NT - 23.02.1985, Blaðsíða 13
Laugardagur 23. febrúar 1985 12
álkUriNn
Þriðja sólóplata
Phil Collins
■ Phil Collins er búinn að
senda frá sér sína þriðju sóló-
plötu og ber hún nafnið „No
Jacket Required". Á plötunni
er lagið „Sussudio“ ásamt níu
nýjum lögum. Eitt laganno,
„Inside Out“ er notao sem
titillag fyrir framhaldsþátt hjá
BBC og í öðru lagi, „Take Me
Home“ aðstoða PeterGabriel,
Helen Terry og Sting Collins
við söngfnn.
Fyrsta plata Firm
Nýja hljómsveitin hans
Jimmy Page, The Firm, sem
hann stofnaði ásamt Paul
Rodgers er að senda frá sér
sína fyrstu plötu. Með þeim
kempunum í bandinu er Tony
Franklin og Chris Slade og
auövitað ber piatan natn
hljómsveitarinnar. Níu lög eru
á plötunni og verða tvö þeirra
gefin út á single samdægurs
og stóra platan kemur ut. Lög-
in heita „Radioactive" og
„Together".
Eric Clapton kominn á kreik
Eric Clapton hefur sent frá
sér litla plötu „Forever Man/
Too Bad“ í tilefni tónleikaferð-
ar sinnar um England. Seinna
lagið er samið af Claþparan'-
um sjálfum og upuptökunni
stjórnaði Phil nokkur Collins.
Tólf tommu plata býöur §ð
auki uppá lagið „Somethingfe
Happening“ og í mars er stór
plata væntanleg, „Behind The
Sun“.
W
Nýr taktur
■ Þessi fagra snót heitir Vikki Benson og virðist hún vera full fær um að standa meö nýtt lag. „Never Under-
við þau loforð sem gefin eru í hennar nýjasta lagi „Passion", þótt hún sé aðeins 17 stand.“ a B ancoy Negro merk-
ára gömul. Hún hefur þegar getið sér frægðarorð fyrir lagið „Easy Lové" sem var ^Jommunm^er þeirra
hennar frumraun. Astriður Vikkiar eru einmg faanlegar i lengri utgafu (!) og er
aukalagið á 12 tommunni „Shoot The Moon“.
útgáfa á Vic Godard's laginu
„Ambition".
Nýtt lag frá Jesus
og Mary Chain
Skotarnir eru komnir á kreik
■ Jason & The Scorches
með hvítar lygar á takteinin-
um.
Jason & The Scorchers
Capitol útgáfan sendir í
þessum mánuði frá sér plötur,
stórar og litlar með hljómsveit-
unum Maze og Jason & The
Scorchers. Þetta er sjöunda
plata The Maze en nær tvö ár
eru síðan síðast heyrðist frá
þeim. Ber hún nafnið „Can't
Stop The Love“. Á iítilli plötu
kemur lagið „Back In Stride"
ásamt laginu „Joy and Pain“.
Jason og félagar eru með
stóra plötu á ferðinni sem þeir
kalla „Lost and Found" og
hafa sent frá sér lagið „White
Lies“ á lítilli plötu. Þeir gerðu
garðinn frægan fyrir ári síðan
eða svo með Dylan laginu
„Absolutly Sweet Marianne".
Hressilegt rokk & roll band sem
vert er að veita athygli...
EMI og Deep Purple
Emi heldur uppá endur-
holdgun Deep Purple með því
að senda á markaðinn 3 af
gömlu plötum þeirra í sérstök-
um viðhafnarútgáfum með
plakötum. Plöturnar eru Mac-
hine Head, Fireball og In
Rock. Svo nú geta þungarokk-
arar sem sþilað hafa gat á
eintökin sín tekið gleði sína á
ny...
Laugardagur 23. febrúar 1985 13
veifl
■ Julian Lennon með nýtt
lag á ferðinni og kjaftasög-
urnar segja að hann ætli að
fara að gifta sig, því þriðja
bítlakynslóðin sé á leiðinni.
Honum kippir greinilega t
kynið, eða þannig....
