NT - 14.04.1985, Qupperneq 17
Sunnudagur 14. apríl 1985 17
Orðeruáíslensku
til yfir allt sem er
hugsað á jörðu
■ Kæri Jóhann. Ég varð
mjög hissa á þeim málalykt-
um þegar tískuriti einu hérá
landi var gert ad skipta um
nafn á þeirri forsendu að
bandarískt vikurit héti sama
nafni. Mér finnst eiginlega
óhugsandi að finna nöfn á
íslensku sem maður gæti
ekki átt það á hættu að
þýðingar sömu nafna eða
orða væru ekki notaðar ann-
ars staðar í heiminum. Nöfn
eins og Tíminn, Stjarnan,
Vikan, Spegillinn, Morgun-
blaðið, og ég veit ekki hvað
gætu fallið undir sömu kat-
egóríu. Hvað ermeð þennan
dóm? Höfum við þar með
tapað réttinum yfir okkar
eigin máli sem við í aldanna
rás höfum drukkið í okkur
svo að segja með blessaðri
móðurmjólkinni, ég bara
spyr.
íslendingur
Ps.... því orð eru á íslensku
til yfir allt sem er hugsað á
jörðu.
Þú þarft ekkert
að óttast
■ Ágæti íslendingur. Víst
skil ég ótta þinn og hugar-
angur vegna þess sem þú
telur ógnun við okkar frjóa
og margbreytilega íslenska
móðurmál, en óttast eigi,
málið er ekki jafn alvarlegt
og í fyrstu gæti virst.
Fyrst er þess að geta að
nokkurs misskilnings gætir í
bréfi þínu varðandi ástæður
þess að umræddu tískuriti
var bannað að nota það orð
sem um var að ræða. Ástæð-
urnar voru nefnilega ekki að
hið bandaríska vikurit héti
sama nafni, heldur að meiri-
hluti Hæstaréttar taldi hættu
á því að villst yrði á nafni
tískutímaritsins og vöru-
merki bandaríska vikuritsins
sem hafði verið skráð hér á
landi. Dómurinn byggði sem
sagt ekki á því að nafn tísku-
ritsins væri þýðing á nafni
bandaríska vikuritsins, enda
er sú málsástæða ekki talin
eiga við rök að styðjast í
héraðsdómi.
Til að gefa þér nokkra
hugmynd um í hverju vöru-
merkjaréttur er fólginn tel ég
rétt að geta lauslega ákvæða
í lögum um vörumerki sem
skýra það. í 1. grein þessara
laga kemur m.a. fram að
atvinnurekendur geta með
skráningu samkvæmt lögun-
um öðlast einkarétt til þess
að nota vörumerki sem sér-
stök auðkenni fyrir vörur,
verk eða þjónustu sem þeir
hafa til sölu í atvinnurekstri
sínum. Einnig kemur þar
fram að vörumerki geta verið
myndir, og eða orðasam-
bönd, þar á meðal vígorð,
bókstafir eða tölur, búnaður
vöru eða umbúðir. í 4. grein
kemur síðan fram að vöru-
merkjaréttur veitir eiganda
vernd gegn því að aðrir noti
heimildarlaust í atvinnu-
skyni vörumerki sem villst
verður á og merki hans. Þetta
á samkvæmt greininni við
um hvers konar notkun. Hér
er kjarninn kominn, því sam-
kvæmt vörumerkjalögunum
er heimilt að banna með
dómi notkun vörumerkis
sem brýtur í bága við ákvæði
laganna.
Eins og þú hefur eflaust
tekið eftir talaði ég um meiri-
hluta Hæstaréttar hér að
framan. Það varð nefnilega
ekki samstaða meðal dóm-
ara Hæstaréttar um að hætta
væri á því að villst yrði á
vörumerki bandaríska viku-
ritsins og nafni íslenska
tískuritsins. Meirihlutinn
réði sem sagt í þessu máli og
helstu rök hans fyrir því að
hætta væri á því að villst yrði
á þessum nöfnum voru
eitthvað á þessa leið: í fyrsta
lagi eru orðin mjög lík að
rithætti, enda um sama orðið
að ræða að uppruna til. í
öðru lagi merkja þau nokk-
urn veginn hið sama og
merking enska orðsins má
teljast alkunn hér á landi. í
þriðja lagi nota báðir aðilar
orðið sem nafn á tímariti.
