NT - 09.05.1985, Side 5

NT - 09.05.1985, Side 5
Fimmtudagur 9. maí 1985 5 Um 250 aðalfundarfulltrúum KEA boðið á popptónleika: Um 3 millj. af hagnaðinum í launaauka til starfsmannanna Um 20,9 millj. hagnaður af 2.723 millj. veltu ■ Um 20,9 milljóna króna hagn- aður varð af rekstri Kaupfé- lags Eyfirðinga á s.l. ári, af samtals 2.723 millj. króna heild- arveltu að afurðareikningum meðtöldum, að því er fram kom á aðalfundi fyrir skömmu. Velt- an hafði aukist um 27% í krónu- tölu frá 1983, eða nokkurnveg- inn í samræmi við verðbólguþró- unina. Á aðalfundinum var sam- þykkt tillaga kaupfélagsstjóra um að öllu starfsfólki sem verið hefur í föstu og samfelldu starfi frá síðasta aðalfundi og er enn, verði greidd 3.000 kr. aukalaun. Samtals mun þarna vera um hátt í 3 milljóna króna auka- launagreiðslur að ræða. Þá var samþykkt að endurgreiða 4 millj. kr. af tekjuafgangi í stofn- sjóð og reikninga félagsmanna, að greiða samtals 1.250.000 kr. viðbótarvexti af almennum stofnsjóði á árinu 1984, leggja fram 2 millj. króna til eflingar Lífeyrissjóðs KEA og 1 millj. króna í Menningarsjóð. Heildarvelta KEA var sem fyrr segir 2.723 milij. króna, en að samstarfsfyrirtækjunum meðtöldum 3.427 millj. króna. Fjöldi ársstarfa (m.v. slysa- tryggðar vinnuvikur) var 1.018 en 1.277 að samstarfsfyrirtækj- unum meðtöldum. Beinar launagreiðslur hjá KEA námu rösklega 289 millj., en um 400 milljónum að meðtöldum sam- starfsfyrirtækjunum. Hækkun launa og launatengdra gjalda var 26% frá 1983. Fjármunamyndun í heildar- rekstrinum var 124 millj. kr. á árinu. Efnahagur er sagður traustur sem fyrr. Eigið fé og stofnsjóðir voru í árslok 887,3 millj. króna. Á árinu var fjárfest fyrir sam- tals 62,5 millj. Fjárfrekustu framkvæmdirnar voru; verslun- arhús á Dalvík tæpar 7 millj., vegna Mjólkursamlags KEA 8.7 millj.. vegna Kornhlöðu á Akureyri 7,2 millj. og vegna Þvottahúss 5,3 millj. króna. Auk eigin fjárfestinga félagsins voru fjárfestingar Efnaverk- smiðj. Sjafnar u.þ.b. 30 millj. og til uppbyggingar á Hótel ■ Tveir sextán ára drengir veltu bifreið í gærmorgun á Þing- vallavegi á móts við, bæinn Stardal. Drengirnir stálu bíln- um frá Laugavegi 7 í Reykjavík um miðnætti á þriðjudag. Það var síðan klukkan 5:25 í gær- morgun sem lögreglu í Hafnar- firði barst tilkynning um atburð- inn. „Þetta var hrikalegt, og ég hreint út sagt skil ekki hvernig drengirnir sluppu jafn vel og raun ber vitni,“ sagði Eðvarð Ólafsson rannsóknarlögreglu- maður í Hafnarfirði í gærdag. Annar drengjanna labbaði nið- ur að bænum Stardal og komst þar í síma og kallaði á sjúkrabíl. KEA var varið um 22 millj. á árinu. í tilefni af ári æskunnar bauð félagið fulltrúum (247 að þessu sinni) og gestum þeirra á hljóm- leika í Tþróttahöllinni þar sem hljómsveit Jakobs Magnússonar ásamt Valgeiri Guðjónssyni lék á fullu fyrir um 1.500 áheyrend- ur, aðallega æskufólk. Hinn drengurinn beið í bílnum, og var orðinn mjög kaldur þegar sjúkrabíllinn kom á staðinn. Annar drengjanna var í bíl- belti, og var hann mikið marinn eftir það. Eðvarð rannsóknar- lögreglumaður sagði að bíllinn hefði farið fram af ræsi, og kastast marga metra í loftinu áður en hann lenti. „Þar sem bíllinn korn niður var eins og jarðýta hefði farið um. Síðan fór hann margar veltur og stöðv- aðist ekki fyrr en 170 metra frá veginum." Grunur leikur á að drengirnir hafi verið ölvaðir. Þeir sluppu báðir með lítilsháttar meiðsli. Slag- verkið í aðal- hlutverki ■ Næst síðustu árskrift- artónleikar Sinfóníu- hljómsveitar íslands á starfsárinu verða í kvöld í Háskólabíói. Á efnisskrá verða Sinfónía í C-dúr eft- ir George Bizet, La Valse . eftir Ravel og tvö verk fyrir ásláttarhljóðfæri og hljómsveit; Marimbu- konsert eftir Darius Mil- haud og Konsertþáttur fyrir litla trommu og hljómsveit