NT - 21.09.1985, Blaðsíða 3

NT - 21.09.1985, Blaðsíða 3
GK ,* YV Laugardagur 21. september 1985 I hádeginu arkonur væru svona róttækar steinsofið í allt sumar, greini- lega tekið sér gott sumarfrí. Og já, mér finnst jafnaðarmenn og þá kannski Kvennalisti hafa verið svolítið virk. Alþýðu- bandalagið hefur verið óskap- iega róiegt í stjórnarandstöð- unni. Tengsl við Kvennaframboð- ið, hafið þið eitthvað heyrt raddir frá þeim, eða helduröu að konur bjóði fram sérlista næst? Ég hef nú voða lítið heyrt unt það, en hef samt, það sem ég hef heyrt þá verður það áfram. Og yngri konur sérstaklega finnst mér vera hlynntar kvenna- framboði. Finnst þér það eiga rétt á sér, ef konum tekst að koma sér verulega á framfæri innan flokk- anna? Nei, mér finnst að þetta sé tímabundin iausn, ég tel miklu eðlilegra að konur séu inní sín- um flokkum og haldi fram sinni stjórnmálaskoðun þar, en þetta kannski varð að gera. Það hlýtur að vera eðlilegt að karlmenn og konur vinni saman í stjórnmála- flokkum eins og er talið eðliiegt að karlmaður og kona vinni saman á sínu heimili. Geturðu ímyndað þér hvernig þingið liti út ef það yrði skipt til helminga, karlar og konur í störfum þingsins? Það yrði örugglega mikiu skemmtilegra þing. Hvaða málaflokkar heldurðu að yrðu meira ræddir? Málum sem tengjast börnum, dagvistarmál, skólamál, þetta eru mál sem að konur hafa meiri þekkingu á og hafa meira unnið við, þannig að það væri mjög eðlilegt að þær ynnu að því áfram. Þessi mál hafa verið ailtof mikið hornreka í stjórn- málum. Ég held að það yrði miklu meira jafnvægi í ábyrgð- artöku á Alþingi. Hvernig sérðu einkenni karla á þingi? Sko, mér finnst. - Ja það hefur náttúrlega átt sér stað dálítil ynging, eða aldurinn hef- ur iækkað, en hins vegar finnst mér samt ennþá eins og alþingis- menn séu svona gamlir kallar. Þýðir yngri menn, betri menn? Já væntanlega. En mér hefur alltaf fundist, og finnst enn að þingið sé karlar og frekar gamiir karlar, og þefr'tali óskap- lega mikið, og alltof lengi um hluti sem þeir geta talað um á nokkrum mínútum. Þannig að ég hef það á tilfinningunni að þingstörf séu alltof þung í vöfum og alltof löngum tíma sé eytt í hlutina. Nú hlýtur að vera mikil ákvörðun fyrir húsmóður, ekki síst utan af landi að ákveða að fara í framboð og þarf þar af leiðandi að vera í burtu frá sinni fjölskyldu og sínum börnum, um langan tíma. Mörgum finnst frekar að karlmaður geti farið í burtu, börnin sakni hans ekki eins mikið. Er þetta ekki vanda- mál hjá ykkur? Jú, það er náttúrlega alltaf erfitt að þurfa að fara í burtu, langt í burtu frá litlum börnum, en eins og þú segir hafa karl- menn þurft að gera þetta og það er ekki óeðlilegt að einhverjar konur þurfi að gera þetta líka. Hinsvegar eigum við líka konur sem eiga stálpuð börn og ekkert óeðlilegt við það að þær fari í vinnu langt frá sínu heimili. Samgöngur hafa lagast mikið á seinni árum og fólk getur farið heim til sín einu sinni í viku, hvar svo sem það býr á landinu. Hvar ætlarðu að fara í framboð? Það hef ég ekkert ákveðið ennþá. En þú hyggst fara í framboð? Ja alveg eins. Hvað gerirðu eftir hádegi í dag? Þá verð ég í vinnunni hjá ríkisspítölunum. Hún felst í hverju? Umsjón með rekstri dagvist- arheimila sem ríkisspítalarnir reka fyrir sitt starfsfólk eða börn starfsfólks. Ég á að fylgjast með bæði uppeldisstarfinu og rekstrarmálunum og sé um inn- ritun barna á þessi heimili og að þetta gangi nokkurn veginn eðlilega-fyrir sig. Hvað eru margir í vinnu á dagvistarheimilum ríkisspítal- anna? Það eru 63 stöðugildi og pláss fyrir 214 börn í heilsdagsrým- um. Hins vegar vantarokkurnú ll starfsmenn í, vinnu bæði fóstrur og ófaglært fólk. Ef það heldur áfram sem horfir að við fáum ekki starfsfólk til vinnu vegna lágra launa, sé ég ekki aðra lausn en að draga saman seglin, fækka börnum á deildum og þar með draga úr