NT - 21.09.1985, Side 27
Útvarp — sjónvarp
Laugardagur 21. september 1985 27
■ Jane Fonda og Mildred Narwick, sem leika mæðgur í
myndinni „Berfætt úti í garði.“
Sjónvarp
Berfætt úti í garði
- Bandarísk gamanmynd
■ Laugardagsmyndin heitir
Berfætt úti í garði (Barefoot in
the Park), og er bandarísk
gamanmynd frá árinu 1967.
Leikstjóri er Gene Saks en
með aðalhlutverk fara Robert
Redford, Jane Fonda, Charles
Boyer og Miidred Narwick.
Myndin fjallar um hjónin
Corie og Paul Bratter, sem eru
nýgift og yfir sig ástfangin. Þau
taka á leigu íbúð í heldur
hrörlegu húsi í New York.
Margt fer síðan brátt að bjáta1
á í búskapnum, enda hjónin
ekki á eitt sátt hvern lífsmáta
þau velja eða hvað það er sem
gefur lífinu gildi.
Áleitinn nágranni og
tengdamamma hafa líka sitt til
málanna að leggja, en ekki er
það til að bæta ástandið.
Þýðandi er Ragna Ragnars.
Sjónvarp;
Með kveðju til
Breiðstrætis
■ íkvöldkl. 21.10 niunsjón-
varpið sýna breska tónlistar og
heimildarmynd um Paul
McCartney fyrrurn bítil, og
gerð síðustu kvikmyndar hans
„Give my regards to Broad
street" eða Með kveðju til
Breiðstrætis. Handrit myndar-
innar er skrifað af McCartney
sjálfum og leikstýrði hann ein-
nig myndinni. í þessari mynd
fá áhorfendur að heyra mörg
gömul og góð lög gamla bítils-
ins s.s. „Elanor Rigby“, „For
no one“, og „No more lonely
nights".
■ Paul McCartney fyrrverandi bítill en myndin í kvöld mun
fjalla um gerð myndar hans „Með kveðju til Breiðstrætis“.
Sjónvarp kl. 22.45: Sjónvarp mánudag ■ ■
Samtímaskáldkonur
um sænska rithöfund-
inn Birgittu Trotzig
■ í áttunda þætti úr flokkn-
um Samtímaskáldkonur, í
kvöld verður rætt við sænska
rithöfundinn Birgittu Trotzig
og lesið úr verkum hennar.
Birgitta Trotzing er ein af
vinsælustu rithöfundum Svía.
Hún kom fyrst fram árið 1951,
rúmlega tvítug, og hefur síðan
gefið út um fimmtán bækur.
Ein af hennar þekktustu sög-
um er skáldsagan Sjúkdómur-
inn, sem hefur verið kvik-
mynduð í fullri lengd og er
nafnið á myndinni Keisarinn.
Rætt verður um bókina Sjúk-
dóminn í þættinum í kvöld,
ásamt öðrum verkum skáld-
konunnar.
■ Rætt verður við sænsku •
skáldkonuna Birgittu Trotzig í
þættinum Samtímaskáldkon-
um.
Þýðandi er Jóhanna Þráins-
dóttir.
Sjónvarp kl. 19.
■ í kvöld verður bein útsending frá Bach tónleikum í Þýska-
landi. Á myndinni er Tómasarkirkja og skóli í Leipzi g, þar sem
Bach var iengi hljómlistarstjóri.
Bachhátíð í Stuttgart
- Bein útsending
■ í borginni Stuttgart er nú
haldin alþjóðleg tónlistarhátíð
til að minnast þriggja alda
afmælis Johanns Sebastians
Bachs.
Lokakvöldið, sunnudaginn
22. september. verða haldnir
Bachtónleikar á sjö stöðum i
borginni. Frægir kórar, hljóm-
sveitir, einleikarar og einsöng-
varar frá ýmsum löndum flytja
verk eftir Johann Sebastian
Bach.
Þýska sjónvarpið sýnir kafla
úr hverjum tónleikum í beinni
útsendingu sem endurvarpað
verður um gervihnött til
íslands.
Kynnir er Helmut Rilling
söngstjóri.
Hunangsilmur
- breskt leikrit í sænskri uppfærslu
■ Á mánudagskvöld kl.
21.15 mun sjónvarpið sýna
leikrit eftir bresku skáldkon-
una Shelagh Delaney, í upp-
færslu sænska sjónvarpsins, og
heitir það Hunangsilmur (En
doft af honung).
Leikstjóri er Gun Jönsson
en með aðalhlutverk fara:
Claire Wikholnt, Inga-Lill
Andersson, Kjell Bergqvist og
Per Erik Liljegren.
Mæðgurnar Helen og Jo eru
einar í heimili og er samband
þeirra oft stormasamt. En Hel-
en finnur sér ríkan mann, flyst
til hans og skilur dótturina
eina eftir. Jo verður vanfær
eftir sjómann sem síðan hverf-
■ Jo (Inga-Lill Andersson)
og sjómaðurinn í Hunangsilmi.
ur á brott. Þegar frarn líða
stundir eignasthún þó sam-
býlismann.
Þýðandi er Jóhanna Þráins-
dóttir.
Frá Rúvak:
Náttfari
■ „Að þessu sinni ætla ég að
spjalla við Sigurð Þorgeirsson
ljósmyndara á Akureyri, en
hefur verið með ljósmynda-
stofu Studio Effect í Reykja-
vík,“ sagði Gestur Einar Jón-
asson um þátt sinn Náttfara
sem er kl. 22.35 í kvöld frá
Rúvak.
„Sigurður er að flytja til
Frakklands á næstunni, en þar
hefur hann búið áður, eftir að
hann hafði lært Ijósmyndun í
Englandi. Við ræðum um allt
milli himins og jarðar og inn á
millj spila ég létt lög, líklega þá
frönsk, því við ræðum eflaust
fer Sigurður til Frakklands og
hvað hann ætlar að hafa fyrir
stafni þar:„
Utvarp
Göngur og réttir
B A laugardaginn kl. 21.00 á
Rás 2, verður klukkustundar
langur þáttur sem nefnist
Göngur og réttir. í þættinum
verða leikin lög sem á einn eða
annan hátt tengjast smala-
ntennsku og réttastemning-
unni, en þessa dagana standa
göngur og réttir einmitt sem
hæst.
Stjórnandinn Ragnheiður
Davíðsdóttir, var á ferð í
Húnavatnssýslum fyrir
skömrnu, og brá sér í sniala-
mennsku með bændum norður
þar. Húnvetningarvoru hressir
eins og ævinlega og spjallaði
Ragnheiður við nokkra fjall-
kónga oggangnamenn um rétt-
ir fyrr og nú.
Laugardagur
21. september
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn.
Tónleikar, Þulur velur og kynnir.
7.20 Leikfimi. Tónleikar.
7.55 Daglegt mál. Endurtekinn þátt-
ur Guðvarðar Más Gunnlaugsson-
ar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgunorð -
Bernharður Guðmundsson talar.
8.15 Veðurfregnir. Tónleikar.
8.30 Forustugreinar dagblaðanna
(útdráttur). Tónleikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ.
Stephensen kynnir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
Óskalög sjúklinga frh.
11.00 Drög að dagbók vikunnar.
Umsjón: Páll Heiðar Jónsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
14.00 Inn og út um gluggann.
Umsjón: Sverrir Guðjónsson.
14.20 Listagrip Þáttur um listir og
menningarmál í umsjá Sigrúnar
Björnsdóttur.
15.20 „Fagurt galaði fuglinn sá“
Umsjón: Sigurður Einarsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Siðdegistónleikar. a. „Arp-
eggione", sónata í A-dúrfyrir selló
og píanó eftir Franz Schubert.
Gisela Depkat og Raffi Armenian
leika. b. Strengjakvartett í D-dur K.
173 eftir Wolfgang Amadeus
Mozart. italski kvartettinn leikur.
c. Fjórir kontradansar eftir Ludwig
van Beethoven. Eduard Melkus
stjórnar kammersveit sinni.
17.05 Helgarútvarp barnanna
Stjórnandi: Vernharður Linnet.
17.50 Síðdegis í garðinum með
Hafsteini Hafliðasyni.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Þetta er þátturinn. Umsjón:
Örn Árnason og Sigurður Sigur-
jónsson.
20.00 Harmoníkuþáttur Umsjón:
Högni Jónsson.
20.30 Útilegumenn Þáttur Erlings
Sigurðarsonar. RÚVAK.
21.00 Kvöldtónleikar Þættir úr sí-
gildum tónverkum.
21.40 Ljóð, ó, Ijóð Þriðji og síðasti
þáttur um íslenska samtímaljóð-
list. Umsjón: Ágúst Hjörtur og
Garðar Baldursson.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Náttfari - Gestur Einar Jónas-
son. RÚVAK.
23.35 Eldri dansarnir.
24.00 Fréttir.
00.05 Miðnæturtónleikar Umsjón:
Jón Örn Marinósson.
00.55 Dagskrárlok.
Næturútvarp frá RÁS 2 til kl. 03.00.
Sunnudagur
22. september
8.00 Morgunandakt Séra Sváfnir
Sveinbjarnarson prófastur, Breiða-
bólsstað, flytur ritningarorð og
bæn.
8.10 Fréttir
8.15 Veðurlregnir. Forustugreinar
dagblaöanna (útdráttur).
8.35 Létt morgunlög
9.00 Fréttir
9.05 Morguntónleikar
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Út og suður - Friðrik Páll
Jónsson.
11.00 Messa í Lundarbrekkukirkju
•12.10 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 Fjölnir Dagskrá i tilefni af 150
ára afmæli tímaritsins Fjölnis.
Umsjón: Páll Valsson og Guð-
mundur Andri Thorsson.
14.30 Jón Leifs og þjóðleg tón-
menntastefna Dr. Hallgrímur
Helgason flytur fyrra erindi sitt.
15.10 Milli fjalls og fjöru. Á Vest-
fjarðahringnum. Umsjón: Finn-
bogi Hermannsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Þættir úr sögu íslenskrar
málhreinsunar Fjórði og síðasti
þáttur: Af nýyrðasmiðum og skóla-
málfræðingum. Kjartan G. Ottós-
son tók saman. Lesarar: Gunn-
laugur Ingólfsson og Sigurgeír
Steingrímsson.
17.00 Frá tónlistarhátíðinni í
Björgvin í vor
18.00 Bókaspjall Aslaug Ragnars
sér um þáttinn.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Tilkynning-
ar.
19.35 Tylftarþraut. Spurningaþáttur.
Stjórnandi: Hjörtur Pálsson. Dóm-
ari: Helgi Skúli Kjartansson.
20.00 S umarútvarp unga fólksins
Blandaður þáttur í umsjón Ernu
Arnardóttur.
21.00 ísienskir einsöngvarar og
kórar syngja
21.30 Útvarpssagan: „Sultur“ eftir
Knut Hamsun Jón Sigurðsson frá
Kaldaðarnesi þýddi. Hjalti Rögn-
valdsson les (15).
22.00 Veggfóðraður óendanleiki
ísak Harðarson les úr áður óprent-
uðum Ijóðum sinum.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins
22.35 Iþróttaþáttur Umsjón: Samúel
Örn Erlingsson.
22.50 Djassþáttur - Jón Múli Árna-
son.
23.35 Guðað á glugga Umsjón:
Pálmi Matthiasson. RÚVAK.
(24.00 Fréttir).
00.50 Dagskrárlok.
Lau^ardagur
21. september
16.30 (þróttir Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
19.20 Aðra hvora helgi Norsk mynd
um telpu sem kemst i erfiða að-
stööu vegna skilnaðar foreldra
hennar. gýðandi Jóhanna Jó-
hannsdóttir. (Nordvision - Norska
sjónvarpið)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Bundinn i báða skó (Ever
Decreasing Circles) Annar þáttur.
Breskur gamanmyndaflokkur í
fimm þáttum um skin og skúrir í lífi
félagsmálafrömuðar. Aðalhlut-
verk: Richard Briers. Þýðandi Ólaf-
ur Bjarni Guðnason.
21.10 Paul McCartney i Breiðstræti
Bresk tónlistar- og heimildamynd
um Paul McCartney, fyrrum bítil,
og gerð síðustu kvikmyndar hans
„Með kveðju til Breiðstrætis". Þýð-
andi Baldur Sigurðsson.
22.10 Berfætlingar í garðinum
(BarefQot in the Park) Bandarísk
gamanmynd frá 1967. Leikstjóri
Gene Saks. Aðalhlutverk: Robert
Redford, Jane Fonda, Charles
Boyer og Mildred Narwick. Nýgift
hjón taka á leigu íbúð í hrörlegu
húsi í New York. Margt bjátar á í
búskapnum enda verða ungu hjón-
in ekki á eitt sátt um hvað helst gefi
lífinu gildi. Áleitinn granni og
tengdamamma hafa líka sitt til
málanna að leggja. Þýðandi
Ragna Ragnars.
00.00 Dagskrárlok
Sunnudagur
22. september
18.00 Sunnudagshugvekja
18.10 Mér er alveg sama þó að
einhver sé að hlæja að mér.
Endursýning. Leikrit eftir Guð-
rúnu Ásmundsdóttur sem einnig er
leikstjóri. Leikendur: Guðrún Ás-
mundsdóttir, Kjartan Ragnarsson,
Soff ia Jakobsdóttir, Jóhanna Krist-
ín Jónsdóttir, Leifur Björn
Björnsson, Sigurður Guðmunds-
son og börn úr Breiðholtsskóla.
Lög: Kjartan Ragnarsson. Söng-
textar: Kjartan Ragnarsson og Páll
Ásmundsson. Áður sýnt i Stund-
inni okkar 1975. s/h.
19.00 Bachhátíð í Stuttgart - Bein
útsending i Stuttgart er nú haldin
alþjóðleg tónlistarhátíð til að minn-
ast þriggja alda afmælis Johanns
Sebastians Bachs. Lokakvöldið,
22. september, verða haldnir
Bachtónleikar á sjö stöðum í borg-
inni. Frægirkórar, hljómsveitir, ein-
leikarar og einsöngvarar frá ýms-
um löndum flytja verk eftir Johann
Sebastian Bach. Þýska sjónvarpið
sýnir kafla úr hverjum tónleikum í
beinni útsendingu sem endurvarp-
• að verður um gervihnött til islands.
Kynnir er Helmut Rilling, söng-
stjóri. (Evróvision - Þýska sjón-
varpið)
20.20 Fréttaágripi á táknmáli
20.30 Fréttir og veður
20.55 Auglýsingar og dagskrá
21.05 Sjónvarp næstu viku
21.20 Heilsað upp á fólk 16. Eyjólf-
ur Ágústsson, refaskytta í
Hvammi Rétt eftir Jónsmessu í
sumar lögðust sjónvarpsmenn á
greni við Veiðivötn ásamt Eyjólfi
Agústssyni, bónda í Hvammi í
Landssveit og Knúti, syni hans, og
ræddu við þá feðga. Umsjónar-
maöur Ingvi Hrafn Jónsson.
21.55 Njósnaskipið (Spyship) Þriðji
þáttur. Breskur framhaldsmynda-
flokkur í sex þáttum. Aðalhlutverk:
Tom Wilkinson, Lesley Nightin-
gale, Michael Aldridge og Philip
Hynd. Breskur togari með 26
manna áhöfn hverfur á Norður-ls-
hafi. Upp kemur sá kvittur að
Sovétmenn eigi sök á hvarfinu.
Ungur blaðamaður, sem er sonur
yfirvélstjóra togarans hefur rann-
sókn þessa dularfulla sjóslyss.
Ljóst er að bresku leyniþjónustunni
er ekkert um hnýsni hans gefið.
Þýðandi Bogi Arnar Finnbogason.
22.45 Samtímaskáldkonur 8. Birg-
itta Trotzig I þessum þætti er rætt
við sænska rithöfundinn Birgittu
Trotzig og lesið úrverkum hennar.
Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir.
(Nordvision - Sænska sjónvarpið)
23.30 Dagskrárlok