NT - 07.05.1985, Síða 3
Þriðjudagur 7. maí 1985 3
■ Steinunn hugar að olíu á bíl Ijósmvndara NT, en í haust stígur hún á sviðið í Iðnó...
Stjörnuleitin:
... Og stjarnan
fannst hjá Olís
- temur slöngurnar hjá Olís í Breiðholti, en
fer á sviðið í haust
í minningu Jónasar
frá Hriflu:
Vistmaður
Hrafnistu
gefur fé
■ Páll Helgason vist-
maður á Hrafnistu í Hafn-
arfirði hefur gefið tíu þús-
und krónur í Húsbygg-
ingarsjóð aldamótakyn-
slóðarinnar, til minningar
um Jónas Jónsson frá
Hriflu.
Húsbyggingarsjóður
aldamótakynslóðarinnar
var stofnaður af hugsjóna-
mönnum og er hann varð-
veittur á bestu kjörum í
Alþýðubankanunt. Sjóð-
urinn tekur við frjálsunt
framlögum, minningar-
gjöfum og áheitum.
tSÁ&issaxtítLry
Flugleiðir:
Sérstök
unglinga-
fargjöld
í sumar
■ Henni finnst athygli fjöl-
miðla óþægileg og spurningar
blaðamanns NT ömurlegar. En
ásókn blaða er gjarnan fylgifisk-
ur þess að vera í sviðsljósinu, en
það er Steinunn Ólína Þor-
steinsdóttir nú, bæði í eiginlegri
merkingu og óeiginlegri, en
Steinunn varð fyrir valinu í
„stjörnuhlutverk" í söngleik
þeirra Atla Heimis Sveinssonar
og Kjartans Ragnarssonar,
„Land míns föður“ sem Leikfé-
lag Reykjavíkur tekur til sýning-
ar í haust.
Steinunn er 16 ára og starfar
nú sem „slöngutemjari" á bens-
ínsölu Olís í Breiðholti: „Ég er
eins og er að temja slöngurnar
hér á bensínstöðinni, en kem til
með að hætta því þar sem
æfingar á söngleiknum hefjast
17. maí. Síðan býst ég fastlega
við að fara í MH og klára
skólann,“ en Steinunn var ein
þeirra sem yfirgáfu skólana í
verkfalli kennara í vetur.
Alls gáfu rúmlega 120 stúlkur
kost á sér í hlutverkið, eftir að
NT hafði farið í smá „talent-
hunting“ f miðbænum. Að loknu
fyrsta prófi voru 7 stúlkur valdar
til að mæta aftur og það gerðu
þær sl. föstudag. Um helgina
var Steinunn síðan valin: „And-
rúmsloftiö var ágætt, en við
vissum náttúr.lega að aðeins
ein okkar gat sigrað og þess
vegna vorum við talsvert stress-
aðar, sagði Steinunn er NT hitti
hana á bensínstöðinni í gær.
Steinunn sagði að enn sem
komið væri hefði valið farið
hljótt og fáir vissu að hún heföi
verið valin. Hún sagði mjög
ánægjulegt að hafa orðið fyrir
valinu og að hún myndi leggja
sig alla fram um að gera sitt
besta.
NT óskar Steinunni alls hins
besta á „stjörnubrautinni“.
Varptíminn fer í hönd:
Náttúruverndarráð bann-
ar umferð um Dyrhólaey
■ Náttúruverndarráð hefur þangað kom greiðfær akveg-
ákveðið að banna alla um- ur og þar með mikill fjöldi
ferð fólks um Dyrhólaey um ferðamanna. Eftir að ferðir
varptímann.eðaátímabilinu voru bannaðar um svæðið á
1. maí til 25.júní. Þetta er 4. varptímanum, hefur ástand-
árið í röð, sem Náttúru- ið farið batnandi, hvort sem
verndarráð beitir heimild það er friðuninni eingöngu
sinni til að takmarka umferð að þakka.
um svæðið. Ferðamenn eru beðnir um
að virða bann Náttúruvernd-
Ástæðan fyrir banni þessu arráðs, og fara einnig með
er sú, að fuglalífi hrakaði gát, eftir að umferð hefur
mjög í Dyrhólaey, eftir að aftur verið leyfð.
