NT - 07.05.1985, Síða 28
Bjarni Sigurðsson fær f rábæra
dóma í norskum f jölmiðlum
- Brann efst eftir tvær umferðir
Frá Arnþrúöi Karlsdóttur, frcttamanni NT í Noregi:
■ „Nú hafa íslendingar flutt út til norsks knattspyrnuliðs einn af
sínum heitu hvcrum, og takk fyrir það. í kaldri veðráttu var það
íslcnski landsliðsmarkvörðurinn Bjarni Sigurðsson sem sá um að j
ylja knattspyrnuhjörtum nú um helgina.“ Þannig skrifar stærsta I
dagblað Noregs, Verdcns Gang, í gær um leik Bjarna Sigurðssonar
með Brann gegn Kongsvinger í norsku fyrstu deildinni í knattspyrnu
á sunnudag. Leiknum lauk með jafntefli 0-0. Umsagnir annarra
blaða og fjölmiðla eru í sama
dúr. Bjarni var besti maður
vallarins og hleður á sig stjörn-
uin í einkunnagjöf.
I leiknum á sunnudag mátti
Bjarni upplifa það átta sinnum,
að standaeinn gegn framherjum
Kongsvinger og verja frá þeim í
dauðafærum. Það er kannski
ekki að undra þó mönnum hafi
hitnað í hamsi í sumarfrostinu.
Þetta var annar leikur Brann
í deildakeppninni. Þann fyrri,
gegn Válerengen, vann Brann
3-0, en Válerengen hefur sigrað
í norsku fyrstu deildinni síðustu
tvö árin. I þeim leik þótti Bjarni
ekki síður standa sig vel.
Þjálfari Brann, Endre Blind-
heim, sagði í blaðaviðtali, að
hann teldi að Bjarni væri ekki
lakari markvörður en landsliðs-
markvörður Noregs, Erik
Thorstvedt. Vera Bjarna hjá
Brann gæti þýtt eitt af efstu
sætum deildarinnar, en Brann
hefur rokkað á milli 1. og 2.
deildar undanfarin sex ár, eftir
að hafa verið eitt af bestu liðum
Noregs um margra ára skeið.
„Kannski getur það gerst aftur
núna með íslendinginn innan-
borðs," sagði Blindheim.
Brann er nú efst í fyrstu deild
með 3 stig eftir tvo leiki.
NM fatlaðra í sundi:
Frábært
■ ína Valsdóllir Ösp setli
Norðurlandamct í flugsundi
þroskahcftra stúlkua á Nnrður-
landamóti fatlaðra í sundi í
Turku uin hclgina. íslenska lið-
ið stóð sig frábærlega i keppn-
inni, vann X bronsvcrðlaun. 4
silfurverðlaun og cin gullverð-
laun. Liðið sclti eitt Norður-
landamet, II íslandsmet og 2
unglingamet. Nánar á morgun.
Reykjavíkurmótið:
Urslitin
í kvöld
■ í kvöld kl. 20:30 fer fram á
„Mottunni" í Laugardal úrslita-
leikurinn í Reykjavíkurmólinu
í knattspyrnu. Kram og Valur
leika til úrslita en þessi liö
sigruðu i sinum riðlum í undan-
kcppninni.
Kkki er að cfa að liöin lcggja
mikið á sig í kvöld við að
innbyrða fyrsta bikar ársins
utanhúss. hcim er báðum spúð
velgengni í Islandsmótinu sem
hefsl í næstu viku.
■ Bjami Sigurðsson hefur ekki enn þurft að horfa á eftir boltanum í netið í norsku fyrstu deildinni í knattspyrnu, eins og hann gerir á
þessari mynd. Bjarni hefur hlotið frábæra dóma fyrir leiki sína það sem af er. Nt-mvmi: Tryggvi
„Dregur dilká eftir sér“
■ „Þessu máli er ekki lokið.
Það dregur dilk á eftir sér.
