NT - 20.08.1985, Qupperneq 1
NEWS SUMMARYIN ENGUSH SEE P. 7
Engin lög leyfa
innflutning
á hráu kjöti
■ Lögin frá 1928 um varnir
gegn gin- og klaufaveiki eru í
fullu gildi jafnt á Keflavíkur-
flugvelli og á öðrum stöðum á
landinu. Astæðan til þess að
þau hafa ekki verið látin ná til
innflutnings varnarliðsins á hráu
kjöti, er ekki sú, að undanþága
hafi verið veitt í viðbótarsamn-
ingi varnarsamningsins, heldur
hin, að stjórnvöld hafa horft á
I þetta með blinda auganu í þeirri
j trú að gin- og klaufaveiki fyrir-
finnist ekki í Bandaríkjunum.
En slíkt getur breyst og þá
verður að framfylgja lögunum
frá 1928 af fullri einbeitni.
Petta kemur fram í grein sem
Þórarinn Þórarinsson skrifar í
NT í dag. Hann færir að því rök
að varnarsamningarnir heimili
ekki innflutning á hráu kjöti og
að lögin um varnir gegn gin- og
klaufaveiki séu í fullu gildi.
Sjá bls. 8
Holland:
Verða líknar-
morð lögleidd?
Hague-Reuter
■ Stjórnskipuð nefnd í
Hollandi hefur mælt með því
að lögum landsins verði
breytt og líknarmorð verði
heimiluð í þeim tilfellum
þegar sárþjáðir sjúklingar
biðja lækna urn að binda
enda á líf sitt.'
Samkvæmt núgildandi lög-
um eiga læknar á haítu að
verða dæmdir í allt að 12 ára
fangelsi, verði þeir fundnir
sekir um líknarmorð, eða að
hafa hjálpað sjúklingum að
fremja sjálfsmorð.
í fvrra úrskurðaði hæsti-
réttur landsins að taka bæri
fullt tillit til þess hvað lækn-
um þætti rétt og rangt þegar
verið væri að dæma í líkn-
armorðsmálum. Síðan hafa
fjölmargir læknar, sem sak-
aðir hafa verið um líknar-
morð, verið sýknaðir af
ákærunni.
Smáflokkur á hollenska
þinginu hefur lagt fram frum-
varp til laga um að iíknar-
morð verði leyfð, en stærstu
flokkarnir vildu ekki af-
greiða málið fyrr en sýnt væri
hver úrskurður nefndarinnar
yrði.
Brotist inn í trillur:
Talstöðvum
stolið
■ Brotistvarinnífjórartrillur
í smábátahöfninni í Hafnar-
firði um helgina. í þremur af
fjórum trillunum var stolið tal-
stöðvum. Bátatalstöðvar kosta
nokkra tugi þúsunda, þannig að
um tilfinnanlegt tjón er að ræða.
Rannsóknarlögregia ríkisins
hefur málið til rannsóknar.
Izvestía
lofar
einka-
framtak
- sjábls. 7
Ólga í út-
varpsráði
- sjáopnu
■ Hvað.fer hún ekki að koma? Þessi ferðalangur er sennilega heldur fljótur á sér, þar sem málið er enn á frumstigi. NT-mynd: Róben
Samgöngur:
Tíðar ferjuferðir
yfir Hvalfjörðinn?
Málið í frumathugun; styttir vesturleið um 50 km
Selfoss í
2. deild
- bls. 17
Haukur
stóð sig vel
- bls.17
Óvænt
hjáFH
- bls. 18
■ Nú standa yfir, sam-
kvæmt heimildum NT, frum-
athuganir á ferjurekstri yfir
Hvalfjörð, á vegum Járn-
blendifélags íslands. Mun
vera miðað við tíðar ferðir
yfirfjörðinn, ámilli Hvaleyr-
ar í sunnanverðum firðinum,
og Grundartanga, og þá með
nokkrum ferjum.
Ef af slíkunt ferjurekstri
yrði, stytti það leið öku-
manna á leið fyrir Hvalfjörð,
um 50 km, eða um tæpan
klukkutíma akstur.
Enn munu athuganir þess-
ar skammt á veg kornnar og
er mælingum á umferðar-
þunga ekki lokið. Þó hefur
komið í ljós að umferð fyrir
Hvalfjörð er mjög ójöfn og
kemur í bylgjum á mismun-
andi tímuni, sunnan að og
norðan.
Á þessum stað er Hval-
fjörðurinn tiltölulega mjór
og mun 10 mínútna sigling
bakka á milli.
Helgi Hallgrímsson, for-
stjóri tæknideildar Vega-
gerðar ríkisins, sagði í sam-
tali við NT að áætlaður
kostnaður vegna endúrnýj-
unar vegarins fyrir Hvalfjörð
væri 500 milljónir króna: „Ef
hægt væri að fresta svo stórri
fjárfestingu, flokkast það
undir sparnað. Hitt er
annað, hvort umferð um
veginn yrði rnikil þrátt fyrir
ferjuferðirnar.“
Ef af ferjurekstrinum
verður er ljóst að til að anna
þeirri umferð sem fer um
fjörðinn þarf 3-5 ferjur sem
hver um sig gætu borið 20-40
fólksbíla.
Enn er mál þetta í frumat-
hugun, en ef af slíkum ferju-
rekstri verður í framtíðinni
er ekki ólíklegt að það hafi
einhver áhrif á rekstur Akra-
borgarinnar og veitinga-
reksturfyrirbotni Hvalfjarð-
ar.
Breyt-
ingar á
uppröð-
uníNT
■ Við höfum breytt lítil-
lega uppröðun efnis í NT.
Innlendar fréttasíður er nú
að finna á bls. -4-5, útsíð-
um blaðsins og í opnunni.
Erlendar fréttir eru á bls.
6-7 og íþróttafréttir verða
á bls. 18-19 nema á þriðju-
dögum. þegar þeim cr ætl-
að meira rúm í blaðinu.
Dagskrá útvarps og sjón-
varps er nú á bls. 23 og á
síðunni á móti eru auglýs-
ingar frá kvikmyndahús-
unum.
Leiðari blaðsins og
Vettvangsgreinar eru á
bls. 8-9.
Með kveðju ritstj.