NT - 09.05.1985, Qupperneq 21
Fimmtudagur 9. maí 1985 29
Utlönd
Guð fær blöðrusendingu:
„Góði guð gef oss
páfa með stóreyru“
Haag-Kcuter.
■ Rúmlega tíu þúsund róttæk-
ir kaþólikar söfnuðust saman í
Haag í gær til að mótmæla
íhaldssemi páfastóls en Jóhann-
es Páll páfi annar kemur í
heimsókn til Hollands nú í viku-
lok.
Heilagir feður. guðfræðingar
og óbreyttir kaþólikar tóku til
máls á fundinum og gagnrýndu
páfastól fyrir íhaldssemi í trú-
málum og þjóðfélagsmálum. Á
fundinum var einnig send til
himna bæn með tvö þúsund
rauðum, hvítum og bláum
blöðrum sem á var skrifað
„Góði guð gef oss páfa með stór
eyru“ í von um að guð fengi
páfann til að Ijá skoðunum rót-
tækra kaþólika í Hollandi eyra.
Forystumenn ýmissa kaþ-
ólskra hópa í Hollandi ákváðu
að boða til fundarins eftir að
erkibiskupinn í Hollandi, Adri-
anus Simonis, tilkynnti að þeir
kaþólikar, sem hefðu gagnrýnt
páfastól fengju ekki leyfi til að
hitta páfann þegar hann kemur
til Hollands. Ræðumenn á fund-
inum gagnrýndu páfastól m.a.
fyrir afstöðuna til getnaðar-
varna, giftinga presta, kven-
presta, homma og fóstureyð-
inga.
Aðalskipuleggjandi mót-
mælaaðgerðanna Joost Reuten
sagði að mótmælin væru ekki
páfafjandsamleg. Hann sagði að
ýmis þau atriði sem ræðumenn
Nýja
Kaledónía:
Ráðist á
sjúkrahús
sjúkrabíla
fjölluðu um hefðu ekki verið
rædd nægjanlega mikið innan
kaþólsku kirkjunnar.
Kaþólska kirkjan í Hollandi
hefur langa hefð fyrir frjálslyndi
en að undanförnu hefur páfa-
stóll skipað íhaldssama guð-
fræðinga í biskupsstóla í Holl-
andi í andstöðu við vilja margra
kaþólika þar. Samkvæmt nýrri
skoðanakönnun eru aðeins 3%
kaþólskra Hollendinga ánægð
með heimsókn páfa nú. 86%
þeirra eru ösammála afstöðu
páfastóls til getnaðarvarna,
80% eru ósammála afstöðunni
til skilnaðar og 67% telja fóstur-
eyðingar geta verið réttlætan-
legar.
■ Ætli páfínn hafí nægjanlega
stór eyru til að heyra óskir
hollenskra kaþólika um getnað-
arvarnir, kvenpresta, giftingar
klerka og aukið frjálslyndi í
garð homma?
Koivisto:
Finnar með í að
mala nasistana
Hdsinki-Keutcr
■ Finnski forsetinn,
Mauno Koivisto, sló í gær
striki yfir samkrull Finna og
Þjóðverja á stríðsárunum og
skákaði Finnlandi á meðal
sigurvegaranna í síðari
heimsstyrjöldinni.
Hann sagði, í hátíðarræðu
í tilefni þess að 40 ár eru liðin
frá stríðslokum, að Finnar,
sem réðust inn í Sovétríkin
við hlið Pjóðverja árið 1941,
en breyttu síðar um stefnu,
hefðu að lokum lagt fram
sinn skerf til sigursins yfir
nasistum.
Koivisto, sem barðist sjálf-
ur gegn sovéskum hersveit-
um, vísaði ósköp óljóst til
stríðs Finna gegn Sovétríkj-
unum l939-40og 1941-44.
Hann helgaði bróðurpart-
inn af ræðu sinni því er
Finnar ráku sína fyrrverandi
þýsku bandamenn út úr
Lapplandi.
„Líta má á stríðið í Lapp-
landi sem stríðið þegar Finn-
ar unnu að því að mala
stríðsvél nasista mélinu
smærra í félagi við banda-
rnenn,” sagði Koivisto í ræðu
í útvarpi og sjónvarpi.
Hann sagði að ef fólk rifj-
aði upp heimsstyrjöldina síð-
ari gerði það sér Ijóst mikil-
vægi þess að vinna að því að
ryðja styrjaldarógnunum úr
vegi, sérstaklega kjarnorku-
ógninni, og vinna að því að
binda enda á vopnakapp-
hlaupið.