Julina Lennon með nýtt lag
Salan gengur vel á plötunni
Valotte og hefur hún losað vel
1V2 milljón eintaka. Lennon
hefur sent frá sér nýja litla plötu
og er titillagið samið af honum
sjálfum, kallast það „Say
You’re Wrong" og er það tekið
upp af Phil Ramone.
Joan Armatrading
á ferðinni
„Temptation“ heitir ný lítil
skífa frá Joan Armatrading og
á bakhliðinni er lagið „Talking
To The Wall“. Þau eru af
nýlegri plötu hennar, „Secret
Secrets" og auðvitað er auka-
lag á 12tommunni, „Spanking
Brand New“.
Óháði vinsældalistinn
■ The Smiths hafa skotið Billy Bragg aftur fyrir sig en
Skotarnir frá Glasgow sitja enn sem fastast í efsta
sætinu. Ex Pistols komnir 4. sætið en einhver
vandræði hafa verið með dreifinguna á plötunni í
Bretlandi. Vilja tilteknar verslanir ekki selja hana útaf
skrifum á plötuumslaginu. Annars tíðindalaust á víg-
stöðvunum að mestu...
Litlar plötur:
1 1 UPSIDEDOWN .. The Jesus And Mary Chain (Creation)
2 3 H0WS00NISNOW The Smiths (Rough (Trade)
3 2 ST SWfTHlN S DAY Billy Bragg (Go! Discs)
4 6 LANDOFHOPEANDGLORY .... Ex Pistols (Cheny Red)
5 10 SWEETMIX Sweel (Anagram)
6 4--0UT ON THE WASTELAND Anti Nowhere League (ABC)
7" 11 STRIKE Enemy Within (Rough Trade)
8 9 WASHIT ALL OF You've Gol Foetus On Your Breath (Self Immolation)
9 5 COLDTURKEY Sid Presley Experience (SPE)
10 13 GREEN FIELDSOF FRANCE The Men They Couldn'l Hang (Demon)
11 7 NELLIE THE ELEPHANT Toy Dolls (Volume)
12 12 DEATHTOTRAD ROCK Membranes (Criminal Damage)
13 8 RATS Subhumans (Bluurgh)
14 15 HEARTS AND MINDS Farm (Skysaw)
15 16 LIFE'S A SCREAM A Certain Ratio (Fadory)
16 (-) SONG TOTHESIREN This Mortal Coil (4AD)
17 (-) FINELY HONED MACHINE ... Foetus Over Frisco (Self Immolation)
18 19 PLAIN SAILING Tracey Thom (Cherry Red)
19 28 BLUE MONDAY NewOrder (Factory)
20 14 THEPRICE1984 New Model Army (Abstract)
Stórar plötur:
1 2 HATFULOF HOLLOW The Smiths (Rough Trade)
2 1 TREASURE Cocteau Twins (4AD)
3 3 ITLLENDINTEARS This Mortal Coil (4AD)
4 5 SMELLOF FEMALE Cramps (Big Beat)
5 7 RAINING PLEASURE Triflids (Hot)
6 11 TALKABOUTTHEWEATHER.... ... RedLorry,YellowLony(RedRhino)
7 4 GOOD ANDGONE ... Screaming Blue Messiahs (Big Beat)
8 6 VENGEANCE New Model Army (Abstract)
9 10 SLOWTOFADE Red Guitars (Self Drive)
10 25 RUMBLE Inca Babies (Black Lagoon)
11 12 HOLE Scraping Foetus Off The Wheel (Self Immolation)
12 15 WE DON'T WANT YOUR FUCKING WAR Varios (Jungle)
13 13 NATURAL HISTORY March Violets (Rebirth)
14 17 HEADOVER HEELS Cocteau Twins (4AD)
15 8 ZENARCADE Húsker Du (SST)
16 22 WE HATE YOU SOUTH AFRICAN BASTARDS.. Microdisney (Rough Trade)
17 9 STOMPING AT THE KLUB FOOT.. Various (ABC)
18 (-) BROADCASTING FROM HOME... Penguin Cafe Orchestra (EG)
19 27 JESUS EGGTHATWEPT Danielle Dax (Awesome)
20 19 TREELESS PLAIN TnfesjHo!)