Þriðja mesta
aflaár okkar
- en verðmætin jukust
ekki að sama skapi
■ Heildarafli íslendinga árið
1984 varð samtals 1.527 þús.
tonn, rniðað við fisk upp úr sjó,
að aflaverðmæti um 8.842 millj-
ónir króna. Framleiðsla sjávar-
afurða til útflutnings nam á
sama tíma 584 þús. tonnum að
verðmæti um 17.394 milljónir
króna. Má því í grófum dráttum
segja að aflinn rýrni um nær tvo
þriðju hluta í vinnslunni, en
tvöfaldist aftur á móti að verð-
mæti um leið.
Tonn upp úr sjó segja í sjálfu
sér lítið um útflutningsverðmæt-
ið að lokum. Af heildaraflanum
fór meira en helmingurinn eða
um 822 þús. tonn (loðnan) til
mjöl- og lýsisframleiðslu. Úr
því fengust tæp 262 tonn af
fullunnum útflutningsvörum
(um 45% af heildartonna-
fjölda), en verðmæti þeirra var
aðeins unt 2.970 milljónir
króna, eða rúm 17% af heildar
framleiðsluverðmæti sjávar-
afurða.
í salt fóri hins vegar aðeins um
10% af heildaraflanum, tæp 149
þús. tonn, sem skiluðu tæpum
71 þús. tonnum af fullunni vöru.
Verðmæti saltfisksins var hins
vegar 3.232 milljónir, eða um
260 milljónum meira en fékkst
fyrir 262 tonn af mjöli og lýsi.
Rúmlega helmingur af út-
flutningsverðmæti sjávarafurða
(51,5%) fæst fyrir frystu afurð-
irnar, eða samtals 8,966 milljón-
ir króna. I frystingu fóru rúm
423 þús. tonn (tæp 28%), sem
skiluðu rúmlega þriðjungi eða
samtals 145 þús. tonnum af
fullunni útflutningsvöru (um
25% af þunga).
Fyrrgreindur 1.527 þús.
tonna heildarafli gerir 1984 að
3. mesta aflaári sögunnar (1979
og 1978 betri), og varð afla-
aukningin um 83% frá árinu
1983. Hvað aflaverðmæti snert-
ir varð aukningin aftur á móti
44%, miðað við fisk upp úr sjó.
Verðmætisaukningin þegar
búið var að vinna aflann til
útflutnings varð hins vegar rúm-
lega 36%, eða ntun ntinni en
verðmætisaukningin uppúrsjó.
Kyrrsetning Sjóla RE:
Eigendurnir telja sig
hafa greitt það sem ber
- segja Slippstöðina ekki hafa staðið við sitt
■ Sjólastöðin í Hafnarfírði,
eigandi skuttogarans Sjóla
RE, telur sig hafa greitt
Slippstöðinni á Akureyri að
fullu það, sem lienni ber fyrir
breytingar á togaranum.
Slippstöðin lét kyrrsetja
togarann á Akureyrarhöfn í
síðustu viku þar sem ekki
hefði verið búið að semja um
greiðslur fyrir verkið.
1 fréttatilkynningu frá
Sjólastöðinni kemur fram,
að verkið hafi dregist fram
yfir umsaminn afhendingar-
tíma, og einnig, að ágrein-
ingur hafi komið upp um
hvort allir verkþættir væru
réttilega unnir. Sjólastöðin
taldi svo ekki vera og átti
ekki annarra kosta völ en að
taka við skipinu og láta Ijúka
verkinu á fullnægjandi hátt
annars staðar, þarsem Slipp-
stöðin neitaði frekari lagfær-
ingum. Þá segir, að ef ágrein-
ingur kynni að rísa út af
samningnum, skyldi skjóta
honum til gerðardóms, sem
skæri endanlega úr.
