NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 07.05.1985, Qupperneq 15

NT - 07.05.1985, Qupperneq 15
 Þriðjudagur 7. maí 1985 15 Spánn: Baskar sprengja á baðströndunum ■ Hér getur að líta afleiðingar sprengingar Baska í Navarra- héraðinu á Spáni í seinasta mán- uði. Skæruliðasamtök aðskiln- aðarsinnaðra Baska, ETA, hafa nú hafíð sprengjuherferð á spænskum ferðamannastöðum Palma dc Majorca, Spáni-Reutcr: ■ Alþjóðleg samtök ferða- skrifstofa (IFTO) hafa nú þung- ar áhyggjur af nýlegum sprengju- tilræðum á spænskum ferða- mannaslóðum við Miðjarðar- hafið, að sögn varaforsetans Martin Amegual. Amegual sagði spænskum fréttamönnum að sprengingarn- ar gætu haft í för með sér ófyrirsjánlegar afleiðingar fyrir ferðamannaiðnaðinn. Hann sagði að ástandið væri bæði alvarlegt og kvíðvænlegt. Amegual sagði að ferða- mönnum frá Vestur-Þýskalandi og Skandinavíu hefði þó ekki fækkað en nokkuð hefði dregið úr ferðamannastraumnum frá Bretlandi. Skæruliðasamtök aðskilnað- arsinnaðra Baska, ETA, mörk- uðu síðastliðið miðvikudags- kvöldið upphaf árásanna, sem þau hafa hótað, með sprenging- um í Benidorm og Saler de Valencia. Tvær sprengingar fylgdu í kjölfarið á laugardaginn, í Alic- ante og Postiguet. Sprenging- arnar ollu skemmdum á rnann- virkjum en engum meiðslum á fólki. Talsmenn ETA segja að sprengingunum sé ætlað að þrýsta hinni spænsku ríkisstjórn sósíalista til þess að veita Bösk- um heimastjórn í héruðum sínum. Forsætisráðherra Japans: Japanskt „friðarhof“ reist í Berlínarborg Berlín-Rcutcr. ■ Yasuhiro Nakasone for- sætisráðherra Japana hefur lofað að fjármagna byggingu japansk-þýskrar menning- armiðstöðvar í Berlín sem hann segir að muni marka lok eftirstríðsáratímabilsins í sögu Japans. Nakasone korn í heimsókn til Vestur-Berlínar nú um helgina og varð þannig fyrsti forsætisráðherra Japana frá stríðslokum til að heimsækja Berlín. Hann sagði að jap- ansk-þýska menningarmið- stöðin yrði helguð varanleg- um friði og velsæld í heimin- um, hún ætti að verða sann- kallað „friðarhof". Menningarmiðstöðin verð- ur byggð þar sem sendiráð Japana var fyrir stríð en sendiráðið skemmdist mikið þegar Berlín féll í stríðslok. Kostnaður við bygginguna er talinn vera um 35 milljón mörk (455 milljón ísl. kr.). Borgarstjóri Vestur-Berl- ínar, Eberhard Diepgen, segir að menningarmiðstöðin verði „búðargluggi fyrir jap- önsk vísindi, tækni og menn- ingu í Evrópu". Sovéskur embættismaður rekinn: Dró sér f é úr olíunni Moskva-Rcutcr: ■ Háttsettur embættismaður í sovéska kommúnistaflokknum hefur verið rekinn og allmargir aðrir áminntir í kjölfar hneyksl- is vegna spillingar í olíuiðnaðin- um í sovétlýðveldinu Georgíu. í dagblaði viðkomandi héraðs er skýrt frá því að stjórnarfor- maður hins ríkisrekna olíufé- lags í Georgíu, Aleksandr Ubir- iya, hafi verið rekinn fyrir „stór- felldan fjárdrátt". Ekki voru getnar neinar frekari upplýsing- ar um málið. Fulltrúi hans, G. Kereselidze, og nokkrir aðrir embættismenn voru ávítaðir harðlega fyrir að vera ekki nógu virkir í vinnunni, misnota vald sitt og hafa verið ófærir um að koma í veg fyrir fjárdráttinn. Sovéski olíuiðnaðurinn stendur nú frammi fyrir miklum vanda með stöðugt minnkandi framleiðslu. Viðvaranir þær sem georgísku embættis- mennirnir hlutu eru ekkert eins- dæmi heldur einungis þær síð- ustu í röð viðvarana sem dynja nú yfirsovéskaembættismanna- aðalinn. Hinn nýi leiðtogi í Krem'l, Mikhail Gorbachev, hefur hafið mikla herferð til að uppræta spillingu og vanhæfni í því skyni að hressa upp á iðnaðinn og efnahaginn. Peking: Hráki undir smásjánni ■ Kínverskir vegfarendur í Peking geta nú fengið að skoða sýkla og bakteríur syndandi í hráka í smásjám sem verður komið fyrir við nokkrar helstu göngugöturnar í þessari átta milljón manna stórborg. Borgaryfirvöld í Peking von- ast til þess að ógnvænlegur sýklagróðurinn í hrákanum verði til þess að draga úr þeirri ómótstæðilegu löngun sem margir Pekingbúar virðast hafa til að skyrpa á ólíklegustu stöðum. Hrækingabann hefur verið í gildi í Peking frá því árið 1982 með tilheyrandi sektum. En erf- iðlega hefur gengið að fram- fylgja því enda hafa lögreglu- þjónarnir, sem áttu að fylgja banninu eftir, ekki verið með öllu lausir við hrækingalöngun- ina sjálfir. Nú á að taka harðar á hráka- brotum en áður og hefur öllum stórfyrirtækjum og hverfa- stjórnum verið fyrirskipað að koma á fót sérstökum andhrákasveitum sem eiga að fylgja eftir stórhertum and- hrákareglum sem ganga í gildi 20. maí næstkomandi. Markmiðið með hrækinga- banni og andhrákaherferðinni er að draga úr þeirri smithættu sem allt þetta skyrp hefur í för með sér. Hrækingabann er einn- ig í gildi í nokkrum öðrum kínverskum borgum. Þannig hafa lengi verið ströng viðurlög við því að hrækja í bresku nýlendunni Hongkong sem fljótléga kemst aftur undir stjórn Kínverja. V-þýskir sjómenn sjóræningjaskríll Ottawa-Reuter: ■ Sjávarútvegsráðherra Kanada, John Fraser, segir að vestur-þýskir togaramenn séu „eins og sjóræningjaskríll sem sópi upp ofveiddum þorski við austurströnd Kanada. Fraser segir að þýsku togararnir hafi þegar veitt þrefaldan þorskveiðikvóta sinn fyrir þetta ár, en hann var 700 tonn. Hann segir að þótt meirihluti aflans hafi fengist rétt fyrir utan 200 mílna landhelgi Kan- adamanna hljóti kvótinn einnig að gilda yfir þann fisk sem þar veiðist þar sem ofveiðarn- ar ógni þorskstofninum. Fraser kom til Vestur-Þýskalands nú um helgina þar sem hann ræðir við þýsk stjórn- völd um leiðir til að draga úr rányrkju vestur-þýsku togaranna á kanadískum miðum. Hann segir að ráyrkjuna verði að stöðva tafarlaust. „Mikinn meirihluta Þjóð- verja hryllir sjálfsagt við þegar þeir frétta hvernig sjómenn þeirra hegða sér eins og sjóræningjaskríll." Spánn: Lögreglumenn í setuverkfalli Madrid-Reuter: ■ Um 20.000 lögreglumenn í ýmsum borg- um á Spáni tóku þátt í setuverkföllum á sunnudaginn til þess að leggja áherslu á þá kröfu sína að lögreglumenn verði skipaðir í stöður yfirmanna innan lögreglunnar í stað þeirra 355 yfirmanna úr hernum sem nú sitja að öllum æðri embættum lögreglumanna. Meðlimir hins 50.000 manna lögregluliðs skiptu með sér vöktum í mótmæalaðgerð- inni til þess að forðast truflanir á skyldu- störfum lögreglunnar. Þessi seinustu mótmæli hófust með setu- verkföllum í húsakynnum lögreglunnar í Baskahéruðum Spánar og voru þá 22 menn handteknir. Flest setuverkfallanna á sunnudaginn voru hins vegar á vegum stéttarfélagsins vegna þess að innanríkisráðuneytið lagði blátt bann við því að móttmælendur hefðu aðgerðir sínar í frammi í húsakynnum lögreglunnar. Séttarfélag lögreglumanna hefur boðað til mótmælagöngu í Madrid 1. júní næst- komandi en talsmaður þess sagði að verið væri að íhuga boð eins þingmanns sósíalista sem hefur boðist til þess að ræða við ríkisstjórnina fyrir hönd lögreglumanna til þess að reyna að miðla málum. erum . alladaga íslenska MAI1985 5 6 l 12 3 4 8 9 10 II 12 13 14 15 16 17 18 19 20|21122 23 24 25 26 27|28|29 30 31 FÉLAG ÍSLENSKRA IÐNREKENDA Hallveigarstígl 101 Reykjavík sími 91 27577

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.