NT - 21.09.1985, Page 2

NT - 21.09.1985, Page 2
 fíT? Laugardagur 21. september 1985 2 liL f hádeginu Við vissum ekki að f ramsókn ■ í hádegisviðtalinu að þessu sinni er Unnur Stefánsdóttir fóstra. Unnur er dagvistarfull- trúi ríkisspítalanna en auk þess velþekktur „hlaupagikkur“ og formaður íþróttaráðs í Kópa- vogi. En Unnur er ekki síður vel þekkt fyrir vasklega frammi- stöðu á hinum pólitíska vett- vangi kvenna og nýlega var hún kjörin formaður Landssam- bandsframsóknarkvenna. Unn- ur var ein af mörgum konum sem stóðu að svonefndri Húsa- víkursamþykkt, sem fól í sér að konur yrðu skipaðar til jafns við karlmenn í stjórnir og nefndir á vegum Framsóknarflokksins en konum flokksins var farið að ofbjóða það karlaveldi sem í flokknum ríkti. Sú samþykkt vakti verulega athygli og hefur reynst stefnumarkandi fyrir bar- áttu kvenna í pólitík. „Já það má eiginlega segja að þetta hafi byrjað hjá okkur á Húsavík. Þar vorum við rúm- lega 60 konur á því þingi og þar var þessi ályktun samþykkt. Á þeim tveim árum sem liðin eru erum við búnar að starfa alveg geysilega mikið. Sérstaklega hafa námskeið okkar verið til þess að svo margar konur hafa komið til starfa með okkur, við höfum farið á staðina og námskeiðin eru opin fyrir allar konur.“ Hvernig námskeið eru þetta sem þú talar uin? „Þetta er blandað námskeið fyrir konur á öllum aldri. Nárn- skeiðinu höfum við skipt niður í fimm atriði og höfum byrjað á að efla stjálfstraustið, og er það eiginlega leyndarmál hvernig það fer fram. Síðan förunt við út í ræðu- mennsku og gerðar alls konar æfingar að þjálfa konurnar í að tala. Síðan kennum við fúndar- stjórn, fundarritun og tillögu- gerð og rökstuðning við þær. Konurnar eru mjög virkar á námskeiðinu og gera mikið sjálfar. Leiðbeinandinn gerir mest fyrst síðan er hann eigin- lega alveg utan við. Konurnar eru síðan með formlega fundi sent þær stjórna alveg sjálfar og tökum alltaf fyrir mál sent eru nánast sveitarstjórnarmálefni. Námskeiðið endar svo á því að allar fá að koma fram í videó og fá að sjá sig þar.“ Eruð þið ineð tæki til þess? Já, já við höfunt notað tæki sem flokkurinn á, nema á Akur- eyri þar fengum við að nota aðstöðu' sj ón varpsins. Var vandkvæðalaust að fá það? ... Það kostaði svolítið. Hvað hafa margar konur sótt þessi námskeið? Það eru nokkuð á þriðja hundrað konur sem hafa sótt þau en námskeiðin eru orðin 16. Hafa allar þessar konur verið tilbúnar að starfa með ykkur? Þær byrja ekki á námskeiðun- um vegna þess að þær séu framsóknarkonur eða ætli sér að fara að starfa þar, en reynsla okkar er sú að eftir að þær hafa verið á námskeiðunum þá koma þær og vilja starfa með okkur. Ef við erum spurðar hvort þetta séu pólitísk námskeið þá svör- um við því að námskeiðið sé haldið á vegum Landssambands framsóknarkvenna og að fram- sóknarkonur leiðbeini en við kennum ckki pólitík á þeim. En við sjáuni t.d. á Suðurlandi þar sem við vorum með 65 konur á námskeiði s.l. vetur að þar var síóan stofnað félag sem rúmlega 50 konur taka þátt í. Þú segir: Það er engin pólitík í þessu. Finnst þér á konunum að þær séu hræddar við að starfa í pólitískum félögum? Alveg óskaplega. Við hvað eru þær hræddar? Sko, mér viröist á konum að pólitík sé eitthvað mjög slæmt. Og ég þekki það bara best frá mínum systrum, fóstrum og svo konum sem eru á sama aldri og ég, að þeim finnst að pólitík sé ekkert fyrir þær. Ég held að konur haldi að pólitík sé bara fyrir karlmenn. En nú er mikið talað um það í pólitík að konur velji sér, ja svo þessi mjúku málefni, ræðiði efnahagsmál og þjóöarvand- ann? Við höfum ekki gefið okkur nægan tíma til að ræða þessi mál þ.e. efnahagsmál, verðbólgu- vandann og þessi mál sem eru að gerast. Starfið þessi fyrstu tvö ár hefur farið mest í það að byggja okkur upp. En þetta er að koma og við getum farið að ræða efnahagsmál ckki síður cn önnur. Hvernig er hljómgrunnurinn hjá forystu Framsóknarilokks- ins fyrir ykkar starfscmi? ■ Unnur Stefánsdóttir. Já, það hefur gengið svona hægt, en það er á réttri leið hcld ég. Við fengum t.d. styrk frá þingflokknum ti! þess að halda þessi námskeið í fyrra. En hvert er viðhorf þing- manna flokksins, sem allir eru karlmenn til þessa átaks ykkar, heldurðu að þeim fínnist þeiin vera verulega ógnað? Já