NT - 14.04.1985, Side 11
Sunnudagur 14. apríl 1985 11
ófaglærðu fólki. Störfin sem koma til
með að skapast, krefjast faglærðs
fólks. Og þegar til lengri tíma er litið,
koma öll ný störf til með að kalla á
sérþekkingu, frumleika og liugvit,
því ef þessar kröfur eru ekki fyrir
hendi í starfi getur það allt eins verið
framkvæmt af vélmenni.
Segja má líka að hraði tækniþróun-
arinnar hafi verið að aukast í sögunn-
ar rás og sú umsköpun, sem á sér stað
þegar meiriháttar tæknilegar framfar-
ir koma fram, tekur sífellt styttri
tíma. Umbyltingin sem mannkynið
stendur frammi fyrir í dag og er að
ýmsu leyti sambærileg við sum stig
iðnbyltingarinnar, kemur til með að
gerast mjög ört og samfélagslegar
aukaverkanir hennar því stórfeng-
legri en ella. Þess vegna er það stórt
atriði, ef forðast á ógnanir við sjórn-
skipulagsform lýðræðisins og ef halda
á samfélagslegum stöðugleika, að
gripið sé til ráðstafana, sem draga úr
þeim sársauka og vandamálum sem
fylgja þessu umbreytinga tímabili.
Víðtæk skipulagning og áætlanagerð
hvað varðar menntun og endur-
menntun, búsetu og staðsetningu
nýrra atvinnutækifæra, verður að
koma til ef koma á í veg fyrir
afgerandi samfélagsátök. Áætlana-
gerð af þessu tagi og útfærsla hennar
er geysilega umfangsmikil og kostn-
aðarsöm, og kallar á samstarf aðila
vinnumarkaðarins og fjölmargra ann-
arra hagsmunahópa. Það er svo aftur
kaldhæðni vestrænnar stjórnmálaþró-
unar, að á meðan vinsældir sérfræð-
ingaræðis, regluveldis og ríkisafskipta
minnka eru þetta einmitt þau öfl sem
best eru í stakk-búin til að leysa þetta
verkefni. Ósennilegt er að markaðs-
höndin ósýnilega geti leitt svona mál
farsællega til lykta, eins og raunar
breskt atvinnulíf fékk smjörþefinn af
síðastliðið ár.
Hvernig svo sem þjóðum Vestur-
landa tekst til við að meðhöndla þessi
mál, má gera ráð fyrir að upp vaxi
kynslóð hæf til starfa í hinu tölvu- og
vélmennavædda samfélagi. Mennta-
kerfið og uppeldisstofnanir aðlagast
breyttum aðstæðum og nauðsynleg
þekking, hæfni og sköpunargeta
verða útbreidd og aimenn. Ástæðu-
laust er að ætla að hæfileikinn til
skapandi hugsunar af einhverju tagi,
sé bundin við hóp fárra útvaldra, en
ef slíkt væri raunin kemur vélmenna-
væðingin til með að hafa varanleg og
alvarleg vandamál í för með sér. En
lestur og skrift þóttu jú eitt sinn
hæfileiki, sem aðeins lítill hluti fólks
gæti tileinkað sér þó þörf iðnaðarsam-
félagsins fyrir læst vinnuafl og neyt-
endur sæi um að útrýma þeirri bá-
bilju.
Tilfinningalaus mannlíki
Það er hægt að hugsa sér stórkost-
legri afleiðingar af vélmennavæðing-
unni, en þær sem hér hafa verið
tíundaðar. Vélmennin verða sífellt
fullkomnari og geta framkvæmt fleiri
og fleiri störf. Kemur þá ekki að því
að þau verða mannlíki með skynjun
og jafnvel einhvers konar skynsemi
og geta þá yfirtekið skapandi störf
jafnt sem vélræn? Hvert verður þá
hlutverk mannsins, ef mannlíkin, í
krafti „skynsemi" sinnar taka að
drottna yfir öllum samfélagsháttum?
Það eru spurningar af þessu tagi sem
liafa orðið vísindaskáldsagnahöfund-
um og kvikmyndaframleiðendum að
viðfangsefni og féþúfu.