eftir Áskel Másson. Einleikari á slag- verk verður Svíinn Roger Carlsson og stjórnandi Jean Pierre Jaquillat. Roger Carlsson er einn fárra slagverkleikara, sem hafa lagt fyrir sig einleik nteð hljómsveitum. Kons- ertþáttur Áskels er saminn sérstaklega fyrir hann og má geta þess að útgáfufyr- irtæki í New York mun bráðlega gefa verkið út á hljómplötu með lcik Carlssons, en Sinfóníu- hljómsveit Gautaborgar undir stjórn Finnans Esa Pekka Salonen sér um hljómsveitarþáttinn. Þátt- urinn var frumfluttur af Sinfóníuhljómsveit ís- lands á tónlistarhátíð ungra norrænna tónskálda í september 1982 á tón- leikum Sinfóníuhljóm- sveitar íslands. Stjórnandi þá var Guðmundur Emils- son en Roger Carlsson lék einleik þá eins og nú. Fyrirspurnir á Alþingi: Kennarauppsagnir og grunnskólalög ■ Hjörleifur Guttormsson hefur lagt fram fyrirspurn í sameinuðu þingi til mennta- málaráðherra um hversu margir fastráðnir kennarar í grunnskólum og framhalds- skólum hafi sagt upp störfum sínum eða sótt um launalaust frí frá og með byrjun næsta skólaárs. Þá hefur Bragi Michaels- son beint fyrirspum til mennta- málaráðherra um fram- kvæmd grunnskólalaga, að hve miklu leyti þau hafi kom- ið til framkvæmda og hvaða möguleika ráðherra telji á að koma öllum ákvæðum lag- anna í framkvæmd á full- nægjandi hátt. Þá spyr hann einnig við hve marga skóla sé komin fullkomin kennslu- aðstaða í heimilisfræðum, íþróttum og sundi og á hve mörgum stöðum séu nú í byggingu sund- og íþrótta- mannvirki. Er og spurt um hversu margar beiðnir liggi fyrir um slík mannvirki hjá menntamálaráðuneyti og fjárveitinganefnd og að hve miklu leyti ráðuneytið hafi falið fræðsluskrifstofum verkefni er þeim voru ætluð í grunnskólalögunum. 16 ára unglingar: Stálu bíl og gioreyðilogðu ■ Áltökubflarnir, sem íslenska álfélagið hefur pantað eru svipaðir og þessi, nema stærri. Myndin er fengin að láni úr Isal-tíðindum. ísal kaupir áltökubíla: Fullkomnustu tæki sinn- ar tegundar í heiminum ■ íslenska álfélagið hefur pantað fjóra svokallaða áltökubíla fyrir verksmiðjuna í Straumsvík og verða þeir afhentir i nóvember í haust. Áltökubílarnir soga álið upp úr bræðslukerjunum og flytja það yfir í steypuskála verksmiðjunnar. Með núverandi tækjum fer flutningur þessi fram í nokkrum þrepum. Jakob R. Möller hjá íslenska álfélaginu sagði í samtali við NT, að hagræðingin við notkun áltökubílanna væri einkum þrenns konar. í fyrsta lagi minnkar verulega loftbruni í málminum, sem hef- ur það í för með sér, að brædda álið nýtist betur. I öðru lagi krefst þessi nýja tækni færri starfsmanna, og í þriðja lagi minnk- ar viðhaldskostnaður tækja. Áltökubílarnir eru frá ítölsku fyrir- tæki, sem sérhæfir sig m.a. í framleiðslu á vélbúnaði fyrir álbræðslur, og eru þetta fullkomnustu tæki sinnar tegundar, sem hægt er að fá. Álverið í Straumsvík verður fyrst til að taka þau í notkun. Tveir bílar verða í notkun hverju sinni og anna þeir fram- leiðslunni. Verð hvers áltökubíls er um 100 þúsund dollarar. FERÐAVASABOK FJÖLVÍS 1985 L ÓMISSANDI í FERÐALAGIÐ! Meðal efnis t.d.: 40 íslandskort - Kort af öllum hringveginum - Heimshluta- kort - Sendiráð og ræðismannaskrif- stofur um allan heim - Ferðadagbók - Ferðabókhald - Öryggiskort - Gjald- eyristöflur - Kaupstaðakort - Evrópu- vegirnir - Neyðar- og viðgerðaþjón- usta - Vegalengdatöflur - Bandaríska hraðbrautakerfið - o.m.fl. sem of langt er upp að telja. Við höfum meira en 30 ára reynslu í útgáfu vasabóka, og sú reynsla kemur viðskiptavinum okkar að sjálfsögðu til góða. Og okkur hefur tekist einkar vel með nýju Ferðavasabókina okkar og erum stoltir af henni. Þar er að finna ótrúlega fjölbreyttar upplýsingar, sem koma ferðafólki að ómetanlegu gagni jafnt heima sem erlendis.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.