NT - 20.08.1985, Side 18
Þriðjudagur 20. ágúst 1985 18
2. deild:
Stórt
hjá
Sköllum
■ Skallagrímur mjakaði
sér úr incstu fallhættunni
með 4-1 sigri gegn Völs-
ungum í Borgarnesi á
laugardag. Þá gerðu ísa-
fjörður og Leiftur
markalaust jafntefli og
KS sigraði Njarðvík 1-0.
Sigur Skallanna var
afar öruggur og Völsung-
ar áttu aldrei glætu í
leiknum. Gunnar Orra-
son, Valdimar Halldórs-
son og Birnirnir tveir,
Jónsson og Axelsson
skoruðu fyrir Borg-
nesinga en Jon Leó Rík-
harðsson fyrir Völsung.
Völsungum hefur heldur
fatast flugið upp stiga-
töfluna í síðustu leikjum
og eru þeir nú orðnir
langt á eftir efstu liðun-
um. Hafa 18 stig, aðeins
tveimur meira en Skalla-
grímur.
Annað lið sem látið
hefur deigan síga er Isa-
fjörður. Eftirmarkalausa
jafnteilið er liðið komið í
virkilega fallhættu, hefur
aðeins 14 stig og verður
að fara að skipta um gír.
KS sótti mjög gegn
Njarðvík en gekk illa að
eiga við markmanninn. í
síðari hálfleik braut Tóm-
as Kárason loks ísinn.
Njarðvíkingar reyndu
ákaft að jafna en gekk
illa að skapa sér færi, rétt
eins og fyrri daginn. Liðið
hefur einungis skorað sjö
inörk í deildinni það sem
af er, meira að segja
Leiftur hefur gert fleiri.
Fjórar uinferðir eru nú
eftir í deildinni. ÍBV á
eftir heimaleiki gegn
Völsung og Njarðvík og
útileiki gegn IBI og KA.
KA á heimaleik gegn ÍBÍ,
auk leiksins við ÍBV og
þrjá útileiki eftir, gegn
Njarðvík (frestað), KS og
Leiftri.
Blikarir eiga létta pro-
grammið af toppliðunum
þremur, leiki gegn KS og
Fylki í Kópavoginum og
útileiki gegn Skallagrimi
og Völsung.
Staðan
ÍBV
Breiðablik
KA
KS
Völsungur
Skallagr.
ísafjörður
Njarðvik
Fylkir
Leiftur
Markahæstu menn:
Tómas Pólsson, ÍBV
Tryggvi Gunnars., KA
Jón Þórir Jónss., UBK
2. deild:
14 8 5 1 35-11 29
14 8 4 2 26- 13 28
13 7 3 3 24-12 24
14 7 3 4 21-16 24
14 5 3 6 22-22 18
14 4 4 6 19-31 16
14 3 5 6 12-19 15
13 3 4 6 7-17 13
14 3 3 8 12-18 12
14 2 3 9 9-27 9
11 mörk
11 mörk
8 mörk.
■ Valsmenn unnu afar auö-
veldan og um leið sanngjarnan
sigur á Þór frá Akureyri er liðin
mættust í 1. deildinni á sunnu-
dagskvöldið. Leiknum lauk 3-0
Val í hag og hefði sá sigur getað
orðið stærri ef Valsmenn hefðu
nýtt yfirburði sína til hins ýtr-
asta. Þeir fengu færi til að gera
ein átta mörk. Þórsarar voru
hreint út sagt lélegir og höfðu
ekkert í ákveðna Valsmenn að
gera. Það er dálítið undarlegt
I
HNOT-
SKURN
■ Lauflóttur sigur hjá Vals-
mönnum. Þeir spiluðu vel en
Þórarar voru mjög slakir. Leikur-
inn var skemmtilegur til að byrja
með en leystist nokkuð upp í
lokin. Mörk Vals gerðu Guð-
mundur Þorbjörnsson ó 35. og 40.
mínútu og Heimir Karlsson á 53.
min. Dómari í leiknum var
Friðgeir Hallgrímsson og var
góður. Áhorfendur voru fjöl-
margir.
2. deild:
Eyjamenn efstir
- eftir nauman sigur á Fylki 1-0
Frá Sigfúsi Guðmundssyni í Eyjum: SÍnum Þorsteini
hversu illa Þórsurum gengur á
útivelli. Fins og leikmenn nái
ekki að koma sér í stemmningu.
Sigurinn hjá Val var sem sagt
sanngjarn.
Það voru heimamenn sem
sóttu látlaust allan leikinn og
þeir fengu nokkur hálffæri strax
á fyrstu mínútunum. Mark lá í
loftinu og allir héldu að það
mundi koma á 30. mín. er
Hilmar Harðarson fékk boltann
aleinn innfyrir vörn Þórs, hann
hafði nógan tíma til að skjóta
framhjá og það tókst - agalegt
klúður! En svo kom markið.
