NT - 04.10.1985, Page 4

NT - 04.10.1985, Page 4
Föstudagur 4. október 1985 4 Leikfélag Reykjavíkur: Land míns föður og líf og fjör ■ Land míns föður, söngleik- ur Kjartans Ragnarssonar, verður frumsýndur í kvöld. Og þá færist fjör í leikinn í Iðnó því leikurinn segir á léttan og skemmtilegan hátt frá deginum 10. júní 1940 og þeim misserum sem á eftur fóru þegar þjóðin stökk út úr bændasamfélaginu og inn í aðra veröld auðs og Iffsgæða. Tugir þúsunda er- lendra hermanna tvöfölduðu íbúatölu Reykjavíkurogdreifð- ust að auki út um allt land. Og með þeim komu peningar, vinna og lífsgæði... Söngleikurinn segir sögu einnar fjölskyldu, leikurinn hefst á trúlofun og endar á giftingu. En ýmislegt gerist í millitíðinni, hernám, stríðsbrask, ástand, bretavinna, koma Bandaríkjamanna og einnig er sögð saga íslenskra stjórnmála sem leiddu til sjálf- stæðis þann 17. júní 1944. Þann dag sleit landið sig endanlega undan áhrifavaldi Dana og fólk fagnaði frelsi í skugga mestu styrjaldar sögunnar. Menn létu það þó ekki á sig fá og það segir sína sögu að sú styrjöld sem drap tugmilljónir manna var á íslandi af mörgum kallað „Blessað stríðið*' því einmitt þetta stríð gerði íslendinga ríka. Kjartan Ragnarsson höfund- ur og leikstjóri söngleiksins er vafalítið með vinsælli leikrita- skáldum íslendinga í dag. Hver man ekki eftir Saumastofunni, eða Ofvitanum sem gengu í mörg ár og yfir 40.000 manns sáu. Eða Blessuðu barnaláni og Jóa? Land míns föður er viða- mesta verkefni sem Leikfélag Reykjavíkur hefur tekist á hendur frá upphafi og liðlega 30 manns koma fram á sýningunni, flestir í fleiri en einu hlutverki og búningarnir eru um 170 talsins. Tónlistina samdi Atli Heimir Sveinsson, hljómsveitarstjóri er ■ Sjálfsagt á eftir að reyna þó nokkuð á hláturtaugar væntanlegra áhorfenda að söngleiknum Land míns föður eftir Kjartan Ragnarsson. IVfyndin var tckin fyrir tæpum mánuði á æfingu á verkinu en síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. NT-mynd: Róbcrt Glaíera vantar Seltjarnarnes, Skipholt, Laugaveg, Laufásveg, Freyjugötu, Fossvog, Öldugötu, Austurberg, Haga, Voga og einnig vantar blaöbera á biðlista í öll hverfi. IkLsíðumúli 15. Simi Simi 686300 Jóhann G. Jóhannsson, Ólafía Bjarnleifsdóttir samdi dansana, Gerla hannaði búningana og Steinþór Sigurðsson sá um leik- myndina. Með helstu hlutverk fara Helgi Björnsson, Sigrún Edda Björnsdóttir, Hallmar Sigurðs- son, Aðalsteinn Bergdal, Ragn- heiður Arnardóttir, Jón Sigur- björnsson, Margrét Helga Jó- hannsdóttir og Steinunn Ólína Þorteinsdóttir. Góða skemmtun! ■ ísland henti svo sannarlega af sér hýðinu á þeim árum sem söngleikurinn gerist, stökk á einni andrá úr aldagömlu bændaþjóðfélagi inn í nýja veröld auðs og lífsgæða. Hér eru leikararnir í Ijúfum dansi enda var mikið dansað og duflað á stríðsárunuin. Var ekki líka draumur að vera með dáta? Þeir voru alla vega kurteisari og hreinlegri en íslenskir karlmenn. NT-mynd: Róbert Stutt jafnteflisskák Einvígið nú hálfnað ■ Stysta skákin í einvígi