NT - 20.08.1985, Qupperneq 20
1 Þriðjudagur 20. ágúst 1985 20
Dagbók
Tímarit:
Er hjónabandið úrelt?
■ Meginefni nýútkomins tölu-
blaðs Bjarma fjallar um hjóna-
bandið og fjölskylduna og leit-
ast er við að svara þeirri spurn-
ingu hvort hjónabandið sé úrelt.
Mætir menn og konur fjalla
um þetta efni í nokkrum grein-
um.
Ritstjórinn, Gunnar J. Gunn-
arsson ritar leiðara undir fyrir-
sögninni „Er það úrelt“. Par
segir:
„Stundum er því haldið fram
að hjónabandið sé úrelt. Til
vitnis um það er vísað til mikils
fjölda hjónaskilnaða hér á landi
og um öll Vesturlönd. Þá er því
haldið fram að önnur sambúðar-
form séu heppilegri með tilliti
til nútíma aðstæðna.
Kristnir menn geta ekki fall-
ist á að hjónabandið sé úrelt.
Að kristnum skilningi er hjóna-
bandið heilög stofnun. Það er
gjöf Guðs til mannsins og
grundvallareining í mannlegu
samfélagi. Karl og kona yfirgefa
föðurhúsin og verða eitt. Þau
gera með sér sáttmála sem
grundvallast á gagnkvæmu trún-
aðartrausti og heita hvort öðru
ævilöngum tryggðum. Þannig
mynda þau nýja fjölskyldu sem
á að skapa þeim öryggi og verða
heilbrigður vettvangur fyrir
uppeldi barna.
Margt í þjóðfélagi okkar er
■ Gunnar J. Gunnarsson rit-
stjóri.
fjandsamlegt hjónabandinu og
fjölskyldunni. Hraðinn er mikill
og brauðstritið hart. Einstakl-
ingarnir eru ekki saman nema
brot úr degi, áhugamál verða
því gjarnan ólík, hagsmunir tog-
ast á o.s.frv. Það er því alls ekki
sjálfgefið að hjónaband standist
við slíkar aðstæður auk þess
sem einstaklingarnirsem mynda
fjölskylduna eru oft mjög ólíkir.
Hjónaskilnuðum hefur enda
fjölgað mjög á síðustu árum.
Kristnir menn hljóta að horfa
með ugg á slíka þróun, bæði í
ljósi hins kristna skilnings á
hjónabandinu og vegna þeirra
afleiðinga sem hjónaskilnaðir
geta haft fyrir fjölskyldumeð-
limi og þá einkum börnin. Þeir
þurfa að bindast samtökum u'm
að snúa þróuninni við og standa
vörð um fjölskylduna og hjóna-
bandið.
Það þarf að leggja á sig erfiði
og berjast fyrir því að hið nána
samfélagfjölskyldulífsinsgangi.
Einstaklingarnir eru ólíkir með
mismunandi áhugamál og hags-
muni. Við þurfum að læra að
virða, umbera og elska hvert
annað og reynast hvert öðru
trú. Fjölskyldan okkar er eins
og bygging sem við erum að
reisa allt lífið. Miklu máli skiptir
að hver steinn í byggingunni sé
réttur. Þá skiptir höfuðmáli að
grundvöllurinn sé traustur.
Annars koma brestir í bygging-
una sem geta leitt til þess að hún
hrynji. Hugum því að grund-
vellinum og gætum að hvernig
við byggjum upp. Við erum
með mikil verðmæti í höndun-
um.“
Skák
Taflfélag
Seltjarnarness
■ Starfsemi Taflfélags Sel-
tjarnarness er orðin geysilega
öflug. Félagið teflir í 1. deild og
tvö lið í II. deild. Á síðasta ári
varð T.S. no. 3 í 1. deild. T.R.
var með tvær efstu sveitirnar.
Dagskrá:
HaustmótT.S. hefst 10. sept.
kl. 7.30. Tefldar verða 9 um-
ferðir eftir monrad kerfi. Teflt
verður á þriðjudögum og
fimmtudögum kl. 7.30 og laug-
ardögum kl. 2.
Firmakeppni hefst þriðju-
daginn 1. okt. kl. 8.
Sept. hraðskák 5. sept. kl. 8.
Okt. hraðskák 3. okt. kl. 8.
Nóv. hraðskák 7. nóv. kl. 8.
