NT - 21.09.1985, Blaðsíða 15
Laugardagur 21. september 1985 15
Borgarstjórn:
Sjálfstæðisflokk-
urinn sér um sína
- sagði Kristján Benediktsson í snörpum umræðum um mögulega sameiningu BÚR
og Ísbjarnarins
■ Vilhjálmur Jónsson, forstjóri Olíufélags íslands, Arínbjörn
Kolbeinsson, formaöur FÍB, Þórður Asgeirsson, forstjórí OLIS og
Indriði Pálsson forstjóri Skeljungs.
FIB og olíufélögin:
■ Miklar og snarpar umræður
spunnust um viðræður borgar-
yfirvalda við forráðamenn ís-
bjarnarins á fyrsta fundi borgar-
stjórnar í fyrrakvöld. Fulltrúar
minnihlutans í borgarstjórn
mótmæltu harðlega vinnu-
brögðum meirihlutans í þessu
máli og lögðust eindregið gegn
þessum viðræðum og þeirri
skýrslu sem gerð var um stöðu
Bæjarútgerðarinnar og ísbjarn-
arsins þar eð hún hefði greini-
lega verið gerð með það mark-
mið í huga að sameiningin
reyndist hagkvæm.
Kristján Benediktsson borg-
arfulltrúi sagði að aðrar ástæður
en aukin hagkvæmni hlytu að
Iiggja að baki þessum samein-
ingarviðræðum. Borgarstjóri og
kunningjar hans ísbjarnarbræð-
urnir Jón og Vilhjálmur Ingv-
arssynir hefðu ósköp einfaldlega
ákveðið að sameina þessi fyrir-
tæki því það væri í samræmi við
stefnu núverandi meirihluta að
vilja losna við BÚR, og ísbjarn-
arbræðurnir væru í vandræðum
með rekstur fyrirtækis síns. Þeir
hefðu grætt mikið á síldarævin-
týrinu og hefðu ekki viljað horfa
upp á eignir sínar brenna upp.
„Þess vegna hefur þeim þótt
hagkvæmt að stofna nýtt fyrir-
tæki með borginni. Þeir létu
Mosfellssveit:
Dagheimilið Hlíð
opnað í dag
■ Barnaheimilið Hlíð í Mos- að fá starfsfólk á heimilið,
fellssveit verður opnað opinber-
lega í dag. Fyrir nákvæmlega
tveim árum var fyrsta skóflu-
stungan tekin af þessari 430
fermetra byggingu. Það voru 50
börn af leikskóla MosfellssveiF
ar, sem tóku skóflustunguna. í
Hlíð verða starfræktar tvær dag-
vistardeildir fyrir 34 börn og ein
leikskóladeild fyrir 20 börn á
morgnana og jafn mörg eftir
hádegið. Alls munu því 74 börn
fá pláss í nýja húsinu.
Að sögn Páls Guðjónssonar,
sveitarstjóra, hefur gengið vel
reyndar hafa ekki fengist fóstr-
ur í öll störf sem þyrfti en góð
von er til að úr því rætist um
áramótin. Dagvistardeildirnar
leysa af hólmi dagvistarrekstur,
sem var í leiguhúsnæði, sem
Samtök Iamaðra og fatlaðra
eiga í Mosfellsdal. Dagvistar-
plássin hafa því ekkert aukist í
sveitinni, hinsvegar eru leik-
skóladeildirnar bein aukning.
Fyrir er einn leikskóli með
sameiginlega lóð við Hlíð. Þrátt
fyrir það eru biðlistar í gangi, en
þeir eru styttri miðað við fólks-
fjölda en í Reykjavík.
einhverjar eignir í fyrirtækið og
þar með væru þeir lausir allra
mála því ábyrgðin lendir venju-
lega á stærri aðilanum - þ.e.
BUR. Borgarsjóður er því í
raun og veru að þjóðnýta ís-
björninn á silfurfati.“ Og um-
hyggja Sjálfstæðisflokksins fyrir
ákveðnum ættum væri engin ný
bóla.
Sigurjón Pétursson Alþýðu-
bandalaginu og Sigurður E.
Guðmundsson Alþýðuflokki
töldu að meirihlutinn hefði frá
upphafi kjörtímabilsins stefnt
að því að Ieggja BÚR niður.
