NT - 18.08.1985, Blaðsíða 9
NT Sunnudagur 18. ágúst 1985 11
Nú kennir ýmissa grasa hjá Jurtaréttum
Heilsusamlegur „skyndimatur“ komirtn á markaðinn
■ Margir þeirra sem vinna launa-
vinnu daginn út og inn ala með sér
drauminn um að geta komið á fót
sínu eigin fyrirtæki, að starfa
sjálfstætt. Þetta er ekkert einsdæmi
hér á íslandi og víðast hvar er smáiðn-
aður af ýmsu tagi talinn mjög til
hagsbóta fyrir efnahagslífið og þjóðfé-
lagið allt. Undanfarin ár hafa Islend-
ingar í auknum mæli litið til þessarar
tegundar iðnaðar og talið að þarna sé
komin ein leiðin til þess að auka
fjölbreytni og skapa fleiri atvinnu-
tækifæri. í matvæla og veitingaiðnað-
inum hefur þessi þróun verið nokkuð
áberandi á síðustu árum og úrval
veitingastaða og þeirrar þjónustu sem
þeir bjóða upp á hefur ekki farið fram
hjá neinum. Þetta hefur líka haft í för
með sér að matarvenjur og viðhorf til
hinna ýmsu fæðutegunda hafa breyst
mikið. Við erum farin að borða með
bestu lyst fæðu sem áður þótti varla
mannamatur og við borðum líka
mikið utan veggja heimilisins eða þá
kaupum tilbúna rétti til að borða
innan þeirra.
Eflaust eru það margir þættir sem
valda öllum þessum breytingum en
stórt atriði hlýtur að vera, að menn
vilja ekki eyða of miklu af frítíma
sínum í matseld, nema þá við sérstök
tækifæri. Það orðspor hefur oft fylgt
þessum „skyndimat“ að í flestum
tilfellum sé hann óhollur og næringa-
gildið einhæft, þó hér verði ekki
lagður dómur á slíkt. Því er það
kannski tímanna tákn að nú er kom-
inn á markaðinn eins konar „heilsu-
skyndimatur". Það sem um er að
ræða eru þrenns konar baunabúðing-
ar, jurtaréttir matreiddir samkvæmt
flóknum og tímafrekum uppskriftum
en allt sem neytandinn þarf að gera er
að stinga þeim inn í ofninn og borða
þá síðan. Það er fyrirtækið Jurtaréttir
sem stendur að baki þessari fram-
leiðslu, en það er smáfyrirtæki og er
byggt í kringum reynslu og þekkingu
eigandans Hrafnhildar Ólafsdóttur í
matreiðslu jurtarétta. Alls eru þau
fjögur sem vinna hjá fyrirtækinu, en
auk Hrafnhildar vinna þar sonur
hennar Ólafur Ásgeirsson sem fer
með sölu- og fjármál, dóttir hennar
Hanna Ásgeirsdóttir sem er í mat-
reiðslu og pökkun og Ásta Kristins-
dóttir sem er í hálfu starfi. Starfsemin
Eins væri með kolvetnið í baununum,
að það væri mjög trefjaríkt og þar af
leiðandi gott fyrir meltinguna. I baun-
unum eru flest þau efni sem líkaminn
vinnur úr kjöti eða fiski og þar sem í
réttina er jafnframt notað mikið af
ýmiss konar öðru grænmeti er næring-
argildið mikið. Uppskriftirnar að
þessum réttum hefur Hrafnhildur
búið til sjálf, en hún vann sem
matreiðslukona hjá Náttúrulækn-
ingafélaginu um fjögurra ára skeið og
kynntist þar leyndardómum „náttúru-
fæðunnar“. Við spurðum hana því
hvort þetta væru ekki einhverjir gras-
ætu réttir, einkum ætlaðir fólki sem
ekki borðar fisk og (hval) kjöt. „Nei
nei,“ sagði hún þá, „þetta er ekkert
endilega ætlað jurtaneytendum ein-
göngu þó þeir geti borðað réttina
með góðri samvisku. Þetta fólk hefur
fengið á sig það orð að vera dálitlir
sérvitringar og því hafa menn verið á
varðbergi gagnvart jurtaréttum. En
þetta er einungis hugsað sem viðbót
og nýr valkostur í mataræði fólks.