Des. hraðskák 5. des. kl. 8.
Jóla hraðskák 28. des kl. 2.
Nýtt mót. Sandvíkur-mót,
Heilsugæsla
Apótek
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
varsla apóteka í Reykjavik vik-
una 16.-22. ágúst er í Ingólfsapó-
teki. Einnig er Laugarnesapótek
opið til kl. 22 öll kvöld vikunnar
nema sunnudagskvöld.
Hafnarfjörður: Hafnarfjarðar apó-
tek og Norðurbæjar apótek eru
opin á virkum dögum frá kl. 9 til kl.
19 og á laugardögum frá kl. 10 til
14.
Apótekin eru opin til skiptis ann-
an hvern sunnudag frá kl. 11-15.
Akureyri: Akureyrar apótek og
Stjörnu apótek eru opin virka daga
á opnunarlíma búða. Apótekin
skiptast á sina vikuna hvort að
sinna kvöld-, nætur og helgidaga-
vörslu. Á kvöldin er opið í þvi
apóteki sem sér um þessa vörslu,
til kl. 19. Á helgidögum er opiö frá
kl. 11 -12, og 20-21. Á öðrum tímum
er lyfjafræðingur á bakvakt. Upp-
lýsingar eru gefnar i síma 22445.
Apótek Keflavíkur: Opið virka
daga kl. 9-19. Laugardaga, helgi-
daga og almenna fridaga kl. 10-12.
Apótek Vestmannaeyja: Opið
virka daga frá kl. 8-18. Lokað í
hádeginu milli kl. 12.30 og 14.
Læknavakt
Læknastofur eru lokaðar á laugar-
dögum og helgidögum, en hægt er
að ná sambandi við lækna á
Göngudeild Landspítalans alla
virka daga kl. 20 til kl. 21 og á
laugardögum frá kl. 14 til kl. 16.
Simi 29000. Göngudeild er lokuð á
helgidögum. Borgarspítalinn:
Vakt frá kl. 08-17 alla virka daga
fyrir fólk sem ekki hefur heimilis-
lækni eða nær ekki til hans (sími
81200) en slysa- og sjúkravakt
(Slysadeild) sinnir slösuðum og
skyndiveikum allan sólarhringinn
(sími 81200). Eftir kl. 17 virka daga
til klukkan 8 að morgni og frá
klukkan 17 á föstudögum til klukkan
8 árd. Á mánudögum er læknavakt
í sima 21230. Nánari upplýsingar
um lyfjabúðir og læknaþjónustu
eru gefnar í símsvara 18888
Ónæmisaðgerðir fyrir fulloröna
gegn mænusótt fara fram í Heilsu-
verndarstöð Reykjavikur á
þriðjudögum kl. 16.30-17.30. Fólk
hafi með sér ónæmisskírteini.
Neyðarvakt Tannlæknafélags ís-
lands er i Heilsuverndarstöðinni á
laugardögum og helgidögum kl. 10
til kl. 11 f.h.
Heilsugæslustöðin á Seltjarnar-
nesi: Kvöldvaktir eru alla virka
daga frá kl. 19.30 til 22.00 og á
laugardögum og sunnudögum er
bakvakt frá 9-12 og frá 17-22. Simi
bakvaktar er 19600 á Landakoti.