Ársel vinsældalisti:
King á uppleið í Árseli, komnir í 2. sætið irieð Love
and Pride. Af öðrum nýjum lögum má nefna This is not
America með Bowie og Skin Deep með Stranglers af
plötunni Aural Sculpture. En hér kemur listinn:
1 2 MOMENT OF TRUTH Survivor
2 (-) LOVE AND PfliDE' King
3 3 SAVEAPRAYER Duran Duran
4 5 LATEBAR Duran Duran
5 (-) IWILLDIE FOR YOU Prince
6 1 IWANTTOKNOWWHATLOVEIS Foreigner
7 7 LOVERBOY Billy Ocean
8 (•) THISIS NOT AMERICA David Bowie
9 11 SH00TY0URSH0T Divine
10 (•) SKINDEEP Stranglers
11 15 PRIDE U2
12 8 SOLID Ashford & Simpson
13 14 WOODPAKERS FROM SPACE . VideoKids
14 10 BÚKALÚ Stuðmenn
15 (-) EASYLOVER Philip Bailey
■ Jim „Jackal“ Lantsbery, Paul King, Tony Wall og Mick Koberts eru lagið Love and Pride. Sveit sína kalia þeir því hógværa nafni KING, eftir
nýjustu stirnin í poppinu og tróna þessa vikuna á toppinum í Englandi með aðalsprautunni í bandinu.
Við erum engir mommustrákar!"
■ Love and Pride heitir
topplagið í Englandi þessa
vikuna flutt af hljómsveitinni
King. Og þeir eru á hraðri
uppleið hér heima og sáust
í Skonrokki á dögunum og
heyrast æ oftar í rásunum.
En hverjir eru King? „Við
erum engir mömmustrákar“
i lýsa þeir yfir í viðtali sem Nýr
taktur rakst á og verður gripið
niður í það lesendum til fróð-
leiks.
„Auðvitað erum við
ánægðir og allir í uppnámi“
er haft eftir Paul King söng-
varanum „ég hélt aldrei að
okkur tækist þetta ekki“ seg-
ir hann og bendir á að menn
verði að hafa trú á því sem
þeir eru að gera ef árangur
! eigi að nást. Því til áréttingar
segir hann sögu af skólafé-
laga sínum sem hafi spurt
hann að því hvað hann ætlaði
að gera ef hann „meikaði”
það ekki. Paul hafði ekki
hugsað neitt um það því „ef
maður er með einhverja
varaáætlun þá reynir maður
aldrei til þrautar að ná aðal-
markmiðinu".
En þótt að Paul King sé
kokhraustur náungi hafa
margir verið tilbúnir til þess
að dæma King norður og
niður. Talað hefur verið um
hversu fáránlegt þetta spray-
málverk þeirra félaganna sé,
úthugsaðar hárgreiðslur og
allt þeirra hjal um einlægni,
samheldni og stolt sé dæmi
um hljómsveit sem reyni ör-
vingluð að skapa sér nafn.
Paul King lætur sér fátt um
þessar raddir finnast og segir
að þetta . sýni bara hug-
myndaleysi. Þeir sem svona
tali sjái ekki hvað þeir séu í
raun og veru.
Nærtæk spurning hvað
þeir séu í raun og veru og
King svarar því þannig: „Við
erum band sem hefur tekist
að þræða þá vandrötuðu leið
að ná út til fjöldans og sam-
tímis halda í heiðri lista-
mannastolti okkar". Og King
er viss um að þeir félagarnir
hafi til að bera það sem þarf
til að öðlast frama og frægð
- slá í gegn eins og Stuðmenn
sungu um hér í eina tíð - og
ef dæma á eftir hraðferð
þeirra upp listana síðustu
vikur með Love and Pride
gæti hann allt eins haft rétt
fyrir sér.
Meðlimir King eru: Jim
„Jackal" Lantsbery sem átt
hefur lítinn plastgítar síðan
hann var smástrákur. Hann
var meðlimur í soul bandinu
Team 23 þegar Paul hringdi
í hann og sagðist vera að
starta bandi og spurði hvort
hann vildi vera með. Jim var
„vandræðaunglingur" í æsku
og þaðan kemur viðurnefnið
sjakalinn. „En við vorum
ekki svo slæmir strákar, okk-
ur skorti hugrekki til þess“ er
haft eftir honum.