Minnihluti Hæstaréttar, sem
samanstóð af tveimur dóm-
urum af fimm, taldi að ekki
yrði villst á margumræddu
vörumerki og tímaritsheit-
inu eins og það hafði verið
notað. Héraðsdómur telur
m.a. að enska orðið beri skýr
einkenni uppruna síns í
ensku máli, á meðan að ís-
lenska orðið beri ótvíræð ein-
kenni íslenskrar tungu.
Eins og þú ert vonandi
búinn að gera þér grein fyrir
er langt í frá að við höfum
tapað réttinum yfir okkar
ástkæra móðurmáli. Það
breytir hins vegar ekki
réttarvernd skráðra vöru-
merkja hér á landi sem sam-
kvæmt umræddum Hæsta-
réttardómi virðist vera nokk-
uð alþjóðleg. Hvort að The
Times á skráð vörumerki hér
á landi skiptir þó sem betur
fer okkar ágæta NT ekki
lengur máli, þ.e. eftir að
nafninu var breytt úr
Tíminn.
Jóhann Pétur Sveinsson svarar spurn•
ingum lesenda um lögfræðileg málefni
Guðsorð um helgina - messur
Árbæjarprestakall
Barnasamkoma í safnaðar-
heimili Árbæjarsóknar kl. 10.30
árd. Fermingarguðsþjónusta í
safnaðarheimilinu kl. 2.00. Org-
anleikari Jón Mýrdal. Altaris-
ganga fyrir fermingarbörn og
vandamenn þeirra þriðjudaginn
16. apríl kl. 20.30. Sr. Guð-
mundur Þorsteinsson.
Áskirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 11.00.
Guðsþjónusta kl. 2.00. Sr. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
Breiðholtsprestakall
Fermingarmessa í Bústaða-
kirkju kl. 11.00. Organleikari
Daníel Jónsson. Sr. Lárus Hall-
dórsson.
Bústaðakirkja
Laugardag: Barnaguðsþjónusta
kl. 11.00. Sr. Sólveig Lára
Guðmundsdóttir. Sunnudag
fermingarmessa kl. 10.30 á
vegum Breiðholtssafnaðar.
Fermingarmessa kl. 13.30.
Organleikari Guðni Þ. Guð-
mundsson. Altarisganga
þriðjudagskvöld kl. 20.30.
Mánudag 15. apríl, fundur
Kvenfélags Bústaðasóknar.
Félagsstarf aldraðra miðviku-
dag kl. 2-5. Sr. Ólafur Skúla-
son.
Digranesprcstakall
Barnasamkoma í safnaðar-
heimilinu við Bjarnhólastíg kl.
11.00. Fermingarguðsþjónusta
í Kópavogskirkju kl. 10.30. Sr.
Þorbergur Kristjánsson.
Dómkirkjan
Laugardag: Barnasamkoma í
kirkjunni kl. 10.30. Sr. Agnes
M. Sigurðardóttir. Sunnudag:
Fermingarguðsþjónustur úr
Seljasókn kl. 11.00 ogkl. 14.00.
Sr. Valgeir Ástráðsson.
Elliheimilið Grund
Messa kl. 10.00. Sr. Kristinn
Ágúst Friðfinnsson.
Fella- og Hólakirkja
Laugardag: Barnasamkoma í
Hólabrekkuskóla kl. 14.00.
Sunnudag: Barnasamkoma í
Fellaskóla kl. 11.00. Fermingar-
messur í kirkjunni kl. 11.00 og
kl. 14.00. Sr. Hreinn Hjartar-
son.
Grensáskirkja
Barnasamkoma kl. 11.00.