Helstu vextir banka og sparisjóða
(Allir vextir merktir X eru breytir brá síðustu skrá og gildafrá og með dagsetningu þessarar skrár)
I. Vextir ákveðnir af Seðlabanka sem gilda fyrir allar innlánsstofnanir:
Dagsetning síðustu breytingar: 1/81985
Sparisjóðsbækur 22.0
Afurða- og rekstrarlán v/ framleiðslu fyrir innlendan markað 26.25
Afurðalán, tengd SDR 9.75
Verðtryggð lán m.v. lánskjaravísitölu, allt að 2,5 ár 4.0
Verðtryggð lán m.v. lánskjaravísitölu, minst 2,5 ár 5.0
Óverðtryggð skuldabréf, útgefin fyrir 11/8 1984 31.4 (þ.a. grunnvextir 9.0)
Dagvextir vanskila, ársvextir 42.0
Vanskilavextir (dráttarvextir) á mánuði, fyrir hvern byrjaðan mánuð 3.5
II Aðrir vextir ákveðnir af bönkum og sparisjóðum að fengnu samþykki Seðlabanka:
Lands- Útvegs- Búnaðar- Iðnaðar- Verzl- Samvinnu- Alþýðu- Spari-
banki banki banki banki banki banki banki sjóðir
Dagsetning
Siðustu breyt. Innlánsvextir: 1/8 21/7 11/8 11/7 21/7 11/8 11/8 11/8
Óbundiðsparifé 7-34.0 22.-34.6 734.0 22.-31.0 22.-31.6 27.-33.0 3.01)
Hlaupareikningar 10.0 8.0 8.0 8.0 10.0 8.0 10.0 10.0
Ávísanareikn. 10.0 8.0 8.0 8.0 10.0 8.0 17.0 10.0
Uppsagnarr.3mán. 23.0 23.0 25.0 23.0 25.0 25.0 25.0 25.0
Uppsagnarr. 6 mán. 29.0 28.0 32.0 31.0 30.0 30.0 28.02)
Uppsagnarr. 12mán. Úppsagnar. 18mán. 31.0 32.0 36.0 32.0
Safnreikn.5. mán. 23.0 23.0 23.0 25.0 23.0 25.0
Safnreikn.6.mán. 23.0 29.0 26.0 28.0
Innlánsskírteini. 28.0 28.0
Verðtr. reikn. 3 mán. 1.0 1.0 1.0 1.0 2.0 1.0 1.5 1.0
Verðtr. reikn. 6 mán. 3.0 3.0 3.5 3.5 3.5 3.0 3.5 3.0
Stjörnureikn I, lloglll 8-9.0
Sérstakar verðb. ámán 1.83 1.83 2.0 2.0 2.0 2.0 2.0 1.83
Innlendir gjaldeyrisr.
Bandaríkjadollar 7.5 7.5 7.5 8.0 7.5 7.5 8.0 8.0
Sterlingspund 11.5 11.0 11.5 11.0 11.5 11.5 11.5 11.5
V-þýsk mörk 4.5 4.5 4.5 5.0 5.0 4.5 4.5 5.0
Danskarkrónur 9.0 9.0 8.75 8.0 10.0 9.0 9.5 9.0
Útlánsvextir:
Víxlar (forvextir) 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0
Viðsk. víxlar
(forvextir) 31.0 3) 31.0 ...3) 3) _ 3) 31.0 31.03)
Hlaupareikningar 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5
Þ.a.grunnvextir 14.0 14.0 14.0 14.0 14.0 14.0 14.0 14.0
Almenn skuldabréf 32.04’ 32.04’ 32.04’ 32.04’ 32.0 32.04) 32.0 32.04'
Þ.a.grunnvextir 9.0 9.0 9.0 9.0 9.0 9.0 9.0 9.0
Viðskiptaskuldabréf 33.5 3) 33.5 3) 3) 3) 33.53),
1) Trompreikn. sparisj. er verðtryggður og ber 3.0% grunnvexti. 2) Sp. Hafnarfjarðar er með 32.0% vexti. 3)
Útvegs-, Iðnaðar-, Verzlunar- og Samvinnubanka, Sp. Hafnarfj., Kópavogs, Reykjvíkur og í Keflavik eru
viðsk.víxlar og skuldabréf keypt m.v. ákveðið kaupgengi. 4) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilaláns er
2% á ári og á það einnig við um verðtryggð skuldabréf.
vegleg verkfæraverðlaun, verð-
ur haldið helgina 2.-3. nóv. kl.
2 báða dagana. Umhugsunar-
tími verður 30 mín. á skák.
Tefldar verða 7 umferðir eftir
monrad-kerfi.
Sýning:
Eden
Steingrímur Sigurðsson.
Opnar 20. ágúst, opin til 2.
september. 58. sýning lista-
mannsins. Sýnir32 myndir, allar
nýjar, olíumálverk, sjávar-
myndir.
Ráðstefna
Norrænt Ijós-
tæknimót ’85
í Reykjavík 20.-25. ágúst.
Fyrirlestrar í Odda, hugvísinda-
húsi H.í. Setning kl. 10.00 21.
ágúst, Hátíðarsal HÍ, Vigdís
Finnbogadóttir, Gísli Jónsson,
prófessor, formaður undirbún-
ingsnefndar, Aðalsteinn Guð-
jónsson, Árni Björnsson.
