NT - 23.02.1985, Síða 14
Sjónvarp laugardag kl. 22.30:
Rás 2 laugar-
kl. 16.
■ Halldór Halldórsson um-
sjónarmaður Fjölmiðlaþáltar-
ÍnS. (NT-mynd: Svcrrir)
dag kl. 19.35:
„Fréttaleki11
í fjöl-
miðlaþætti
■ Á sunnudagskvöldum kl.
19.35 er á dagskrá útvarps
þáttur sem ber hið skýra og
skorinorða nafn „Fjölmiðla-
þátturinn". Þessi þáttur fjallar
nákvæmlega um það, sem
nafnið bendir til, fjölmiðla, og
umsjónarmaður hans er Hall-
dór Halldórsson.
í kvöld verður umræðuefni
m.a. svokallaðir fréttalekar,
þ.e. þegar fréttum er lekið í
blöð. í því sambandi verður
m.a. vikið að því þegar
„fréttum" er lekið í pólitískum
tilgangi.
Viðmælendur Halldórs um
þetta mál verða þeir sr. Baldur
Kristjánsson, blaðamaður á
NT, Friðrik Sóphusson, al-
þingismaður, og Björn Vignir
Sigurpálsson, fyrrverandi rit-
stjóri Helgarpóstsins, nú rit-
stjóri viðskiptasíðu Morgun-
blaðsins.
Laugardagur 23. febrúar 1985 14
■ Helgi Már Barðason bryddar
upp á nýjungum.
II
II
Barnaefni
milli mála
aukannars
■ Helgi Már Barðason er að
brydda upp á ýmsum nýjungum í
þætti sínum Milli mála, sem er á
dagskrá Rásar 2 á laugardögum
kl. 16-18.
Þar má t.d. nefna barnaefni,
en eins og kunnugt er er enginn
sérstakur barnatími á Rás 2.
Þykir alveg kjörið að gera yngstu
hlustendunum eitthvað til góða á
þessum tíma í dagskránni.
Þá verður farið út á götu með
hljóðnemann, en það hefur ekki
mikið tíðkast á Rás 2 hingað til.
Vegfarendur eru spurðir þeirrar
gagnmerku spurningar, hvernig
þeir haldi að íslendingar líti út í
augum útlendinga!
Til mótvægis eru svo fengnir
tveir „útlendingar“ í þáttinn og
spurðir hver hefðu verið fyrstu
áhrifin sem þeir hefðu orðið fyrir
af íslendingum. Annar þessara
„útlendinga" er búinn að vera
búsettur hér á landi á þriðja
áratug og er orðinn íslenskur
ríkisborgari. Hinn hefur verið
hérmun skemur.íu.þ.b. hálftár.
Það verður fróðlegt að heyra
hvort hugmyndir íslendinga um
sjálfa sig standast í augum út-
lendinga.
Allir biðu þeir tjón á sálu sinni
Hólabrekku-
skólastúlkur
skemmta í
Stundinni
■ Þessar ungu dömur úr
Hólabrekkuskóla brosa hér við
Ijósmyndaranum að lokinni
upptöku á skemmtiefni, sem
þær útbjuggu sjálfar, en það er
atriði úr „Litlu hryllingsbúð-
inni“ í þeirra útgáfu. Atriðið
gerist á tannlæknastofu. Stúlk-
urnar heita: Nanna Viðars-
dóttir, Guðrún Agða Hall-
grímsdóttir, Hildur Krist-
björnsdóttir, Hrönn Brynjólfs-
dóttir, Margrét Arnardóttir,
Margrét Grétarsdóttir, Ragna
Eiríksdóttir og Þórunn Björk
Guðlaugsdóttir.
■ Hin fræga bandaríska
mynd Hjartarbaninn (The
Deer Hunter) er síðari niynd
sjónvarpsins á laugardags-
kvöld. Sýning hennar hefst kl.
22.30 og stendur til kl. 1.35.
Myndin er alls ekki við hæfi
barna.
Kvikmyndin Hjartarbaninn
var gerð 1978 og vakti þá mikla'
athygli. í aðalhlutverkum eru
Robert De Niro, John Cazale,
John Savage, Cristopher
Walken og Meryl Streep.
Helstu leikararnir voru til-
nefndir til Óskarsverðlauna og
þau féllu í skaut Christopher
Walken fyrir leik í aukahlut-
verki. Þá var Hjartarbaninn
valin besta myndin og Michael
Cimino besti leikstjórinn.