Svo sem ræða Koivisto ber
með sér hneigjast Finnar
frekast til þess að reyna að
gleyma vináttunni við nasista
og urðu þeir því all kindar-
legir þegar Sovétmenn fóru
fram á það fyrir skömmu að
fá að reisa minnisvarða til
heiðurs þeim hermönnum
sovéskum er féllu í Finnlandi
í stríðinu.
Finnar óttast að slíkur
minnisvarði verði einungis
til þess að vekja upp gamlar
væringar milli landanna
tveggja.
Finnar segja að þeir l .000
sovésku hermenn sem létust
hafi allir verið stríðsfangar í
fangabúðum í grennd við
Nastola í suðurhluta landsins
og hafi þeir dáið úr sjúkdóm-
um og enginn verið skotinn.
Sovéski leiðtoginn, Nikita
Krushchev heitinn, sagði
hins vegar að milljón sovésk-
ir hermenn hefðu fallið á
finnsku landamærunum milli
I939 og 1944. Fallnir Finnar
voru 70.000.
og
Noumea-Reuter
■ Miklar óeirðir brutust út í
gær í frönsku nýlendunni Nýju.
Kaledóníu í Kyrrahafi. Einn
unglingur var skotinn til bana
og a.m.k. sjötíu særðust þegar
hvítir íbúar eyjunnar réðust á
hóp Kanaka-frumbyggja í
höfuðborginni Nouinea.
Þetta eru verstu óeirðirnar
sem hafa orðið frá því að Kan-
akar fóru að berjast fyrir sjálf-
stæði í nóvember á seinasta ári.
Sérstakur sendifulltrúi frönsku
stjórnarinnar á eyjunni, Edgard
Breskt
topp-
popp
í Kína
London-Reuter
■ Dægurlagaútvarps-
stöðin vinsæla, Radio
Luxemborg, hefur gert
samning við kínverska út-
varpsstöð í Kanton í Suð-
ur-Kína um að útbúa viku-
legan þátt með breskri
popptónlist.
Þegar hefur verið undir-
ritaður samningur um að
Radio Luxemborg skuli
gera 13 tveggja tíma þætti
fyrir kínversku útvarps-
stöðina sem nær til allt að
61 milljónar hlustenda.
Radio Luxemborg hefur
ráðið í þessu tilefni kín-
verskan plötusnúð sem
talar mállýsku þeirra Kín-
verja sem eru búsettir á
þessu svæði.
Talsmaður útvarps-
stöðvarinnar segir að aðal-
áherslan verði lögð á dæg-
urlög sem séu vinsæl með-
al breskrar æsku um þess-
ar mundir og einnig á lög
frá sjöunda áratugnum.
Pisani, segir að félagar í flokki
hvítra íbúa nýlendunnar, sem
berjast gegn sjálfstæði hennar,
hafi ráðist á sjúkrabíla og
sjúkrahús og beitt skotvopnum
jafnt gegn Kanökum sem lög-
reglumönnum sem reyndu að
koma á friði.
Þetta er í fyrsta skipti sem
skotvopnum hefur verið beitt í
höfuðborginni í deilum hvítra
öfgasinna, sem líta á Nýju-Kale-
dóníu sem óaðskiíjanlegan
hluta af Frakklandi, og Kanaka
sem berjast fyrir sjálfstæði.
Frakkar hafa stjórnað Nýju-
Kaledóníu í 130 ár. Franska
stjórnin hefur ákveðið að verða
við óskum frumbyggjanna um
sjálfstæði og stefna að því að
nýlendan verði sjálfstæð árið
1987. En margir hvítir íbúar
Nýju Kaledóníu eru algjörlega
mótfallnir sjálfstæði og benda á
að þeir eru núna fjölmennari en
Kanakar.
30. apríl síðastliðinn sam-
þykkti franska stjórnin uppkast
að lögum þar sem nýlend-
unni er skipt í fjögur stjórnsvæði
sem stjórnað verður af svæða-
ráðum. Með þessu vill stjórnin
undirbúa sjálfstæði nýlendunn-
ar.
Klámrita-
rannsókn
í Banda-
ríkjunum
Washington-Reutcr.
■ Bandaríska dómsmálaráðu-
neytið hefur samþykkt 734.371
dollara fjárveitingu til rann-
sókna á því hvort klámritin
Playboy, Penthouse og Hustler
ýti undir glæpi unglinga og kyn-
ferðislega áreitni við börn.