Sigurjón spurði hvort öll fyrir-
tæki þar á meðal BÚR gætu
• ekki verið rekin sæmilega miðað
við skilyrðin sem fram koma í
skýrslunni um hagkvæmni við
samruna fyrirtækjanna tveggja,
því ekkert benti til þess að
sameiningin hefði einhverja
kosti fram yfir það að sérstakt
átak yrði gert í rekstri BÚR.
Sigurður gagnrýndf alla máls-
meðferðina og báðir fordæmdu
þeir að beiðni Kirkjusands hf.
um að fá að vera með í við-
ræðunum hefði verið stungið
undir stól.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Kvennaframboðinu vildi vekja
athygli viðræðunefndarinnar
- sem fulltrúar Kvennafram-
boðs og Alþýðuflokks hafa ekki
fengið sæti í - að sú aukna
sérhæfing sem ■ gert væri ráð
fyrir í skýrslunni þýddi það að
starfsfólki yrði fækkað og störf
yrðu öll einhæfari. Sterk fylgni
væri milli einhæfrar vinnu og
streitu.
Albert Guömundsson Sjálf-
stæðisflokki sagði að að sínu
mati snérust þessar deilur um
málsmeðferðina en ekki um við-
ræðurnar milli fyrirtækjanna.
Hann gerði að tillögu sinni að
þessum umræðum yrði frestað,
því ráðist hefði verið harkalega
á borgarstjóra sem gæti ekki
svarað fyrir sig þar eð hann væri
erlendis. Tillaga Alberts var
felld með öllum atkvæðum
meirihlutans nema hans sjálfs
og því sté Albert í annað sinn í
pontu og krafðist þess að fulltrú-
.ar meirihlutans svöruðu ásök-
unum Kristján Benediktssonar
um að Sjálfstæðisflokkurinn
hyglaði sérstökum ættum. Ingi-
björg Rafnar, Sjálfstæðisflokki
sté þá í pontu og sagðist ekki
ansa þessari vitleysu, hvenær
hefði Albert byrjað að taka
mark á fullyrðingum Kristjáns
Benediktssonar og Sigurjóns
Péturssonar um að flokkurinn
bæri hag vissra ætta öðrum
fremur fyrir brjósti. Albert kom
þá aftur upp og sagði að Ingi-
björg hefði sýnt af sér fádæma
hroka, hann sjálfur hefði alltaf
tekið mark á fulltrúum minni-
hlutans og borið virðingu fyrir
skoðunum þeirra þótt hann væri
nú kannski ekki sammála þeim.
Gæðaeftirlit
með bensíni
- samningur undirritaður í gær
■ Félag íslenskra bifreiðaeig-
enda og olíufélögin á íslandi
gerðu með sér samning í gær,
um hlutlaust eftirlit FIB með
bifreiðabensíni því sem félögin
hafa til sölu. Tilefni þessa samn-
ings eru kvartanir bifreiðaeig-
enda vegna lélegs bensíns sem
selt er hérlendis.
Rannsóknirnar sem FÍB mun
fylgjast með eru margvíslegar
og tæknilega flóknar eftir því.
Það er þó einkum tvennt sem
rætt hefur verið um á síðustu
tímum. Það er blýinnihald í
bensíni og oktan-innihald. Inn-
an þriggja mánaða verður merkt
á bensíndælur á bensínstöðuv-
um, hvert oktan-innihald
bensínsins er. Samningurinn
sem undirritaður var gildir til
eins árs.
Að sögn forstjóra olíufélag-
anna sem undirrituðu samning-
inn hafa þessar rannsóknir verið
framkvæmdar að mestu af olíu-
félögunum, en nú verður sú
nýbreytni á að fjórum sinnum á
ári mun FÍB koma óvænt og
taka sýni úr þeim dælum sem
eru í notkun á bensínstöðvum.
Einnig eru tekin sýni úr birgða-
tönkum erlendis þannig að upp-
lýsingar munu verða fyrirliggj-
andi um hvernig bensín eráleið
til landsins. Auðheyrt var á
forstjórunum að ekki eru líkur
á því að íslendingar fái „súper"
bensín í bráð, ef einhverntíma.
Það var samdóma álit for-
stjóranna að með þessum samn-
ingi væri verið að eyða þeirra
tortryggni sem gætt hefur meðal
bifreiðaeigenda, í garð bensíns-
ins sem er til sölu.
Stelpa eða strákur
skiptir ekki máli?
Dagskrá um jafnréttið í Kennslumiðstöðinni
Itið í reynd. Mynd úr hinu nýja námsefni um jafnréttismál.
Hvernig er jafnréttinu varið
í skólunum?
