NT - 23.02.1985, Blaðsíða 21
#*** , r . - ... . » - - - -
Laugardagur 23. febrúar 1985 21
Frjálshyggja Reagans:
Fangelsi yfirfyllast
auknir glæpir og ofbeldi í fangelsum
■ Bandarísk fangelsi eru of-
trodin frumskógarsamfélög þar
sem ofbeldi eykst stööugt og
sjálfsmorð eru æ algengari.
„Lélegur aðbúnaður, aukið
ofbeldi i fangelsum og oftroðin
Sjálfsmorðstilraun:
Lenti á 79
ára öldungi
Sal/burg, Austurríki-Keuter
■ 27 ára Austurríkis-
maður reyndi aðfremja
sjálfsmorð í gær.
Maðurinn fleygði sér fram
af 30 metra háum kletti en
lenti í hópi ferðalanga sem
nutu náttúrufegurðar Mo-
enscheberg klettsins.
Maðurinn lenti á 79 ára
v-þýskum öldungi í hópi
ferðalanganna við rætur
klettsins.
Mennirnir voru báður
fluttir á slysavarðstoíu
vegna alvarlegra höfuð-
áverka.
Kona Austurríkis-
mannsins fékk taugaáfall
að sögn lögreglunnar.
Ráná
atómöld
l.ondon-Keuter
■ Sjórán kalla fram í hugann
nöfn eins og Captain Kidd og fleíri
sögufræg nöfn. Flestir tengja sjó-
rán við fortíðina. En sjórán eiga
sér enn stað á því herrans ári 1985.
Sjóræningjar réðust um borð í
eitt fraktskip bandaríska sjóhers-
ins nálægt Indónesíu í síðasta
mánuði. Skipstjórinn var tjóðrað-
ur við stýrið og ræningjar létu
greipar sópa og komust undan
með andvirði um 800.000 kr„ að
sögn talsmanna sjóhepsins.
Að sögn þeirra er þetta í annað
sinn í tvö ár sem skip sjóhersins er
rænt á álum Malacca - eitt mesta
sjóræningjasvæði heimsins - og
sjórán fara í vöxt.
í síðasta mánuði var reynt að
ræna farþegaskip við Filipseyjar
með 260 farþega, en strandgæsl-
unni tókst með naumindum að
bjarga skipinu. Sjóræningjarnir
náðust ekki.
Talsmenn skipafélaga á Vestur-
löndum telja að sjórán séu tíðust
á siglingaleiðum með ströndum
Brasilíu, V-Afríku, Tailands og
Indónesíu.
fangclsi, eru ógnvekjandi stað-
reyndir sem yfírvöld banda-
rískra fangelsa eiga við að etja
daglega,“ segir Charlotte Nes-
bitt fyrrverandi fangavörður og
núverandi fulltrúi samtaka
fangavarða.
„Þótt evrópsk fangelsi séu
e.t.v. subbulegri en bandarísk
þá er ofbeldi í bandarískum
mun meira en í breskum og
frönskum fangelsum og v-
þýskum“ sagði prófessor í Dlinois
háskóla í réttarmálum fanga.
„Meðal alvarlegra vandamála
hér eru árásir á samfanga
nauðganir og fjárkúganir," sagði
Sean McConville prófessor.
Reagan sagði í ávarpi sínu til
bandarísku þjóðarinnar 6. febrú
ar sl. að þakka mætti hertum
refsilögum að „metfjöldi glæpa-
manna væri settur bak við lás
og slá“.
Samkvæmt tölfræðilegum
upplýsingunt voru helmingi
fleiri fangar sem höfðu verið
dæmdir fyrir alvarlega glæpi á
síðasta ári í bandarískum fang-
elsum en fyrir 10 árum síðan.
Fjölgun fanga var mest á fyrstu
árum stjórnar Reagans 1981-82
Þannig helst í hendur öfga-
fullur niðurskurður nýfrjáls-
hyggju Reagans á útgjöldum til
félagsmála og aukning glæpa.
Nýlega hert refsilöggjöf mun
enn auka vandann.
Reuter o.fl.
**&***>.
wtmmamwtíw ********
***** ~ m* te
■ „Dauðadalstímar“ segir á þessu auglýsingaskilti sem bandarískt
sjónvarpsfyrirtæki dreifði í Bandaríkjunum til að auglýsa dagskr-
ána. Mörgum þykir auglýsingin tímanna tákn. Reagan leikur
aðalhlutverkið í „dauðadalssjónleik“ nýfrjálshyggjunnar í Banda-
ríkjunum. Reagan hefur dæmt örbirgð yfir lágstéttirnar og dregið
úr framlögum til félagslegrar þjónustu. A valdatíma Reagans hefur
tíðni alvarlegra glæpa aukist að inun. Rcagan einbeitir sér nú að
VÍgvæðÍngU geimsins. Simamvnd-POI.POK)
Vt
C, 1 he memf «uee#»«tMl Vtmttmfi nmim í« :y
immHamnitg hístory . ;
| „ ,0M út IM top 3 #haw& tm TV
lor ovsr 7 yeartsr '*«»» tmi
I D* The thwt* «r« «8 tn». CMvtutfy n
tnddacummtod m
m BLANt EWTE«miNMIIÍT
Bretaprins á heræfingum
■ Karl Bretaprins, sem sagt hefur að viti ekki hlutverk sitt í lífinu, tók þátt í heræfingum
NATO í Voss í gær. Prinsinn fylgist ineð æfíngunum og leikur hér á myndinni hlutverk
skriðdrekastjóra.
.Símaim nd: PÖLFOTO.
Breska kolaverkfallið
150.000 enn
í verkfalli
■ Arthur Scargill, leiðtogi
kolanámamanna sagði í gær
að milli 130.000 og 140.000
námamenn séu enn í verk-
falli.
