NT - 20.08.1985, Side 24
5plí<!gli
■ Ómar Torfason, Fram og Rúnar Georgsson mæna vonaraugum á boltann, en það var Óinar
sem náði honum að þessu sinni.
1. deildin í knattspyrnu:
NT-mynd Sverrir.
Fram aftur á toppi
- sigraði Víði 2-1, þótt leikmennirnir væru aðeins 10 síðasta korterið
»•
líklega ætlað sér og þar kom
Grétar, bróðir Daníels, aðvíf-
■ Framarar önduðu léttar
þegar Kjartan Tómasson, dóm-
ari, gal' inerki uin að leiktíminn
væri liðinn í leik Fram og Víðis
í 1. deild í gærkvöldi. Með 2-1
sigrinum var liðið aftur koinið á
topp 1. dcildar en sætið höfðu
Valsmenn náð að verma í 24
klukkustundir.
Sigur Fram í gærkvöldi var
vart vcrðskuldaöur, því þótt
liðið væri heldur skárra voru
yfirburðir liðsins ekki þaó miklir
að hægt sé að segja að liðið hafi
átt sigurinn skilinn. En leikmenn
liðsins voru aðeins 10 síðustu 17
mínútur leiksins, eftir að
Ormarr Örlygsson hafði verið
rekinn af leikvelli fyrirað hrinda
einum Víðismanni um koll. Og
H Geysilega barátta í
Víðismönnum á blautum
Laugardalsvellinum, en
samt uppskáru þeir tap.
Guðmundur Torfason og
Guðniundur Steinsson
gerðu inörk Fram á 8.og
72. mín. Grétar Einars-
son skoraði fyrir Víði á
38. mín. Kjartan lomas-
son dæmdi allvel, hann
rak Ormarr Örlygsson í
sturtu, en bókaði engan.
Áhorfendur voru 928.
einum færri náöu þeir að halda
stigunum þremur.
Leikurinn var einungis átta
mínútna gamall er Fram tók
forystuna. Pétur Ormslev tók
hornspyrnu og sendi knöttinn
vel fyrir markið. Boltinn sigldi
yfir hóp leikmanna á inarkteign-
um og fyrir fæturnar á Guð-
mundi Torfasyni sem skoraói
með föstu skoti í markhornið.
Við markið færðist mikið iíf í
Víðismenn, sem börðust
grimmilega um hvern bolta og
uppskáru jöfnunarmark á 38.
rnínútu. Daníel Einarsson átti
þá skot eða fyrirgjöf að markinu
og knötturinn datt niður viö
þverslána. Friðrik markvörður
sló knöttinn út cn ekki yfir
markið, eins og hann hefur
andi og skoraði.
í upphafi síðari hálfleiks
komst Vilberg í gegnum vörn
Frani en Friðrik varði vel.
Sigurmarkið kom svo á 72.
mínútu. Aftur tók Pétur horn
og eftir læti í teignum skallaði
Guðmundur Steinsson í netið.
Skömmu síðar bjargaði svo
Rúnar á línu Víðismarksins.
Liðin: Fram: Friðrik Friðriksson, Þor-
steinn Þorsteinsson, Ormarr Örlygsson,
Sverrir Einarsson, Viðar Þorkelsson, Ás-
geir Elíasson (Örn Valdimarsson 69.
mín.), Kristinn Jónsson, Pétur Ormslev,
Ómar Torfason, Guðmundur Torfason og
Guðmundur Steinsson, Víðir: Gísli Heið-
arsson, Rúnar Georgsson, Ólafur Ró-
bertsson, Sigurður Magnússon (Vilhjálm-
ur Einarsson 30. min.), Gísli Eyjólfsson,
Daníel Einarsson, Guðjón Guðmundsson,
Vilberg Þorvaldsson, Einar Ásbjörn
Ólafsson, Guðmundur Knútsson og Grét-
ar Einarsson.
Islandsmótið 1. deild:
Vítin
V
fóru forgörðum
og Þróttur tapaði fyrir ÍBK1-2
Frá Frímanni Ólafssvni á Suðurnesjum
H Keflavíkingar voru nokkuð
heppnir að vinna 2-1 sigur á
Þrótti í 1. deildinni í Keflavík í
gærkvöldi. Þróttarar misnotuðu
nefnilcga tvær vítaspyrnur í
leiknum. Dýrt spaug fyrir lið
sem á í fallbaráttu að gera það
einu sinni, hvað þá tvisvar.
