NT - 23.02.1985, Blaðsíða 10
Laugardagur 23. febrúar 1985 10
Áttræður:
Sigurður M. Sveinsson
fyrrv. bifreiðaeftirlitsmaður Reyðarfirði
■ Hversu hraöfleyg er stundin,
og ört líður ævitíð. Og þó. Enn
er hann léttur í spori, enn léttari
í máli, andinn hress og óbugað-
ur, tilsvörin sem fyrr, kímin og
mergjuð. Og samt er mér tjáð,
að hann Sigurður sé áttræður í
dag. Um aldur þýðir víst ekki
að þræta við kirkjubækur, jafn-
vel þó af Suðurlandi séu.
Fáeinar línur á hann skilið frá
mér og mínum, þó ekki væri
annað en til að óska honum
allra heilla á heiðursdegi og
árna honum hamingjuríkra líf-
daga lengi enn og þakka honum
góð og gjöful kynni. Ég ætti
máske að minna sjálfan mig á
að þakka honum fyrir morgun-
ferðirnar fyrir 30 árum, þegar
þrautarlendingin var ævinlega sú
sama í hríð eða stórrigningu að
hringja í Sigurð og fá hann til að
ná í kennarablókina, sem ekki
treysti sér til þess að fara þessa
þrjá kílómetra í veðurofsanum.
Reyndar er þrautarlendingin
ekki rétta orðið, því af annarri
eins Ijúfmennsku hefur ekki
verið tekið í mín erindi fyrr né
síðar. Eða mætti máske hverfa
til nútímans og þakka fyrir dótt-
ursynina mína, sem dýrka hann
og þarf engan að undra sem til
þekkir.
Já, margt mætti rifja upp af
mætum minningum gömlum
sem nýjum. Mest er þó um vert,
að maðurinn er ævinlega jafn
sannur og samkvæmur sjálfum
sér. Gamansemin og þessi tindr-
andi glettnu tilsvör og orðtök
eru raunar sérgrein hans og
sögur um það landfleygar, enda
er oröheppnin með afbrigðum.
Ég veit Sigurður fyrirgefur mér,
þó ég minni á söguna um vininn,
sem orð fór af að ekki væri alltaf
í sem bestu lagi undir stýri.
Pegar Sigurður frétti af röskleg-
um útafakstri hans varð honum
að orði: Ja, nú hefur vinurinn
verið „edrú“. Já gaman væri nú
að eiga sagnasafniö, þó ekki
væri nema að hluta og njóta
þessara einstöku eðliskosta
þinna og láta aðra njóta þar af.
Ymislegt hefur Sigurður
starfað um dagana, en lengst
var hann í starfi bifreiðaeftirlits-
manns á Austurlandi. Pað starf
mun vart með vinsælli störfum,
allir þykjast vera í rétti, allt er í
lagi hjá þeim, þeirra bifreið
auðvitað allra best allra og ekk-
ert að.
En svo vel þekki ég til um
Austurland allt, að erfitt hygg
ég að yrði að finna nokkurn,
sem bæri kala í brjósti til Sigurð-
ar fyrir störf hans, hversu sem
dómarnir kunna að hafa verið
um bifreið viðkomandi á hverj-
um tíma. En góðvinina á hann
ótalmarga vítt um svæðið.
Vinsældir hans má rekja beint
til samviskusemi hans og rétt-
sýni og ekki spillti glaðværðin
og góðvildin. Pað var ekki emb-
ættismannahrokinn eða mikil-
lætið, sem einkennir alltof
marga, sem miklast af öðru en
eigin verðleikum.
Frá þessum ferðum hans, sem
oft voru erfiðar og erilsamar eru
margar kunnar sögur, sem lifa á
stöðunum, umvafðar þeirri
hlýju sem fylgdu manninum
hvarvetna. Einlægni Sigurðar
dregur enginn í efa, sem til
þekkir, hreinskilni hans er við
brugðið, tæpitungulaust er allt
hans tal og tepruskapur og
„snobb" eru honum sérstök
andstyggð. Barngæði hans eru
sérstök og hið góða hjartalag
nýtur sín hvergi betur en þar.