Myndin segir frá þrem vin-
um í smábæ í Pennsylvaníuríki
í Bandaríkjunum, sem sendir
eru til að berjast í Víetnam.
Þar fá áhorfendur að fylgjast
með örlögum þeirra, en þeir
eiga ekki allir afturkvæmt til
heimalandsins. Eitt er þó sam-
■ Enn hefur alvara lífsins ekki tekið við hjá þeim félögum í
formi sóðalegs stríðs á fjarlægum slóðum. Þeir eru enn í frið-
sældinni í Pennsylvaníu, þeir (t.f.v.)Nick(ChristopherWalken),
Stan (John Cazale)Michael (Robert De Niro) og John (George
Dzundza).
eiginlegt örlögum þeirra allra,
þeir bíða allir tjón ásálu sinni.
Frægt tema í myndinni er rúss-
nesk rúletta, sem kemur oft
við sögu og í ýmsu samhengi.
Er sagt að upp hafi komið
faraldur í Bandaríkjunum að
leika rússneska rúlettu í kjölfar
myndarinnar, en það er
óskemmtilegur leikur.
Um svipað leyti og Hjartar-
baninn var gerður voru fleiri
frægar myndir framleiddar í
Bandaríkjunum um Víetnam-
stríðið. Kveður þar við annan
tón en í hetjudýrkunarmynd-
um síðari heimsstyrjaldarár-
anna. Nú voru ekki lengur allir
hetjur, sem í klæddust herbún-
ingum og voru reiðubúnir að
leggja lífið í sölurnar fyrir
föðurlandið. Reyndar áttu
flestir Bandaríkjamenn erfitt
með að skilja hvaða skylda
þeim bæri til að liggja í hernaði
í fjarlægu landi innan um ó-
kunnugt fólk. Eftirmæli Víet-
namstríðsins eru því á aðra
lund en annarra styrjalda, sem
Bandaríkjamenn hafa tekið
þátt í.
Þýðandi Hjartarbanans er
Kristmann Eiðsson.
Laugardagur
23. febrúar
7.00 Veöurtregnir. Fréttir. Bæn.
Tónleikar. Þulur velur og kynnir.
7.25 Leikfimi. Tónleikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgunorö -
Hrefna Tynes talar.
8.15 Veöurfregnir.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.). Tón-
leikar. 8.55 Daglegt mál. Endurt.
þáttur Valdimars Gunnarssonar f rá
kvöldinu áður.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ.
Stephensen kynnir. (10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.) Óskalög
sjúklinga, frh.
11.20 Eitthvað fyrir alla Siguröur
Helgason stjórnar þætti fyrir börn.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veöurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.40 fþróttaþáttur Umsjón: Ragnar
örn Pétursson.
14.00 Hér og nú. Fréttaþáttur í viku-
lokin.
15.15 Listapopp - Gunnar Salvars-
son.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 (slenskt mál Guörún Kvaran
flytur þáttinn.
16.30 Bókaþáttur Umsjón: Njörður
P. Njarðvik.
17.10 Georg Friedrich Hándel - 300
ára minning 1. hluti: Æviágrip -
Óperur í Lpndon Siguröur Einars-
son sér um þáttinn og spjallar viö
Leif Þórarinsson um hinn löngu
horfna tónsnilling.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Úr vöndu að ráða Hlustendur
leita til útvarpsins með vandamál.
20.00 Útvarpssaga barnanna:
„Grant skipstjóri og börn hans"
eftir Jules Verne Ragnheiöur Arn-
ardóttir les þýöingu Inga Sigurös-
sonar (3).
20.20 Harmonikukþáttur Umsjón:
Högni Jónsson.
20.50 „Sungið og spjallað" Guörún
Guölaugsdóttir ræðir viö Jón Þor-
steinsson óperusöngvara, sem
einnig syngur nokkur lög.
21.35 Kvöldtónleikar Þættir úr si-
gildum tónverkum.
22.00 Lestur Passiusálma (18).
22.15 Veöurlregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Þriðji heimurinn Þáttur í umsjá
Jóns Orms Halldórssonar.
23.15 „Messías", óratoría eftir Ge-
org Friedrich Hándel Grace
Bumbry, Joan Sutherland, Kenn-
eth McKellar og David Ward
syngja meö Sinfóniuhljómsveit
Lundúna og kór. Sir. Adrian Boult
stjórnar.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturúvarp frá RÁS 2 til kl. 03.00.