Við teljum að það hafi verið
freklega á okkur brotið, og
mununt kæra þessa ákvörðun
ársþings Blaksambandsins til
dómstóls íþróttasambands
(slands,“ sagði Kristján Már
Unnarsson formaður Blak-
dcildar Fram t' samtali við NT
í gær. Ástæðan er sú að
ársþing Blaksambands ís-
lands scm stóð um helgina,
tók þá ákvörðun að hætta
deiidaskiptingu í mcistara-
flokki karla á íslandsmótinu í
blaki og leika í einni stórri
deild í stað tveggja áður.
Tillagan kom frá forráða-
mönnum Þróttar í Ncs-
kaupstað, þar sem inikill
blakáhugi ríkir. Lið Þróttar
er öflugt og mjög efnilegt. en
hefur enn ekki náð að tryggja
sér fyrstudeildarsæti.
„Það verður að ltða aðlög-
unartími, þegar svona breyt-
ing á sér stað. Lið eiga rétt á
að vita í upphafi keppnis-
tímabils að breyting sé í
vændum, aðþví loknu. Fram,
eins og önnur íélög, sem
leika eiga í 1. deild að ári,
hefur unnið sér rétt til að
leika með firnm bestu liðun-
uni næsta keppnistímabil.
Svo er þetta stórt fjárhagslegt
spursmál. Bara ferðalag aust-
ur í Neskaupstaö kostar fleiri
tugi þúsunda fyrir heilt lið,“
sagði Kristján Már.
Kristján Már sagði að ó-
ánægjuraddir væru uppi hjá
fleiri 1. deiidarfélögum. Lík-
legt væri að 1-2 þeirra mundu
standa að kærunni mcð Fram.
„Takist okkur ekki að ná rétti
okkar fyrir dómstóli íþrótta-
sambandsins munum við reka
málið fyrir almennum dóm-
stólum. Blaksambandið hef-
ur ekki rétt til aó henda
stórum útgjaldaliðum í félög-
in fyrirvaralaust.“ sagði
hann.
Góður endir á norska handboltanum:
Gunnar Einarsson lauk keppnistímabilinu í norska handboltanum með glæsibrag.
NT-mynd: Arnþrúður Karlsdóttir.
Frá Arnþrúði Karlsdóttur, fréttamanni NT í
Noregi:
■ Islenski handknattleiks-
kappinn Gunnar Einarsson lauk
handboltavertíðinni hér í Nor-
egi í vetur skemmtilega. Lið
hans, Fredriksborg-Sky, vann
fjögurra liða keppnina svoköll-
uðu, og ávann sér þar með
þátttökurétt í Evrópukeppni
bikarhafa.
Fjögur efstu lið norsku fyrstu
deildarinnar taka þátt í keppn-
inni. Að þessu sinni léku Nor-
egsmeistararnir Urædd,
Kolbotn, Kristianssand og
Fredriksborg-Sky í keppninni.
Að vinna fjögurra liða keppnina
þýðir 16 þúsund norskar krónur
í verðlaun, (u.þ.b. 73.600 ís-
lenskar krónur), og svo þátt-
tökurétt í Evrópukeppni bikar-
hafa.
Gunnar Einarsson og félagar
byrjuðu á að slá Kolbotn út úr
keppninni, og léku til úrslita
gegn Urædd. Einn leikur dugði
þó ekki til. Það var ekki fyrr en
liðin höfðu leikiö fjóra leiki, að
Fredriksborg-Sky vann 25-23,
öðrum leikjum lauk með jafn-
tefli.
-Gunnar Einarsson hefurstað-
ið sig með mikilli prýði með
Fredriksborg-Sky í vetur, og
fengið frábæra dóma. Hann hef-
ur verið ráðinn þjálfari liðsins
næsta vetur.
Nev South:
Evertonand Wa
Southall
sá besti
Frá Helmi Berguyni fréllarílua NT
i KnjjUndi:
■ Nevill Southall var I gter
kosinn „Knattspymumaöur
ársins'1 af íþróltafréttamönnum
í Englandi. hetta kjör var til-
kynnt ú Goodison Park fyrir
framan 51 þúsund tryllta áhang-
endur Everton og fögnuðu þeir
mjög. Soulhall hefur staðið í
marki Evcrton í allan vetur og
staöið sig tneð eindæntum vel.
Næstur honum í kjörinu var
félagi hans hjá Everton Peter
Kcid og þriðji varð Mark Hug-
hcs hjá Manchester United.