Rannsóknarverkefnið felst
meðal annars í úttekt á efni
blaðanna. Klámmyndir og
teiknimyndir með börnum eða
með fullorðnum konum, sem
eru gerðar unglegri, verða sér-
staklega athugaðar auk lesefnis
sem gæti haft áhrif á börn.
■ Það fór vel á með þeim Gorbachev og Thatcher þegar þau hittust í London í desember síðast liðnum
en síðan slóst upp á vinskapinn þegar þau fóru að reka sendiráðsstarfsmenn hvort annars heim fyrir
skömmu. En á Sigurdaginn voru þau bæði friðsamleg og sáttfús í skilaboðunum hvort til annars. Það
er eiginkona Gorbachevs, Raisa, sem stendur á milli þeirra á myndinni hér að ofan.
Gorbachev og Thatcher
sáttfús á Sigurdaginn
I ondon-Reuter.
London-Reuler.
■ Sovéski leiðtoginn Mikhail
Gorbachev fullvissaði Margaret
Thatcher, forsætisráðherra
Bretlands, um það í kveðju sem
hann sendi henni í tilefni Sigur-
dagsins í Evrópu í gær að þjóð
hans væri reiðubúin til þess að
vinna með bresku þjóðinni að
því að binda enda á vopna-
kapphlaupið.
I bréfióorbachevs, sem skrif-
stofa Thatchers sendi fjölmiðl-
Pyntaður fyrir það eitt að horfa
á lögreglustöð
Kucnos Aires-Reuter.
■ Alberto Derman, verk-
smiðjuverkamaður, hefur borið
það fyrir réttinum yfir níu fyrr-
verandi leiðtogum hersins í
Argentínu, og þar með landsins
alls, að hann hafi verið pyntaður
fyrir það eitt að hafa orðið á að
horfa á lögreglustöð þegar hann
var að leita að bamaheimili
fyrir son sinn, árið 1977.
Derman sagði að skömmu
eftir að hann gekk fram hjá
lögreglustöðinni hafi fjórir
menn stöðvað hann, rekið hann
uþp í bíl og ekið síðan með
hann til aðalstöðva lögreglunn-
ar í Quilmes, sem er úthverfi í
suðurhluta Buenos Aires-
borgar.
Hann sagði að ekki hafi verið
liðnar tvær klukkustundir frá
því að hann var þannig numinn
á brott og þangað til ræningjar
hans hafi neytt hann til að
afklæðast og síðan lagt hann
endilangan upp á borð þar sem
þeir pyntuðu hann með raf-
magnshöggum.
Derman sagðist hafa logið
þegar hann var spurður hvort
hann væri giftur til þess að hlífa
konu sinni og börnum við yfir-
heyrslum lögreglunnar.
Hann sagðist hafa verið látinn
laus tveimur dögum síðar en
síðan handtekinn aftur 40 dög-
um síðar, augsýnilega vegna
þess að öryggislögreglan hafði
komist að því að hann var
giftur. Hann var síðan hafður í
haldi, án þess að vera ákærður,
frá seinni hluta árisns 1977
þangað til í desember 1983 að
hann var látinn laus.
Hinir fyrrverandi leiðtogar
herstjórnarinnar, þ.á.m. þrír
fyrrverandi forsetar, eru ákærð-
ir fyrir mannrán, pyntingar og
dauða þúsunda argentínskra
manna í tíð einræðisstjórnar
hersins frá 1976 til 1983.
um, segir m.a.: „Þeir atþurðir
sem þjóðir landa okkar þurftu
að reyna sýna að okkur ber að
berjast gegn stríði áður en það
brýst út.“
í bréfinu er einnig rætt um
nauðsyn gagnkvæms trausts og
skilnings milli þjóða og að allar
þjóðir leggi sig fram um að
stöðva vopnakapphlaupið og
koma í veg fyrir hervæðingu
geimsins.
„Sovétríkin eru tilbúin til að
vinna með Bretum...fyrrver-
andi bandamönnum sínum í
baráttunni gegn Hitler... í því
skyni að ná þessum göfugu
markmiðum."
Thatcher sagði í stuttu svari
sínu: „Reynsla síðastliðinna 40
ára sýnir mikilvægi þess að við
vinnum af þolinmæði og raunsæi
að betri skilningi og samvinnu
milli landa okkar og þjóðanna
tveggja og að við viðurkennum
gagnkvæma löngun okkar til ör-
yggis og friðar."