NT - 21.09.1985, Side 12

NT - 21.09.1985, Side 12
Laugardagur 21. september 1985 12 Borgarstjórn: Arnarvarp vísvitandi eyðilagt ár eftir ár Störf kvenna verði endurmetin - tillögu Kvennaframboðsins vísað til borgarráðs ■ Fuglaverndarfélag íslands tel- ur að arnarvarp hafi vísvitandi verið eyðilagt á undanförnum árum m.a. í héraði í Barðastrandarsýslu og á Skarðsströnd. Á báðum þessum svæðum hafi nokkur arnarpör verpt árlega, en til algerra undantekninga heyri ef ungi komist upp. Á stað einum á Fellsströnd hafi ernir verpt á hverju ári undanfarin 10 ár, en varpið alltaf verið eyðilagt. Samkvæmt talningu er Fugla- verndarfélag íslands gekkst fyrir í sumar eru arnarpör nú 36 í landinu auk ungfugla. Er það nær tvöföldun varpstofnsins frá því síðasta talning fór fram 1964 þegar stofninn taldi 19 pör. Talið er að 24 ungar hafi komist upp úr 16 hreiðrum nú í sumar. En hjá 20 pörum hafi varpið misfarist, í flestum tilfellum vegna þess að það hafi eyðilagst. Bæði sé þar um að ræða að fuglarnir eru truflaðir Flugleiðir: Breytingar í markaðssviði ■ Nokkrar breytingar og stöðutil- færslur hafa verið ákveðnar innan markaðssviðs Flugleiða og koma þær til framkvæmda á næstunni. Hans Indriðason lætur af starfi sem forstöðumaöur norðursvæðis og verð- ur hótelstjóri á Hótel Esju, í stað Einars Olgeirssonar sem tekur við hótclstjórn á Hótel Loftleiðum. Emil Guðmundsson sem þar var fyrir flytur til Kaupmannahafnar og verður svæðisstjóri Flugleiða í Danmörku. Vilhjálmur Guðmundsson sem nú gegnir því starfi flytur heim og verður forstöðumaður norðursvæðis. Sú deild sér um sölu- og markaðsmál á Islandi og öllum Norðurlöndunum og verður nú lögð aukin áhersla á Fær- eyjar og Grænland í því starfi, en Bretlandsdeild mun nú heyra undir Einar Helgason forstöðumann flutn- ingadeildar. Þá mun viðskipta- og þjónustudeild framvegis tilheyra far- gjalda- og áætlanadeild félagsins, sem Gylfi Sigurlinnason veitir forstöðu. Sveinn Sæmundsson tekur nú við starfi sem sölustjóri innanlandsflugs, en kynningardeild og fréttadeild verða sameinaðar í eina deild sem Sæmund- ur Guðvinsson veitir forstöðu og tilheyrir hún stjórnunarsviði Flug- leiða. Réttarkaffi í Kópaseli ■ Hvernig væri að skella sér út úr bænum á sunnudaginn og fara í réttir í Lögbergsrétt og síðan í kaffi í Kópaseli á eftir. Það er Lionsklúbbur Kópavogs sem stendur að kaffisölunni og mun allur ágóði renna til líknarmála í Kópavogi. Undanfarin ár hefur það verið venjan að styrkja fötluð ungmenni til Noregsfarar. Auk stuðnings við fatlað fólk hefur Lionsklúbbur Kópavogs stutt Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð frá upphafi og sama má segja um Kópavogshælið. Veitingar verða hinar rausnarleg- ustu segir í fréttatilkynningu og verði verður stillt í hóf og allir eru hjartan- lega velkomnir. Leidrétting ■ Verslunarfélag Austurlands var nefnt Verslunarmannafélag Austur-, lands, í frétt NT á fimmtudag, sem sagði frá skorti á hreindýrakjöti. Þetta er hér með leiðrétt -og eru hlutaðeigandi beðnir velvirðingar. snemma á varptímanum, að talið er einkum af völdum minkaveiði- og þangskurðarmanna, og á hinn bóginn að varpið hafi verið eyðilagt vísvit- andi. Séu fyrrnefnd héruð áberandi hvað það snertir. Fuglaverndarfélagið telur að arnar- fjöldi sé nú orðinn svipaður á Breiða- fjarðarsvæðinu og hann var áður en ofsóknir gegn þeim hófust fyrir alvöru á síðustu öld og muni þeim tæpast fjölga meira þar. Hins vegar sé ekki ósennilegt að ernir fari í auknum mæli að verpa utan hinna hefðbundnu svæða. T.d. hafi þeir farið að verpa nokkuð sunnan Snæfellsness. Nokkur vanhöld voru einnig á örn- um í sumar, m.a. fannst ungur örn sem skotinn hafði verið með riffli. Félagið vill og eindregið vara við dreifingu svefnlyfja þar sem örnum, sérstaklega ungfuglum, sé hætta bú- in af þeim. ■ Borgarfulltrúar Kvenna- framboðsins lögðu fram tillögu um endurmat á störfum kvenna sem starfa hjá Reykjavíkurborg á borgarstjórnarfundi á fimmtu- dagskvöld. Miklar umræður urðu um tillöguna og um neyð- arástandið á dagvistarheimilum borgarinnar en að lokum var samþykkt að vísa tillögunni til borgarráðs. Tillagan er á þá lund að samþykkt verði að nú þegar verði hafin vinna við endurmat á störfum kvenna sem vinna hjá borginni hvort heldur þær eru í Starfsmannafélagi Reykjavík- urborgar eða í öðrum stéttarfé- lögum. Nýja starfsmatið liggi fyrir við gerð næstu kjarasamn- inga. Við starfsmatið verði verðgildi starfa lagt til grund- vallar og að umönnunar-, frum- framleiðslu- og þjónustuþættir kvennastarfanna verði metnir til jafns við ábyrgðar-, frum- kvæðis- og þekkingarþætti hefð- bundinna karlastarfa. . .... ..... ........... .............- W,—• Orðsending tíl fyrirtækj a og eínstaklínga í atvinnurekstri Skattrannsóknarstjóri hefur ákveðið að kanna bókhald þeirra aðila sem eru skyldir til að gefa út reikninga í viðskiptum sínum við neytendur. Kannað verður hvort farið er eftir þeim reglum sem gilda um skráningu viðskipta á nótur, reikninga og önnur gögn. Dagana 23. september til 7. október verða 400 fyrirtæki úr 27 atvinnugreinum heimsótt af starfsmönnum Skattrannsóknarstjóra I þessu skyni. Könnunin nær til fyrirtækja úr eftirtöldum atvinnugreinum: Númeratvlnnu- grelnar: Heiti atvinnugrelnar: 261 Trésmíði, húsgagnasmíði 262 Bólstrun 332 Cleriðnaður, speglagerð 333 Leirsmíöi, postullnsiðnaður 339 Steinsteypugerö, steiniðnaður 350 Málmsmlöi, vélaviðgerðir 370 Rafmagnsvörugerö, raftækiaviðgeröir 383 Bifreiðaviögeröir, smurstöðvar 385 Reiöhjólaviðgeröir 395 Smíði og viögerö hljóöfæra 410 Verktakar, mannvirkiagerð I- 420 Bygging og viögerð mannvirkia 491 Húsasmíði 492 Húsamálun 493 Múrun 494 Pípulögn 495 Rafvirkiun 496 Veggfóörun, dúklagning 497 Teppalögn 719 Ferðaskrifstofur 826 Tannlækningar 841 Lögfræöiþjónusta, fasteignasalar 842 Bókhaldsþjónusta, endurskoðun 843 Tæknileg þjónusta 847 Innheimmtustarfsemi 867 Ljósmyndastofur 869 Persónuleg þjónusta ót. a., t.d. heilsuræktarst. SKATTRANNSÓKNARSTJÓRI H M WMMá

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.