Gefið var fyrir og Guðmundur
Þorbjörnsson skallaði í stöng.
Boltinn kom til baka og þá náði
Guðmundur að pikka í hann og
í netið skoppaði tuðran, 1-0.
Guðmundur var síðan aftur á
ferðinni stuttu síðar er hann
slapp einn í gegn eftir fallega
sendingu frá Heimi. Guðmund*-
ur afgreiddi knöttinn í netið
mjög örugglega, 2-0 og nú var
hlé.
Síðari hálfleikur var nánast
spegilmynd af þeim fyrri. Vals-
menn mun betri og skoruðu sitt
þriðja mark fljótlega. Baldvin
sparkaði þá út frá marki Þórs en
knötturinn fór ekki Iangt. Júlíus
Tryggvason reyndi að taka hann
á sig en Heimir Karlsson náði
honum af honum óð upp að
marki og skoraði, 3-0. Vals-
menn áttu síðan nokkur góð
tækifæri eftir þetta en Baldvin
markvörður sá við þeim í öll
skiptin. Þórsarar fengu ekki eitt
einasta færi í síðari hálfleik
frekar en þeim fyrri.
Sanngjarn sigur Vals og liðið
er nú orðið mjög sigurstranglegt
í deildinni. Þórsarar misstu
þarna dýrmæt stig en með svona
leikjum fá þeir varla fleiri.
íslandsmótið 1. deild:
Óvænt á
Skipaskaga
- FH lagði ÍA að velli 3-2 - Góður leikur Halldórs
■ Hilmar Harðarson og Siguróli Kristjánsson berjast hér um boltann í leik Vals og Þors. NT-mjnd: Svemr
íslandsmótið 1. deild:
Léttur Valssigur
- á dauðaslökum Þórsurum - Guðmundur gerði tvö mörk
■ FH-ingar unnu sanngjarnan
en um leið óvæntan sigur á
Akurnesingum á Skipaskaga
á laugardaginn í 1. deildinni.
Þessi sigur setur Skagamenn úr
efsta sætinu en varla hafði nokk-
ur gert ráð fyrir því fyrir laugar-
daginn. FH-ingar sýndu mikla
og góða baráttu í þessum leik og
spiluðu einnig ágætis fótbolta
eins og liðið getur þegar sá
gállinn er á því. Skagamenn
hafa ef til vill ætlað að þrjú stig
gegn einu af neðstu liðunum
væri hlutur sem ætti að nást í án
fyrirhafnar.
Það voru heimamenn sem
byrjuðu aðeins betur en FH
kom svo inní leikinn af miklum
krafti. Fyrsta mark þeirra var
all fallegt. Magnús Pálsson fékk
knöttinn inní teig og snéri baki
í markið. Hann reyndi
hjólhestaspyrnu sem tókst að
nokkru leyti. Laflaus bolti sveif
efst upp í fjær hornið á markið,
0-1. Ingi Björn bætti síðan við
öðru marki FH eftir fallegan
undirbúning Jóns Erlings og
Kristján Gíslason fékk Skagaá-
hangendur til að frjósa á tíma-
bili er hann skoraði þriðja mark-
ið fyrir leikhlé.
Þrátt fyrir slæma stöðu í
leikhléi þá gerðu Skagamenn
góða tilraun til að snúa leiknum
sér í hag í upphafi síðari hálf-
leiks. Arni Sveinsson skoraði
strax í upphafi en það var sem
FH-ingar þyrftu þetta mark til að
átta sig á því að þeir yrðu að
halda áfram að berjast. Aðal-
steinn Víglundsson skoraði síð-
an fyrir Skagann og þá voru 20
mín.eftir.
Halldór markvörður hélt svo
FH á floti - og sigurinn var í
höfn.
FH siglir nú lygnari sjó í
deildinni fyrir bragðið en Skaga-
menn geta nagað sig alla fyrir að
hafa ekki unnið eitt af „botnlið-
unum" á heimavelli. Þetta gæti
reynst þeim dýrt í baráttunni
um meistaratitilinn.
NT
Boltinn
Markverðir beggja liða voru
góðir þeir Halldór Halldórsson
og Birkir Kristinsson. Þá áttu
allir aðrir FH-ingar góðan bar-
áttuleik en Skagamönnum voru
mislagðir fætur. Halldór fær
boltann.
HNOT-
SKURN
Sanngjarn sigur FH. Leikurinn
var opinn og marktækifæri þó
nokkur fyrir utan fimm mörk.
FH-ingar vildu hafa meira fyrir
hlutunum þennan dag og sigur-
inn varð því þeirra. Mörk FH:
Magnús Pálsson, Ingi Björn Al-
bertsson og Kristján Gíslason
allir í fyrri hálfleik. ÍA: Árni
Sveinsson strax í upphafi siðari
hálfleiks og Aðalsteinn Víg-
lundsson.