Sunnudagur
24. febrúar
8.00 Morgunandakt Séra Hjálmar
Jónsson flytur ritningarorð og bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
8.35 Létt morgunlög Strauss-
hljómsveitin í Vín leikur.
9.00 Fréttir.
9.05 Morguntónleikar a. „Ich habe
. in Gottes Herz und Sinn“ kantata
nr. 92 á fyrsta sunnudegi i föstu
eftir Johann Sebastian Bach. Detl-
ev Bratschke, Kurt Equiluz og Max
van Egmond syngja meö Drengja-
kórnum í Hanover og „Collegium
Vocale" í Gent. Leonhardt-Cons-
ort leikur; Gustav Leonhardt
stjórnar. b. Orgelkonsert nr. 3 í
c-moll op. 3 nr. 4 eftir Georg
Friedrich Hándel. Daniel Chor-
zempa og Konsert-hljómsveitin í
Amsterdam leika; Japp Schröder
stjórnar. c. „Voriö" úr Árstíða-
konsertunum eftir Antonio Vivaldi.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir.
10.25 Stefnumót við Sturlunga. Ein-
ar Karl Haraldsson sér um þáttinn.
11.00 Messa í Kópavogskirkju
Prestur: SéraÁrni Pálsson. Organ-
leikari: Guömundur Gilsson. Há-
degistónleikar.
12.10 Dagskrá. tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 Þuríðurformaðurog Kambs-
ránsmenn Þriöji og síðasti þáttur.
Klemenz Jónsson tók saman, aö
mestu eftir bók Brynjúlfs Jónsson-
ar frá Minna-Núpi, og stjórnar jafn-
framt flutningi. Sögumaöur: Hjörtur
Pálsson. Lesarar: Sigurður
Karlsson, Þorsteinn Gunnarsson,
Hjalti Rögnvaldsson, Steindór
Hjörleifsson, Guðrún Þ. Stephen-
sen og Þórhallur Sigurösson.
14.30 Miðdegistónleikar: frá tón-
listarhátíðinni í Salzburg sl.
sumar.
15.10 Með bros á vör. Svavar Gests
velur og kynnir efni úr gömlum
spurninga- og skemmtiþáttum út-
varpsins.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Um vísindi og fræði. „Fisk-
veiöar á Grænhöfðaeyjum". Dr.
Gisli Pálsson lektor flytur sunnu-
dagserindi.
17.00 Georg Fredrich Héndel - 300
ára minning 2. hluti: Konsertarog
orgelverk. Siguröur Einarsson sér
um þáttinn og ræöir við Hörð
Áskelsson organista.
18.00 Vetrardagar. Jónas Guö-
mundsson rithöfundur spjallar viö
hlustendur.
18.20 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
1 9.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Fjölmiðlaþátturinn. Umsjón:
Halldór Halldórsson.
20.00 Um okkur. Jón Gústafsson
stjórnar blönduðum þætti fyrir ung-
linga.
20.50 Hljómplöturabb Þorsteins
Hannessonar.
21.30 Útvarpssagan: „Morgun-
verður meistaranna" eftir Kurt
Vonnegut. Þýðinguna gerði Birgir
Svan Simonarson. Gísli Rúnar
Jónsson flytur (18).
22.00 Tónleikar.
22.35 Kotra. Umsjón Signý Pálsdótt-
ir. (RÚVAK).
23.05 Djassþáttur - Jón Múli Árna-
son.
23.50 Fréttir. Ðagskrárlok.
Uf
Laugardagur
23. febrúar
14:00-16:00 Léttur laugardagur
Stjórnandi: Ásgeir Tómasson.
16:00-18:00 Milli mála Stjórnandi:
Helgi Már Barðason.
24:00-24:45 Listapopp Endurtekinn
þáttur frá rás 1. Stjórnandi: Gunnar
Salvarsson.
24:45-03:00 Næturvaktin Stjórnandi:
Margrét Blöndal.
Rásirnar samtengdar aö lokinni
dagskrá rásar1.
Sunnudagur
24. febrúar
13:30-15:00 Krydd í tilveruna
Stjórnandi: Ásta Ragnheiöur Jó-
hannesdóttir.
