NT - 07.05.1985, Blaðsíða 10

NT - 07.05.1985, Blaðsíða 10
Þriðjudagur 7. maí 1985 10 ■ Ég hef alltaf verið svolítið forlyftur á fyrsta maí. Það er svosem engin ástæða til að fjölyrða um það, en einhvern veginn hefur mér löngum fundist miklu meira gaman á fyrsta maí en tildæmis á sumardeginum fyrsta og s'autjánda júní. Alltaf vildu þeir gleðidagar luma á ein- hvers konar vonbrigðunt, norðanbáli eða slagviðri að suðvestan, sprungnum blöðr- um og rifnunt fánum, hallæris- legum trúðum og leikurum, poppkorni eða pylsu sem varn- arlaust barn fékk ekki að njófa vegna skilningsleysis foreldra. En hver getur verið ósnort- inn á fyrsta maí? Því þá er það fullorðna fólk- iö en ekki barnakraðakið sem setur upp alvörusvip og fer í skrúðgöngu undir borðum með snjöllum slagorðum og fallega blóðrauðum fánum sem þenjast einsog til marks um fullnaðarsigur einhvern tíma í fjarlægri framtíð. Náttúrlega lét ég mig ekki heldur vanta á fyrsta maí þetta árið, enda brá nýja tölvan á veðurstofunni útaf vana sínum og hellti sólskini yfir höfuð- borgina. Og svo hafði ég reyndar hagsmuna að gæta sjálfur; einn af mýmörgum kúguðum launaþrælum, nýbú- inn að fá fallega orðað bréf og þarf bráðum að fara að leita mér að vinnu eina ferðina enn eða segja mig til sveitar ella. Ætli sé ekki laust pláss á ein- hverju millilandaskipinu? Þessi dágur, fyrsti maí, er reyndar kominn útá svolítið skrítnar brautir. Núorðiðvirð- ist sern allir vilji eigna sér daginn, hann er orðinn alls- herjardagur venjubundinna og sauðmeinlausra mótmæla af öllu tagi, og ekki lengur dagur hins arðrænda öreigalýðs borg- anna fyrst og fremst. Það er helst að Framsóknarflokkur- inn og bændastéttin eigi litla sem enga hlutdeild í fyr.sta maí, en hinir sveitarföstu íbúar þessa lands eru ekki ennþá búnir að eignast sinn frí- og baráttudag, sem svo sannar- lega væri ekki vanþörf á. En flestar samkomur mannfélags- ■ ins liggja ekki á liði sínu þenn- an dag: hreyfihamlaðir, þroskaheftir og hcyrnarlausir; maóistar, trotskíistar og an- arkistar, sem raunar eru flestir búnir að svíkja lit; samtök sjötíuogátta, sem ekki má kalla kynvillinga lengur; kristniboðsfélag kvenna, kvartmíluklúbbar, karlhópar- og áhangendur guðsins Krishna - að ógleymdum stjórnmálaflokkunum sem skarta sínu alfegursta á síðum málgagna sinna og í kaffisam- sætum. Meira að segja Sjálf- stæðisflokkurinn - flokkur allra stétta einsog segir í öfug- mælavísunni - skartar rækju- bleiku þennan dag og Mogginn var alveg að farast úr frjáls- lyndi og birti viðtöl við nokkra þrautpínda og skítblanka laun- þega. Kaffiboðin eru svo heill kapí túli útaf fyrir sig, en á því sviði hefur Alþýðuflokkurinn lengst af verið öllum flokkum frernri. Alþýðuflokkskonur baka af mikilli rausn og spara hvorki sykur né magarín, enda kannski ekki vanþörf á slíku síðan Alþýðubrauðgerðin fór í hundana. Alla tíð hefur mér þótt mikið til myndarskaps AI- þýðuflokkskvenna koma og verið tíður og svangur gestur í krataköffum, sem lengst af hafa verið frantreidd í Iðnað- armannahúsinu gamla, Iðnó. En svo rann upp sá hörmung- ardagur í fyrra að svo var af Alþýðuflokknum dregið að hann hélt ekkert kaffi. Þá brá ég skjótt við og tók það loforð af Jóni Baldvini að hann sæi til þess að slíkt henti ekki aftur. Náttúrlega stóð Jón Baldvin við orð sín, lét kjósa sig for- mann og bauð ásamt Bryndísi vinum og velunnurum Alþýðu- flokksins uppá kaffi á veitinga- húsi vestur í bæ, stammknæp- unni þeirra hjóna að mér skilst. En nú brá hins vegar svo við að kaaberinn hjá krötunum kost- aði heilar hundraðogfimmtíu krónur, sem er enginn smápen- ingur fyrir launþega sem hefur eytt öðru eins og meiru til í brennivín kvöldið áður. Ekki lagði ég heldur í að drekka kaffi hjá flokknum sem telur sig hafa prívat veiðileyfi á stéttabaráttu og verkalýð, því uppdráttarsjúka Alþýðu- bandalagi. Einhvers staðar í bænum heldur það víst sitt árlega kaffisamsæti, en það er ég viss um að kommarnir skammta jólakökurnar miklu naumar en jafnaðarkonur. Illu heilli virðist allur vindur úr öfgagrúppunum í ysta vinstr- inu, maóistum, trotskíistum, endurskoðunarsinnum og stal- ínistum - og meira að segja Albaníuvinafélagið er enn í sárum eftir lát Envers Hoxa og treysti sér ekki til að hella uppá könnuna þetta árið. Fyrsti maí var reyndar ekki alveg viðburðasnauður fyrir mína menn, Framsóknar- flokksmennina: í fyrsta lagi var auðvitað allt í háalofti hér uppá ennté, einsog hefur verið rækilega tíundað í fjölmiðlun- um, og svo var líka verið að FISSTIMÆ ■ Svona sjón gleður gömul róttæklingshjörtu, táningsstúlkur í heimaprjónuðum peysum, flöskugrænum, mussum og sussum, með alpahúfu og rauðan fána... NT-mynd: Ámi Þórdur Jónssun ■ Yfirvegaðar og æsingalausar ræður á fundi sem gufaði upp. NT-mynd: Ámi Bjama

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.