NT

Ulloq

NT - 09.05.1985, Qupperneq 9

NT - 09.05.1985, Qupperneq 9
Fimmtudagur 9. maí 1985 9 Te & kaffi við Barónsstíg: Fimmtíu ilmandi tetegundir og svo kaffi frá öllum heimshornum Jurtate Hindberjate: Gott fyrir ófrískar konur, styrkir legið. Brenninetlute: Allra meina bót, blóðhreinsandi, gott við hósta, lungnaveiki og hárlosi. Valhnetute. Gott við bólgum, gikt, lystarleysi, bólgnum kirtlum, hægðartregðu og tannholdsbólgu. Birkilaufste: Styrkjandi, blóðhreinsandi, lystaukandi. Gott fyrir húðina, soðið af birkilaufi er græðandi. Lavendel: T augaróandi, þvagörvandi og gott við meltingatruflunum. Barnate: Úr þurrkuðum ávöxtum, fjörefna- og vítamínríkt. ■ Verslunin Te & kafli er til húsa í litlum kjallara við Barónsstíginn. ■ Þessa dagana er liðið ár frá því Reykvíkingum bauðst í fyrsta sinn að kaupa te og kaffi í sérverslun. Það er verslunin Te & kaffi sem stendur við Barónsstíginn, sem hér um ræðir. Aður en þessi verslun tók til starfa áttu íslendingar tæplega öðru að venjast en því fábreytta úrvali þessara drykkja sem selt er í stór- mörkuðum og venjulegum matvöruverslunum og þar er oft meira hugsað um verðlag en gæði og því kannski ekki alltaf um fyrsta flokks vöru að ræða. ■ Berglind malar kaffið á staðnum það væri leyfilegt. En það er ekki alveg útilokað að Te og kaffi verði með reglulega kynningu á hinum bragðmiklu og ljúffengu drykkjum, sem þar eru á boðstóíunum. Augnalok Búddhamunksins Listin að laga te er upprunn- in í Kína. Sögur herma að uppfinningamaður tesins hafi verið keisarinn She Nung kall- aður „hinn guðdómlegi læknir" She Nung á að liafa lagað fyrsta tebolla sögunnar, árið 2737 f. Kr. Aðrar sögur segja að Buddhistamunkurinn Dharum - „hinn hvíti Buddha" hafi verið upphafsmaður tesins. Dharum? sat eitt sinn og hug- lciddi sem endranær og allt í einu fann hann fyrir ómót- stæðilegum sljóleika og syfju. Þá skar hann af sér augnlokin og kastaði þeim á jörðina. Þar sem þau lentu óx síðar upp planta og af blöðum plöntunn- ar var hægt að laga drykk sem kom í veg fyrir sljóleikann. Fyrrverandi „útlend- ingar'1 áberandi Það eru hjónin Berglind Guðbrandsdóttir og Sigmund- ur Dýrfjörð, sem reka verslun- ina Te & kaffi. Neytendasíðan hafði samband við Berglindi á ársafmælinu og spurðist fyrir um hvernig reksturinn gengi og hvort undirtektir almenn- ings hefðu orðið nægjanlega góðar til að vænta mætti að verslunin héldi áfram. Berglind kvað það ekkert vafamál að verslunin héldi áfram, hún væri þegar farin að bera sig og viðskiptavinum héldi sífellt áfram að fjölga. „í fyrstu var það aðallega ungt fólk sem hafði dvalið í útlöndum, sem verslaði við okkur," sagði Berglind, „en síðan hefur þetta breyst og nú er svo komið að hér verslar fólk á öllum aldri og þeim fer sífellt fjölgandi sem uppgötva verslunina.“ Berglind sagði Hæ! Ertu að hugsa um ný heimilistæki... Skoðaðu Blomherg línuna hjá Einari Farestveit hf. Bergstaðastræti 10 a. Það borgar sig. ■ Tebaukarnir í hillunum virðast nánast óteljandi. einnig að fólk sem einu sinni hefði keypt sér þarna te eða kaffi, kæmi yfirleitt aftur og fjöldi fólks kæmi reglulega einu sinni í viku. Fimmtíu tegundir af tei! Verslunin Te og kaffi hefur á boðstólum um fimmtíu teg- undir af tei og um tíu kaffisort- ir og að sögn Berglindar er aldrei keypt inn annað en fyrsta flokks vara. Mestra vinsælda njóta ávaxtablönduðu tetegundirn- ar, segir hún. Sem dæmi um þessar tegundir má nefna mangó-te, eplate, appelsínu- te, kivi-te, og apríkósu-te. Af þeim fimmtíu tetegund- um sem Te og kaffi hefur jafnan á boðstólum eru u.þ.b. tíu tegundir ýmis konar jurta- te, sem m.a. er notað sem heilsubótardrykkir gegn ýms- um kvillum. Hinar hefðbundnu teteg- undir koma frá ýmsum stöðum, svo sem Kína, Japan, Ceylon og Indónesíu svo eitthvað sé nefnt. Krydduðu tein eru að sögn Berglindar Kína- eða Ceylonblöndur sem búið er að bragðbæta hér á Vesturlöndum. Hún segir líka að þess séu dæmi að slíkar blöndur séu seldar aftur til Austurlanda eftir að búið er að bragðbæta þar í Evrópu Tuttugu ára bið Reykvíkingar hafa tekið Te og kaffi alveg einstaklega vel, fólk hefur komið og sagt að það hafi verið að bíða eftir svona verslun í ein tuttugu ár. Aðrir segjast hafa fengið kaffi og te reglulega sent að utan, en nú þurfi þeir ekki lengur á fjarviðskiptum að halda, heldur geti fengið sitt drauma kaffi og te beint frá Berglindi. Hugmyndin var upphaflega sú að hafa alltaf kaffi á könn- unni svo hægt væri að veita tíu dropa til kynningar og ánægju, en það vantaði víst tíu senti- metra upp á lofthæðina til að

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.