NT

Ulloq

NT - 09.05.1985, Qupperneq 4

NT - 09.05.1985, Qupperneq 4
Vandlifað fyrir metnaðar- fulla dagskrárgerðarmenn - segir Ingibjörg Hafstað útvarps ráðsf u I Itr úi „Já, það hlýtur að vera alvar- leg þróun mála, ef útvarpsráð tilnefnir eða ræður menn til fyrir allar stærðir og gerðir af bílum, fólksbíla, vörubíla og sendiferðabíla. Höfum mikið magn af kaldsóluðum, heilsóluðum og radíaldekkjum á lager. Öll hjólbarðaþjónusta innanhúss. Komið og reynið viðskiptin í nýju húsnæði okkar. Ath. Gegn framvísun þessarar auglýsingar veitum við 5% kynningarafslátt. Kaldsólunhf. Dugguvogi 2. Sími: 84111 Sama húsi og Ökuskólinn. ■ „Markús Á. Einarsson talar um dylgjur okkar Gerðar Ósk- arsdóttur í útvarpsráði. Ég veit ekki hvað eru dylgjur í huga Markúsar, enda er hann tæplega í aðstöðu til að meta hvort um dylgjur hafi verið að ræða, þar sem hann kveðst hafa verið farinn af fundi, þegar Ævar Kjartansson var til umræðu,“ sagði Ingibjörg Hafstað, fulltrúi Kvennalistans í útvarpsráði, í samtali við NT í gær. Ingibjörg vísar til viðtals við Markús Á. Einarsson í þriðjudagsblaði NT. Staðfestir þú að þau ummæli hafi fallið í garð Ævars, sem vitnað er til í NT á laugardag- inn? „Já, ég get staðfest þau í einu og öllu." Studdir þú og Gerður Óskars- dóttir tillögu dagskrárstjóra um að Ævar stjórnaði þessum um- deilda laugardagsþætti? „Ég verð að fá að rekja forsögu málsins. Fyrir u.þ.b. þrem vikum lagði Gunnar Stef- ánsson dagskrárstjóri fram til- lögu dagskrárdeildar um þátt á laugardagsmorgnum, sem bar vinnuheitið „í lok kvennaára- tugar". Nokkrir útvarpsráðs- menn, þ.á m. Markús Á. voru eindregið þcirrar skoðunar að málefni kvenna væru ekki efni sem menn hefðu gaman af. Þess vegna bæri að flytja þennan þátt og hafa eitthvað áhugavert á svo góðum hlustunartíma. Yfir- skinið að þessu sinni var sem sagt að málefni kvenna væru almennt leiðinleg. Þaðerspurn- ing hvort það sé ekki hæpið að persónulegur smekkur þriggja til fjögurra manna eigi að skera úr um hvað sé áhugavert og skemmtilegt fyrir þjóðina og hvað ekki. Dagskrárstjóri brást hins veg- ar vel við þessum tilmælum og flutti kvennaþáttinn til mánu- Hjólbarða- þjónusta dagskvölds. Þess í stað setti hann þáttinn góða sem Ævar var fenginn til að hafa umsjón með. Ævar og hans fréttatengda efni þótti hins vegar of eldfimt fyrir svo góðan hlustunartíma. ■ Ingibjörg Hafstað. ■ Eiður Guðnason. Það fer að vera vandlifað fyrir metnaðarfulla dagskrárgerðar- menn, sem vilja halda úti sæmi- lega fjölbreyttri og spennandi dagskrá og gera jafnframt út- varpsráði til geðs bæði hvað varðar pólitískar skoðanir og áhugamál.