ég held það, Það er eins og þeir vilji hafa okkur svona með, en samt ágætt líka að hafa okkur svona dálítið til hliðar. Heldurðu að þctta eigi við í fleiri flokkum? Alveg örugglega. Unnur Stefánsdótt- ir formaður Lands- sambands fram- sóknarkvennaíhá- degisviðtali Þannig að þingmennirnir af karlkyni álíta líka að konur eigi ekkert að vera í pólitík? Það er svolítið erfitt að segja sko, þeir hafa verið svo til einráðir um pólitíkina. þannig að það 'er kannski eðlilegt að þeim finnist þetta vera árás á sig, en við framsóknarkonur teljum að með þessari samþykkt sem við gerðum á Laugarvatni séuni við í rauninni að bjarga flokknum. Við verðum varar við það, að konur sem, ja hafa ekki verið tilbúnar til að festa sig í neinum ákveðnum flokki þær bara segja: Við kjósum auðvitað kvennaflokkinn. því að þar er verið að tala um mál sem að okkur lúta. Þessu viljum við breyta og finna að við getum það. Nú er Ijóst að ef þið ætlið að framfylgja ykkar ályktun frá Laugarvatni þá þarf að vera veruleg röskun á þingmönnum flokksins, eruð þið með ein- hvern leynilista yfir menn sem þið eruð ákveðnar að kalla í burtu? Það er nú ekkert svoleiðis' gefið upp. En þið hyggist komast á lista í fyrsta eða annað sæti í öllum kjördæmum, við næstu alþingis- kosningar? " Já við sáum það á Laugar- vatni að við eigum þessar konur til. NT-mynd Róbert í öllum kjördæmum? Já. Og er það meira en það að þær séu til, eru það konur sem þið teljið raunverulega jafn frambærilegar eins og þessir menn sem eru fyrir? Það er náttúrlega erfitt að meta fólk þannig, en við teljum það. Eru einhverjar ykkar þegarr búnar að ákveða að fara í framboð? Sko. það hefur ekki farið fram þannig könnun nákvæm- lega. enda held ég að karlmenn hafi ekki gert það heldur. En hinsvegar bara finnum við það að við eigum orðið það margar konur í öllum kjördæmum, sem hafa t.d. starfað að sveitar- armálum og þekkja orðið hlut- ina það vel að þær geta farið hiklaust í þetta eins og hver annar karlmaður. Og þið hyggist nota þetta kvótakerfi ykkar líka í sambandi við sveitarstjórn? Já, alveg hiklaust. Og við teljum það mjög góðan undir- búning fyrir, það að fara á þing, að vera búin að vinna í sveitar- stjórnum. Við eigum rúmar 12 konur af 78 í sveitarstjórnum allt land; margar í nefndum á um vegum sveitarstjórna, og við fundum það þegar við vorum að leita eftir konum til að vera með erindi á Landsþinginu, að þá var auðveldara að leita til þeirra sem hafa fengið þjálfun í sveitai- stjórnamálum, það er ósköp eðlilegt. Þessar samþvkktir ykkar þær vekja verulega athygli, hjá hin- um flokkunum líka. Hefurðu grun um að aðrir flokkar svona brosi í laumi, en viti samt sem áður að konur úr öðrum flokk- um líti upp til ykkar? Þið eruð stefnumarkandi að þessu leyti. Já, þetta hefur vakið mikla umræðu þessi samþykkt, og alls staðar þar sem maður kcmur hvort sem það er í afmæli eða á vinnustað í íþróttahúsi eða hvar sem er, þá er farið að tala um þessa hluti og yfirleitt þá eru konur mjög ánægðar með þetta og óska okkur til hamingju og segja: Við vissum ekki að fram- sóknarkonur væru svona rót- tækar. Og karlmenn tala að vfsu um þetta líka, en maður svona finnur til vissrar hræðslu hjá þeim, eða svona, „þær ætla sér bara efstu sætin og fara yfir um okkur,“ það er svona svolítill veggur. En stjórnmálaviðhorfín, hvernig líst þér á stjórnarsam- starfiö og stöðu ríkisstjórnar í dag? Eg tel að ráðherrar Fram- sóknarflokksins í ríkisstjórn hafi staðið sig að mörgu leyti vel. Hins vegar hefur allt of langur tími farið í það hjá for- sætisráðherra að sætta sjónar- mið ráðherra Sjálfstæðisflokks- ins vegna innbyrðis deilna og hefur þetta rýrt traust ríkis- stjórnarinnar út á við. Það er ljóst að ýmis öfl hjá Sjálfstæðisflokknum vilja draga úr þjónustu velferðarþjóðfé- lagsins. Ég tel að einn þýðingar- mesti hiutur Framsóknarflokks- ins sé að standa vörð um það. Nú ég held að ríkisstjórnin haldi, eða verði áfram við stjórn svona allavega þetta ár og eitthvað fram á næsta ár. Stjórnarandstaöan, hvað finnst þér um hennar vinnu- brögð? Mér finnst hún hreinlega hafa ■ Það er eins og þeir vilji hafa okkur svona með, en samt ágætt að hafa okkur svona svolítið til hliðar.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.