NT - 14.04.1985, Side 15
Myndlist
Sunnudagur 14. apríl 1985 15
til að myndhöggvarar stofnuðu með
sér félagsskap. Áhugi fyrir högg-
myndum hafði li'ka farið vaxandi.
„Áður voru aðeins þeir Ásmundur
Sveinsson og Sigurjón Ólafsson og á
undan þeim áttum við engan annan
myndhöggvara en Einar Jónsson.
Einar er þó sá myndhöggvari. sem
hefur trúlega haft þaö hvað best. Því
hann vará tíma eini ríksstyrkti lista-
maðurinn^ hafði bankastjóralaun,"
segir Ragnar og brosir í kampinn.
1 myndarlegri sýningarskrá segir
einn af aðstandendum sýningarinnar.
Níels Hafstein. í formálsorðum:
„Eftir margra ára baráttu og bis og
bax við uppbyggingu húsnæðisins að
Korpúlfsstöðum, þá hefur gefist tími
til að búa til skúlptúr. Það er ekki
ólíklegt að þessi nýi vaxtarbroddur úr
einkasmiðjum eða verkstæðum á
Korpúlfsstöðum eigi eftir að dafna
vel ogörva listamenn til dáða. sýning-
in ber vitni um það, hún er fjölbreytt
í efni, aðferðum og tækni, og hún
teygir anga sína inn á ýmsar brautir
hugsunar og tilfinninga."
Á öðrum stað rekur Níels aðdrag-
andann að stofnun Myndhöggvarafé-
lagsins.
„Það leikur varla nokkur vafi á því
að útisýningar á Skólavörðuholti í
Reykjavík mörkuðu skörp skil í
myndlist þjóðarinnar þegar í upphafi
1967. Það má jafnvel fuljyrða að þar
hafi orðið sprenging og nýtt upphaf
framúrstefnu samkvæmt alþjóðlegum
mælikvarða, jafnhliða því sem raun-
sæisleg list tók ntikinn fjörkipp. Fram
að þessum tíma hafði skúlptúrinn
verið á hrakhólum og hornreka a
samsýningum, oftast illa lýstur á
göngurn, - en nú varð sem sé rnikil
breyting. Skúlptúrinn hoppaði létti-
lega ofan af stöllunum út á klappir og
tún; gömul þvottavél fékk nýja vídd,
eldtfaug óx úr grasi, brauðvarða seig
saman þegar blotnaði í henni og var
síðan fjarlægð af heilbrigðiskefinu."
Níels telur að helsti ávinningur af
listabröltinu á Skólavörðuholti hafi
orð;“ sá að draga fram nýjar hliðar á
þrívíðri myndlist. Skúlptúrinn var
ekki aðeins stytta heldur umhverfis-
mótandi hlutur.
Svo er að sjá á sýningunni að
Kjarvalsstöðum að þessu sinni að
íslensk höggmyndalist hafi haldið
áfram að dafna og blómstra. Við
vonum að svo megi halda áfram. Um
leið og við óskum listamönnunum til
ihamingju þökkum við fyrir að mega
njóta þess sem þeir hafa fram að færa.
1 „Veruleikur“ Steinunn Þórarinsdóttir 1985, járn og steinsteypa.
■ „Cliché“ Ólafur Lárusson 1985, blönduð tækni.
Innmötunarbúnaður með 16 slaga afldreifibunaði soxun4cm með alit að 31 hnífi
Verðlisti og upplýsingar um PÖTTINGER fjölhnífavagna.
Auðveld brýning og viðhald
Pöttinger Trend II 28 m3.
22 hnífar með sjálfvirkum útsláttaröryggjum fyrir
hvern einstakan hnif. Söxun 50 mm.
. Vökvalyft sópvinda 1.6 m.
Dekk 11,5x15.Dr.fskaft með tvöföldum hjörulið við
dráttarvél og yfirálagsvörn. Verð með ofangreind-
um búnaði kr. 236.000.00
Ladeprofi II 31 m3
31 hnífur meö sjálfvirkum útsláttaröryggjum fyrir
hvern einstakan hnif. Söxun 40 mm. Vökvalyft
sópvinda 1,6 m.Lokaðar plasthúðaðar hliðargrind-
ur. Veltiöxull með fjöðrum. Flotdekk 15 x 17. 10
strigalaga. öremsur á öl.um hjólum stjórnaö úr
ekilshúsi. Drifskaft með tvöföldum hjörulið við
dráttarvél og yfirálagsvörn. Verð með ofangreind-
um búnaði kr. 325.000.00
Ladeprofi III 36 m3
Utbúnaöur er sá sami og á Ladeprofi II og auk þess
vökvaopnun á afturgafli. Verð með ofangreindum
búnaði kr. 348.000.00
Ernterprofi III 36 m3
Sami búnaöur og á Ladeprofi II og auk þess þriggja
valsa heymatari að aftan með þverfæribandi með
keyrslu í báðar áttir. Sjálfvirk bremsa í beisli.
Hleöslulkvarði. Verð með ofangreindum búnaöi
kr. 429.000.00
PÖTTINGER
verksmiðjan er ein
af stærstu
framleiðendum
heyvagna í Evrópu,
en framleiðaauk
þessfjöldaannarra
búvéla.
Liiric
Bíldshöfða 8 - Símar 8-66-55 & 8-66-80
F J OLHNIFAVAGN AR
Viðerumstoltiraf að
geta boðið fjölhnífavagnana
frá PÖTTINGER á sérstöku afsláttarverði
Matari skilar heyinu beint í heyblásarann. Þverfæribandið gengur bæði til hægri og vinstri
og nýtist einnig til losunar og jöfnunar í flatgryfjum