Leikurinn fór rólega af stað.
Þróttarar voru heldur sterkari
spiluðu oft skemmtilega saman
en allan brodd vantaði í sóknar-
leikinn.
Keflvíkingar komu svo meira
inn í myndina og skoruðu á 13.
mín. Þá var dæmd hornspyrna á
Þrótt og Freyr renndi knettinum
stutt á Óiaf Þór, sem iék áfram
og gaf á Sigurjón Kristjánsson,
hann skoraði með góðu skoti
utan úr teig, 1-0.
Á 22. mínútu var dæmt víti á
Keflvíkinga fyrir brot á Pétri
Arnþórssyni. Kristján Jónsson
skaut hörkuskoti í samkeytin og
út á völl, gott færi forgörðum.
Síðan sóttu Keflvíkingar en
Guðntundur Erlingsson var
góður í marki Þróttar og greip
oft vel inn í leikinn.
í seinni hálfleik byrjuðu
Þróttárar með stórsókn. Á 53.
mínútu var aftur dæmd víta-
spvrna á ÍBK, eftir að Sigurjón
Sveinsson hafði handleikið
knöttinn. Björgvin Björgvins-
son hitti knöttinn ijlá og boltinn
fór framhjá.
Síðan jafnaðist leikurinn. Á
74. mínútu jöfnuðu Þróttarar.
Gunnar Oddsson átti lausa
sendingu á Þorstein markvörð
og Sigurjón Kristinsson komst
inn á milli, lék á Þorstein og *
skoraði.
Tveimur mínútum síðar var
dæmd aukaspyrna á Þrótt og
Sigurjón Kristjánsson skoraði
beint úr henni.
Liðin: ÍBK: Þorsteinn Bjarnason, Sig-
urjón Kristjánsson, Ingvar Gudmunds-
son, Valþór Sigþórsson, Freyr Sverris-
son, Sigurður Björgvinsson, Óli Þór
Magnússon (Ragnar Margeirsson), Sig-
urjón Sveinsson, Jón Kr. Magnússon,
Gunnar Oddsson og Helgi Bentsson
(Björgvin Björgvinsson). Þróttur: Guð-
mundur Erlingsson, Nikulás Jónsson,
Kristján Jónsson, Loftur Ólafsson, Ársæll
Kristjánsson, Pétur Arnþórsson, Daði
Harðarson, Björgvin Björgvinsson, Sig-
urjón Kristinsson, Atli Helgason (Birgir
Sigurðsson) og Arnar Friðriksson.
H Skcmmtilegur leikur
og mikii barátta í báðuin
liðum. Þróttarar misnot-
uðu tvö víti, hvort í sínum
hálfleiknum. Sigur ÍBK
var ekki öruggur fyrr en
leikurinn var flautaður
af. Sigurjón Kristjánsson
skoraði bæði mörk ÍBK,
á 13. og 76. mín. Sigurjón
Kristinsson skoraði
mark Þróttar á 74. mín.
Guðmundur Haraldsson
gaf Þrótturunum Daða
Harðarsyni og Arnari
Friðrikssyni gul spjöld.
Áhorfendur voru tæplega
þúsund.
Island
vann
H ísland sigraði Sviss 3-
2 í landsleik í knattspyrnu
í Dietikon í gærkvöldi.
Sviss náði forystunni en
Erla Rafnsdóttir jafnaði
fyrir hlé. Ragna Lóa
Stefánsdóttir kom íslandi
yfir en Sviss jafnaði.
Þremur mínútum fyrir
leikslok skoraði svo
Ragnheiður Jónasdóttir
sigurmarkið með lang-
skoti.
H Reykjavíkurlélögin Valur og KR eignuðust sinn íslandsmeistarann hvort um þessa helgi. Valur
varð íslandsmeistari í 4. flokki er liðið vann „spútnik-lið“ Selfoss 2-1 í úrslitaleik sem háður var á
Akureyri. KR vann íslandsmótiö í 3. flokki auðveldlega. Liðið vann KA 6-0 í úrslitalciknum í Eyjum
Islandsmeistarar Vals eru hér til hliðar en KR-liðið hér að ofan. NT-myndir Gyifi K. og Sigfús G.