Eftir viðræður aðila um
uppgjörið og ágreiningsmál-
in dagana 21. til 27. apríl,
setti Sjólastöðin fram fulla
bankatryggingu Landsbanka
íslands fyrir greiðslu ó-
greidds hluta reiknings Slipp-
stöðvarinnar, sem síðan yrði
að fullu greiddur, ef sá yrði
úrskurður gerðardóms. Það
kom því eigendum Sjóla
mjög á óvart, að því er segir
í fréttatilkynningunni, er
þeim var tilkynnt um kyrr-
setningarkröfu Slippstöðvar-
innar.
Sjólastöðin telur sig því
hafa efnt allar samnings-
skuldbindingar sínar, en það
hafi Slippstöðin ekki gert,
með því að ljúka ekki verk-
inu.
Félagi kvikmyndagerð-
armanna skipt í 2deildir
-18 nýir félagsmenn á aðalfundi
■ Flugleiðir bjóða upp á sér-
stök unglingafargjöld á tíma-
bilinu 1. maí til 10. júní og 20.
ágúst til 30 september, í tilefni
af Ári æskunnar. Unglingar á
aldrinum 12-18 ára fá 30%
afslátt af venjulegum fargjöld-
um á öllum áætlunarleiðum
Flugleiða, Flugfélags Norður-
lands, Flugfélags Austurlands
og Flugfélagsins Arna.
Flugleiðir vilja með þessu
móti koma til móts við þarfir
unglinga, sem þurfa að ferðast
á milli staða eða landshluta í
tengslum við lok eða upphaf
skólaárs, eða vegna sumar-
vinnu. Farseðill gildir í eitt ár
frá útgáfudegi og gildir afslátt-
urinn hvort sem flogið er aðra
leiðina, eða fram og til baka.
■ Félagi kvikmyndagerð-
armanna hefur nú verið
skipt í tvær deildir, fram-
leiðendadeild og tækni-
mannadeild. Tæknimanna-
deildin mun m.a. sjá um
gerð kjarasamninga fyrir
þá félagsmenn FK, sem
ráð sig til vinnu hjá kvik-
my ndframleiðendum.
Framleiðendadeildin mun
m.a. sjá um samninga við
félög og stofnanir um kaup
á kvikmyndum.
Lagabreyting þessa efnis
var samþykkt á aðalfundi
FK, sem haldinn var í lok
marsmánaðar síðastliðins.
1 frétt frá félaginu segir, að
helstu verkefni liðins
starfsárs hafi verið barátta
fyrir eflingu Kvikmynda-
sjóðs og niðurfellingu að-
flutningsgjalda á tækjum
og efni til kvikmyndagerð-
ar.
Félagi kvikmyndagerð-
armanna bættust 18 nýir
félagsmenn á aðalfundin-
um og fullgildir félagar eru
nú 79. Ný stjórn var kosin
á fundinum og hana skipa
Þorsteinn Jónsson formað-
ur, Þórarinn Guðnason
varaformaður, Sigfús
Guðmundsson gjaldkeri,
Hjálmtýr Heiðdal ritari og
til vara Sigurður Grímsson
og Björn Björnsson.
Frístandandi eidavél EK 1134
með blæstri og venjulegri hitun
4 heilur, 1 meö termostati og
3 hraðsuðuhellum. Höggvarin
emalering á toppi og á hliðum.
Laus ofnhurð með tvöföldu gleri,
' barnalæsingu og loftræstingu.
Twin-ofn sem sameinar blástursofn og
venjulegan með undir og
yfirhita. Grill. Stillanleg hæð.
Litir: Mokkabrúnn, gulur, rúbinrauður,
grænn og hvítur.
Blomberq
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTAOASTRÆTI I0A - SlMI 16995