þeirri þjónustu sem fyrir er. LEIKHÚSKLÚBBUR 30 st. - lesin leikrit, farið í leikhús o.fl. Pétur Einarsson Mánud. kl. 20-21:30 (auk þess 10 st. ákv. síöar) KVIKMYNDAKLÚBBUR 32 st NN Fimmtud. kl. 20-23 LJÓSMYNDATAKA 20 st. Skúli Magnússon Fimmtud. kl. 20-21:30 VIDEOTAKA OG MYNDBANDAGERÐ 20 St. Karl Jeppesen Miðvikud. kl. 17:30-19 og Laugard. kl. 10:30-12 (5 vikur) FJÖLMIÐLUN OG BLAÐAMENNSKA 20 St. Guðrún Birgisdóttir Mánud. kl. 20-21:30 STJÓRNUN OG GERÐ ÚTVARPSÞÁTTA 20 St. Ævar Kjartansson Föstud. kl. 20-21:30 AUGLÝSINGAGERÐ 40 St. Gísli B. Björnsson Mánud. og fimmtud. kl'. 17:30-19 FÖT FYRIR UNGLINGA 40 st. Svanhildur Valsdóttir Þriðjud. kl. 19-22 AÐ HANNA OG PRJÓNA EIGIN FÖT 30 st. Kristín Jónsdóttir Mánud. kl. 20-22:15 LEÐURNÁMSKEIÐ 20 st. Guðrún Helgadóttir Mánud. kl. 19:30-22:30 (frá 4. nóv.-2. des.) MYNDLIST FYRIR BYRJENDUR 40 st. Ingiberg Magnússon Laugard. kl. 13-16 MÁLUN 40 st. Rúna Gísladóttir Laugard. kl. 13-16 SKRAUTRITUN 20 st Þorvaldur Jónasson Miðvikud. kl. 17:30-19 eða 19-20:30 LEIKBRÚÐUGERÐ 30 st. Erna Guömarsdóttir Fimmtud. kl. 20-22:15 GRÍMUGERÐ 40 st. Dominique Poulain Miðvikud. kl. 19:30-22:30 FRAMSÖGN OG LEIKLIST FYRIR ÁHUGAFÓLK 40 st. Edda Þórarinsdóttir Mánud. kl. 19:30-22:30 LEIKLIST FYRIR UNGLINGA 30 st. Guðjón Pedersen Mánud. kl. 19-21:15 LEIKRÆN TJÁNING FYRIR BÖRN 40 st. Sigríður Eyþórsdóttir Miðvikud. og föstud. kl. 17:30-19 STOFNUN OG REKSTUR SMÆRRI FYRIRTÆKJA 20 st. Þórður Vigfússon Mánud. eða miðvikud. kl. 20-21:30 BÓKHALD SMÆRRI FYRIRTÆKJA 20 st. Gunnar Hjartarson Þriðjud. kl. 17:30-19 RÆÐUMENNSKA OG FRAMSÖGN 20 st. Gunnar Rafn Sigurbjörnsson Miðvikud. kl. 17:30-19 MILLISTRÍÐSÁRIN-NASISMINN 20 st. - þættir úr stjórnmálasögu 20. aldar Ingólfur Á. Jóhannesson Þriðjud. kl. 17:30-19 ÞINGVELLIR - SAGA, STAÐUR OG LEIÐIR 8 st. Björn Th. Björnsson Mánud. og miðvikud. kl. 17:30-19 (frá 23. sept.-2. okt.) SÖGURÖLT Á SUNNUDEGI 30 st. - gönguferðir um borgina, sagan kynnt. Guðjón Friðriksson Sunnud. kl. 13-15:15 ÆTTFRÆÐI 20 st. Þorsteinn Jónsson Fimmtud. kl. 19-22 (5 vikur) GERÐ OG ÚRLESTUR STJÖRNUKORTA 20 st. Sigrún Harðardóttir Þriðjud. kl. 20-21:30 STANGVEIÐI í ÁM OG VÖTNUM OG FLUGUHNÝTINGAR 21 st. Gylfi Pálsson Mánud. kl. 17:30-19:45 (frá 7. okt.-18. nóv.) MYNDLIST Á LAUGARDEGI 20 st. - farið á sýningar, rætt við listamenn o.fl. Gylfi Gíslason Laugard. kl. 15:30-17 HVAÐ VIL ÉG I FRAMTÍÐINNI? 30 st. -'til aö aðstoða ungt fólk við að gera upp hug sinn varðanai nám og störf. Sölvína Konráðs Þriðjud. kl. 20-22:15 VILTU FARA ÚT Á VINNUMARKAÐINN? 30 st. - vinnuráðgjöf fyrir þá sem vilja fara út á vinnumarkaðinn eða skipta um störf. Sölvína Konráðs Föstud. kl. 20-22:15 SMÍÐI SMÁMUNA 30 st. Auðunn H. Einarsson Mánud. kl. 20-22:15 GARÐRÆKT 12 st Hafsteinn Hafliðason Þriðjud. og föstud. kl. 20-22:15 (frá 24. sept.-4. okt.) POTTAPLÖNTUR 12 st. Hafsteinn Hafliðason Þriðjud. og föstud. kl. 20-22:15 (frá 8. okt.-18. okt.) ER HEIMILISBÍLLINN I LAGI? 12 st. Jón Fr. Magnússon Mánud. og miðvikud. kl. 20-22:15 (frá 23. sept.-2. okt.) INNANHUSSKIPULAGNING 24 st. Finnur Pi Fróðason Þriðjud. og föstud. kl. 20-21:30 (frá 22. okt.-29. nóv.) HVERNIG ER HÆGT AÐ AÐSTOÐA BÖRN VIÐ HEIMANÁM 20 st. Erla Kristjánsdóttir Miðvikud. kl. 20-21:30 |1 II HAUSTÖNN: 23. september-30. nóvember STAÐUR: Laufásvegur 7 (Þrúðvangur) nema leiklist og smíði smámuna. INNRITUN: Til 23. september á skrifstofu skólans að Ingólfsstræti 3 frá kl. 10 -19:30. Innritunarsími er 621488. ÞÁTTTÖKUGJALD: Greiðist við innritun. ÞÁTTTAKA: Minnst 10 þátttakendur þarf til að námskeið verði haldið en hópar verða ekki stærri en 15 í hverjum. LENGD: Námskeiðin eru á bilinu 8-40 kennslustundir. PRÓF: Þátttakendum verður gefinn kostur á að taka próf í lok anna, ef þeir æskja þess... Geymið auglýsinguna TOMSTUNDA ISKOLINN Sími 621488

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.