Ekki ætla ég að skiljast svo
við þessa árnaðarósk til Sigurð-
ar að ég ekki geti um ákveðni
hans í skoðunum, þar hafa sam-
vinnuhugsjón og sönn félags-
hyggja átt fulltrúa góðan og
tryggan talsmann og þar með
Framsóknarflokkurinn.
En aldrei liefur pólitískur
ágreiningur skyggt á vináttu
okkar, enda von, þar sem sjón-
armið hins eru virt og ofstæki
víðs fjarri svo Ijúfum manni.
Freistandi væri að gera lífs-
hlaupi hans verðugri skil en
verða gerð hér í stuttri afmælis-
kveðju, bregða upp gleggri
mynd af mannkostadreng, sem
skilað hefur sínu lífsstarfi með
sóma og lífgað upp á umhverfi
sitt með lifandi léttum hnyttiyrð-
um, sem marga hafa glatt, en
enga sært. Það bíður næsta
tugar.
Sigurður er fæddur að Öxna-
læk í Ölfusi 23. feb. I905.
Foreldrar hans voru hjónin Sig-
ríður Magnúsdóttir og Sveinn
Hannesson bóndi þar. Systkini
hans voru fjögur. Sigurður ólst
upp þar í Ölfusinu, en ungurfór
hann til Reykjavíkur, fór þar að
vinna hjá Vegagerð ríkisins á
veghefli og þótti afburða verk-
laginn og hæfur, jafnt við heflun
sem viðgerðir. 1931 er hann svo
sendur með fyrsta snjóbílinn
austur á Reyðarfjörð og þar
verður svo starfsvettvangur
hans upp frá því, fyrst sem
verkstjóri hjá Vegagerð ríkisins
og síðan bifreiðaeftirlitsmaður.
Eiginkonu sinni Björgu Bóas-
dóttur, Reyðarfirði, kvæntist
hann 1932 og það var gæfuspor
fyrir bæði. Þau eiga stóran og
gjörvilegan barnahóp.
Ekki hefur húsmóðurstarfið
hennar Beggu verið erfiðislaust,
en létt lund og ágætt atgervi
hennar skiluðu henni yfir alla
örðugleika. Gott hefur verið að
kynnast elskusemi hennar,
hjálpfýsi og glaðlyndi og á síð-
ustu árum hefi ég hlotið þá
ánægju að kynnast henni enn
betur, áhuga hennar á hinum
margvíslegustu málum, ákveðn-
ar skoðanir og lifandi skilning-
ur, þó ljúflyndið við mitt fólk
beri þar hæst. Samhent komu
þau hjón upp barnahópnum sín-
um stóra, oft við þröngan kost,
en aldrei var iðrast og þá voru
nýtni og sparsemi dyggðir, sem
dugðu vel þeim, sem þær áttu.
Börn þeirra eru í aldursröð:
Oddný húsmóðir, búsett í
Noregi, Sigríður, verslunarm.
nú í Reykjavík, María, meina-
tæknir á Akureyri, Sveinn vél-
stjóri í Hafnarfirði, Bóas bif-
reiðaeftiriitsmaður á Eskifirði
og Karl verkstjóri hjá Reykja-
víkurborg, búsettur í Kópavogi.
Eitt barn þeirra dó í fæðingu.
Sigurður eignaðist eina dóttur
fyrir hjónaband sitt, Svövu
hæstaréttarritara í Reykjavík.
Hlý er hamingjuóskin til Sig-
urðar í dag, yljuð þökk fyrir
ótaldar ánægjustundir. Megi
farsældin fylgja þér og þinni
góðu konu á gæfubraut, og
njóttu áfram alls hins besta,
hress og horskur, sem ávallt
áður. Lifðu heill, vinur kær.
Helgi Seljan.
Árbæjarprestakall:
Barnasamkoma í safnaðar-
heimilinu kl. 10:30 árdegis.
Guðsþjónusta kl. 2. Organ-
leikari Jón Mýrdal.
