NT - 14.04.1985, Qupperneq 5
Sunnudagur 14. apríl 1985 5
heimur..
Islandi NT-myndir: Sverrir
dvelja þá gjarnan fyrstu og
síðustu nóttina á hótelinu.
Þegar Emil var spurður
hvernig gestir milljónamæring-
ar væru, sagði hann að undan-
tekningarlaust væru þeir hið
elskuiegasta fólk og skæru sig
í engu úr hópi _hótelgesta.
„Margir þessara manna koma
ár eftir ár og eru orðnir heima-
vanir hér,“ eins og hann orðaði
það.
Ýmis konar ráðstefnuhald
er orðinn fastur liður í þjón-
ustu hótelsins. Þegar Emil var
inntur eftir þeirri starfsemi
sagði hann að flestar þeirra
væru á sumrin og tækju þær við
þegar árshátíðunum Iyki. „Við
erum með þrettán fundarsali
bæði stóra og smáa og þeir
gefa okkur tækifæri til að vera
með ýmislegt í gangi á sama
tíma.
Hvað þessa og aðra þjónustu
snertir þá höfum við reynt að
koma því þannig fyrir aö hún
geti verið sem fjölbreyttust.
Þannig hafa nýlega verið lagð-
ar trimmbrautir út frá hótelinu
fyrir þá sem vilja skokka sér til
hressingar. Sundlaugin og
gufubaðið er líka vinsælir
viðkomustaðir ferðamanna.
Þar er nú hægt að fá nudd auk
þess sem margir notfæra sér
vatnsnuddpottinn. Við rekunt
líka hjólaleigu á sumrin og
skíðaleigu á veturna svo eitt-
hvað sé nefnt.
Þegar Helgarblaðsmenn
ráku nefin inn í eldhús hótels-
ins var þar margt á seyði í
orðsins fyllstu merkingu.
Menn mega heldur ekki deyja
ráðalausir ef elda á veislumat
ofan í sjöhundruð manns. Yfir-
matsveinninn Óskar Guðjóns-
son sagði okkur að matreiðsla
ætti sér stað allt frá því klukkan
hálf fimm á morgnana til rúm-
lega ellefu á kvöldin. „Það
kemur fyrir að við erum með
mat í fimm sölum í einu og
hvergi sama matseðilinn. Dags
daglega fer líka töluverð vinna
í að undirbúa mat fyrir mötu-
neytin þrjú sem hótelið hefur
á sinni könnu en þangað fara
reglulega um það bil þrjú
hundruð máltíðir. Hér hefur
líka verið bryddað upp á ýmiss
konar nýjungum í sambandi
við þjóðarvikur þar sem mat-
reiddir eru réttir frá ýmsurn
löndum. Þáhefurhóteliðfeng-
ið til liðs við sig fræga mat-
reiðslumenn frá þessum lönd-
um og það hefur verið
skemmtilegt og gagnlegt að
kynnast þeim."
En það þarf meira til en
eldhús og sundlaug ef veita á
góða þjónustu á hóteli. Við
fylgdumst með starfsemi í
stóru þvottahúsi í kjallara þar
sem þvottur er afgreiddur í
tonnatali. I næsta herbergi
voru birgðaverðir hótelsins að
taka til vínföng sem stöðugt
renna ofan í þá sent hótelið
gista. Við hittum líka að máli
rafvirkja, trésmiði og dúklagn-
ingarmenn sem vinna við
breytingar og viðhald og svo
mætti lengi telja.
Við urðum líka að bursta
rykið af ensku og dönskukunn-
áttu okkar þegar við röbbuð-
um við nokkra af gestum hó-
telsins. Allt bramboltið væri
að sjálfsögðu til einskis ef gest-
irnir væru ekki ánægðir. Það
eru jú þeir sem skaffa okkur
moneypeningana í kassann.
Og ekki vantaði það, þeir
voru hæst ánægðir með þjón-
ustuna og báru bæði landi og
þjóð góða söguna. Niðurstaða:
Hótel Loftleiðir er heill heimur
og það alveg út af fyrir sig.
■ Gufubaðið, nuddið og laugin eiga sína föstu viðskiptavini.
■ Emil Guðmundsson hótelstjóri. „Þetta er eins og ein stór fjölskylda.“
■ Páll Jörundsson og Jakob Bachmann birgðaverðir á sínum stað.
■ Erlendir matreiðslumenn setja sinn svip á matreiðsluna af og til.
60 utanjerðir mánaðarlega
Ótal húsbúnaðarvinningar
MIÐI ER MOGULEIKI
HAPPDRÆTTI
Dvalarheimilis aldraðra sjómanna