Það er ekkert því til fyrirstöðu að
menn borði grænmetisrétti til viðbót-
ar kjöti cg fiski. Ég held að viðhorfin
hafi verið að breytast á undanförnum
árum hvað þetta varðar. Málið er
með baunarétti eins og þessa, að fólk
hefur yfirleitt ekki tíma til að mat-
reiða þá þar sem það er tímafrekara
og meira umstang en með kjöt og
fisk. Þess vegna er trúlegt að fólk
notfæri sér að geta fengið þetta svona
'tilbúið. Það er maður að vona alla-
vega.“
Það er einmitt þessi von sem hratt
fyrirtækinu af stað í upphafi, en
Hrafnhildur hefur unnið að undirbún-
ingi í mest allan vetur. „Við erum búin
að koma þessu í verslanir og höfum
enn sem komið er ekkert auglýst
nema að við höfðum kynningu í
Hagkaup um daginn. Við höfum
farið frekar hægt af stað, og einbeit-
*
fer fram í sérstaklega innréttuðu litlu
húsi, sem einhvemtíma mun hafa
verið bakarí.
Þegar blaðamenn komu við í Blöndu-
hlíðinni en þar cr fyrirtækið staðsett,
var allt í fullum gangi. Hrafnhildur
gaf sér þó tíma til að spjalla stuttlega
við okkur. „Nei, ekki er það nú beint,
þó þessir réttir gætu verið gott innlegg
í slíkan kúr,“ sagði hún þegar við
spurðum hvort þetta væru ekki alveg
ekta megrunarréttir.
Jafnframt sagði Hrafnhildur að það
virtist nokkuð útbreitt, að fólk gerði
sér ekki grein fyrir næringargildi rétta
af þessu tagi, en baunir til dæmis væru
mjög ríkar af eggjahvítu og fitu.
Fitan í þeim væri hins vegar fjölómettuð
að stórum hluta og ynni gegn blóðfitu
og væri því æskileg fyrir skrokkinn.
■ Það var nóg að gera við pökkun
hjá þeim stallsystrum þegar blaða-
mann bar að garði. Yngsta kynslóðin
fylgist vel með því, það er aldrei að
vita nema hún taki við fyrirtækinu
þegar fram í sækir. Það er Hanna sem
snýr að okkur baki en Ásta pakkar.
Á innfelldu myndinni er Hrafnhildur
í fullum vinnuskrúða. NT-mynd: Sverrir
um okkur að einum rétti á dag þannig
að afköstin verða þetta 125 pakkar
yfir daginn. Það má líka segja um
þessa rétti eins og svissneska konfekt-
ið, að allt er þetta handunnið, því
eina vélin sem við höfum er hakkavél.
En eins og ég sagði þá er vissara að
byrja smátt og sjá til hvernig þetta
mælist fyrir. Ef vel gengur má alltaf
bæta við réttum og þá kannski ein-
hvers konar pottréttum."
B.G.
ÍHIÍTl JIMIM
ntAMunsu
Töflur og stýriskápar.
Rafmótorar, einfasa og þriggja fasa
— 40 ára reynsla.
INNFLUTNINGUR
Rafbúnaður og stýribúnaður fyrir iðnað og skip,
kæli- og frystitæki, frystiklefar,
vélar fyrir mjólkurvinnslu og matvælaiðnað,
kæliborð fyrir verslanir og veitingahús,
viftur og lofthitarar,
kúlulegur, rafmótorar, öryggi, rofabúnaður
gangþéttar, götuljós o.fl.
MÓNUSIA
Vindingar og allar viðgerðir á rafmótorum —
skipaviðgerðir.
HÖFÐABAKKA 9 REYKJAVÍK SÍMI: 685656 og 84530
Notaðar búvélar til sölu
Eigum margar gerðir og tegundir af notuðum
búvélum á góðu verði og greiðsluskilmálum.
Eigum einnig ýmsar gerðir af nýlegum dráttarvél-
um á hagkvæmum kjörum.
Hafið samband við sölumenn okkar og
fáið nánari upplýsingar.
Vélaborg
Bútækni hf. Sími 686655/686680