NT - 09.05.1985, Síða 3

NT - 09.05.1985, Síða 3
Grænfóðurverksmiðjur ríkisins 10.000tonn óseld frá því í fyrraí ■ Um 10 þúsund tonn af framleiðslu hinna fimm grænfóðurverksmiðja ríkisins á síðasta ári voru enn óseld þann 1. apríl á þessu ári. Þetta kom fram í svari landbúnaðarráð- herra við fyrirspurn Salome Þorkelsdóttur, Sjálfstæðisflokki, á Alþingi nýlega. Upplýsti ráðherra að tap hefði verið á rekstri Fóður og fræframleiðslunnar í Gunn- arsholti árið 1983 uppá 7.7 milljónir króna en hagnaður var árin 1982, 1.2 milljónir króna, og 1984,421 þúsund krónur. Tap var á rekstri Stórólfsvallabúsins á árinu 1983 uppá 1.2 milljónir en hagnaður 1982 var 1.1 milljón og444þúsundáárinu 1984. Hagnað- ur hefur verið á rekstri graskögglaverk- smiðjunnar Flateyjar í A-Skaftafellssýslu þrjú síðustu ár, mestur 1982, tæpar 2 milljónir, en 681 þúsund 1983 og967þúsund árið 1984. Annað er uppá teningnum í Fóðuriðjunni í Dalasýslu, en tap hefur verið á rekstri hennar síðustu þrjú ár, mest í fyrra eða 3.3 milljónir. Tapið 1982 var 1.3 milljónir og 1983 var tapið 2.7 milljónir króna. Verksmiðjan Vallhólmur í Skaga- firði hóf framleiðslu árið 1983, um 1200 tonn en full afköst miðast við 3000 tonn. Ársframleiðslan í fyrra nam 2250 tonnum en endurskoðaðir ársreikningar lágu ekki fyrir. Á þessu ári er ráðgert að draga úr graskögglaframleiðslu tveggja verksmiðja, Stórólfsvallabúsins og Flateyjar, en auka byggrækt, en rekstur hinna verksmiðjanna verður með svipuðu sniði. Landbúnaðar- ráðuneytinu hefur borist fyrirspurn urn leigu á Stórólfsvallabúinu og eru hafnar viðræður um það en einnig mun ráðuneytið leyta eftir því hvort vilji sé hjá heimamönn- um um að kaupa verksmiðjurnar eða taka þær á leigu til rekstrar. HJÁ AGLI EV-KJÖR - OPIN-KJÖR Alltaf eitthvað hjá Agli Cherokee ’84 Lada Sport ’80 Fiat Regata ’84 Fiat Uno ’84 Skoda ’84 Við bjóðum skipti á þessum bílum, sem öðrum bílum hjá okkur EV - vildarkjör á öllum bílum 1929 BÍLAÚRVALIÐ ER SÍBREYTILEGT FRÁ DEGI TIL DAGS notaðir bílar í eigu umboðsins EGILL, VILHJALMSSON HF Smidjuvegi 4c — Kópavogi — Simi 79944— 79775 1985 MUNIÐ EV-KJÖRIN VINSÆLU, AÐ ÓGLEYMDRI SKIPTIVERSLUNINNI Fimmtudagur 9. maí í 985 3 Frettir „Einingaskuldabréf“ í fyrsta sinn á íslandi: Vinsælt sparnaðarform í útlöndum Hin svokölluðu eininga- skuldabréf, sem íslendingum er nú í fyrsta sinn gefinn kostur á að kaupa, eru að sögn for- ráðamanna Ávöxtunarfélags- ins eitt vinsælasta sparnaðar- form fólks í mörgum nágranna- landanna (Unit trusts, mutual funds). Að sögn Péturs Blöndals, framkvæmdastjóra Kaupþings, sem sjá mun um sölu bréfanna, er með þessu ■ Þaðþarfekkiaðkostameiren3000kr.aðverameðíkapphlaupinuum vextina. NT-mynd: ÁrniBjama ■ Þeir kynntu „blönkum“ blaðamönnum hinar lokkandi ávöxtun- arleiðir verðbréfaviðskiptanna: Eggert Hauksson, Sigurður B. Stefánsson og Baldur Guðlaugsson, stjórnarmenn í Ávöxtunarfé- laginu og Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Kaupþings, sem