NT - 20.04.1985, Side 4

NT - 20.04.1985, Side 4
w Laugardagur 20. apríl 1985 ■ Sigvaldi Hjálmarsson Sigvaldi Hjálmarsson látinn ■ Sigvaldi Hjálmarsson rithöfundur og hlaöamaöur er látinn, 63 ára gamall. Sigvaldi var l'æddur á Skeggstiiöum i Bölstaöar- hlíðarhreppi, Austur-Húna- vatnssýslu. Aö loknu kennaraprófi 1943 kenndi Sigvaldi um nokkura ára skeiö en frá 1947 var hlaðaincnnska hans ævistarf. Lengst al var hann við Alþýðublaðið en auk þess við Úrval, Fálkana og fréttariti sænsku frétta- stofunnar TT um nokkra ára skeiö. Sigvaldi var afkastamikill rithöfundur, skrifaði rit- gerðir og gaf út nokkrar Ijóðabækur. Hann var tví- vegis kjörinn forscti Guð- spckifélagsins og átti sæti í allsherjarráði fclagsins. Auk hefðbundinnar skólagöngu var Sigvaldi í þrjá vetur við nám á Indlandi á sjöunda og áttunda áratugnum. Eftirlifandi kona hans er Bjarney H. Alexandersdótt- Borgarfulltrúar: i hársamanvegnadeili- skipulags fyrir Lágmúla ■ Nýtt deiliskipulag við Lág- múla var staðfest á borgar- stjórnarfundi í fyrrakvöld. Á reit sem hingað til hel'ur verið merktur sem grænt svæði munu rísa þrjú hús. Minnihlutafulltrú- arnir í horgarstjórninni gagn- rýndu þessa ákvörðun einkum á þrennum forsendum. Ekki væri of mikið af grænum svæðum fyrir, ófyrirséð væri hver þörf væri fyrir ný umferðarmann- virki á gatnamótum Kringlu- inýrarbrautar og Mikilubrautar í framtíðinni og síðast en ekki síst beindist gagnrýnin að form- legri afgreiðslu málsins. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir rakti það að skipulagsnefnd hcfði fengið frumteikningar að liúsi fyrir Sagafilm, mcð beiðni um að fá aö byggja húsið við Lágmúlann. Teikningin lrefði verið unnin af arkitektunum Dagnýju HelgadótturogGuðna Pálssyni. Málinu hefði verið vís- að til umhverfismálaráðs og um- feröarnefndar. Forstöðumaður borgarskipulags hefði síðan fal- ið söntu arkitekum og teiknuöu húsið að gera tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir reitinn án þcss að skipulagsnefnd hefði fjallað um það. Undir þessa gagnrýni tóku Álfheiður Inga dóttir og Kristján Benedikts- son. Taldi Kristján að fljótræði einkenndi um of störf skipulags- nefndar og ylli yfirsjónunr sem unnt ætti að vera að sneiða hjá. Minnti hann sérstaklega á gagn- rýni Rúnars Bjarnasonar slökkviliðsstjóra á skipulag í Grafarvogi með tilliti til eld- varna vegna áburðarverksnriðj- unnar. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson tormaður skipulagsnefndar sagði forstöðumann borgar- skipulagsins hafa óvéfengjan- legan rétt til að ráða skipulags- höfunda til afmarkaðra verk- efna. Borgarfulltrúar hnotabit- ust um hverjir hefðu gengið meir á græn svæði, vinstri meiri- hlutinn sálugi eða núverandi meirihluti og tilfærðu flatar- nrálstölur nráli sínu til stuðnings. Mezzoforte á Wjóm* leikaferð um Evrópu’. Söngvari kom inn í hópinn Lítil plata á heimsmarkaðinn í júní ■ Söngvari hefur bæst í hóp- inn hjá Mezzoforte sem eru á hljómleikaferðalagi um Evrópu um þessar rnundir. Heitir sá Weston Foster og hefur starfað með einni þekktustu fönk- hljómsveit Bretlands, “Second Image". Leikur Weston einnig á ýmiskonar slagverkshljóð- færi og leysir Hollendinginn Jerome De Rijk af hólmi. Mezzoforte hafa verið að spila í Pýskalandi að undan- förnu og síðan liggur leiðin til Austurríkis, Hollands, Belgíu og Frakklands og jat’nvel Spánar. Að hljómleikaferðinni lokinni munu Mezzoforte hljóðrita nýja litla plötu með lagi Friðriks Karlssonar, „This Is The Night“ og mun Weston Foster einmitt syngja í því lagi. Útgáfa plötunnar er áætluð í júnímánuði um allan heim. í marsmánuði s.l. tók Steinar Berg ísleifsson við alþjóðlegum verðlaunum International Trophy for Quality í Madrid á Spáni fyrir þann ágæta árangur sem Steinar hf. hafa náð við að koma tónlist Mezzoforte á fram- færi erlendis. Ríkisskattstjóri: Vill upplýs- ingar um banka- stjóralaunin ■ Ríkisskattstjóri hefur farið fram á það við bankaráð ríkisbankanna, að þau Ieggi fram upplýs- ingar um laun og fríðindi bankastjóra síðastliðin fimm ár. Óskað er eftir sömu upplýsingum um kjör aðstoðarbankastjóra. Bankaráðin fá frest til mánaðamóta til að veita umbeðnar upplýsingar. Háls- og Staðarfellsprestakall: Hanna María og Sigurður Árni kjörin lögmætri kosningu ■ AtkvæAi voru talin í bisk- upsstofu í gær í prestskosning- um í Hálsprestakalli og Staðar- fellsprestakalli í S-Þingeyjar- sýslu. í Hálsprestakalii var Hanna María Pétursdóttir ein í kjöri. 