Miðvikudagur 27. febrúar,
fyrirbænarstund í safnaðar-
heimilinu kl. 19:30.
Fimmtudagur 28. febr. Sam-
verustund fyrir foreldra ferm-
ingarbarna í safnaðarheimilinu
kl. 20:30. Dagskrá og kaffiveit-
ingar. Séra Guðmundur Þor-
steinsson.
Bústaðakirkja:
Barnasamkoma kl. 11. Guðs-
þjónusta kl. 2. Séra Pálmi
Matthíasson og kirkjukór Lög-
mannshlíðarkirkju á Akureyri
flytja messuna.
Konukvöld Bræðrafélagsins
kl. 20:30 sunnudagskvöld.
Þriðjudagur fundur ÆFB
Miðvikudagur félagsstarf aldr-
aðra milli 2 og 5.
Föstumessa miðvikudagskvöld
kl. 20:30.
Séra Ólafur Skúlason.
Elliheimilið Grund:
Guðsþjónusta kl. 10:00 f.h.
séra Arelíus Níelsson.
Fella-og Hólaprestakall:
Laugardagur: Barnasamkoma
í Hólabrekkuskóla kl. 14:00.
Sunnudagur: Barnasamkoma í
Fellaskóla kl. 11:00. Guðs-
þjónusta í Menningarmiðstöð-
inni við Gerðuberg kl. 14: 00.
Séra Hreinn Hjartarson.
Neskirkja:
Laugardagur: Samverustund
aldraðra kl. 15:00. í umsjá
Hverfafélags sjálfstæðismanna
í Nes- og Melahverfi. Svala
Nielsen syngur einsöng við
undirleik Reynis Jónassonar
og Sigríður Hannesdóttir flyt-
ur gamanmál. Undirleikari
Aage Lorange. Sr. Frank M.
Halldórsson.
Sunnudagur: Barnasamkoma
kl. 11:00, séra Guðmundur
Óskar Ólafsson. Guðsþjón-
usta kl. 14:00, séra Frank M.
Halldórsson.
Mánudagur: Æskulýðsstarf kl.
20:00.
Fimmtudagur: Biblíulestur kl.
16:30, séra Guðmundur Óskar
Ólafsson. Föstuguðsþjónusta
kl. 20:00, sr. Frank M. Hall-
dórsson. Athugið opið hús fyr-
ir aldraða þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 13:00 og 17:00.
Breiðholtsprestakall:
Barnasamkoma kl. 11. Messa
kl. 14 í Breiðholtsskóla. séra
Lárus Halldór.
Laugarneskirkja:
Barnaguðsþjónusta kl. 11:00.
Guðsþjónusta kl. 14:00. Stína
Gísladóttir guðfræðinemi pré-
dikar, Margrét Hróbjartsdótt-
ir, safnaðarystir.leiðir athöfn-
ina.
Þriðjudagur 26. febrúar.
Bænaguðsþjónusta á föstu kl.
18:00.
Föstudagur 1. mars, síðdegis-
kaffi kl. 14:30. Séra Jón Dalbú
Hróbjartsson.
Grensáskirkja:
Barnasamkoma kl. 11:00.
Guðsþjónusta kl. 14:00, Árni
Arinbjarnarson, organisti.
Skátar koma í heimsókn.
Föstudag, æskulýðsstarf kl.
17:00 0119:00. Séra HalldórS.
Gröndal.
Fríkirkjan í Reykjavík:
Barnasamkoma kl. 11:00.
Guðspjallið í myndum, smá-
barnasöngvar og barnasálmar.
Afmælisbörn boðin sérstak-
lega velkomin. Sunnudags-
póstur handa öllum, fram-
haldssaga. Við píanóið Pavel
Smit.
Þriðjudaga, miðvikudaga,
fimmtudaga og föstudaga er
bænastund í krikjunni kl. 18:00
og stendur í stundarfjórðung.
Séra Gunnar Björnsson.
Dómkirkjan:
Laugardagur: Barnasamkoma
í kirkjunni kl. 10:30, séra
Agnes M. Sigurðardóttir.
Sunnudagur: Messa kl. 11:00,
séra Hjalti Guðmundsson.
