NT - 20.08.1985, Page 12
Þriðjudagur 20. ágúst 1985 12
Eldur
áÁla-
granda
■ Slökkviliö Reykja-
víkur var kallaö á Ála-
granda laust eftir mið-
nætti á laugardag. Eld-
ur var laus í þvottahúsi
á efri hæð raðhúss.
Mikill reykur var á efri
hæðinni. Reykkafarar
fóru inn í húsið og gekk
greiðlega að slökkva
eldinn sem var minni
en talið var í upphafi.
■ Velheppnuð veiðiferð í fyrra. Lánið hefur ekki leikið við veiðimenn að sama skapi í ár.
NT-mynd: -Svanrríður
Hreindýraveiði á Austurlandi:
Slæm tíð gerir veiði-
mönnum erfitt fyrir
■ Hreindýraveiði á Austur-
landi hefur gengið illa í ár.
Leiðinlegt tíðarfar hefur haml-
að veiði. Víða eru bændur að
reyna að Ijúka heyskap, en
hefur gengið illa vegna veðurs.
Á meðan heyskap er ekki lokið
gefst lítill tími til veiða, og eins
og veður hefur verið eru skilyrði
óákjósanleg.
í Norðfjarðarhreppi hafa
sautján dýr verið felld. Þá hefur
NT haft spurnir af veiði í Helgu-
staðahreppi, en mun fjöldinn
vera minni. Veiði er ekki hafin
á Héraði.
Þórður Júlíusson á Skorra-
stöðum í Norðfjarðarhreppi
hefur fellt tvö dýr, af fjórum
sem honum var úthlutað. Hann
sagði í samtali við NT í gær að
hver bær í hreppnum hefði feng-
ið fjögur dýr í sinn hlut. Svæðið
sem hreindýrin halda sig á í
Norðfjarðarhreppi er mjög tak-
markað, og því mjög auðvelt að
komast á þær slóðir sem dýrin
eru skotin á þegar viðrar.
„Þau dýr sem við höfum fellt
í ár eru heldur rýrari en í fyrra.
Svo virðist sem sá kvóti sem
okkur er úthlutaður viðhaldi
fjögur til fimm hundruð dýra
stofni í hreppnum. Sá stofn er
of stór fyrir landsvæðið sem
dýrin sækja á. Til þess að tryggja
að ofbeit verði ekki á landinu
verður að fækka dýrunum um
allt að helming," sagði Þórður.
Verðlag á hreindýrakjöti hef-
ur enn ekki verið ákveðið. í
fyrra var kílóverð fyrir læri,
hryggi og bóga 300 krónur.
Þorður bjóst við einhverri
hækkun, en sagði að hann vildi
ekki nefna neina tölu í því
sambandi.
„Mér er ekki kunnugt um
veiðiþjófnað á hreindýrum,"
sagði Þórður. „Þó hcyrir maður
alltaf sögur. Einhverju sinni
mættu tveir menn úr sveitinni
mönnum uppi á hæstu fjalltopp-
um. Þegar þeir voru spurðir
ferða sinna, sögðust þeir vera í
berjamó. Heimamennirnir
fylgdust með þeim dágóða
stund, og þegar „berjasafnar-
arnir“ héldu sig vera eina, drógu
þeir fram byssur undan steini.“
Þórður hélt ástæðuna fyrir
minni kvóta á hreindýrum, í ár,
vera þá að menntamálaráðu-
neytið hefði ekki peninga til
þess að framkvæma fullkomna
talningu á hreindýrum. „Þessi
fækkunerskynsamleg varfærni
af þeirra hálfu, þar sem yfirsýn
yfir stofnstærðina er ekíci full-
komin.“
Tvítug afgreiðslustúlka
hjá Nonna og Bubba:
Grunuð um
stórfelldan
fjárdrátt
■ Rúmlega tvítug afgreiðslu-
dama í versluninni Nonni og
Bubbi í Keflavík hefur verið
handtekin vegna gruns um stór-
felldan fjárdrátt. Farið hefur
verið fram á gæsluvarðhaldsúr-
skurð yfir konunni, og tók dóm-
ari sér frest til dagsins í dag, til
þess að kanna málsatvik.
í samtali NT við lögreglufull-
trúa í Keflavík í gær korn fram
að grunur leikur á að stúlkan
liafi stundað fjárdrátt síðastliðin
tvö ár. Það voru grunsemdir
eiganda sem komu lögreglu á
sporið. Konan var tekin til yfir-
heyrslu í síðustu viku, en var
sleppt sökum skorts á sönn-
unargögnum. í gærmorgun var
hún síðan yfirheyrð aftur, og
þegar málavextir urðu skýrari
var farið fram á gæsluvarðhalds-
úrskurð yfir konunni.
Lögreglufulltrúinn, sem NT
ræddi við, vildi ekki skýra frá
þeirri aðferð sem konan beitti
við fjárdráttinn, en sagði að hún
hefði verið sniðug í meira lagi.
Hvalfriðunarmenn á
mála hjá stórþjóðum
- segir Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf.
I „Þessar aðgerðir hval-
friðunarmanna endursegja
bara þá nihilisku stefnu
Efnahagsbandalagsland-
anna og Bandaríkjanna í
garð smáþjóða, enda nota
stjórnir þessara landa þessa
héra í Greenpeace og Sea
Shepherd, til að hnébeygja
smáþjóöirnar," sagði
Kristján Loftsson, forstjóri
Hvals hf. um heimsókn
þessara manna til íslands
fyrr í mánuðinum.
