NT - 21.09.1985, Síða 10

NT - 21.09.1985, Síða 10
 rn r Laugardagur 21. september 1985 10 LU u skeiðis. Skyndilega er tjaldið dregið fyrir og allir eiga að vera tilbúnir. Forleikurinn hefst og innan skamms er tjaldið dregið frá og prúðbúnir aðalsmenn, herforingjar, klerkar syngja konungi lof. En meðal þeirra leynast menn sem greinilega ganga ekki heilir til skógar og á svip þeirra má ráða að þeir vilja ólmir æsa til óeirða... Við förum niður og þegar við höfum kvatt Flosa með þeim orðum að við séum svo mikil leikhúsdýr að við getum alveg bjargað okkur sjálf förum við bak við sviðið. Jóhanna Norð- fjörð sýningarstjóri situr í stóln- um sínum með heyrnartól á höfðinu, fylgist með handritinu og hreyfir öðru hverju takkana á Ijósmerkjatöflunni sem er til hliðar við hana og talar í hljóð- nema. Kórfélagar standa við hliðina á sviðinu og fylgjast spenntir með því sem er að gerast á sviðinu. Skyndilega eru allir að springa úr hlátri og þegar ég lít inn á sviðið sé ég að Kristján Jóhannsson sem syngur hlutverk Gustafs konungs hefur fengið þetta rokna hláturskast. Parukk, tjull og pluss NT lítur inn á æfingu á Grímudansleik Verdis ■ „Er hún ekki fín,“ spyr hún þegar prúðbúnar þær máta grímumar. NT-mynd: Ámi Bjama ■ Björn G. Björnsson leik- myndateiknari og pínulítið brot af leikmyndinni. NT-mynd: Ámi Bjama ■ Þjóðleikhúsið. Stórt og glæsilegt, grátt að utan en að innan teygja rauðir dreglar anga sína um ganga og stiga. Eitt vígi leiklistargyðjunnar. Á veturna sitjum við prúðbúin í áhorf- endasætunum og bíðum eftir- væntingarfull í myrkrinu og keppumst við að ræskja okkur og hósta allra síðasta hóstanum áður en sýningin hefst. Ogþegar tjaldið fellur beinist öll athyglin að því sem er að gerast á sviðinu en við leiðum kannski sjaldnast hugann að allri þeirri óhemju vinnu sem liggur að baki leik- sýninga vetrarins. Þessa dagana iðar allt af lífi innan þykkra veggjanna og kvöld eitt fyrir skömmu brugð- um við Ámi Bjarna Ijósmyndari okkur inn í Þjóðleikhúsið bakdyramegin til að fylgjast með æfingu á óperunni Grímu- dansleikur eftir Giuseppe Verdi. Það er Flosi sjálfur sem býður okkur velkomin. Hann leiðir okkur inn um dyr, inn eftir gangi, upp stiga, inn um aðrar dyr, inn eftir gangi, inn um dyr, niður stiga o.s.frv. til að sýna okkur hvar menn eru að vinna og kynna okkur aðstæður allar. „Hvernig í ósköpunum ferðu að því að rata í þessuvöundnar- húsi“? spyr ég áttavillt. Flosi glottir. „Eg er nú búinn að vinna hérna í 30 ár,“ segir hann og hlær. Það er gífurleg spenna í loftinu rétt eins og alvörusýn- ing sé að fara að hefjast. Á leið okkar verða konur og karlar með parukk á höfði, prúðbúin í tjullkjólum, hnébuxumogjökk- um ættuðum frá 18. öldinni. „Geturðu ímyndað þér hvað það hefur verið erfitt að ganga um í svona fötum,“ hvíslar Árni að mér. „Umm, einmitt," svara ég og sekk niðrí djúpar hugsanir utp öll lífstykkin og magabeltin og það sem ég las á árum áður í mannkynssögubókunum um líf aðalsmanna og kóngafólks í Evrópu á því herrans ári 1792 þegar atburðirnir sem fjallað er um í Grímudansleik gerast. Við erum stödd upp í efri stúku. Á sviðinu eru tenorar og bassar úr Þjóðleikhúskórnum að æfa og í gryfjunni stendur hljómsveitarstjórinn Maurizio Barbacini frá Italíu. Hann veif- ar tónsprotunum og lifir sig inní tónlistina og ljúfir hljómar ber- ast úr flyglinum sem Agnes Löve leikur á undir sönginn. í salnum eru Sveinn Einarsson leikstjóri og Þórunn Magnea Magnúsdóttir aðstoðarleik- stjóri, Björn B. Bjömsson leik- myndateiknari, Malín Örlygs- dóttir búningateiknari, Kristinn Daníelsson sem annast lýsing- una og Ingibjörg Björnsdóttir sem samdi dansana og fleiri að koma sér fyrir. Brátt fer æfingin að hefjast, í þetta sinn rennsli; það er allt verkið er æft í heild sinni og æfingin ekki stöðvuð nema eitthvað fari verulega úr- „Hvað er að gerast,“ spyr ég þann sem stendur næst mér. „Jú, þetta er í fyrsta sinn sem Guðbjörn tenor kemur fram í búningnum sínum og það er ágætt að menn séu búnir að venjast þessari sjón fyrir frum- sýningu," er svarað að bragði. Guðbjörn Guðbjörnsson tenor er líka ansi vígalegur í búningn- um, svörtum kufli og með hvíta kollu á hausnum. Við förum lengra á bak við sviðið og nú eru sviðsmennirnir að fara á fullt því nýtt atriði er að hefjast. „Má bjóða þér í eina hringferð,“ segir Kristinn Karls- son leikmunavörður og áður en ég veit af er gólfplatan sem við stöndum á farin að snúast og leikmyndin með. Leikmyndin, já hún er gríðar glæsileg og þess vegna ákveð ég að ná tali af Birni G. Björnssyni og finn hann þar sem hann situr í kaffi- stofu sviðsmannanna. „Ég byrjaði að vinna að leik- myndinni í maí, fékk lánaðar plötur með tónlistinni til að hlusta á. Og eftir að við Sveinn höfðum fundað fór ég að rissa upp leikmyndina,“ segir Björn, og sýnir mér teikningarnar af leikmyndunum sex. „Mig lang- aði að láta þetta líta út eins og alvöru óperuhús og þess vegna er fastur rammi fremst á svið- inu. Við ákváðum síðan að láta óperuna gerast í Svíþjóð og þá dró ég inn í leikmyndina ákveðna hluti úr Drottning- holmleikhúsinu sem konungur- inn lét byggja á sínum tíma og þar sem hann var síðan drepinn. Annars ræðst leikmyndin svo mikið af því hvernær dagsins hlutirnir eiga að gerast og hvað er að gerast í óperunni hverju sinni. í einu atriðinU' er til dæmis morgunn.og þá þarf ég

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.