Messa kl. 14:00, vænst er þátt-
töku fermingarbarna og for-
eldra þeirra. Foreldrar lesa
bænir og texta. Séra Þórir
Stephensen. Dómkórinn
syngur, organleikari Martein
H. Friðriksson.
Landakotsspítali:
Messa kl. 10:30, organleikari
Birgir Ás Guðmundsson. Séra
Þórir Stephensen
Fríkirkjan Hafnarfirði:
Barnasamkoma kl. 10:30.
Guðsþjónusta kl. 14:00.
Kristján Þorvarðarson, guð-
fræðinemi prédikar. Orgel og
kórstjórn Þóra Guðmunds-
dóttir. Séra Einar Eyjólfsson.
Hallgrímskirkja:
Laugardagur. félagsvist í safn-
aðarsal kl. 15:00.
Sunnudagur: Bænasamkoma
og messa kl. 11:00, séra Ragn-
ar Fjalar Lárusson. Kvöld-
messa kl. 17:00. íhugun, altar-
isganga. Séra Karl Sigur-
björnsson.
Þriðjudagur: Fyrirbænamessa
kl. 10:30. Beðið fyrir sjúkum.
Miðvikudagur: Föstumessa kl.
20:30. að henni lokinni eða kl.
21:15 hefst leshringur á vegum
Reykjavíkurprófastsdæmis um
Líma-skýrsluna í umsjá dr.
Einars Sigurbjörnssonar.
Kaffiveitingar.
Fimmtudagur: Opið hús fyrir
aldraða kl. 14:30.
Laugardagur 2. mars: Samvera
fermingarbarna kl. 10:00.
Kvöldbænir með lestri passíu-
sálma er í kirkjunni alla virka
daga föstunnar nema miðviku-
daga kl. 18:00.
Landspitalinn:
Guðsþjónusta kl. 10:00. Séra
Karl Sigurbjörnsson.
Áskirkja:
Barnaguðsþjónusta kl. 11:00.
Guðsþjónusta kl. 14:00. Gide-
onfélagar kynna starfsemi fé-
lagsins.
Miðvikudagur, föstumessa kl.
20:30. Séra Árni Bergur Sigur-
björnsson.
Seljasókn:
Barnaguðsþjónusta í Öldusels-
skóla kl. 10:30. Barnaguðs-
þjónusta í íþróttahúsi Selja-
skóla kl. 10:30. Guðsþjónusta
í Ölduselsskólakl. 14:00, altar-
isganga.
Þriðjudagur: Fundur í æsku-
lýðsfélaginu kl. 20.00 í Tinda-
seli 3.
Fimmtudagur: Fyrirbæna-
messa j Tindaseli 3 kl. 20:30.
Sóknarprestur.
Langholtskirkja:
Óskastund barnanna kl. 11.
Söngur, sögur og myndir.
Guðsþjónusta kl. 14:00, prest-
ur séra Sigurður Haukur Guð-
jónsson. Organleikari Jón Ste-
fánsson. Sóknarnefndin.
Háteigskirkja:
Barnaguðsþjónustakl. ll.séra
Tómas Sveinsson. Messa kl. 2,
séra Arngrímur Jónsson.
Föstuguðsþjónusta miðviku-
dagskvöld kl. 20:30, séra Arn-
grímur Jónsson.
Rársnesprestakall:
Laugardagur: Barnasamkoma
í safnaðarheimilinu Borgum
kl. 11 árdegis.
Sunnudagur: Guðsþjónusta í
Kópavogskirkju kl. 11:00.
Þriðjudagur, dr. Björn Björns-
son prófessor flytur fyrirlestur
um siðfræðilegt efni í safnaðar-
heimilinu borgum kl. 20:30.
Þetta verður fyrsti fyrirlestur-
inn af fjórum, sem fluttir verða
á vegum safnaðarins næstu
þriðjudagskvöld. Fjalla þeir
um Biblíuna, siðfræðina og
málefni líðandi stundar. Al-
mennar umræður - allir vel-
komnir. Séra Árni Pálsson.