NT - 22.03.1985, Blaðsíða 13
//f v.
r* -i' *• 1 <r í t t
• * 1 .£■ rr
Föstudagur 22. mars 1985
13-Blað II
Kalkúnar:
Jón M. Guðmundsson bóndi á Reykjum
með fjöldaframleiðslu á kalkúnum
■ Alls verður um fimm hundruð kalkúnum slátrað fyrir páskana. NT-mynd:Sverrir.
nokkur stykki. Þessi stofn var
af svonefndum „Brons kalkún-
um“, og voru fuglarnir nær því
alsvartir að lit, með gráum og
rauðleitum fjöðrum. Þessir
fuglar voru af gömlum stofni,
og ekki er vitað hvaðan þeir
höfðu komið, en hafa ugglaust
verið fluttir inn sem útungun-
aregg fyrir stríð.
Leyfi heilbrigðisyfirvalda
Jón sækir um leyfi heilbrigð-
isyfirvalda til innflutnings á út-
ungunareggjum frá Dan-
mörku. Leyfið var veitt, oghóf
areggjum, að þessu sinni frá
Noregi. Nú tók Jón við að
rækta stofninri „Matthews",
sem var mun fljótvaxnari og
stærri en þeir stofnar sem hann
hafði áður verið með. „Lifandi
vikt“ þessara kalkúna varð allt
að 13 kílóum, og er þar um
umtalsverða stækkun og aukna
hagkvæmni að ræða, þar sem
kalkúnakjöt er þeim eiginleik-
um búið, að þrátt fyrir að
fuglinn stækki, þá fara gæði
kjötsins ekki versnandi í hlut-
íalli við það. Illa gekk að fá
eggin af norska stofninum til
minn í Noregi, varð úr að tveir
af þeim mönnum sem starfa á
búinu hjá mér fóru utan til
Noregs og lærðu sæðingar á
kalkúnum. Eftir dvölina í Nor-
egi komu þeir til baka með
góðan undirbúning og full-
komin tæki til sæðingar á kalk-
únum. Árangurinn hefur ekki
látið á sér standa og nú síðast-
liðinn vetur hefur náðst yfir
90% frjóvgun úr eggjum, oger
ungafjöldi í samræmi við það.
Sæði er tekið úr hönunum
tvisvar í viku, og hver hæna er
sædd vikulega."
■ Mark S. Birschbach til vinstri, og Guðmundur Jónsson sem
starfa við búið hjá Jóni. í baksýn sjást þeir kalkúnar sem eru á
góðri leið með að verða tilbúnir á veisluborðið. NT-mynd: Sverrir.
■ Kalkúnarækt hefur aldrei
verið stunduð í stórum stíl á
íslandi, en nú virðist sem
breyting sé að verða þar á. Jón
M. Guðmundsson bóndi á
Reykjum í Mosfellssveit hefur
hafið framleiðslu á kalkúnum,
í stórum stíl til manneldis.
Kalkúnarnir eru af stofni sem
kallast „British united".
í samtali við Jón kom fram
að hann hefur oft áður gert
tilraunir með kalkúnarækt, en
ýmislegt hefur staðið í vegi
fyrir því að tilraunir hans tækj-
ust sem skyldi.
Það er fyrst árið 1947 sem
Jón hefur spurnir af kalkúnum
hér á landi. Kalkúnarnir voru
við klaustrið í Hafnarfirði og
Jóni tókst að verða sér úti um
Jón ræktun á kalkúnum sem
hliðarbúgrein.
Dönsku fuglarnir voru af
stofni sem nefnist „Beltswille
hvítir“. Þessi stofn er fremur
smávaxinn, og þegar fullvexti
er náð eru kalkúnarnir á bilinu
5-8 kg (lifandi vikt). Jón sagði
að framleiðslan hefði verið
nokkrir tugir framan af árum.
„Þó var það einu sinni sem við
náðum að framleiða og selja
hátt í sexhundruð fugla eitt
árið. En það verður að athuga
að kalkúnarnir seldust einung-
is fyrir jól og aðrar stórhátíðir."
Matthews 1970
Árið 1970 sækir Jón enn um
leyfi hjá heilbrigðisráðuneyt-
inu til innflutnings á útungun-
þess að frjóvgast almennilega.
Ástæðan fyrir því var fyrst og
fremst hversu illa hönunum
gekk að frjóvga hænurnar.
Hanarnir áttu erfitt með að
athafna sig við frjóvgun, en
alltaf tókst þó að halda stofnin-
um við.
Ákvörðun um fjölda-
framleiðslu
„Það var síðan fyrir tveimur
árum við að ákváðum að taka
okkur tak með ræktunina, og
rifjaði ég upp aðferð sem ég
hafði lært um tæknifrjóvgun. I
byrjun gekk þetta vel, en
greinilegt var að okkur skorti
þjálfun, og eftir að ég hafði
haft samband við kunningja
Alls eru notaðir 80 fuglar til
undaneldisins, og þar af eru
tíu hanar. Þessir nýju fuglar
sem fengnir voru til undaneld-
isins eru af stofninum British
united, og eru þeir mjög hrað-
vaxnir og ná mikilli stærð.
Kalkúnarnir sem notaðir eru
til undaneldis, og hafa náð
fullri stærð, vega allt að 20
kílóum.
2000 fuglum slátrað í ár
Áætlað hefur verið ef allt
gengur að óskum þá takist að
slátra í kringum 2000 kalkún-
um þetta árið, og ættu því flest
heimili sem hafa áhuga að geta
■ Jón M. Guðmundsson bóndi heldur á kalkún sem hefur
næstum því náð sláturstærð. Við hlið hans stendur Alfreð
Jóhannsson framkvæmdastjóri Isfugls hf., sem er dreifíngaraðili
fyrir afurðirnar.
orðið sér út um kalkún á veislu-
borðið, hvort sem er um pásk-
ana eða jólin. Fyrir páska verð-
ur slátrað fimm hundruð kalk-
únum, og sagði Alfreð Jónsson
framkvæmdastjóri ísfugls, sem
sér um slátrun og dreifingu, að
verð á kalkún yrði í kringum
230-240 kr. kílóið. Þá sagði
Alfreð að verið væri að gera
allt klárt fyrir fyrstu meiri hátt-
ar slátrunina, og hefði starfs-
fólk sláturhússins fengið sér-
staka tilsögn fyrir komandi
slátrun sem færi fram í tæka tíð
þannig að kalkúnarnir yrðu
komnir á markað fyrir páska.
„Ég er viss um að þetta verður
paskamaturinn í ár hjá mörg-
um fjölskyldum," sagi Alfreð
og benti á um leið að Islending-
ar væru það nýjungagjarnir í
mat, að öruggt væri að kalk-
únninn ætti ekki síður upp á
pallborðið hjá þjóðinni en aðr-
ar nýjungar sem yfirleitt væri
vel tekið.
Alfreð benti á að hentugasta
sláturstærð á kalkún væri í
kringum 4-5 kíló, og væri það
sú stærð sem hentugust væri
fyrir meðal fjölskyldu.
Ætlar að f ramleiða
allt að 2000 á ári