Fá stelpurnar hrós fyrir að
vera þægar og góðar en strákarn-
ir hrós fyrir að vera ákveðnir og
djarfir? Hvers vegna?
Mismuna kennarar nemend-
um eftir kynjum og þá hvernig
og hvers vegna?
Hvernig er fjallað um konur
og karla í skólábókunum?
Um þetta og margt fleira
verður fjallað á dagskrá sem
jafnréttisnefndir á höfuðborgar-
svæðinu, Námsgagnastofnun og
margir fleiri aðilar standa fyrir í
Kennslumiðstöðinni dagana
21.-27. september.
Þarna kennir margra grasa og
er þar efst á blaði kynning
Sigríðar Jónsdóttur námsstjóra
á nýju námsefni um jafnréttis-
mál handa skólum, sem kemur
út fljótlega.
Þetta er fyrsta námsefni sinn-
ar tegundar hér á landi að sögn
Elínar Flygenring lögfræðings
jafnréttisráðs.
Þetta nýja námsefni um jafn-
réttismál skiptis í aðalatriðum í
þrjá þætti.
Sá fyrsti er undir heitinu
Stelpur, strákar og starfsval.
Þetta er myndskreyttur bækl-
ingur eftir Gerði Óskarsdóttur
æfingastjóra og skiptist hann í
þrjá kafla; Staðreyndir tala,
Hefðirnar móta og Er hægt að
breyta?
Þessir kaflareru aðallega fyrir
elsta stig grunnskólans og með
þeim eru verkefni sem snúa
einkum að atvinnulífinu.
Annar þáttur námsefnisins
ber heitið Stelpur - Strákar.
Jafngildir einstaklingar. Þetta
er 40 mynda litskyggnuflokkur.
Hann er ætlaður 8-10 ára börn-
um og með myndaflokknum
fylgja verkefni og skýringar-
bæklingur.
Þriðji þáttur þessa nýja náms-
efnis er í raun ekki námsefni
heldur stór.askja sem er sérstak-
lega hönnuð fyrir skólabóka-
söfn og er ætluð til að safna og
varðveita efni um jafnréttismál.
Aðstandendur þessarar
dagskrár fagna sérstaklega út-
21.-27. september
gáfu þessa jafnréttisefnis og
Björg Einarsdóttir formaður
jafnréttisnefndar Reykjavíkur
sagði að útgáfan væri í raun
tímamót og gæfi fyrirheit um að
meira verði fjalíað um jafn-
réttismál í skólum í framtíðinni.
Þorbjörn Broddason flytur
erindi um jafnréttismál, mennt-
un og skólastarf á laugardag og
á sunnudag flytur Þuríður
Jóhannsdóttir erindi um Kon-
una-söguna og bókmenntir í
skólanum á sunnudag. Á mánu-
dag flytur Kristín Jónsdóttir
erindi um strákana og stelpurn-
ar í skólabókunum og á fimmtu-
dag mun Dóra Bjarnason flytja
erindi um rannsóknir í uppeldis-
og félagsvísindum.
Þarna verður að sjálfsögðu
margt fleira á boðstólum og
rúsínan í pylsuendanum verður
jafnréttisspilið Framabrautir
sem tveir þjóðkunnir íslending-
ar karl og kona munu spila. Að
sögn aðstandenda sýningarinn-
ar eru allir velkomnir á dag-
skrána meðan húsrúm leyfir.
GÓÐ GREIÐSLUKJÖR
Fyrir utan gæði og tímasparnað fást Raðveggir á einhverjum bestu greiðslukjörum
á markaðinum í dag.
R A Ð
V E G G I R
Sölustaðir
Reykjovik
Innréningamidstodin
- Armula 17o
Simar 91-84585 84461
. Akranes
Guðlougur Mag'nússon
Skarösbraut 19
Sí’mi 93-2651
Siglufjöröur
Bútur hf.
Pónargófu 16
Sími 96-71333
Akureyri
Bynor
Glerórgótu 30
.Simi'96-26449.
Bgilsstaöir
Trésmiðj'a Fljótsdalshéraðs
Fellabœ
Simt 97-1700
Neskaupstaöur
V'plmi nf
B-gótu 3
Simi 97-7605
Vestmannaeyjar
Bnmnes
Sirandvegi 54
Simi 98-1220
Selföss
G Á Böðvarssón
Austurvegi 15
Sími 99-1335
Keflavik
Byggingaval
Iðavöllum 10
Sími 92-4500
FJALAR h/f
Húsavík
Sími 96-41346