15:00-16:00 Tónlistarkrossgátan
Hlustendum er gefinn kostur á aö
svara einföldum spurningum um
tónlist og tónlistarmenn og ráöa
krossgátu um leið. Stjórnandi: Jón
Gröndal.
16:00-18:00 Vinsældalisti hlust-
enda Rásar 2 20 vinsælustu lögin
leikin. Stjórnandi: Ásgeir Tómas-
son.
Laugardagur
23. febrúar
14.45 Enska knattspyrnan Arsenal
- Manchester United. Bein út-
sending frá 14.55-16.45
17.20 íþróttir Umsjónarmaöur Ingólf-
ur Hannesson.
19.25 Ævintýri H.C. Andersens 3.
Hans klaufi Danskur brúðu-
myndaflokkur í þremur þáttum.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Við feðginin. Sjötti þáttur.
Breskur gamanmyndaflokkur í
þrettán þáttum. Þýðandi Þrándur
Thoroddsen
21.00 Þögla myndin (Silent Movie)
Þögul bandarísk gamanmynd frá
1976. Höfundur og leikstjóri Mel
Brooks. Aðalhlutverk Mel Brooks,
Marty Feldman, Dom DeLuise,
Bernadette Peters og Sid Caesar
auk þess sem fjölda þekktra
leikara bregöur fyrir í myndinni.
Kvikmyndastjóri i kröggum fær þá
flugu í höfuöiö aö gera þögla
skopmynd sem á aö rétta viö
fjárhaginn. Meö aöstoö vina sinna
tekst honum aö smala saman
frægum stjörnum i hlutverkin og
hefjast handa. Þýöandi Ellert Sig-
urbjörnsson.
22.30 Hjartarbaninn (The Deer
Hunter). Bandarísk biómynd frá
1978. Leikstjóri Michael Cimino.
Aðalhlutverk: Robert De Niro, John
Cazale, John Savage, Christopher
Walken og Meryl Streep. Þrír vinir
frá smábæ i Pennsylvaníuríki eru
sendir til aö berjast i Víetnam.
Tveir þeirra snúa heim, annar
örkumla en hinn sem hetja, en allir
bíöa þeir tjón á sálu sinni. Myndin
er alls ekki viö barna hæfi. Þýöandi
Kristmann Eiösson.
01.35 Dagskrárlok.
Sunnudagur
24.febrúar
16.00 Sunnudagshugvekja. Séra
Hjalti Þorkelsson flytur.
16.10 Húsið á sléttunni 13. Óþekkt
arormarnir. Bandariskur fram-
haldsmyndaflokkur. Þýöandi Ósk-
ar Ingimarsson.
17.00 Rfkin tvö á Kóreuskaga.
Sænsk heimildamynd. í myndinni
er brugöiö upp svipmyndum frá
Suöur- og Noröur-Kóreu
18.00 Stundin okkar Umsjónar-
menn: Ása H. Ragnarsdóttir og
Þorsteinn Marelsson. Stjórn upp-
’ töku: Valdimar Leifsson.
18.50 Hlé.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Sjónvarp næstu viku Umsjón-
armaður Guömundur Ingi Krist-
jánsson.
20.50 Glugginn Þáttur um listir,
menningarmál og fleira. Umsjónar-
maður Sveinbjörn I. Baldvinsson.
Stjórn upptöku: Tage Ammendrup.
21.40 Flöktandi skuggi Fyrsti hluti.
Finnsk sjónvarpsmynd í þremur
hlutum, gerö eftir skáldsögunni
„Vandrande skugga'' eftir Bo
Carpelan. Leikstjóri Jaakko Pakk-
asvirta. Aöalhlutverk: Nils Brandt,
Sixten Lundberg, Kurt Ingvall, El-
ina Salo og Susanna Haavisto.
Sagan gerist um aldamótin i friö-
sælum smábæ úti við hafiö. En
lífið þar hefur einnig skuggahliðar.
Ung stúlka finnst myrt og hjá lög-
reglustjóra bæjarins vakna ýmsar
grunsemdir. Þýöandi Jóhanna Þrá-
insdóttir. (Nordvision - Finnska
sjónvarpið)
22,30 Gullöld hollenskrar málara-
listar Bresk fréttamynd um hol-
lenska málaralist á 17. öld og
hvernig hún dafnaði meö uppgangi
borgarastéttar á sama tima. Þýö-
andi Eirikur Haraldsson.
22.45 Dagskrárlok.