sér um einingabréfasöluna. NT-mynd: Sverrir á skuldabréfamarkaðinum á hverjum tíma. Gengi eininga- skuldabréfanna verður reikn- að daglega og birt opinberlega, þannig að eigendur bréfanna geta hvenær sem er reiknað út hvað einingarnar þeirra eru mikils virði. Einingaskuldabréfin hafa heldur enga fyrirfram ákveðna gjalddaga. Að sögn forsvars- manna verður hins vegar lögð áhersla á að sem auðveldast verði að koma þeim í peninga þegar eigandinn þarfnast þess. Ávöxtunarsjóðurinn sjálfur er skuldbundinn til að innleysa á hverjum mánuði !/so (2%) af útistandandi einingum ef ósk- að er. Auk þess verður hægt að endurselja bréfin hjá verð- bréfasölum. Bréfakaup í gegn um Póst og síma Pétur benti á að bréfakaupin geti menn gert með lágmarks- fyrirhöfn. Þannig geti fólk hringt í Kaupþing og fengið allar upplýsingar um þau og verð þeirra og sent síðan strik- aða ávísun í pósti eða greiðslu í gíró. Einingabréfið verði síð- an sent eigandanum í ábyrgð- arpósti. ■ Áttu svona þó ekki sé nema 3-10 þús. kall, sem þú þarft ekki á að halda næsta hálfa árið eða svo? Meira þarf nú ekki lengur til, til þess að gerast þátttakandi á hinum íslenska skuldabréfa- markaði sem að undanförnu hefur gefið sparifjáreigendum kost á allt að 16-17% ársávöxtun umfram lánskjaravísitölu - þ.e. þeim sem átt hafa að lágmarki svona 50-100 þús. krónur og þar yfir. Þessa „gróðaleið" hefur Ávöxtunarfélagið hf. nú hins vegar einnig opnað fólkinu með smáu sjóðina með stofnun Ávöxtunarsjóðsins og sölu hans á einingaskuldabréfum sem kynnt var á fréttamannafundi í gær. leystur vandi þeirra sparifjár- eigenda sem hvorki hafa nægt fjármagn, tíma, eða sérþekk- ingu til að taka þátt í verð- bréfakaupum á hinum al- menna verðbréfamarkaði, en hefur hins vegar fullan hug á að ávaxta sinn „sparisjóð" á sem bestan hátt. En reynslan sýni að það verði einmitt best gert með fjárfestingu í verð- tryggðum veðskuldabréfum, sem undanfarna mánuði hafi gefið um 16% ársávöxtun um- fram vísitölu. Vankantarnir sniðnir af en kostunum haldið Með einingaskuldabréfun- um sagði Pétur alla vankanta verðbréfaviðskiptanna sniðna af án þess að helstu kostirnir, þ.e. bestu vextir sem bjóðast á hverjum tíma, glatist. Þau sé hægt að kaupa fyrir hvaða upphæð sem er, þó tæpast borgi sig að vísu að fara niður fyrir 3 þús. krónur á hverju bréfi. Hver eining kostar í upphafi 1 þús. krónur, en allt eins má t.d. kaupa 6,25 einingar ef „sparisjóður" við- komandi skyldi vera 6.250 krónur. Bestu vextir sem bjóðast á hverjum tíma Seld einingabréf mynda sér- stakan sjóð - Ávöxtunarsjóð- inn - sem notaður verður til kaupa á verðbréfum með bestu fáanlegri ávöxtun hverju sinni - að mestu fasteignatryggðum skuldabréfum. Eininga- skuldabréfin bera því ekki fyrirfram ákveðna vexti, held- ur munu þeir ráðast af vöxtum Þrjú þúsund kall - og gróðaleið verðbréfamarkaðarins er þér opin

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.