NT - 14.04.1985, Qupperneq 10
■ Þ« vélmcnnin geli ekki hupuð sjáll', )>eta þau hjálpað manninum við aö halda hugsun sinni óskcrtri. Hér sést
vélmeiiiiishandleggur, sem er sérhannaöur til skuröaögeröa. Ekki þarf aö lial'a áhyggjur af handskjálfta læknis þegar
þetta tæki er annars vegar.
áburðardreifarar
á frábæru verði
★ Sterkir og einfaldir
★ Nýtísku hönnun
Sunnudagur 14. apríl 1985 10
■ Á undaförnum árum hefur veriö
vinsælt í kvikmyndum. að gera mikið
úr hlutverki vélmenna (róbóta) í
framtíðinni. Stjörnustríðskvikmynd-
irnar til dæmis, skarta slíkum hug-
myndum í ríkum mæli ogsegjá má að
vélmenni af einhverri gerð liti mjög
hugmyndir fólks um frámtíðarsamfé-
lagiö.
í daglegu tali fólks má oft heyra
minnst á fólksfjölgunarsprenginguna
þegar heimsmálin eru rædd. en ýmis-
legt bendir nú til að brátt getum viö
farið að tala um sprengjukennda
fjölgun vélmenna. Talið er að í heint-
inum í dag séu einhvers staðar í
kringum 25.000 starfandi vélmenni.
en eftir aðeins fimm ár verði þau
orðin ein 115.000.
Vélmennavæðingin er þó rétt á
byrjunarstigi og þeir róbótar sem um
er að ræða eru fjarri því að vera þau
skyni gæddu mannlíki sem við sjáum
í bíó. Þó einkaþjóns mannlíki séu
orðin vinsæl meðal þúsunda velmeg-
andi áhugamanna einkum í Banda-
ríkjunum eru þau enn afar frumstæð
og einungis fær um að framkvæma
allra einföldustu þjónustuverkefni.
Þéss verður þó varla langt að bíða að
hægt verði að fá vélmenni sem geta
ryksugað eða slegið blettinn, en þó að
Iramþróunin sé hröð í þessum efnum
veröur þó enn langt þar til þau veröa
mannleg í útliti eðaathöfnum. Þaðer
haft eftir vísindamanni, sent vinnur
við að fullkomna vélmenni að þeir
einir sem reyna að búa til vél sem api
eftir mannlegar hreyfingar og athafn-
ir, skilji snilli mannsins.
Það sem gerir vélmennin þó mikil-
væg og æskileg er sú tegund vinnu
sem þau geta framkvæmt. Vegna þess
að það er hægt að forrita þau til þess
að framkvæma á sundurgreinandi
hátt ýmis einföld störf. geta þau leyst
manninn af hólmi þar sem aðstæður
eru á einhvern hátt óæskilegar eða
hættulegar. Störf úti í geimnum, neð-
ansjávar, þar scm sprengihætta er. í
eiturefnaiðnaði, í sýklarannsóknum
og við háan hita og þrýsting. Allt eru
þetta dæmi um aðstæður þar sem
vélmenni koma sér vel. Það sem þó
er mest um vert. er að þau geta unnið
störf, sem ekki eru beinlínis líkam-
lega hættuleg. en eru andlega firrt og
mannskemmandi. Vélrænar endur-
tekningar og fádæma einhæfni eru
stór þáttur í mörgum störfum sem
fjöldaframleiðsla samtímans býður
upp á og slík störf henta óþreytandi
vélmennunum rnjög vel. Ef menn
losna undan kvöðum þess konar
vinnu, geta þeir snúið sér að frjórri og
uppbyggilcgri verkefnum.
Vélmennin ganga í
störfin okkar
En þó tilkoma vélmcnna og tölvu-
aldar beri með sér frækorn frelsunar
undan oki mannskemmandi starfa, er
ekki þar með sagt aö þessi frelsun sé
skilyröislaust jákvæð. „Frelsunina”
mætti einnig túlka þannig, að fólki
verði sagt upp störfum, sem það
byggir á lífsafkomu sína. Atvinnu-
leysi vegna tækniþróunarinnar er
raunveruleg ógnun við afkomuöryggi
þúsunda fólks og þar með við mann-
gildi þeirra og sjálfsvirðingu. Að vísu
má það til sanns vegar færa að
mannkynssagan sýni, að tæknifram-
farir hafa, þegar til lengdar lætur,
skapað fleiri störf heldur en þær hafa
eytt. Tilkoma bifreiðarinnar setti til
dæmis á hausinn margan hestakerru-
framlciðandann, en þegar upp var
staðið voru þau störf sem töpuðust
margfalt færri en þau sem hafa skap-
ast í kringum bílaiðnaðinn. Á sama
hátt má hugsa sér að með aukinni
notkun vélmenna skapist ný störf við
framleiðslu þeirra og hönnun, forrit-
un og viðgerðir. í vélmennavæddu
samfélagi gæti því verið þörf fyrir
mun fleiri störf en við þekkjum í dag,
þó svo að þau séu af annarri tegund.
Samkvæmt þessu mun tækniþróunin
leysa úr læðingi umsköpun atvinnu-
lífsins og opna möguleika til fjöl-
breyttari og áhugaverðari starfa. En
slík umsköpun, eins óhjákvæmileg og
hún er, getur þó aldrei gengið snuðru-
laust fyrir sig. Þvert á móti er líklegt
að hún markist af fjölda vandamála
fyrir einstaklinga sem verða að gera
róttækar breytingar á lífsmynstri sínu
samfara því að samfélagsþróunin fell-
ur í nýjan farveg. Það er ekki sjálfgef-
iö, að þegar eitt starf úreltist sé annað
fyrir hendi, sem fólk geti gengið inní.
Einnig er það ótrúlegt, að fólk geti
nýtt sér ný atvinnutækifæri án þcss að
flytjast búferlum
Vaxtarverkir
tækniþróunarinnar
Störf þau, sem fyrst verða úrelt.
eru eðli sínu samkvæmt, unnin af
★ Lág hleðsluhæð (92 cm)
★ Litur: Grænir
800 lítra kr. 13.500.-
Þaö grær eftir
þann græna
Hafið samband við sölumenn okkar,
sem veita allar nánari upplysingar
LÁGMÚLI 5, SlMI 81555
■ Einkaþjónsvélmcnni eins og hér sjást eiga talsverðum vinsældum að fagna.
■ Erfitt er þó að liugsa sér að mikil fullnægja sé í félagsskap mannlíkis af
þessu tagi á heiinilimi.