■ Halldór Halldórsson -
Stórleikur
Evrópukeppnin í frjálsíþróttum A-riðill:
Sovétmenn sigruðu
- og rufu þar með einokun A-þjóðverja
Vestmannaeyingar skutust á
toppinn í 2. deiíd um helgina er
liðið vann nauman sigur á Fylki
frá Reykjavík. Það var Jóhann
Georgsson sem skoraði eina
mark leiksins úr vítaspyrnu á 36.
mínútu fyrri hálfleiks. Ólafur
Magnússon markvörður Fylkis
braut þá af sér inní vítateig og
víti var dæmt. Þessi leikur var
annars mjög slakur og geta
Eyjamenn þakkað markverði
sínum Þorsteini Gunnarssyni
fyrir að þeir skyldu ekki missa
stig í þessum leik. Hann varði
mjög vel og þá sérlega í upphafi
leiksins frá Jóni Bjarna sem átti
mjög góð skot að marki Eyja-
manna.
Eyjamenn eru þar með
komnir í efsta sæti deildarinnar
en slagurinn á toppnum er þó
afar harður. Eyjamenn eiga til
dæmis eftir að fara til Akureyr-
ar, og spila þar við KA.
■ Valsliðið spilaði lengst af
mjög vel. Ingvar Guðmundsson
átti góðan leik svo og Heimir
Karlsson og Þorgrímur Þráins-
son. Hjá Þór var Baldvin Guð-
mundsson i markinu bestur.
Guðmundur Þorbjörnsson Vals-
ari var þó besti maður leiksins
og fær boltann.
■ Sovétmenn stöðvuðu sig-
urgöngu Austur-Þjóðverja í
Evrópubikarkeppninni, er þeir
sigruðu bæði í karla- og kvenna-
flokki í A-keppninni í Moskvu
um helgina. Þjóðverjarnir
höfðu unnið sigur í síðustu átta
kvennakeppnum og flmm síð-
ustu karlakeppnunum, en urðu
nú að sætta sig við annað sætið
í báðum flokkunum.
í flokki karla hlutu Sovét-
menn 125 stig, en þeir þýsku
113. Vestur-Þjóðverjarhlutu91
stig, tveimur stigum meira en
Bretar.
í kvennaflokki hlutu þær
sovésku 118 stig, A-Þjóðverjar
voru með 111 stig og Bretar 67.
Búlgaría var næst með 65 stig.
Þótt svo bikarkeppnin snúist
meira um að sigra og hala inn
stig, en að setja met, náðist
frábær árangur í mörgum grein-
um. Ruddaleg keppni þótti á
stundum setja mark sitt á mótið,
einkurn þó í hlaupunum.
Steve Cram, Bretlandi, sem
sigraði í 1500 m hlaupi á 3:43,
71 mín., sagðist til að mynda
vart hafa tekið þátt í jafn grófu
hlaupi. Hann hélt sig aftarlega
fyrstu tvo hringina, en þegar
hann svo mjakaði sér fram
reyndu hinir hlaupararnir að
loka hann inni. Það var ekki
fyrr en á beinu brautinni að
heimsmethafanum þrefalda
tókst að rífa sig lausan og sigra.
í 4x400m hlaupi karla duttu
þrír í miðri keppni eftir miklar
stympingar og hrindingar. V-
Þjóðverjarnir sigruðu á 3:00,33
mín.
Alberto Cova, Ítalíu, vann
tvöfalt í Moskvu. Hann hljóp
5000 metrana á 14:05,45 mín.
og 10 km á 28:51,46 mín.
Hin breska Zola Budd vann
einhvern þýðingarmesta sigur
sinn til þessa er hún kom fyrst í
mark í 3000 m hlaupinu. Tími
hennar var 8:35,32 mín.
Annar Breti kom nokkuð á
óvart með sigri í 800 m hlaup-
inu. Sá heitir Tom McKean og
tók sess Sebastian Coe, sem var
meiddur. McKean hljóp á
1:49,11 mín. en hann lenti í
miklum erfiðleikum á hlaupa-
brautinni, því aðrir hlauparar
lokuðu hann af.
í stangarstökkinu var Sergei
Bubka í sérflokki. Hann fór yfir
5,80 m og reyndi svo við nýtt
heimsmet, 6,02 m. Þrívegis
reyndi hann að bæta met sitt,
sem er sex metrar sléttir, en í öll
skiptin féll ráin.
Stefka Kostadinova, Búlga-
ríu, stökk 2,06 í hástökkinu og
var ekki langt frá því að bæta
heimsmet löndu sinnar,
Ludmillu Andonovu. Það er
2,07.
I kvöld
■ Finn leikur verður í 1.
deild íslandsmótsins í
knattspyrnu í kvöld. KR-
ingar fara í heimsókn á
Laugardalsvöilinn kl. 19.
og mæta neðsta liðinu í
deildinni Víkingum.
Hörkuleikur tveggja
Reykjavíkurliða.