Vígsla:
KR heimilið vígt
24. ágúst
Sama dag er KR dagurinn
’85. Heimilið er við Frostaskjól.
Gítarnámskeið:
Tónskóli Sigur-
sveins D. Kristins-
sonar
Námskeið 30. ágúst til 1.
september. Leiðbeinandi Sieg-
fried Kpbilza. Til aðstoðar
Símon ívarsson. Umsóknar-
eyðublöð í skólanum Hellu-
sundi 7 14-16 alla daga.
Hlaut styrk vegna
bókasafnsþjónustu
fyrir blinda
■ Helga Ólafsdóttir, bóka-
safnsfræðingur, forstöðumaður
blindrabókasafns íslands, hefur
hlotið styrk úr sjóði Jóhanne
Hansens fyrir vel unnin störf að
eflingu bókaþjónustu fyrir
blinda hér á landi.
Jóhanne Hansen var skóla-
stjóri Als Husholdningsskole og
meðal annars kunn fyrir störf
sín í dönsku andspyrnuhreyf-
ingunni í síðustu heimsstyrjöld.
Sjóðurinn var stofnaður af
vinum hennar árið 1964 og er
úthlutað úr honum annað hvert
ár. Þetta er í tíunda skipti sem
veitt er úr sjóðnum, en í fyrsta
sinn sem íslendingur verður
þessa heiðurs aðnjótandi.
Styrkupphæðin er 10,000 dansk-
ar krónur.
Mikið kvartað
til NAN
■ Aðalfundur Neytendafélags
Akureyrar og nágrennis (NAN)
var haldinn þann 23. maí s.l.
Guðsteinn V. Guðmundsson
framkvæmdastjóri Neytenda-
samtakanna var gestur fundar-
ins og greindi frá daglegum
störfum skrifstofu samtakanna í
Reykjavík. f máli hans kom
fram að mikið er leitað til
kvörtunar- og upplýsingaþjón-
ustu samtakanna og eru skráð
símtöl um 200 á mánuði en
skrifleg mál tekin fyrir eru að
jafnaði 5 á mánuði. Skrifstofan
sér að mestu leyti um útgáfu- og
kynningarstarf samtakanna,
samband við fjölmiðla, tengsl
við neytendafélögin út um land-
ið og margt fleira.
Á aðalfundinum var stjörn
NAN að mestu endurkjörin og
hana skipa nú:
Arnheiður Eyþórsdóttir for-
maður,
Una Sigurliðadóttir varafor-
maður,
Inga Einarsdóttir gjaldkeri,
Margrét Ragúels ritari,
Stefán Vilhjálmsson meðstjórn-
andi og ritstjóri NAN-frétta.
í varastjórn eru: Jón Árnason,
Jón Björnsson, Ragnheiður
Brynjólfsdóttir og Sigríður Jó-
hannesdóttir.
Neytendafélag Akureyrar og
nágrennis er nú flutt í nýtt
húsnæði að Gránufélagsgötu 4,
111. hæð. Þar verður opin
kvörtunar- og upplýsingaþjón-
usta á þriðjudögum og miðviku-
dögum frá kl. 17:00 til 18:30.
Sími NAN er 22506
Gengisskráning nr. 154-19. ágúst 1985 kl. 09.15
Kaup Sala
Bandaríkjadollar.......................40,790 40,910
Sterlingspund..........................57,188 57,356
Kanadadollar..........................30,141 30,230
Dönskkróna............................ 4,0790 4,0910
Norsk króna........................... 4,9960 5,0107
Sænsk króna........................... 4,9457 4,9603
Finnskt mark.......................... 6,9353 6, 557
Franskur franki....................... 4,8372 4,8515
Belgískur franki BEC.................. 0,7289 0,7311
Svissneskur franki.....................18,0547 18,1078
Hollensk gyllini......................13,1242 13,1628
Vestur-þýskt mark......................14,7790 14,8225
ítölsk líra........................... 0,02208 0,02214
Austurrískur sch ..................... 2,1035 2,1097
Portúg. escudo........................ 0,2487 0,2495
Spánskur peseti....................... 0,2506 0,2514
Japanskt yen.......................... 0,17226 0,17276
írsktpund.............................45,909 46,044
SDR (Sérstök dráttarréttindi) 12.8....42,2430 42.3674
Símsvari vegna gengisskráningar 22190