NT - 21.09.1985, Blaðsíða 4
Laugardagur 21. september 1985 4
Steingrímur um hótun Alberts:
’85 árgangurinn af fisk-
seiðum með besta móti
„Ég hefði sjálf-
ur slitið stjórn-
arsamstarfi“
■ Mjög jákvæöar niðurstöður
fengust úr seiðakönnun, sem
gerð var á rannsóknarskipunum
Bjarna Sæmundssyni og Árna
Friðrikssyni í ágústmánuði, sam-
kvæmt fréttatilkynningu sem
Hafrannsóknarstofnun sendi frá
sér í gær.
Helstu niðurstöðurnar eru
þær að útbreiðsla þorskseiða
Héraðs-
ráðunaut-
ar læra
■ BúnaðarfélagíslandsogBú-
vísindadeild Bændaskólans á
Hvanneyri efndu til þriggja
daga námskeiðs fyrir héraðs-
ráðunauta nú i byrjun sept-
ember,
Námskeiðið var haldið til að
auðvelda þeint að meta fram-
kvæmdaþörf og búrekstur
bænda en sem kunnugt er þurfa
þeir að meta þessa þætti þegar
bændur sækja um lán.
Þessir þættir eru orðnir mun
flóknari hin síðari ár bæði vegna
samdráttar í framleiðslu og
vegna breyttra lánakjara og því
voru þcir Ketill A. Hannesson
búnaðarhagfræðiráðunautur og
Gunnlaugur Júlíusson búnaðar-
hagfræðingur fengnir til að
skipuleggja námskeiðið, sem
um 20 ráðunautar frá flestum
búnðarsamböndum landsins
sóttu.
í frétt frá Búnaðarfélaginu
segir að fjölmargir fyrirlestrar
hafi verið fluttir um rekstrar-
fræðileg efni, kynntar aðferðir
við búrekstrarkannanir og áætl-
anagerð og nýtt form búreikn-
inga, svokallað bændabókhald,
en það er unnið að verulegu
leyti uppúr viðskiptareikning-
um bænda við kaupfélögin.
var með mesta móti, en svo var
einnig í fyrra. Er stærð þessara
tveggja árganga af sömu stærð-
argráðu og árgangarnir 1970,
’73 og '76. Reyndust þorskseið-
in núna stór og vel á sig komin.
Þessir árgangar verða orðnir
veiðanlegir árin 1988 og 1989.
Langmest var af þorskseiðum
út af vestanverðu Norðurlandi
og Vestfjörðum.
■ Fyfirtækið Entek hf. fram-
leiðir „Leaky pipe“ - lekaleiðsl-
ur. Eins og lesendum NT er
kunnugt hafa leiðslur þessar
sem gerðar eru úr óþéttu
gúmmíi, notaðar til vökvunar |
í gróðurhúsum. Nú hafa þeir |
Entek-menn komið auga á enn
Ýsuseiðin héldu sig hinsvegar
mest á svæðinu frá Breiðafirði
að Húnaflóa, var stærð þeirra
og fjöldi í góðu meðallagi.
Útbreiðsla loðnuseiða var
með betra móti en fjöldi þeirra
var á' lægri mörkunum og
áhyggjuefni er hve smávaxin
þau voru. Þá voru einnig gerðar
bergmálsmælingar á loðnunni á
meira notagildi lekaleiðslunnar.
Til þess að auka súrefnisinni-
hald í fiskeldiskerjum er lofti
blásið í gegnum leka-leiðslu sem
er í kerinu, og fæst með því
mjög jöfn dreifing á súrefni.
Leka-leiðslan er tilvalin við
flutninga í ferjutönkum, og að
íslands- Grænlands-Jan Mayen
svæðinu og kom í ljós að fyrri
niðurstöður á þeim árgöngum
sem nú eru í veiði eiga við rök
að styðjast.
Karfaseiðin reyndust mjög
mörg og virðist árgangurinn 1985
ætla að verða með bestu árgöng-
um frá því að mælingar hófust
árið 1970.
sögn Heimis Konráðssonar
framleiðslustjóra þá hafa þegar
verið seldar slöngur sem notaðar
eru í ferjutanka við flutning á
eldisfiski milli stöðva. Þá er
hægt að auka öryggi fiskeldis-
stöðva með því að hafa leka-
leiðslu í kerjunum. Fari vatn af
■ “Sannleikurinn er sá, að
ef Albert og aðrir sjálfstæðis-
menn hefðu staðið fast á
þeirri tillögu hans að leggja
tólf prósent söluskatt á mat-
væli þá hefði ég sjálfur slitið
stjórnarsamstarfinu,'4 sagði
Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra, í samtali
við NT um þá frétt Morgun-
blaðsins að Albert Guð-
mundsson, fjármálaráð-
herra, hefði hótað stjórnar-
slkum, ef ráðherrar Frani-
■ Að loknum öðrum áfanga
Ljómarallsins eru Saku
Vierimaa og Tapio Eirtovaara
efstir á Opel Möntu. Þeir tóku
við af löndum sínum Peter
Geitel og Erkki Vanhanen þeg-
ar þeir lentu á steini blindaðir af
sól. Skemmdist Nissan þeirra
mikið og komst ekki lengra.