„Pólitíkin á bakvið þetta
er á hreinu. Það á ekki að
láta okkur komast upp með
neinn moðreyk en fólk er
farið að átta sig á þessu.
Einhversstaðar verður að
setja mörkin. Því hvað
kemur næst? Þeir hóta jú
að fara að skipta sér af
þorskveiðum okkar og
hver veit nema að þeir
mæti tvíbentir til leiks gegn
loðdýrabændum og fiskeld-
isstöðvunum. Laxinn á að
þeirra mati að fá að synda
óáreittur í hafinu og upp í
árnar, og þar á helst ekki
að veiða hann, heldur bara
liggja á bakkanum og horfa
á hann stökkva. Og mink-
urinn og rebbi eiga að fá að
valsa um uppi á fjöllum og
drepa sér af og til skjátu,
en hafa þá í búrum er
goðgá. í fyrra var svona
náttúrufriðunarhópur í
Bretlandi staðinn að því að
sleppa minkum lausum úr
búrunum."
Hvalbátarnir fara aftur út
25. ágúst. Eftir er að veiða
35 sandreyðar en þegar er
búið að veiða 6. Sagði
Kristján að sandreyðin
kæmi yfirleitt í lok ágúst
eða byrjun september, en
þó væri ekki að treysta á
það. Stundum kemur hún
alls ekki. „Það er langt því
frá að þar sé á vísan að
róa.“
Nú vinna um 200 manns
hjá fyrirtækinu, þar af eru
45 á bátunum, 100 uppi í
Hvalfirði og milli 50 og 60
manns í frystihúsinu í
Hafnarfirði. Þrírbátarhafa
verið að veiðum undanfar-
in ár.
Kristján sagði að mun
færra fólk myndi vinna við
fyrirtækið næsta sumar
þegar hvalveiðar í vísinda-
skyni hefjast. Nú er leyfi-
legt að veiða 136 langreyðar
og um 40 sandreyðar.
Langreyðunum verður
fækkað niður í 80 og sand-
reyðunum eitthvað líka.
Þar sem veiðarnar munu
dreifast yfir allt tímabilið
verður um mikinn samdrátt
að ræða.
Aukin þekking
- hærri laun
Davíð og Aðalheiður ræða um námskeið
fyrir sóknarstúlkur sem starfa á dagvistar-
heimilum Reykjavíkurborgar
■ DavíðOddssonborgarstjóri
og Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir
formaður Starfsmannafélagsins
Sóknar funduðu í gær til að
ræða um námskeið fyrir ófag-
lærðar sóknarstúlkur sem starfa
á dagvistarheimilum borgarinn-
ar sem myndi færa þeim ein-
hverjar launahækkanir en
starfsmannaflótti sóknarstúlkna
og fóstra af dagvistarheimilum
Reykjavíkurborgar hefur verið
mjög í fréttum að undanförnu.
Davíð Oddsson borgarstjóri
sagði í samtali við NT að um-
ræður þeirra hefðu snúist um
með hvaða hætti væri unnt að
styrkja stöðu ófaglærðs
starfsfólks, veita því meiri þekk-
ingu sem færði því hærri laun.
Þar eð þessir fundur hefði verið
fyrsti fundur þeirra væri ekki
hægt að segja með hvaða hætti
þessi námskeið yrðu eða hversu
miklar launahækkanir þau
hefðu í för með sér. En þau
hefðu ennfremur rætt um að
rétt væri að fólk sem hefði
uppeldisfræðimenntun úr fjöl-
brautaskólum og ráðið yrði á
sóknartaxta, nyti menntunar
sinnar í formi hærri launa.
„Það er ekki ætlunin að þess-
ar sóknarstúlkur komi í stað
fóstra. Öllum sóknarstúlkum
sem nú starfa á dagvistarheimil-
unum verður boðið að sækja
þessi námskeið og það hlýtur að
vera hagur þeirra að öðlast
aukna þekkingu og fá um leið
hærri laun. Við vonum að þessi
ráðstöfun leysi málin þegar til
lengri tínia er litið þótt þessi
ráðstöfun leysi ekki þennan
vanda á næstu 10 dögum," sagði
Davíð.
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir
sagðist vera mjög ánægð með
að námskeiðamál sóknar-
kvenna væru svo mjög í deigl-
unni en námskeið fyrir ófag-
lærðar sóknarstúlkur hefðu all-
taf verið sér mikið áhugamál.
„Við ætluðum að halda nám-
skeið eins og við höfum staðið
fyrir undanfarin ár í haust en
þessi námskeið hafa verið tvö
og hvort þeirra um sig hefur
fært sóknarkonum hækkun um
einn launaflokk. En óvíst er hve
miklar launahækkanir þessi
nýju námskeið munu færa
okkur, það kemur í ljós í við-
ræðum okkar við borgaryfirvöld
á næstunni.“
Aðalheiður sagðist hafa heyrt
að menn teldu Sóknarkonur
vera í stríði við fóstrur en um
slíkt væri alls ekki að ræða þvert
á móti væri mjög gott samband
milli þessara starfshópa og það
hljóti að vera hagsmunamál
beggja að sóknarkonurnar
hefðu hærri laun og fengju
aukna starfsfræðslu.
Aðspurð sagði Aðalheiður að
aldrei hefði verið rætt við sig um
þetta „annars konar" starfsfólk
enda væri Sókn ekki til viðtals
um slíkt.
■ „Þú ert almennilegur Ijósmyndari, tekur Ijósmyndir í stíl Hitchcock,“ saj
Steingrímur við Sverri Ijósmyndara og bauð honum að vera viðstaddur \
opnun sýningarinnar. NT-mvnd Svei