsson við eina af höggmyndum sínum.
Kjarvalsstaðir:
NT-mynd: Sverrir
Höggmyndir úr Húsafellsgrjóti
■ í dag verður opnuð á Kjar-
valsstöðum sýning á höggmynd-
um eftir Pál Guðmundsson á
Húsafelli. Páll vinnur verk sín í
grjót sem komið er úr Bæjargil-
inu við Húsafell og er hvergi
annars staðar að finna að því er
segir í sýningarskrá.
Páll Guðmundsson stundaði
nám við Myndlista og handíða-
skólann á árunum 1977-1982
þar sem kennari hans í högg-
myndum var Sigurgeir Haralds-
son og einnig nam hann högg-
myndalist hjá Hallsteini Sveins-
syni. Hann hefurhaldiðnokkrar
einkasýningar og verið með á
samsýningum.
Kennarar á
Suðurnesjum:
Stöndum
við upp-
sagnirokkar
- höfumekki
efni á að vera
kennarar lengur
■ „Við höfum ekki efni
á að vera kennarar lengur
og af þeirri einu ástæðu
munum við standa við
uppsagnir okkar 1. mars
ef ekki semst um verulegar
kjarabætur fyrir þann
tíma“ segir i bréfi tuttugu
kennara Fjölbrautaskóla
Suðurnesja til mennta-
málaráðherra.
í bréfinu segir að kenn-
arar eigi flestir um tvo
kosti að velja, og báða
slæma: Að lenda í mála-
vafstri við menntamála-
ráðuneytið eða missa
húsnæði sitt undir hamar
fógeta þar eð þeir standi í
glímu við „afborgunar-
kerlinguna". „Við metum
yfirlýstan vilja yðar til að
bæta hag kennara en þegar
afkoma bús og barna er í
húfi er fógetahamarinn
harðari húsbóndi en um-
deildar lagagreinar og
óskilgreind ábyrgð okkar
á velferð og menntun ís-
lenskra ungmenna" segir í
niðurlagi bréfsins. ,
NT-mynd: Sverrir
Rut Rebekka
Rut Rebekka á Kjarvalsstöðum
■ í dag verður opnuð á Kjar-
valsstöðum sýning á verkum
Rutar Rebekku myndlistar-
konu, og sýnir hún 43 myndir
unnar í olíu, silkiþrykk og
akryl.
Rut stundaði nám í Myndlist-
arskólanum í Reykjavík 1975-
78 og brautskráðist úr Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
1982. Hún hefur tekið þátt í
samsýningum hérlendis og í
Bandaríkjunum og haldið
einkasýningar hér heima og í
Viborg í Danmörku.
Viðskiptaráðuneytið:
Lagasetning um verð-
bréf á næsta leiti
■ Viðskiptaráðherra hefur
skipað nefnd sem ætlað er að
semja reglur um meðferð og
sölu skuldabréfa. Nefndinni er
falið að athuga hvort rétt sé að
binda starfsemi verðbréfamiðl-
ara við sérstakt starfsleyfi, svo
og hvort ástæða sé til að herða
eftirlit með þessum viðskiptum,
m.a. með kröfum um nafna-
skráningu skuldabréfa og upp-
lýsingaskyldu verðbréfamiðl-
ara gagnvart almenningi og
stjórnvöldum.
Pessar upplýsingar koma
fram í frétt frá viðskiptaráðu-
neytinu. Nefnd þeirri sem kom-
ið var á laggirnar er einnig ætlað
að kanna skattalega meðferð
skuldabréfa og koma með tillög-
ur til úrbóta í því efni.
Formaður nefndarinnar er
Sigurgeir Jónsson, aðstoðar-
bankastjóri í Seðlabankanum.
Aðrir nefndarmenn eru: Árni
Kolbeinsson, skrifstofustjóri í
fjármálaráðuneytinu, Eyjólfur
K. Jónsson, alþingismaður,
Gestur Jónsson, hrl., og
Markús Sigurbjörnsson, lög-
fræðingur.
aWa ''C
OP‘
Fyrir aðeins 390 kr.
Bakaríið KRINGLAN
Starmýri 2
Frábærar tertur