I þessu, eins og svo mörgu ööru, er
verið að spila á óttablandna virðingu
fólks fyrir því, sem það ekki þekkir
og finnst það ekki geta haft áhrif á.
Mannlíki bera hins vegar ekki ótta-
blandna virðingu fyrir einu eða neinu
og fyrst þau eru laus við óþarfa
tilfinningasemi, hljóta þau þá ekki,
þegar upp er staðið, að verða ofan á
í samkeppninni við breyskan
manninn?
En samanburður sem þessi er þó í
raun út í hött, því verið er að bera
saman mjög ólíka hluti. Ógerningur
er að framleiða neitt sem jafnast á við
mannshugann. Heilinn samanstendur
af 10 þúsund milljónum taugafruma
og 100 þúsund milljónum annarra
fruma, sem með í samspili mynda
óendanlega flókið kerfi. Þessu til
viðbótar er hver einstök fruma marg-
þætt eðlis- efnafræðilegt kerfi, sem
vísindamenn hafa enn mjög takmark-
aðan skilning á. Heilinn er afurð
þróunar náttúruvalsins, þar sem að-
eins þeir hæfustu lifa.
Tölvan og vélmennin eru hins vegar
byggð á elektróðum og rafmagni á
síðustu fjörutíu árum, af mönnunum
í því markmiði að auka afköst.
Tölvan hefur engan sjálfstæðan
vilja og aðeins þann tilgang sem
maðurinn gefur henni. Tölvan er
hönnuð til þess að framkvæma reikn-
ingslistir. Sérhvert vandamál, hversu
flókið sem það er, getur tölvan leyst,
svo framarlega sem hægt er að skipta
því upp í vel skilgreind reikningsleg
ferli.
Það sem er heillandi við tölvurnar,
er ekki tegund eða eðli reikningsað-
gerðanna sem hún framkvæmir, held-
ur það að hún getur gert þær hratt oe
villulaust.
Heilinn hins vegar er ekki sérstak-
lega vel fallinn til reikningslistarinn-
ar. Mennirnir þurfa og hafa alltaf
þurft utanaðkomandi hjálp við lausn
einföldustu vandamála. Blað og
blýantur, arabíska talnakerfið, lógar-
itmar, reiknistokkar, reiknivélar og
nú síðast tölvur, eru allt dæmi um
þetta. Mannshugurinn hefur ekkert
að gera með snilli í talnaleikjum, því
mikilvægasta hlutverk hans snertir
dómgreind og skapandi hugsun. Að
geta dregið ályktanir á ónógum fors-
endum, að skilja fegurð og blæbrigði
tilverunnar, gleði og sorg, verða
mannlíki aldrei fær um að gera.
Einfaldur hlutur eins og að þekkja
stafinn A, skrifaðan með þúsund
mismunandi ritnöndum, vefst ekki
fyrir nokkrum manni, en enn sem
komið er hefur ekki reynst unnt að
forrita tölvu til þess að leysa þetta
Verkefni. Þannig eru ótal hlutir, sem
sérhver maður getur framkvæmt
áreynslulaust, langt fyrir utan og ofan
getusvið tölva, og munu verða um
ókomna tíð. En vélmennin geta þó
lifað í sátt með manninum og hjálpað
honum til þess að öðlast betra líf. En
ef verið er að leita eftir fullkomnari
tilvistarformi verður sú fullkonun að
koma frá manninum sjálfum en ekki
einhverju mannlíki.
■ Vélmenni býr til vélmenni. Nutkun vélmenna í iðnaði færist stöðugt í vöxt og við það verða fjölmörg störf úrelt.
Samfélagslegar afleiðingar slíks geta verið afdrifaríkar ef ekki er tekið á málunum með skynsemi.
BRUVIK I
Eigum fyrirliggjandi BRUVIK loftræstikerfi fyrir allar
gerðir gripahúsa.
Gott verð - Góð greiðslukjör
Við mœlum með BRUVIK og það gera
bœndur líka.
Gbbust
LAGMÚLI 5, SIMI 81555