NT - 21.09.1985, Blaðsíða 7
11'
Laugardagur 21. september 1985
Útlönd
Filippseyjar:
20 verk*
fallsverð-
ir skotnir
Manila-Reuter
■ Lögreglumenn á
Filippseyjum skutu að
minnsta kosti tuttugu
verkfallsverði til bana og
særðu fimmtán í hafnar-
borginni Escalante.
Lögreglan lét kúlum
rigna yfir hóp tvö þúsund
bænda og vagnstjóra sem
sat á jörðinni og lokaði
vegi. Að sögn yfirmanns
hersins á svæðinu hóf lög-
reglan skothríðina eftir að
einn lögregluþjónanna
særðist af byssukúlu sem
líklega var skotið úr
mannþrönginni.
Verkfallið og mótmæla-
aðgerðirnar voru boðaðar
til að mótmæla stjórn Mar-
cosar sem tók sér alræðis-
vald og setti á herlög 21.
september 1972. Her-
lögunum var aflétt árið
1981 en Marcos hefur samt
haldið völdum sínum að
mestu óskertum.
Miklar mótmæla-
aðgerðir eru fyrirhugaðar
á Filippseyjum í dag gegn
stjórn Marcosar.
Mexíkóborg
í rústum
-1000 taldir látnir og 5000 slasaðir
Mexíkóborg-Rcuter
■ Erfitt hefur reynst að afla
frétta af afleiðingum jarðskjálft-
ans í Mexikó í fyrradag. Talið
er að um 1000 manns hafi látist
og um 5000 slasast í þessum
náttúruhamförum en þó getur
verið að þessar tölur verði enn
hærri þegar tekist hefur að
hreinsa til í rústum borga og
bæja. Nokkurra skipa er saknað
og er talið líklegt að þau hafi
lent í mikilli flóðöldu á Kyrra-
hafi.
Jarðskjálftinn er talinn hafa
átt upptök sín um 400 km suð-
vestur af Mexíkóborg. Hann
mældist vera 7.8 stig á Richter
pg stóð yfir í um þrjár mínútur.
Áætlað er að um 800.000 ferkíló
metra svæði í Mexíkó sé meira
og minna í rústum. í Mexíkó-
borg er talið að 250 byggingar
hafi hrunið til grunna og um
1000 aðrar skemmst. Enn er
óljóst hverjar skemmdirnar
urðu í landinu öllu. Allar sam-
göngur hafa raskast töluvert þar
sem vegir, járnbrautir og síma-
línur urðu einnig fyrir barðinu á
skjálftanum.
Stjórnvöldum í Mexíkó hafa
Thailenska herstjórnin:
Foringjar fjarri
í mjög góðu gamni
■ Fyrir tæplega hálfum mán-
uði var gerð valdaránstilraun í
Thailandi. Herflokkurinn sem
hlut átti að máli gafst skil-
yrðislaust upp að loknu 10
klukkustunda taugastríði enda
höfðu þá hersveitir hliðhollar
stjórninni umkringt uppreisnar-
menn. Ekkert var unnið nema
blóðsúthellingar og skelfing. Ný-
verið birti sænska dagblaðið
Expressen frétt sem bendir til
þess að litlu hafi mátt muna að
valdarán yrði þar sem yfirstjórn
hersins var með „buxurnar á
hælunum“ í orðsins fyllstu
merkingu, er uppreisnarmenn
létu til skarar skrfða.
Hinu sænska dagblaði barst
með einhverjum hætti vitneskja
um fyrirhugaða „viðskipta-
reisu“ thailenskra hershöfð-
ingja til Svíþjóðar sem tengdist
óbeint hugsanlegri sölu sænska
fyrirtækisins Ericson á
fjarskiptabúnaði til hersins í
Thailandi. Það fréttist enn-
fremur að þeir ætluðu að búa á
Sheraton-hóteli og að Madame
Carina nokkur ætti að sjá til
þess að lystisemdir holdsins
yrðu ekki vanræktar. Henni var
ætlað að sjá yfirhershöfðingjan-
um Arthit Kamlang-ek og föru-
neyti fyrir vændiskonum.
Blaðamaður á Expressen að
nafni Susanne Petterson bauðst
til þess að fara á fund Thailend-
inganna sem skjólstæðingur
Madame Carina. Með því móti
komst Expressen á snoður um
hvað gerðist.