Messa kl. 14.00. Organleikari
Árni Arinbjarnarson. Aðal-
fundur Grensássóknar mánu-
daginn 15. apríl kl. 18.00 í
Safnaðarheimilinu. Sr. Halldór
S. Gröndal.
Hallgrímskirkja
Laugardag: Félagsvist í safnað-
arsal kl. 15.00. Sunnudag:
Barnasamkoma og messa kl.
11.00. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Þriðjudag, fyrirbænaguðsþjón-
usta kl. 10.30, beðið fyrir
sjúkum.
Landsspítalinn
Guðsþjónusta kl. 10.00. Sr.
Ragnar Fjalar Lárusson.
Háteigskirkja ,
Barnaguðsþjónusta kl. 11.00.
Sr. Tómas Sveinsson. Messa kl.
13.30. Ferming. Prestarnir.
Kársnesprestakall
Laugardag: Barnasamkoma í
safnaðarheimilinu Borgum kl.
11.00 árd. Sunnudag: Ferming-
arguðsþjónusta og altarisganga
í Kópavogskirkju kl. 14.00. Sr.
Árni Pálsson.
Langholtskirkja
Óskastund barnanna kl. 11.00.
Söngur - sögur - rnyndir. Sögu- ■
maður Sigurður Sigurgeirsson..
Fermingarmessa kl. 13.30.
Prestur sr. Sigurður Haukur
Guðjónsson, organleikari Jón
Stefánsson. Sóknarnefndin.
Laugarneskirkja
Fernringarmessa kl. 10.30.
Þriðjudag, bænaguðsþjónusta
kl. 18.00. Sr. Jón Dalbú Hró-
bjartsson.
Neskirkja
Samverustund aldraðra í dag,
laugardag, í safnaðarheimilinu
kl. 15.00. Ömmukórinn syngur
nokkur lög. Fiðluleikur.
Myndasýning frá Vestfjörðum í
umsjá Pálma Hjartarsonar,
kennara. Fyrirhuguð er ferð í
júní á þessar slóðir. Sr. Frank
M. Halldórsson. Sunnudag:
Barnasamkoma kl. 11.00. Sr.
Guðmundur Óskar Ólafsson.
Fermingarmessa kl. 11.00.
Fermingarmessa kl. 14.00.
Prestarnir. Miðvikudag: Fyrir-
bænamessa kl. 18.20. Ath. opið
hús fyrir aldraða þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 13-17. (Húsið
opnað kl. 12.00).
Seljasókn
Barnaguðsþjónusta í Öldusels-
skólanum kl. 10.30. Barnaguðs-
þjónusta í íþróttahúsi Seljaskól-
ans kl. 10.30. Fermingarguðs-
þjónustur í Dómkirkjunni kl.
11.00 og kl. 14.00. Guðsþjón-
ustan í Olduselsskólanum fellur
niður vegna ferminganna.
Sóknarprestur.
Seltjarnarnessókn
Barnasamkoma í Sal Tónskól-
anskl. 11.00. Sóknarnefndin.
LEVIS
ÁVINNSLUHERFI
Vinnslubr. 3 m kr. 9.000.-
Vinnslubr. 4,2 m kr. 12.000.-
Hafid samband við sölumenn okkar,
sem veita allar nanari upplysingar
G/obusp
LÁGMÚLI 5, SlMI 81555
Húsnæóisstofnun ríKisins
Tæknidcild l aug.-ivcy. 77. R. Simi 28500.
útboó
Ölfushreppur (Þorlákshöfn)
Stjórn verkamannabústaða, ölfushreppi, óskar eftir tilboðum í byggingu tveggja
íbúða á einnarhæðar parhúsi 195 m2, 673 m3. Húsið verður byggt við götuna
Norðurbyggð, Þorlákshöfn og skal skila fullfrágengnu 31. okt. 1986.
Afhending útboðsgagna er á sveitarstjórnarskrifstofu Ölfushrepps, Þorlákshöfn og
hjá tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins frá þriðjudeginum 16. apríl nk., gegn kr.
10.000.- skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á sömu staði, eigi síðar en þriðjudaginn 7. mai nk. kl. 11.00 og
verða þau opnuð að viðstöddum bjóðendum.
fh. Stjórnar verkamannabústaða,
tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins