NT - 21.09.1985, Side 18

NT - 21.09.1985, Side 18
tlRARIK ^ RAFMAGNSVEITUR RlKISINS Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir að ráða starfsmann til starfa á framkvæmdaáætlana- deild stofnunarinnar. DEILDARSTJÓRI Starfið er fólgið í stjórn framkvæmdaáætl- anadeildar, m.a. gerð 2ja og 5 áraframkvæmda- áætlana, kerfisathugunum og hagkvæmnis- athugunum. Hér er um fjölbreytt og sjálfstætt starf að ræða sem krefst alhliða þekkingar á raforkukerfum. Leitað er að aðila með próf í raforkuverk- fræði/ - tæknifræði eða aðila með sambæri- lega menntun. Upplýsingar um starfið veitir yfirverkfræðing- ur áætlanadeildar, tæknisviðs RARIK í síma 91-17400. Umsóknum er greini menntun og fyrri störf ber að skila til starfsmannadeildar Rafmagns- veitna ríkisins, fyrir 1. október 1985. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi118 105 Reykjavík |C| St. Jósefsspítali Landakoti Lausar stöður Fóstra óskast til afleysinga í í vetur á dagheimili fyrir börn á aldrinum 3ja til 6 ára. Einnig vantar starfsmann á dagheimilið. Upplýsingar í síma 19600-250, milli kl. 09.00-16.00. Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræðingar óskast á lyflækninga- deildir l-A og ll-A, handlækningadeildir l-B og ll-B, barnadeild, svæfingadeild og gjör- gæslu. Boðið er upp á aðlögunarkennslu fyrstu vikurnar. Sjúkraliðar Sjúkraliðar óskast til starfa á allar vaktir við eftirtaldar deildir: Lyflækningadeild ll-A, Handlækningadeildir l-B og ll-B. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist hjúkrunarforstjóra sem veitir nánari upplýsingar í síma 19600 - 220 - 300, alla virka daga. Reykjavík 20.9 1985. ^ St. Josefsspítali Landakoti Piltar eða stúlkur óskast til ýmissa starfa á Landakotsspítala. Góður starfsandi Upplýsingar gefur ræstingastjóri í síma 19600-259, virka daga. Reykjavík 19.9 1985. Dagmæður vantar Ennþá er mikill skortur á dagmæðrum hér í borginni. Á það við um öll hverfi nema í Árbæ og mestan hluta Breiðholtshverfa. Þó er vöntun á þessari þjónustu í Bakkahverfi í neðra Breiðholti. Þeir sem gætu og vildu sinna þessum störfum vinsamlegast hafið samband sem fyrst. Umsjónarfóstrur með dagvist barna á einkaheimilum Njálsgötu 9, símar 22360 og 21596. mrr Laugardagur 21. september 1985 18 LlI Minning Ingimundur Ásgeirsson Fæddur 13. apríl 1912 Dáinn 11. september 1985. Ingimundur Ásgeirsson er fallinn að foldu. Með honum er til moldar hniginn einn merkasti Borgfirðingur okkar tíma, óvenju frjór og fjölhæfur gáfu- maður og menningarfrömuður, sem markaði þau spor á vett- vangi menningar-og félagsmála, er seint munu mást og hverfa. Ingimundur Ásgeirsson var fæddur á Reykjum í Lundar- reykjadal hinn 13. apríl árið 1912. Foreldrar hans voru Ás- geir Sigurðsson, bóndi á Reykj- um, ættaður frá Efstabæ í Skorradal, og kona hans, Ing- unn Daníelsdóttir frá Kolugili í Víðidal. Heimili þeirra var mik- ið menningarheimili og þau hjónin bæði gædd miklurn mannkostum og góðum gáfum. Má í því sambandi vitna til orða Kristleifs Þorsteinssonar, fræði- manns, sem lét svo ummælt, að „hver sveit og sýsla myndi telja sér það til sæmdar að eiga þeirra líka að vitsmunum og mann- kostum“. Ingimundur var yngstur fimm bræðra. Hann ólst upp hjá for- eldrum sínum og átti heima á Reykjum til 1943. Hann stund- aði nám í Héraðsskólanum á Laugum, en bestu menntunina hlaut hann í heimahúsum, enda var móðir lians kennari. Hann var ágætlega sjálfmenntaður og svo fróður og minnugur, að fágætt er. Ungur hreifst Ingi- mundur af hugsjón ungmennafé- laganna. Heilshugar skipaði hann sér í hóp hinna frjálsu og víðsýnu vormanna, sem vildu vinna að ræktun lands og lýðs, vildu standa vörð um sjálfstæði íslands, rétt þess og frelsi, hefja nýja framfarasókn í landinu og auka hag og hamingju þjóðar- innar. Ingimundur starfaði vel og lengi í Ungmennafélaginu Dagrenningu í Lundarreykjadal og átti sæti í stjórn félagsins í nærri 20 ár, þar af formaður í meira en helming þess tíma. Hann átti um skeið sæti í stjórn Ungmennasambands Borgar- fjarðar og var í hópi þeirra forystumanna sambandsins, sem höfðu með höndum undir- búning, stjórnun og framkvæmd landsmóts ungmennafélaganna á Hvanneyri árið 1943. Ingimundur Ásgeirsson var gæddur brennandi áhuga, hug- sjónaeldi og starfsgleði vor- mannsins og vildi skila öllu, sem hann lagði hönd að og honum var trúað fyrir til meiri vaxtar og grósku. Hann tók mikinn þátt í félagslífi oggegndi margþættum trúnaðarstörfum fyrir sveit sína og hérað. Skal nokkurra þeirra starfa getið hér. Ingimundur átti sæti í hrepps- nefnd Lundarreykjadalshrepps í sex ár og síðan í hreppsnefnd Reykholtshrepps í 20 ár, sat í sýsíunefnd í 20 ár og var endur- skoðandi hrepps- og sýslureikn- inga Borgarfjarðarsýslu í 24 ár. Hann átti sæti í stjórn Andakíls- árvirkjunar frá upphafi og til 1978, var um skeið formaður Ræktunarsambands Borgar- fjarðar og Búnaðarsambands Borgarfjarðar, átti sæti á Bún- aðarþingi í 20 ár og var fulltrúi á fundum Stéttarsambands bænda um langt skeið. Bænda- stéttin átti traustan og einarðan málsvara, þar sem Ingimundur var. Svo var og með Samvinnu- hreyfinguna. Hugsjónir félags- hyggju og samvinnu voru runn- ar honum í merg og bein. Hann átti sæti í stjórn Kaupfélags Borgfirðinga í 15 ár. Þá var hann um skeið í miðstjórn Framsóknarflokksins og skipaði sæti á fyrsta framboðslista flokksins í Vesturlandskjör- dæmi haustið 1959. Ingimundur Ásgeirsson vann ómetanlegt starf á sviði borg- firskrar menningar og var f fararbroddi þeirra Borgfirð- inga, sem mest og best hafa stuðlað að geymd og varðveislu menningararfsins. Hann var einn aðalforgöngumaðurinn um stofnun Héraðsskjalasafns og Byggðasafns Borgarfjarðar og sat í stjórnum þeirra. Pá varhann: einn af hvatamönnum um stofn- un Sögufélags Borgarfjarðar árið 1963 og sat í stjórn þess til 1977. Hann lét málefni félagsins mjög til sín taka og veitti því margþættan stuðning, til dæmis við lestur handrita af Borfirsk- um æviskrám, sem nú hafa kom- ið út í sjö stórum bindum. Hann var manna ættfróðastur og hafði svo óbrigðult minni, að upplýs- ingum hans og ábendingum mátti ávallt treysta. Fyrir mikil og fórnfús störf hans í þágu Sögufélagsins er honum vottuð einlæg virðing og alúðarþökk okkar, sem erum í forsvari fyrir félagið. Ingimundur var ágætlega rit- fær og fékkst talsvert við fræði- störf og andlega iðju. Síðustu árin vann hann við ritun ábú- andatals allra borgfirskra býla í hundrað ár, frá 1880-1980. Hann hafði að fullu lokið því verki og verður það vonandi gefið út sem fyrst. Par er að finna geysimikinn fróðleik á sviði mannfræði og byggðasögu Borgarfjarðar. Ingimundur var miöe traustur og vandaður fræðimaður og er skaði, að hon- um skyldi ekki gefast meiri tími og lengra líf til fræðistarfa. Ingi- mundur var málnæmur og hafði mjög gott vald á móðurmálinu. Hann var góður ræðumaður, mælskur og rökfastur, enda skarpgreindur, glöggur og gjör- hugull og fljótur að átta sig á eðli og kjarna hvers máls. - Hér að framan hef ég getið margra starfa Ingimundar á sviði félags- og menningarmála, og er þó ekki nærri allt upp talið. Oll þessi störf leysti hann af hendi af einstökum áhuga, trúmennsku fórnfýsi og alúð. Enn er þó ógetið aðalævistarfs hans, en hann var fyrst og fremst bóndi og sannur fulltrúi hinna grónu og göfugu bænda- menningar, eins og hún best hefur verið í byggðum þessa lands. Hinn 11. desember árið 1942 kvæntist Ingimundureftirlifandi eiginkonu sinni, Ingibjörgu Guðmundsdóttur bónda á Hæli í Flókadal Bjarnasonarog konu hans, Helgu Jakobsdóttur frá Varmalæk í Bæjarsveit. Vorið eftir hófu þau búskap á Hæli og bjuggu þar upp frá því í nánu samstarfi og sambýli við Jakob Guðmundsson, bróður Ingi- bjargar. Hefur samstarf þeirra verið gott alla tíð og til fyrir- myndar. Heimilið á Hæli er gróið menningar- og rausnar- heimili. Ingimundur var góður og ötull bóndi, framsýnn og framtakssamur. Hann var rækt- unarmaður, sem vildi hjálpa hinni frjóu og gjöfulu móður- mold til að gróa og gefa ávöxt, en einnig að plægja akur bræðralagsins og bera með sér áhrif góðvildar, vináttu og drengskapar, hvar sem sporin lágu. Hann var hjálpfús og vel- viljaður, stakur reglumaður og í hvívetna valmenni og drengur góður. Þau hjónin, Ingimundur og Ingibjörg, eignuðust fjögur börn, sem öll eru á lífi og gædd góðum gáfum og mannkostum. Þau eru: Björk, skjalavörður við Þjóðskjalasafn íslands, bú- sett í Reykjavík. Ásgeir, húsa- smiður í Ytri-Njarðvík, kvænt- ur Sigríði Björgu Guðbergs- dóttur. Ingunn, stúdent og hús- freyja LReykjavík, gift Stefáni Bergmann Matthíassyni, lækni. Helga, húsfreyja og skrifstofu- maður, búsett í Kópavogi, gift Þorvarði Inga Þorbjarnarsyni, vélstjóra. Ingimundur Ásgeirsson átti við vanheilsu að stríða síðustu árin. I sumarvarljóst, að hverju dró, og mun hann hafa gert sér þess fulla grein sjálfur. Síðasta áhugamál hans og verkefni, sem hann vann að, voru á sviði kirkjumála. Hann hafði for- göngu um að safna fé til kaupa á skírnarfonti fyrir Lundar-. kirkju, kirkju æskusveitarinnar, sem hann ávallt unni og þar sem hann kaus sér hinsta hvílustað. Snemma á þessu ári ritaði Ingimundur mér bréf, þar sem hann kom á framfæri þeirri hugmynd sinni og tillögu, að í tilefni þúsund ára afmælis kristni- tökunnar yrði fengin land- spilda og komið upp trjálundi umhverfis Krosslaug (Reykja- laug) í Lundarreykjadal þarsem Vestlendingar og Vestfirðingar voru skírðir til kristinnar trúar, er þeir sneru heim frá kristni- tökunni á Alþingi árið þúsund. Lagði hann og til, að við laugina yrði komið upp minnismerki, t.d. krossmerki með viðeigandi áletrun. Hét Ingimundur á mig sem prófast að beita mér fyrir máli þessu við biskup og kirkju- yfirvöld. Síðan þetta var, hefur Ingimundur oft haft samband við mig, bæði bréflega og símleiðis, síðast í byrjun ágúst, þar sem hann hvatti til, að þegar yrði hafist handa og var með hug- myndir um fjármögnun. Um sama leyti fór hann á vettvang, þá fársjúkur. Síðasta ferð hans um Borgafjörð var að Kross- laug, þar sem hann markaði fyrir reit, sem hann vildi, að yrði græddur skógi og merktur krossi til minningar um kristni- tökuna, merkasta atburðinn í menningarsögu íslands. Méri þykir vænt um, að þetta skyldi vera hans síðasta ósk og áhuga- mál á sviði menningarmála þessa héraðs. Eg mun eftir því sem í mínu valdi stendur vinna að framgangi þessa góða máls og heiti á unnendur kristinnar krikju og kristins menningararfs að leggja því lið. Ég bið Guð að blessa minn- ingu þessa sanna íslendings, þessa góða sonar Borgarfjarðar, góðs vinar og göfugmennis. Eig- inkonu hans og börnum, bræðr- um hans og öðrum ástvinum votta ég einlæga samúð. Jón Einarsson, Saurbæ. í dag fylgja Borgfirðingar Ingimundi Ásgeirssyni bónda að Hæli í Flókadal til grafar frá Lundarkirkju í Lundarreykja- dal. Kveðja þeir þar einn mæt- asta bónda þessa héraðs. Ingimundur var fæddur að Reykjum í Lundarreykjadal þann 13. apríl 1912. Hann var sonur hjónanna Ásgeirs Sig- urðssonar bónda á Reykjum og konu hans Ingunnar Daníels- dóttur. Hann hlaut í arf afburða gáfur og óbrigðult minni, og ólst upp á heimili foreldra sinna þar sem búvit og bókleg menntun voru höfð í hávegum. Ingimundur kvæntist Ingi- björgu Guðmundsdóttur frá Hæli í Flókadal. Hófu þau bú- skap á Hæli árið 1943 í félagi við Jakob bróður Ingibjargar. Bú- skapur þeirra var farsæll því dugnaður, hyggindi og sam- viskusemi voru ríkjandi við bústörfin. Ég kynntist Ingimundi fyrst á þingi Ungmennasambands Borgarfjarðar. Hann var þar sjálfkjörinn sem fundarstjóri vegna mannkosta sinna. Þá, eins og jafnan á hans lífsferli kom glöggt fram hve hann var skarpur að greina aðalatriði í hverju máli og hversu ríka áherslu hann ætíð lagði á skýra og lýtalausa framsetningu á ís- lensku máli. Ingimundur kom snemma að félagsmálum og gegndi mörgum trúnaðarstörfum fyrir sveit sína og hérað, fyrst í Ungmennafé- laginu Dagrenningu og síðan í ýmsum sveitarstjórnarmálum í Lundarreykjadal og síðar í Reykholtsdalshreppi. Hann var einn helsti forgöngu- maður í félagsmálum borg- firskra bænda um 30 ára skeið og beitti sér fyrir flestum fram- faramálum á þeim vettvangi; sem formaður Ræktunarsam- bands Borgarfjarðar 1951-1952, formaður Búnaðarsambands Borgarfjarðar 1957-1961, full- trúi á Búnaðarþingi 1958-1978, fulltrúi á aðalfundum Stéttar- sambands bænda 1964-1982, í stjórn Kaupfélags Borgfirðinga 1958-1973. Ingimundur var með afbrigð- um reikningsglöggur. Honum voru því falin margvísleg störf á sviði reikningsfærslu og endur- skoðunar. Hann var um árabil endurskoðandi hreppsreikninga Borgarfjarðarsýslu, og endur- skoðandi Búnaðarfélags íslands og Bændahallarinnar. Hann var í stjórn Andakílsvirkjunar og gjaldkeri þar um árabil. Það er ekki á mínu færi að rekja öll störf Ingimundar að félagsmálum eða geta þeirra svo sem verðugt er. Þau verða ekki fullþökkuð. Hann var með afbrigðum starfsamur maður og hafði lifandi áhuga á menning- armálum. Ingimundur var einn aðal- hvatamaður að stofnun Sögufé- lags Borgarfjarðar og gjaldkeri þess fyrstu árin. Hann var fræði- maður. Hann vann mikið að útgáfu Borgfirskra æviskráa og ættfræðirannsóknum í því sambandi. Hann var um langt árabil markavörður og sá um útgáfu markaskráa fyrir Borg- arfjarðarsýslu. Nú um nokkur ár hefur verið unnið að gerð byggðalýsingar í Borgarfjarðarhéraði á vegum Búnaðarsambands Borgarfjarð- ar. Ingimundur var einn aðal- hvatamaður að því að það verk var hafið. Hann lauk við handrit að ábúendatali allra jarða í Borgarfjarðarhéraði s.l. 100 ár, sem ætlað er til birtingar í þessu væntanlega riti. Þar vann hann með sinni kunnu nákvæmni og samviskusemi ómetanlegt verk. Þegar ég hugsa um starfsferil Ingimundar finnst mér sem hann muni ekki hafa verið ein- hamur. Honum fylgdi sá kraftur sem dugði til að koma framfara- málum áfram. Hann var í lífi sínu dyggilega studdur af fjölskyldu sinni sem ég votta mína innilegustu samúð og bið allrar blessunar. Af hálfu stjórnar Búnaðar- sambands Borgarfjarðar vil ég færa fram þakkir fyrir hin marg- víslegu störf sem Ingimundur á Hæli vann í þágu borgfirskra bænda, störf sem seint verða fullþökkuð eða metin svo sem verðugt er. Ingimundur háði baráttu við vanheilsu síðustu misserin. Dánardægur hans var þ. 11. sept. s.l. Blessuð sé minning hans. Hún lifir. Bjarni Guðráðsson

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.