NT


NT - 20.08.1985, Síða 5

NT - 20.08.1985, Síða 5
■ Tete Montoliu. Hann er einn af fremstu jazzpíanistum Evrópu. „Þessi ófétis jazz“ Mikil hátíð á 10 ára afmæli Jazzvakningar Þriðjudagur 20. ágúst 1985 5 Búseti sækir um 180 lóðir - í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði ■ Líkur eru á því aö íslenskir jazzgeggjarar geggist endanlega um miðjan næsta mánuð, því þá mun Jazzvakning halda mikla jazzhátíð í tilefni af 10 ára afmæli samtakanna. „Það verður mikið um að vera hjá okkur“, sagði Vern- harður Linnet, formaður Jazz- vakningar á blaðamannafundi sem boðað var til vegna afmælis- ins, „Jazzvakning hefur verið óstarfhæf um langan tíma vegna undirbúnings hátíðarinnar“. Vernharður sagði að ekki væri hægt að halda hér hátíð án þess að Niels-Henning Örsted Pedersen kæmiástaðinn. „Niels er nefnilega sannur íslandsvinur og í gegnum tíðina hefur hann orðið persónulegur vinur okkar. Þegar illa hefur gengið hjá félag- inu höfum við hringt í hann og sagt að nú væri það svart. Hann er þá kominn með það sama og topfyllir stóra sali og tekur sára- lítið fyrir," sagði Vernharður. En það koma fleiri gestir. Fyrstu tónleikar hátíðarinnar verða í Háskólabíói þann 12. september. Þar spila þeir dúett, Niels-Henning og píanóleikar- inn Ole-Kock Hansen. Eftir hlé mun söngkonan Etta Cameron syngja með hljómsveit Ole- Kock Hansen. Kvöldið eftir verða hátíðar- tónleikar í Háskólabíó þar sem tríó Niels-Hennings leikur margskonar jazzvrk, meðal annars íslensk þjóðlög sem Ole- Köck Hansen hefur útsett sér- staklega fyrir þessa hátíð. Með þeim tveim leikur Pétur Östlund á trommur, auk strengja- kvartetts undir stjórn Þórhalls Birgissonar. Hljómsveitin Mezzoforte mun halda tónleika á hátíðinni og með hljómsveitinni leikur erlendur saxófónleikari, en ekki er ljóst að svo stöddu hver það verður. Vegna þessara tímamóta mun Jazzvakning gefa út hljómplöt- una „Þessi ófétis jazz“, með bassaleikaranum Tómasi Ein- arssyni. Með Tómasi eru ófétin Eyþór Gunnarsson, Friðrik Karlsson og Gunnlaugur Briem, sem allir eru liðsmenn Mezzo- forte og auk þeirra spilar gamla kempan Rúnar Georgsson á, plötunni. Auk ofantaldra atburða verða haldin klúbbkvöld og oft fleiri en eitt sama kvöldið. Tíð- indamenn Jazzvakningar full- yrtu á blaðamannafundi að verð aðgöngumiða yrði eins lágt og frekast er unnt. Til tals hefur komið að selja sérstakan miða sem gildir á alla viðburði hátíð- arinnar. Nýr sendiherra Bandaríkjanna ■ Nýr sendiherra Bandaríkjanna á íslandi, Nicholas Ruwe, sór embættiseið sinn 19. júlí síðastliðinn. Sendiherr- ann er fæddur í Detroit 1933. Hann lauk prófi frá Brown University og hélt síðan til framhaldsnáms í rekstrarhagfræði í Michic- an Graduate School of Business Administration. Ruwe komst ungur í áhrifastöður í bandaríska utanríkisráðuneytinu, þar sem hann gegndi meðal annars stöðu aðstoðar- manns protocolmeistara. Meðan hann starfaði í utanríkisráðuneytinu tók hann að sér mörg verkefni fyrir Hvíta húsið, fór til dæmis með geimfaranum Frank Borman í kurteisis- heimsókn til Evrópu eftir fyrstu mönnuðu geimferð- ina til tunglsins. Þá hefur sendiherrann verið náinn samstarfsmað- ur Reagans forseta og einn- ig Nixons, bæði meðan hann var forseti og síðar. ■ Búseti hefur sótt unt lóðir bæði í Kópavogi og Hafnar- firði. í Kópavogi var sótt um lóðir fyrir 44 íbúðir í fjölbýlis- húsi og í Hafnarfirði um 20 íbúðir einnig í fjölbýli. Þá hefur félagið sótt um lóðir Vestmannaeyjar: Sex íbúðir í notkun um áramót ■ Byggingastjórn íbúða fyrir aldraða í Vestmannaeyjum ákvað fyrir skömrnu að taka tilboði frá fyrirtækinu Hamri sf. í 2. verkhluta, hluta loka- frágangs í byggingu íbúða fyrir aldraða við Eyjahraun, Vest- mannaeyjabæ. Tilboðið hljóð- aði upp á 82,5% af kostnaðar- áætlun. Gert er ráð fyrir að bygging- unni verði lokið 15. nóvember og að hægt verði að taka íbúðirnar sex í notkun um áramót. Við Eyjahraun eru sex íbúðir fyrir aldraða auk elliheimilisins Hraunbúða. fyrir 116 íbúðir til viðbótar þeim 32 sem þeim var úthlutað í vor í Reykjavík. Jafnframt hefur félagið sótt um lán fyrir öllum þessum íbúðum hjá Byggingarsjóði verkamanna. Að sögn Reynis Ingibjarts- sonar, starfsmanns Búseta, þá styttist nú í það að félagið fái formlegt svar við umsóknum sínum um lán hjá Byggingar- sjóðnum. Þegar er búið að leggja fram teikningar af fjöl- býlishúsinu í Grafarvogi og verkáætlun. Er ráðgert að jarðvinna við það hefjist nú í október og að húsinu verði skilað fullbúnu til félagsmanna í nóvember 1986. Þá streyma nú að lánaum- sóknir frá Búsetafélögum úti á landi. Er verið að stofna hús- næðisamvinnufélög vítt og breitt um landið, m.a. á Egils- stöðum, Höfn í Hornafirði, Húsavík og Búðardal. Reynir sagði að vel kæmi til greina fyrir félögin, sérstak- lega þau á landsbyggðinni, að kaupa eldri hús í stað þess að byggja ný. Væri sá varnagli sleginn í ölium lánaumsóknun- um enda verð á eldra húsnæði nú mun lægra en byggingar- kostnaður. !ÍPp/a ftl 1 í ^ blaðinu er að finna fréttir og greinar um húsbyggingar og innanstokksmuni, um byggingarefni og byggingaraðferðir, nýjungar í tækni og það nýjasta frá arkitektunum er kynnt. Fjölmargir seljendur fasteigna auglýsa í Innan húss og utan, enda nær blaðið til nánast allra landsmanna. Ef þú ert að leita þér að fasteign getum við sparað þér mikla vinnu. MEIRIHATTAR BLAÐ HLAÐIÐ FRÉTTUM AF HEIMILUM, HÚSUM 0G FASTEIGNAMARKAÐINUM Fylgir blaðinu á laugardögum eo ei*' Ég óska eftir að gerast áskrifandi að NT. NAFN HEIMILI PÓSTNR. STADUR NAFNNR. UNDIRSKRIFT

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.