“ Telur þú þá, að útvarpsráð hafi gripið fram í starf dag- skrárgerðarfólks með óeðlileg- um hætti? dagskrárgerðar alveg án sam- ráðs við dagskrárdeild. Það er heil dagskrárdeild starfandi við dagskrárgerð fyrir útvarpið og það gefur augaleið að sú deild er betur fallin til þess starfa, en pólitískir fulltrúar í fullu starfi annars staðar." En, nú er útvarpsráð til og hefur lög við að styðjast í starfi? „Útvarpsráð túlkar þessi lög mjög rúmt. Lög um útvarpsráð eru hér mjög lík og í Skandi- navíu, en þar dæmir útvarpsráð aldrei dagskrárliði fyrirfram. Það getur hins vegar gagnrýnt þá og stöðvað eftir á ef því þykir ástæða til. Ég held að aðrir flokkar ættu að fara að dæmi Kvennalistans og skipta árlega um fulltrúa í pólitískum ráðum og nefndum. Mér sýnist að menn geti orðið æði heimaríkir ef þeir sitja of lengi. Þá má ég til með að bæta því við að mér finnst það óneitan- lega koma úr hörðustu átt, þeg- ar útvarpsstjóri ýjar að því, að ekkert sé athugavert við það að skoðanir starfsmanna útvarps með pólitíska fortíð séu til um- ræðu í útvarpsráði. Hann hefur sjálfur „flaggað" sínum póli- tísku skoðunum opinberlega í mörg undanfarin ár, að því er mig best minnir." Rilskoða pólitískir fulltrúar Eiður Guðnason um deilur útvarpsráðs og dagskrárdeildar: dagskrána og bollalcggja um pólit- ískar skoðanir starfsmanna í trún- aði sín á milli áður en þeir gefa grænt Ijós á tilhögun dagskrárliða. Nei, hin umdcilda afgreiðsla á sumardagskránni s.l. föstudag var aðeins í samræmi við hefðir og lög, segir meirihluti útvarpsráðs. Eigi að síður hefur þessi afgrciðsla orðið tilefni harkalegra deilna um prinsipmál, þar sem til umræðu er valdsvið útvarpsráðs og sjálfstæði útvarpsins. Þá þarf ekkert útvarpsráð ■ „Ég hef ekkert um þetta að segja," sagði Eiður Guðnason, formaður þingflokks Alþýðu- Listamanna- launum úthlutað ■ „Úthlutað hefur verið starfslaunum listamanna fyrir 1985. Launin miðast við byrjunarlaun mennta- skólakennara. Alls voru umsóknir 128 en úthlutað til 38 listamanna, alls 3,4 milljónum króna. 12 mánaða laun hlutu Brynhildur Þorgeirsdóttir, myndlistarmaður, Guðrún Tryggvadóttir, myndlist- armaður, Áskell Másson, tónlistarmaður, Karólína Eiríksdóttir, tónlistarmaður. 6 mánaða laun hlutu myndlistarmennirnir; Gylfi Gíslason, Jóhanna Bogadóttir, Jón Gunnar Árna- son, Kjartan Ólason, Kolbrún Björgólfsdóttir, Si- gurður Örlygsson, Pétur Einarsson, lcikari, og Friðrik Þór Friðriksson, kvikmyndagerðarmaður. 3 mánaða laun hlutu tónlistarmennirnir, Bergþóra Árnadóttir, Helga Ingólfsdóttir, Hlíf Sigur- jónsdóttir, Marteinn H. Friðriksson, Pétur Jónasson og myndlistarmennirnir Ása Ólafsdóttir, Daði Guð- björnsson, Guðmundur Benediktsson, Hannes Lár- usson, Harpa Björnsdóttir, IngólfurÖrn Arnarson, ívar Valgarðsson, Jón Axel Björnsson, Kristinn G. Harðarson, Lísa K. Guðjónsdóttir, Ólafur Lárus- son, Ragnhildur Stefánsdóttir, Valgarður Gunnars- son, Vignir Jóhannsson, Messíana Tómasdóttir leikmyndahönnuður, Kristín Bjarnadóttir leikkon'a og rithöfundarnir