Chris Lord og Birgir Viðar
Halldórsson urðu að hætta eftir
að þrjú dekk höfðu sprungið
undir Audi Quattro þeirra á
Kjalvegi. Varadekkin voru upp-
urin og of langt í þjónustubíl-
inn.
stöð, er hægt að halda lofti í
fiskinum með því að dæla
súrefni í kerin á meðan viðgerð
fer fram. Ekki hefur verið
ákveðið hvert verðið er á metra,
en kynningarverð á fiskeldissýn-
ingunni í Laugardalshöll er 40
krónur metrinn.
sóknarflokksins féllust ekki
á hugmyndir hans varðandi
fjárlagagerð. „Við vorum
ósveigjanlegir gagnvart þess-
ari tillögu fjármálaráðherra
og þá lagði hann fram tillögu
um fimm prósent söluskatt.
Við ræddum hana svolítið,
en töldum hana heldur ekki
koma til greina og þá féll
Albert frá þessum hugmynd-
um sínum í heild,“ sagði
Steingrímur Hermannsson.
forsætisráðherra.
Þrír íslendingar þrýsta nú á
Saku og Tapio, allir á sömu
tveim mínútunum. Ef ekkert
kemur fyrir eiga allir sömu von
í sigur, og jafnvel fleiri. Erfiðar
leiðir eru framundan, Fjalla-
baksleið t.d. þar sem auðvelt er
að festast í ám.
Eina óhapp gærdagsins var
að finnsku dömurnar skelltu bíl
sínum á hliðina og skemmdu
hann nokkuð. í gærkvöldi gerðu
allir við sem hægt var og halda
Marjo og Tuula ótrauðar áfram
að keppa við Helgu. Hún er nú
nær 5 mín. á undan.
Nú í morgun var lagt af stað
kl. 6 og verður komið í mark um
klukkan 20. Þeir sem það lifa af
eiga þá „bara“ eftir Kaldadal
fram og aftur á morgun, sunnu-
dag.
Röð Áhöfn Tími
1 Saku/Tapio 258.52
2 Jón R/Rúnar 306.34
3 Bjarmi/Úlfar 308.19
4 Þorsteinn/Sighvatur 308.57
5 Rikharður/Atli Toyota 317.22
6 Ólafur/Halldór 318.13
7 Þórhallur/Sigurður 325.38
8 Charlie/Hilmar 331.53
9 Þorvaldur/Pétur 343.33
■ Þetta glæsiiega orgel var vígt í Grundarfjarðarkirkju þann 15. september sl. Það er smíðað í
orgelverksmiðju Reinharts Tzschöckel Althiitte Fautsach í Þýskalandi. Orgelið er byggt úr mahóní,
hefur tvö hljómborð og fótspil, og í því eru 13 raddir.
Við þetta tækifæri gáfu hjónin Soffanías Cecilsson og Hulda Vilmundarsdóttir kirkjukórnum kyrtla
sem sjást á myndinni.
Fiskeldissýningin í Laugardalshöll:
Leka-leiðslur í fiskeldiskerum
Ljómarallið:
Keppnin harðnar
íslendingarnir þrýsta á
1935
1985
Blómaskálinn er fluttur
ad Nýbýlavegi 14
í ný og glœsileg húsakynni. Höfum allt til blómarœktunar, pottablóm, afskorin
blóm, skreytingar, krossa og kransa. Lítid inn um helgina og alla hina dagana
SíE
Opid alla daga kl. 10—22
^jjfölómas'líálinn
Nýbýlavegi 14, á horni Nýbýlavegar
og Aud brekku. Sími 40980.
■ Guðmundur Malmquist, for-
stjóri Byggðastofnunar.
■ Bjarni Einarsson, aðstoðarfor-
stjóri Byggðastofnunar.
Byggðastofnun:
Guðmundur Malmquist
ráðinn forstjóri
■ Guðmundur Malmquist var í
gær ráðinn forstjóri Byggðastofnun-
ar, en hann var áður lögfræðingur
Framkvæmdastofnunar. Var hann
ráðinn með 6 atkvæðum stjórnar
Byggðastofnunar en einn sat hjá.
Bjarni Einarsson, sem verið hefur
forstöðumaður byggðadeildar
Framkvæmdastofnunar, var ráðinn
aðstoðarforstjóri.
Stjórn Byggðastofnunar hefur
boðað annan fund eftir helgi þar
sem haldið verður áfram að móta
skipulag stofnunarinnar, auk þess
sem frekari mannaráðningar verða
ræddar.