Ana- toly Karpovs og Garrí Kaspar- ovs var tefld í gær. Efsir aðeins 18 leiki var samið jafntefli eftir mikil uppskipti. Karpov hafði hvítt og kom Kasparov honum á óvart þegar í 8. leik þegar hann fórnaði peði. Eftir hin óvæntu endalok í 11. skákinni virtist þetta vel til fallið hjá Kasparov. Peðsfórnin virtist setja Karpov út af laginu því hann tók þegar að sækja eftir uppskiptum og gaf peðið til baka. Kasparov átti því ekki í neinum erfiðleikum með að jafna taflið og bauð jafntefli þegar hann hafði leikið sínum lS.leik. Einvígið er nú hálfnað og er ljóst að mikið jafnræði er með jjeim félögum. Karpov hefur hingað til lagt áherslu á öryggið og sniðgengur flóknar stöður en Kasparov virðist ófcimir.n við að flækja taflið og hafa sumar ákvarðanir hans djarfar, valdið sérfræðingum í Tschaik- ovskí - tónlistarhöllinni miklum heilabrotum. Eftir 11. skákina virðist hann standa sálfræðilega betur að vígi en allt getur þó gerst. Það er spá mín að sá þeirra sem vinnur næst beri sigur úr býtum í einvíginu. 12. einvígisskák: Hvítt: Anatoly Karpov. Svart: Garrí Kasparov. Sikileyjarvörn. 1. e4 c5 2. RO eó 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rcó (Kasparov gefur Njadorf - af- brigðinu, sem hann hefur beitt með góðum árangri, frí. í 10. skákinni átti hann í miklum erfiðleikum með að jafna taflið svo hann snýr sér nú að öðru afbrigði Sikileyjarvarnarinnar sem síðast sást í 3. eingívisskák- inni í fyrra, skák sem Karpov vann.) 5. Rb5 (Karpov velur yfirleitt þennan leik, en skarpara er talið 5. Rc3.) 5. .. d6 6. c4 (Eftir 1. einvígisskák Fischers og Petrosjan í Buenos Aires 1971 hefur framhaldið 6. Bf4 alger- lega horfið af sjónarsviðinu. Petrosjan kom þá með óvænta og geysisterka nýjung sem færði honum yfirburðatafl en Fischer sneri á hann og vann.) 6... Rf6 7. Rc3 a6 8. Ra3 d5!? (í þeim bókum sem ég hef undir höndum er hvergi minnst á þennan leik. Svartur fórnar peði fyrir óljós færi.) 9. exd5 exd5 10. cxd5 (Ekki 10. Rxd5 vegna 10. - Rxd5 ásamt 1 l.-Bb4to.s.frv.) 10. .. Rb4 11. Bc4 Bg4 12. Be2?! (Karpov gerir enga tilraun til þess að prófa réttmæti peðsfórn- arinnar. Hann gefur peðið til baka knýr fram mikil uppskipti og þar með jafnteflisstöðu. Fyr- ir næstu skák geta aðstoðar- mennirnir svo fundið út hvort peðsfórnin á rétt á sér eða ekki.) 12. .. Bxe2 13. Dxe2t De7 14. Be3 Rbxd5 15. Rc2 Rxe3 (15. - Rxc3 16. bxc3 er tæpast hollt svörtum. Mótspil hvíts eft- ir b-línunni vegur fyllilega upp á móti veikleikanum á c3.) 16. Rxe3 De6 17. 0-0 Bc5 18. Hfel 0-0 -Kasparov bauð janftefli eftir þennan leik. Staðan er alveg lífvana þó enn sé nokkuð eftir af liðsaflanum. Karpov þáði boðið eftir stutta umhugsun. Staðan: Karpov 6 Kasparov 6 13. einvígisskákin verður tefld á morgun, laugardag. Þá hefur Kasparov hvítt. Einvígið um heimsmeistaratitilinn: 123456789 10 11 12 Anatoly Karpov 0 Vi Vi 1 1 Vi Vi V2 Vi '/2 0 v^ Garrí Kasparov 1 V2 Vi 0 0 Vi V2 V2 V2 V2 1 'A 1 Helgi Ólafsson skrifar

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.