Filippía Kristjáhsdóttir, Guð- mundur Halldórsson, Ingólfur Jónsson, Úlfar Þor- móðsson og Valgerður Þóra Másdóttir. Úthlutunarnefnd skipuðu: Magnús Þórðarson, Þorkell Sigurbjörnsson, og Knútur Hallsson for- maður. flokksins og fulltrúi flokksins í útvarpsráði, þegar NT spurði hann álits um deilur útvarpsráðs og dagskrárdeildar, sem verið liafa til umfjöllunar hér í blað- inu. Eiður hefur verið erlendis og kom til starfa á Alþingi á ný í gær. Gekk útvarpsráð ekki of langt í að grípa fram fyrir hendur dagskrárdeildarinnar í sam- bandi við þá þrjá þætti sem voru til umræðu? „Sko, útvarpið á að sam- þykkja dagskrá fram í tímann og ef hlutverk útvarpsráðs á bara að vera að stimpla þær tillögur sem dagskrárstjórar leggja fram þá þarf ekkert út- varpsráð. Útvarpsráð er alltaf að taka afstöðu til efnis, tilboða um þætti og annað og það sem gerðist þarna er bara það sem alltaf er að gerast.“ Þetta er sem sagt ekkert öðru vísi en alltaf hefur verið? „Nei, það koma fram tillögur frá dagskrárstjóra og stundum eru þær samþykktar og stundum ekki. Þetta er ekkert nýtt.“ Er það rétt að þú hafi látið þau orð falla á útvarpsráðsfundi að Ævar Kjartansson hafi gerst brotlegur gagnvart útvarpsráði? „Það er ýmislegt sagt á út- varpsráðsfundum og þar tala menn saman í trúnaði, a.m.k. hef ég litið svo á, og það sem þar gerist er fært til fundargerða, og þar kemur fram hvaða skoðanir menn hafa og það sem menn láta bóka.“ Og það sem ekki er bókað er ekki til umræðu? „Nei, nei.“ Er það eðlilegt að starfsmenn útvarpsins séu þannig til um- ræðu á fundum ráðsins, og það sem sagt er síðan flokkað undir trúnaðarmál? „Það ber margt á góma á fundum ráðsins og menn ræða þar hlutina fram og til baka.“ Þannig að þú vilt hvorki staðfesta né bera til baka, að þessi orð hafi fallið? „Nei, ég hef ekkert um það að segja.“ Ellilífeyrir og tekjutrygging: Hækkað um 178,9% árin 1982-1985 ■ Síðan 1. júní 1982 til 1. maí 1985 hafa alls orðið 15 hækkanir á ellilífeyri og tekjutryggingu og nemur hækkunin í krónutölu 7359 krónum, sem er 178,9%. Þetta kom fram í svari heil- brigðis- og tryggingamálaráð- herra við fyrirspurn Péturs Sig- urðssonar, Sjálfstæðisflokki, um málefni aldraðra. Á með- fylgjandi töflu sést hvernig hækkanirnar dreifast á þetta tímabil og hversu miklar þær eru hverju sinni. Hækkun ellilífeyris og tekjutryggingar samanlagt frá 1. júni 1982 til 1. maí 1985. 1.6.82 1.7.82 nó\. 1.11.82 des. 1.12.82 jan. 1.1.83 1.3.83 1.6.83 okt. 1.10.83 1.3.84 1.6.84 okt. 1.10.84 rxn. 1.11.84 jan. 1.1.85 — 1.3.85 1.5.85 Hækkun i timah. tpphæðir i kr. 4113 4 380 4 708 5 IWf 5 312 6 095 6 747 7 018 8 106 8 268 8 515 V 708 10 194 10 437 11472 7 359 Hækkuoi°o 10.33 8.8 7.5 10.2 2.4 14.74 13.0 4.0 15.5 2.0 3.0 14.0 5.0 2.4 9.9 178.9%

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.