Petterson og nokkrum öðrum
stúlkum var sagt áður en veislan
hófst að einungis ungar og
grannar stúlkur fengu að taka
þátt. Þeim var sagt að ef þær
spjölluðu einungis við hershöfð-
ingjana fengu þær greiddar 500
sænskar krónur fyrir ómakið,
en ef þær væru reiðubúnar til
þess að eiga við þá mök fengu
þær greiddar 1000 sænskar
krónur. Petterson var viðstödd
þar til hitna tók í kolunum, þá
bað hún viðstadda að hafa sig
afsakaða og hélt til ritstjórnar-
skrifstofu Expressen.
Nokkru síðar hringdi blaða-
maður Expressen í Arthit Kam-
lang-ek og spurði hann hvort
rétt væri að thailenski hópurinn
hefði notið þjónustu vændis-
kvenna og hver hefði borgað
brúsann. Hershöfðinginn viður-
kenndi fúslega að hafa samrekkt
með sænskri blómarós en kvaðst
ekki muna hver hefði staðið að
samkvæminu. En hann fékk
ekki lengi notið svefns þessa
nóttina því fáeinum rnínútum
eftir að blaðamaðurinn kvaddi
hann hringdi síminn aftur og í
þetta skiptið talaði viðmæland-
inn frá Bangkok við undirleik
skriðdrekaskothríðar.
Forsvarsmenn fyrirtækisins
Ericson harðneituðu að hafa átt
nokkurn þátt í að skipuleggja
næturskemmtanir hershöfðingj-
anna er Expressen leitaði frétta
í þeim herbúðum.
(Heimild: Sunday Times)
borist boð um neyðaraðstoð
víðs vegar að og margir aðilar
hafa látið í ljós samúð sína t.d.
lét forseti Allsherjarþings S.Þ.
orð falla um atburðinn á fundi í
gær.
Sjónarvottar segja að svo hafi
virst í Mexíkóborg sem háhýsi
dönsuðu trylltan dans er jarð-
skálftin reið yfir og margir hlutu
meiðsl sín er brak hrundi niður
úr húsunum.
írakar ná árangri:
Tíunda loft-
árásin
rústaði
Khargeyju
Bahrain-Reuter
■ Svo virðist sem olíuútskip-
unarstöð írana á Khargeyju hafi
nær gjöreyðilagst í seinustu loft-
árás íraka í fyrradag, þeirri
tíundu á fimm vikum.
Samkvæmt heimildum olíu-
og skipafélaga, sem flytja olíu
frá íran, eru líklega aðeins tveir
til þrír viðlegukantar af fjórtán
heilir á Khargeyju. Næstum all-
ur olíuútflutningur írana fer í
gegnum útskipunarstöðina á
Khargeyju.
íranar hafa að undanförnu
flutt út um 1,5 milljón tunnur af
olíu á dag en nú er hætt við að
þeir verði að draga mikið úr
útflutningnum. Þeir hafa hótað
því að loka Ómanssundi
(Hormuzsundi) fyrir siglingum
út úr Persaflóa ef írökum tekst
að stöðva olíuútflutning þeirra.
Ekki er talið að íranar muni
að svo komnu máli gera alvöru
úr þeirri hótun sinni að loka
Ómanssundi, þar sem aðeins 25
mílur skilja að Iran og Oman.
En þeir hafa að minnsta kosti
stöðvað sjö vöruflutningaskip í
sundinu á þessum mánuði og
gert upptækar vörur sem verið
var að flytja til íraks.
Fréttirnar um skemmdirnar á
Khargeyju leiddu til nokkurrar
verðhækkunar á olíu í gær.
</>
g
y>
■ Meðan skriðdrekar óku um miðborg Bangkok átti yfirstjórn
thailenska hersins náin tjáskipti við sænskar vændiskonur í
Stokkhólmi.
'NEWS IN BRIEF'
September 20. - Reuter
MEXICO CITY - At
least 1,000 people were
killed and 5,000 injured
after a massive earthqu-
’ake hit Mexico City and
officials said the final de-
ath toll could run into
thousands. More than
50,000 rescue workers
were searching frantically
for about 1,000 people
still trapped in the remains
of 250 devastated build-
ings.
•
SAN SEBASTIAN,
SPAIN - Four freighters
and 19 trawlers sailing
near the epicentre of the
earthquake that struck
Mexico are feared to have
sunk, the director of a
maritime radio station
said.
•
PARIS - Housing Min-
ister Paul Quiles was nam-
ed Defence Minister to
succeed Charles Hernu,
who resigned following the
implication of the French
Secret Service in the sink-
ing of the Greenpeace ship
Rainbow Warrior in New
Zealand. The head of the
Secret Service was fired.
•
AUCKLAND, NEW
ZEALAND - A Green-
peace protest boat sailing
for France’s Mururoa
nuclear test site in the
Pacific has been shadowed
by a French warship for
the past two days, the
environmental group said.
