NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 14.04.1985, Qupperneq 22

NT - 14.04.1985, Qupperneq 22
■ Hanna Schygulla og Rainer Werner Fassbinder saman árið 1980. Hún býr nú í París, en dvelst einnig oft hjá foreldrum sínum í Miinchen. Kona þúsund andlita Hanna Schygulla er framsæknasta leikkona Evrópu um þessar mundir G/obus? iÍHOWARD JARÐTÆTARAR Islenskir bændur þekkja hina einstöku endingu HOWARD jarðtætaranna eftir 25 ára notkun hér á landi. Hin einstaka ending og hagstætt verð, gera kaup á HOWARD tæturum að besta kostinum. HOWARD HR 30 jarðtætarar fyrirliggjandi í 60“ - 70“ - 80“ breiddum með fjögurra hraða Heavy Duty gírkassa. Verð: 604< kr. 78.300.- 70“ kr. 82.600.- 80“ kr. 87.600.- Pantið strax og tryggið tímanlega afgreiðsiu. Einstæðir greiðsluskilmálar. LÁGMÚLI 5, SlMI 81555 ■ Venjulega eru kvikmyndaleikar- ar flokkaðir sem annaðhvort stjörnur eða rulluleikarar. Fyrri tegund leikara reynir að finna viöurkenndan persónuleika sem markaðurinn með- tekur og þróar hann svo. Hin tegund- in sökkvir sér ofan í karakterinn hverju sinni og mótar sjálfan sig að honum. Hanna Schygulla hefur hæfi- leika til hvoru tveggja. Hugvit hennar og tækni gera henni kleift að takast á við breið, breytileg og ólík hlutverk. Þessi pólska leikkona hefur leikið í 40 myndum á 15 árum; þýskum, frönskum, spænskum, ítölskum og enskurn. Hún er kona þúsund andlita og tiJfinninga, leikkona sem getur lagað sig að kröfum níunda áratugar- ins. „Framsæknasta leikkona okkar tíma“ Samstarfsmenn og gagnrýnendur eru sammála. Leikstjórinn Andrzej Wajda kallar hana bæði framsækn- ustu og æsilegustu leikkonu okkar tíma, leikstjórarnir Marco Ferreri og Ettore Scola taka undir og telja hana öflugan leikara með breiða persónu- túlkun. Og Wajda heldur áfram: „Á 30 ára ferli niínurn sem kvikmynda- gerðarmaður hef ég aldrei séð aðra eins breytingu á einni manneskju og Schygulla. Hún skiptir ekki aðeins yfir í persónu sem maður ekki þekkir, heldur slíka sem maður hefur aldrei séð. í raun er persóna hennar gamal- dags. Það er ein af ástæðunum fyrir því hve hún hrífur, þegar hún túfkar konur sem eru að losna úr viðjum. Hún trúir í raun þeim öflum sem persóna hennar býr yfir til að brjóta niður." Þessa þversögn má rekja til fjöl- skrúðugrar fortíðar Schygulla, bó- hcmdaga hennar með Fassbinder og bernsku sem mótaðist af ótta og eymd sem flóttamaður á síðustu dög- um þriðja ríkisins og þess sem á eftir fylgdi. Schygulla fæddist á jóladag árið 1943 í Katowice, skammt frá Ausc- hwitz. Snemma árs 1945, þegar Þjóð- verjar voru á undanhaldi fyrir rauða hernum, flúðu foreldrar hennar und- an framsókninni. Schygulla minnist þess að hún og móðir hennar hafi aðeins haldið lífi þegar þau lentu í klónum á skæruliðum, vegna þess að þær töluðu pölsku en ekki þýsku. Fjölskyldan endaði í Múnchen og bjó fyrst í gömlum járnbrautarvagni, en síðan í lítilli íbúð. Að vilja foreldra sinna innritaðist hún t háskóla, lagði stund á heimspeki og var byrjuð á lokaritgerð um kleyfhuga þegar hún féll á prófum. Schygulla heföi líklega endað í kennslu, ef hún hefði ekki akkúrat þá kynnst ræfilslegum ungum leikstjóra sem hét Rainer Fassbinder. Gagntekinn af valdbeitingu „Allt frá byrjun vissi fólk að hann var einstakur," segir Schygulla í dag. „Það var kraftur í honum." Og sá kraftur var jafn eyðandi og hann var skapandi. í kvikmyndabransanum var hann rnaður sem ekki var hægt að líta framhjá á áttunda áratugnum. Á aðeins 13 árum lauk hann við 41 kvikmynd, sjónvarpsmyndir og frarn- haldsþætti. Eins og Schygulla bætir þurrlega við, „Hik var ekki hlutur sem hann fílaði." Fassbinder var heillaður af að lýsa beitingu og misþeitingu valds, næst- um allar myndir hans fjalla um cjn- hverskonar niðurlægingu; yfirmenn kúga undirmenn, hvítir hörundslit- aða, eiginmenn eiginkonur, karl- menn yfirleitt allar konur. Þetta var ekki aðcins hlutur sem Fassbinder lagði út frá í huganum, þetta var þáttur sern hann beitti sjálfur gagn- vart leikurum sínum í anti-leikhús- inu, þörf hans til að spila harðan, mislyndan og miskunnarlausan leið- toga. Naut þess að láta aðra þjást Leikarinn Kurt Raab hefur lýst lífinu í anti-leikhúsinu sem jafn- vægislist á mörkum sadisma og sjálfs- niðurlægingar. þar sem skiptust á umbun og refsing. Fassbinder lokkaði til sín karlelskendur með loforðum um feit hlutverk, losaði sig síðan við þá. Af þeirn þremur mönnum sem tengdust honum nánast, er einn á lífi, annar var drepinn í slagsmálum eftir að Fassbinder sagði honum upp og sá þriðji hengdi sig. Irm Hermann, sem lék málleys- ingjaambátt í Beisk tár Petru von Kant (1972), dýrkaði Fassbinder sem guð. Viðbrögð hans voru að niður- lægja hana á allan hátt. Hann barði hana í harðfisk hvað eftir annað, stundum í viðurvist annarra, og þegar hún hótaði að fleygja sér út um glugga, hvatti hann hana. Hún reyndi þrisvar sinnum að fremja sjálfsmorð. Eitt sinn, þegar hópurinn hélt matar- veislu, lýsti Fassbinder því yfir að hann skyldi sýna það lítillætí að sænga nteð Hermann, grænmetisætu, ef hún borðaði steik. Hún pantaöi hljóðlega og hámaði í sig kjötið, en

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.