NT - 14.04.1985, Page 13
Sunnudagur 14. apríl 1985 13
L-eilclist
Stúdentaleikhúsið sýnir leikrit sem ekki er leikrit. Sögurnar tvær sem verkið er byggt á eiga ekkert sameiginlegt en eru þó nátengdar.
■ Þaðeróhættaðfullyrðaað
Stúdentaleikhúsið hefur sett
skemmtilegt strik í reikninginn
hvað leikhúslíf okkar eyja-
skeggja snertir. Þrátt fyrir að
vera áhugamannaleikhús með
lélega aðstöðu í matsal Félags-
stofnunar stúdenta hefur leik-
húsi þessu tekist að hlása fersk-
um vindum inn í kálgarða ís-
lensks menningarlífs.
Á morgun sunnudag I4.
apríl frumsýnir Stúdenta-
leikhúsið „Litla prinsinn" og
„Píslarsögu Jótis Magnússon-
ar“ í leikgerð Halldórs E. Lax-
ness og er hann jafnframt leik-
stjóri verksins.
Hér mun vera á fcrðinni all
nýstárleg uppákoma þar sem
ekki er um leikrit að ræða í
hefðbundinni merkingu þess
orðs.
„Það má alveg eins líta á
þessa tilraun sem málverk sem
þó er á hreyfingu". sagði Hall-
dór þegar umboðsmaðúr Helg-
arblaðs NT lagði fyrir hann
spurningar nteð menningar-
legu ívafi.
Kjartan Ólafsson. sem um
þessar mundir stundar tónlist-
arnám í Hollandi. samdi tón-
verk byggð á þessum tveimur
ólíku verkum. Tónlistin er el-
ektrónísk og með hana að bak-
hjarli svo og sögurnar tvær,
útbjó Halldór leikgerðina þar
sent hann blandar saman
hljóðum og myndum. Leikar-
arnir tólf. sem koma fram í
sýningunni taka á sig hin ýntsu
gervi og hreyfa sig innan um
myndir sem Hallgrímur Helga-
son myndlistarmaður hefur
málað. Yfir þcnnan söfnuð er
svo steypt mikið af Ijósum und-
ir umsjón Egils Árnasonar.
Útkomaner... ja.þúverður
sjálfur lesandi góður að koma
og sjá því sýningunni er ekki
svo auðveldlega lýst með
orðum. Það er neínilega þann-
ig að það sent er í þessari sýn-
ingu er ekki, og það sem ckki
er, ja ... það er, eða þannig.
Dansarnir eru ekki dasar og
hin töluðit orð eru ekki orð í
venjulegum skilningi. Verkin
tvö, Píslarsaga Jóns Magg og
Litli prinsinn eiga ekkert sam-
eiginlegt cn eru þó nátengd í
sýningunni og þannig mætti
lengi telja.
Einn af aðstandendum leik-
hússins lét þess getiö í samtali
við Helgarblaðið að verkin tvö
sem nú á að taka til sýningar
séu að mörgu leit tánknræn fyr-
irstúdentaleikhúsið. Þaðmájú
segja að leikhúsið sjálft jié
■ Halldóra Friðjónsdóttir sýningarstjóri og Halldór E. Laxness leikstjóri. Einn af draumum
Stúdentaleikhússins er að leikhúsfræði verði tekin upp sem kennslugrein við háskólann og þar með
gæti rekstur leikhússins oröið hluti af starfsemi deildarinnar.
Málverk á sýningu
■ Hallgrímur Helgason listmálari lagar hér munnsvipinn á Ljósa-
manninum sem kemur við sögu í öðru verkanna hjá Stúdenta-
ieikhúsinu að þessu sinni.
„Litli prinsinn" í íslensku
leikhúslífi og saga þess sé písl-
arsaga. Aðstaðan í mötuneyti
félagsstofnunar stúdenta er
mjög takmörkuð og verður að
taka ullar leikmyndir niður eft-
ir hverja sýningu til að rýma
húsið. Hér er því nánast um að
ræða enn eitt áhugamanna-
leikhúsið á götunni.
Þrátt fyrir þetta hcfur
leikhúsinu tekist að sanna til-
vcrurétt sinn á undanförnum
árum með mjög athyglisverðu
framlagi til leiklistar í landinu.
Nýlega skrifaði háskólarek-
tor undir leigusamning til fimm
ára þur sem Tjarnarbíó er leigt
undir starfsemj ferðamanna-
baðstofuleikhússins „Light
Nights," sem annars á allt gott
skilið cn um leið er útilokað að
stúdentaleikhúsið fái þar inni.
Hin takmarkaða aðstaða leik-
hússins í félagsstofnun stúd-
enta mun einnig fyrir bý þar
sem húsiö hefur verið leigt
Ferðaskrifstofu íslands.
Það virðist því sem að píslar-
suga litla prinsins sé aðeins rétt
aö hefjast en eins og áur segir
verður frumsýningin klukkan
21.00 ásunnudagskvöld.
J.Á.Þ.
„Egsverþað...
þeir koma svona frá Kaaber“
RÍÓkaffipakkinn á að vera harður því hann er lofttæmdur.
Þannig helst RÍÓkaffið ferskt og bragðríkt alla leið í bollann þinn.
Rjúkandi RÍÓ -hörkugott kaffi