•
PRETORIA - The So-
uth African government
acknow ledged it was supp-
orting the Angolan rebel
movement Unita. Def-
ence Minister Magnus
Malan’s admission foliow-
ed charges by Angola that
South Africa’s current
military incursion was in
fact aimed at helping Un-
ita fight off a government
offensive.
•
PRETORIA - South
African President P.W.
Botha, addressing a cong-
ress of his National Party,
again ruled out talks with
guerrillas of the African
National Congress but
promised to proceed with
reforms to apartheid.
LONDON - Crude oil
prices rose between 10
and 15 cents a barrel on
European spot markets on
reports that a terminal on
Iran’s main oil export faci-
lity at Kharg Island was
U. destroyed in an Iraqi air
g strike. But Iran denied
gC the facilities had been aff-
^ ected. •
^ LA PAZ - Bolivia’s 17-
</> day-oldgeneralstrikebeg-
an to crumble today after
the government imposed
a state of siege and arrest-
ed hundreds of trade un-
ionists. Tanks guarded
key points in La Paz and
heavily armed troops patr-
olled the streets.
•
AQABAL, JORDAN -
* Prime Minister Margar-
1 et Thatcher has invited
I two senior members of
the Palestine Liberation
I Organisation to talks in
. London in „a fresh step in
the Middle East peace
| process.“ •
MUNICH, WEST
. GERMANY - West
Germany’s state airline
| Lufthansa today signed a
1.3-billion-dollar contract
1 with the European Airbus
| consortium for 22 planes.
NEWSIN BRIEFA
S
y>
Hundahreinsun
Samkvæmt 5. gr. reglugerðar nr. 201/1957 um
varriir gegn sullaveiki skulu hundar eldri en 6
mánaða hreinsaðir af bandormum í október- eða
nóvembermánuði.
Eigendum hundanna er bent á að snúa sér til
starfandi dýralækna í Reykjavík með hreinsun.
Við greiðslu árlegra leyfisgjalda (gjalddagi 1.
mars) þarf að framvísa gildu hundahreinsunar-
vottorði.
Eldri vottorð en frá 1. september verða ekki tekin
gild.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkursvæðis
Veiðijörð til sölu
Tilboð óskast í jörðina Hólkot í Ólafsfirði.
Jörðin er við Ólafsfjarðarvatn í um þriggja
km. fjarlægð frá kaupstaðnum. Gott íbúðar-
hús. Túnstærð 15 hektarar og ræktanlegt
land til viðbótar verulegt. Jörðinni fylgir
veiðiréttur í Ólafsfjarðarvatni ásamt hlutdeild
í nýstofnuðu hlutafélagi um laxeldi og haf-
beit. Góð eign, sem skapar margvíslega
möguleika. Tilboðum skal skila til Fasteigna-
sölunnar hf., Gránufélagsgötu 4, Akureyri
sími 96-21878 (opið frá 17-19) heimasími
sölumanns 96-25025 og fást þar jafnframt
frekari upplýsingar um eignina.
Útboð
Tilboö óskast í eftirtaldar bifreiöir sem skemmst hafa í
umferðaróhöppum.
Pajero-jeppi árgerð 1983
Subaru station árgerð 1982
Fiat Uno 45 árgerð 1984
Lada 1600 árgerð 1978
AlfaRomeoSud árgerð1977
Kawasaki vélhjól árgerð 1981
Yamaha vélhjól árgerð 1982
o.fl.
Bifreiöirnar verða sýndar aö Höfðabakka 9, mánudaginn 23.
september 1985 kl. 12-16.
Tilboðum sé skilaö til Samvinnutrygginga, Ármúla 3, Reykja-
vík fyrir kl. 12, þriðjudaginn 24. september 1985.
SAMVINNU
TRYGGINGAR
AKMULX3 105REYXJAVtK S|MK91)«141|
FÉLAG JABNIÐNAÐARMANNA
Félagsfundur
verður haldinn miðvikudaginn 25. sept. 1985
kl. 20.00 að Suðurlandsbraut 30, 4. hæð.
Dagskrá:
1. Félagsmál
2. Kjaramál
3. Önnur mál
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna.
Athafnamenn -
athafnamenn
Þeir sem áhuga hafa á framleiðslu á byltingar-
kenndri aðferð við gerð einingahúsa o.fl. sem
varðar byggingaiðnaðinn, vinsamlegast sendi
nöfn sín og upplýsingar um starf í lokuðu umslagi
til blaðsins fyrir þann 30. september n.k. Merkt:
Eining 1985. Trúnaðarmál.