163 voru á kjörskra, 118 greiddu atkvæAi. Hanna fékk 114 atkvæAi, 4 seAlar voru auð- ir. Kosningin var lögmæt. Sigurður Árni Þórðarson var eini umsækjandinn um Staðar- fellsprestakall. 258 voru á kjörskrá. 180 greiddu atkvæði og fékk umsækjandi 174 at- kvæði, 5 voru auðirog 1 ógildur. Kosningin var lögmæt. Steinar Berg íslcifsson tekur við verðlaunum Trade Leaders Club í Madrid á dögunum. Staðarfell í Dölum: Styrktarfélag við heim- ilið stofnað ■ Ákveðið hefur verið að stofna styrktarfélag um með- ferðarheimili SÁÁ á Staðarfelli í Dölum. Stofnfundur félagsins verður haldinn á morgun, sunnudaginn 21. apríl og hefst klukkan 15 á Hótel Loftleiðum. í fréttatilkynningu frá undir- búningsnefnd félagsins eru allir þeir sem áhuga hafa á meðferð- armálum alkohólista hvattir til þess að mæta og gerast stofnfé- lagar. Staðarfell hefur verið rek- ið af'SÁÁ síðan 1981 og hafa rúmlega eitt þúsund einstakling- ar farið þar í svokallaða eftir- meðferð vegna alkohólisma. Ert þú að leita að hillum í stofuna, barnaherbergið, geymsluna, lagerinn eða verslunina? Þetta er lausnin. FURUHILLUR Hillustærðir: 30x80 og 50x80 4 Uppistöður: 61, 112 og 176 cm. . _ . mVi MYNOIN Dalshrauni 13 S. 54171 OPIDBBBB MAN.-FIM. 9-18 FÖSTUDAGA 9-19 LAUGARDAGA 10-17 SUNNUDAGA 13-17 Gluggagægir flytur um set ■ Gluggagægir hefur að undanförnu gert íbúum við Langholtsveg lífið leitt. Nú síð- ast í gær var kvartað til lögreglu undan manninum, en honum hefur verið lýst á þá leið að hann sé í brúnni dúnúlpu og hár vexti. Ekki vita menn hvernig stendur á því, en áður var ntun algengara að manngerð þessi sæ- ist í Hlíðunum með vorinu, en nú virðist sern gluggagægir sé íluttur um set. Magnús í Eden ■ Þeim, sem hug hafa á að sjá málverkasýningu Magnúsar Guðnasonar frá Kirkjulækjar- koti, skal bent á að hennar er að leita í Eden í Hverageröi. NT biður Magnús og þá sem leitað hafa að sýningu hans annars staðar velvirðingar á því að sýn- ingarstaðurinn féll af einhverj- um ástæðum niður þegar sagt var frá opnun sýningarinnar um síðustu helgi. Til hjálpar skuldugum bændum: Vextir greiddir niður með skatti á bændur Umdeild tillaga Ágústs Guðröðarsonar á Stéttarsambandsfundi ■ Að þeir bændur sem litlar skuldir hafa létti hinum róðurinn var sú stefna sem Ágúst Guðröðarson mælti fyrir í mjög umdcildri tillögu á auka- fundi Stéttarsambandsins en tillagan var samþykkt með 15 atkvæðum gegn 11 og greiddu 16 ekki atkvæði. Ágúst leggur til að hækka gjaldtöku Stofn- lánadeildar og nota hana til að grciða niður vexti verðtryggðra lána. í umræðu á þinginu urðu margir til að gagnrýna þessa hugmynd Ágústs og benti Guðbjartur Gunnarsson á Hjarðarfeili á að með þessu væru þeir sem sýnt hefðu varkárni og aðhald í fjárfestingu látnir borga upp í skuidir hinna sem ekki hefðu gætt hófs. Á móti var bent á að skuldastaða yngri bænda í landinu, sem fjárfest hefðu eftir verðtryggingu, væri mjög erfið meðan aðrir hefðu allt sitt á þurru og sýnt að af upphæð allra skuida bænda við Stofnlánadeildina og Veðdeild kæmi þriðjungur á 340 af þeim 4700 bændum sern eru í landinu. Tillaga Ágústs gerir ráð fyrir að tvöfalda framleiðnigjald Stofnlána- deildarinnar en í framsögu sagði Á- gúst að nú næmi það um 24,5 milljón- um. Ályktunin, sem samþykkt var, gerir aðeins ráð fyrir að stjórn Stéttar- sambandsins taki til athugunar hvort vilji er fyrir þessari gjaldtöku en líkur á að tillagan sjálf komi til fram- kvæmda eru ekki taldar miklar.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.