Tony Wall er trúður
bandsins og smádjöfull í sér
að sögn. Hann var í sama
skóla og Paul og í þá daga
ætlaði hann sér að verða
slökkviliðsmaður! En það
varð ekki. Hann vann sem
smiður um tíma áður en
hann gekk til liðs við
sveitina The Reluctant Ster-
eotypes sem Paul var í og
þegar hugmyndin að King
fæddist var Tony sjálfkjörinn
sem bassaleikari.
Mick Roberts hefur alltaf
langað til að verða proff
tónlistarmaður og byrjaði
hann að leggja grunninn að
því 4 ára gamall. 15 ára var
hann svo góður að honum
var boðinn styrkur til að
stunda píanónám en þá hafði
poppbakterían náð tökum á
stráksa svo örlög hans voru
ráðin. Hann var svo heppinn
að verða fyrir valinu þegar
leitin stóð yfir að hljóm-
borðsleikara en hafði þá
troðið upp með ýmsum
hljómsveitum.
King sjálfur hefur orð á
sér fyrir að vera fæddur for-
ingi með útgeislun og sterk-
an persónuleika og allt það
enda heitir hann hvorki
meira né minna en Paul
Francis Luke King. Hann er
24 ára, frá Coventry eins og
hinir í bandinu og átti hann
litlausa ævi þar til hann varð
13 ára gamall og fór að stæla
Bowie í klæðnaði og hár-
greiðslu. Hann var laminn í
plokkfisk hvað eftir annað
og varð að losa sig við stælinn
- en síðar hefur hann verið
heppnari með sinn eiginn
stfí. „Ég er Tommy Steele
níunda áratugarins" segir
þessi nýjasta poppstjarna
Englands sem er óðum að
leggja heiminn að fótum sér.
Virðist sem bandið ætli að
standa undir nafni: KING.
Jazzkvikmynd með poppurum:
Algjörir byrjendur
■ Julien nokkur Temple leik-
stjóri er að gera mynd sem
heitir „Absolute Beginners" og
meðal þeirra sem taka þátt í
henni eru David Bowe, Sade,
Paul Weller, Elvis Costello og
Ray Davis svo einhverjir séu
nefndir.
Boy George, Mick Jagger og
Keith Richard hafa sýnt áhuga
á að vera með en ekki er enn Ijóst
hvort af því verður. Myndin er
gerð eftir sögu Colin Macinnes
og gerist í heimi jazzgeggjara á
sjötta áratugnum.
Leikstjórinn hefur látið hafa
eftir sér að myndin fjalli um
áhrifin sem þetta tímabil hefur
haft á seinni tíma en að hans
áliti var lagður grundvöllur á
þessum árurn fyrir því sem gerð-
ist seinna meir í tónlist í Eng-
landi.
Tónlistin er útsett af jazzist-
anum Gil Evans en lögin eru
m.a. eftir Elvis Costello, Paul
Weller og Bowie hefur verið
boðið að semja lag fyrir mynd-
ina líka. Hann fer einnig með
eitt hlutverkanna ásamt Ray
Davis en Sade mun sjást í
myndinni syngjandi í nætur-
klúbbi...
■ Bowie enn cina ferðina á
hvíta tjaldið.
Betri kjör bjóðast varla
Einfalt og öruggt
fyrirkomulag
þess vegna vel ég
vaxtareikning
Eg legg sparifé mitt inn á Hávaxtareikning
Samvinnubankans.
’ hvert skipti fæ ég stofnskírteini fyrir
innborgunlnni, en þaö er alltaf laust og
óbundiö þegar ég þarf á peningunum
aö halda.
Meö þessu tryggi ég sparifé mitt gegn
veröbólgu og ávaxta þaö á aröbæran hátt
Þetta er einfalt og öruggt fyrirkomulag.
Gd’
vaxtareikningur
Reikningur sem hægt
er aö treysta.