„Þrátt fyrir siðlaust og
grimmt stríð sem ríkisstjórn-
in, stjórn námanna og fjöl-
miðlar heyja gegn Sambandi
námamanna tekur mikill
meirihluti námamanna enn
þátt í verkfallinu til að bjarga
kolaiðnaðinum og störfum
sínum,“ sagði Scargill.
Stjórn námanna hefur
haldið því fram að náma-
menn hafi streymt til vinnu
eftir að Thatcher og stjórn
námanna sigldi í strand
möguleikanum á nýjum
samningaviðræðum. Thatc-
her tók undir kröfur stjórnar
námanna sem eru í ríkiseign,
um að stjórn námanna hafi
skilyrðislausan rétt til að loka
námum sem hún telur óhag-
kvæmar.
Óhagkvæmni námanna er
mjög umdeild og eru náma-
menn ekki aðeins að vernda
■ Arthur Scargiil sagði í
gær að 150.000 námamenn
séu enn í verkfalli.
störf sín heldur einnig að
gæti hagsmuna byggðalaga.
Thatcher beitir hins vegar
stjórn námanna fyrir sig til
að brjóta á bak aftur kola-
verkfallið sem er prófsteinn
á það hvort ný-frjálshyggju
stefna Thachers sem margir
telja öfgastefnu tekst að möl-
brjóta breska verkalýðs-
hreyfingu.
Reuter o.fl.
Perú:
Stórárás skæru-
liða á Lima
Lima-Keuter
■ Skæruliðar úr samtökum
maoista, Stígnum skínandi (Send-
ero Luminoso) gerðu í fyrrinótt
stórárás á ýmis mannvirki í Lima,
höfuðborg Perú.
Skæruliðarnir gerðu sprcngju-
árásir á flokkskrifstofur fjögurra
stjórnmálaflokka, og réöust á tvo
banka og dómshús. Tveir skæru-
liðar voru skotnir til banda og cinn
af leiðtogum þeirra, Ava Cardcn-
as, særðist þcgar þeir voru að
koma fyrir sprcngju við vöruhús í
horginni.
í kjölfar árásarinnar handtók
•lögregla rúmlcga þúsund manns.
Talsmcnn lögreglunnar sögðu að
hinir handteknu fengju leyfi til aö
fara heim til sín þegar ættingjar
þeirra hefðu borið kennsl á þá.
Skæruliðar hafa hafið mikla her-
ferð til að trufla fyrirhugaðar kosn-
ingar í Perú þann 14. apríl næst-
komandi. Peir scgja að kosn-
ingarnar séu aðeins til að viðhalda
völdum hinna ríku í landinu.
Meira en 130 manns hafa látist í
þcssum mánuði í átökum skæru-
Iiða og stjórnarhcrsins í Perú.
V-Þýskaland:
Daimler-Benz í her-
gagnaframleiðslu
Stuttgart-Keuter
■ Daimler-Benz fyrirtækið í V-
Þýskalandi er að taka yfír véla-
framleiðslu MTl) fyrirtækisins
sem framleiðir m.a. vélar í herþot-
ur og skriðdreka fyrir NATO.
lalsmenn fyrirtækisins sögðu i
gær að markmiðið sé að hefja
framleiðslu á sviði há-tækni-
iðnaðar.
Forstjóri MTU, E.rncst
Zimmermann var skotinn til bana
1. febrúar s.l. af borgarskærulið-
um. Sú árás var hluti af samhæfðri
hcrferð borgarskæruliða í Evrópu
gegn NATO-skotmörkum.
■ Svíar hafa tekið í notkun kola-
hrcinsunarstöð sem framleiðir kola-
vökva (fluidcarbon). Framlciðslugeta
stöðvarinnar, sem er í Malmö, er
250.000 tonn á ári og segja Svíar hana
stærstu kolahreinsunarstöð í heimi.
Kolavökvinn erframleiddur í fjórurn
framleiðslustigum. Fyrst eru kolin mul-
in og sextíu hundraðshlutum af vatni
blandað saman við þau. Kolavatnsleðj-
an er síðan hreinsuð af ösku og brenni-
steini. Á þriðja stiginu er vatnsmagnið
minnkað aftur niður í 25% og að
síðustu er ýmsum efnum bætt saman
við.
Að lokum inniheldur kolavökvinn
65 til 80 prósent af kolum og eitt
prósent af bætiefnum en afgangurinn
er vatn. Engin vatnsmengun verður við
framleiðsluna þar sem framleiðslukerf-
ið er lokað og öll aukaefni eru nýtt til
að búa til jarðveg eða á annan hátt.
Þótt framleiðslugeta stöðvarinnar sé
um 250.000 tonn á ári vinna aðeins
tuttugu menn í henni. Kolavökvinn
verður notaður í stað olíu í iðnaði.
Eftir ' að fjárfestingarkostnaður og
orkukostnaður hefur veriö greiddur er
kolavökvinn sagður um 15% ódýrari
en steinolía sem gefur af sér svipaða
orku við brennslu.
Hægt er að breyta flestum gufukötl-
um í iðnaði úrolíukötlum í kolavökva-
katla. Svíar segja slíka breytingu á
kötlunum geta borgað sig upp á tveim
til þrem árum.
Efnafræðimiðstöð háskólans í Lundi
vann að undirbúningsrannsóknum fyrir
framleiðslu kolavökvans undir forystu
próferssors Björns Lindman og Lars
Stigsson verkfræðings.
J.H. Parket
auglýsir:
Er parketiö
ordid ljótt?
Pússum upp og lökkum
PARKET
Finnig pússum við
upp og lökkum
hverskyns viðargólf.
Uppl. í síma 78074 eftir
kl. 2 i daginn.