NT - 27.10.1985, Side 7
En þetta er sjálfsagt kostnaðar-
samt. Það kostaði t.d. eina milijón
að reka nefnd sem var skipuð af
menntamálaráðuneytinu sem fjall-
aði um glímukennslu í skólum.
menn og ef einhver opnar munninn
er strax sussað. Þetta geta verið
leifar frá því það voru fánakveðjur í
upphafi móta og glímumenn mars-
eruðu inn á völlinn fylktu liði.
En þarfglíman endilega aö veröa
einsog niðurgreidd iandbúnaðar-
afurð? Getur hún ekki öðlast nýtt
fylgi fyrirsína eigin verðleika?
Það er ansi hörð samkeppni á
líkamsræktar- og íþróttamarkaðin-
um og það er margt að breytast. Nú
vill fólk helst vera eitt í sínu skokki
eða koma þegar það kærir sig um í
líkamsræktarstöðvarnar og gera
sínar æfingar. Þær stöðvar eru líka
ólíkt meira freistandi en þau hús
sem við erum að æfa í. Kunningi
minn sem rekur eina slíka stöð
sagði mér að það skipti mestu máli
þar væri setustofan, síðan kæmu
búningsklefarnir og sturturnar, en
það sem minnstu máli skipti væru
lyftingatækin sjálf. í húsinu sem við
KR-ingar æfum í er ekki einu sinni
sími, hvað þá meira.
Og þetta á við fleiri íþróttagreinar
en glímuna. Gamli félagsandinn er
fyrir bí. Fólk lætur ekki bjóða sér
það sama og það gerði áður og þá
í nafni félagsins. Eg hef látið mér
detta í hug að við þessir glímukallar
ættum að leigja okkur eina hæð og
innrétta hana með setustofu og öllu
sem þykir tilheyra og bjóða þessum
stákum sem hafa lært glímu í
skólanum að æfa þar. En þetta er
náttúrlega stórt peningaspursmál.
Það má líka spyrja sig að því
hvort þessi stóra yfirbygging sem er
á íþróttahreyfingunni eigi rétt á sér.
Hvort peningunum sem fara í hana
sé ekki betur varið annarsstaðar.
Sérsamböndin ættu að fá pening-
ana og þá án tillits til iðkendafjölda.
Slík breyting hefði margt gott í för
með sér.
Fyrst við erum byrjaðir að tala um
peninga þá er hægt að benda á
þessi fyrirtæki sem virðast vera fús
til þess að dæla peningum í íþrótta-
hreyfinguna. Af hverju hafa þau
ekki notað glímuna í auglýsingar.
Það hefur sýnt sig á þeim sýningum
sem við höfum haldið fyrir erlenda
ferðamenn að útlendingum finnst
glíman stórmerkileg og sniðug.
Heldurðu að glíman seiji fiskinn ?
Já, og lopapeysurnar. Útlending-
um finnst glíman vera skemmtileg
íþrótt og einstök, sem hún og er.
Það er líka mun skemmtilegra að
sýna fyrir þá en íslendinga. Glímu-
mót hér heima eru alltaf einsog
jarðarfarir. Það má helst ekki hvetja
En hvar stendur íslenska glíman
miðað við áfloga-íþróttir annarra
landa?
íslenska glíman er mjög lík
svissnesku-glímunni og glímum frá
Skotlandi, Norður-Noregi og fleiri
löndum. Og öll brögð sem eru til í
t.d. júdó eru einnig til í íslenskri
glímu. En sérstaða íslensku glím-
unnar er sú að allt hnoð niður við
gólf er bannað. Og það er einmitt
það sem er heillandi við hana.
Þegar maður var að slást sem
strákur komst maður að því að það
var lang-skemmtilegast að fljúgast
á og hætta þegar annar var fallinn
á jörðina og byrja svo uppá nýtt.
Þegar grísk-rómverska glíman
var soðin uppúr mörgum þjóðlegum
glímum og gerð að ólympíu-grein,
þá gátu íslendingarnir ekki sætt sig
við að það mætti halda áfram að
þjarma að andstæðingnum eftir að
hann var kominn í gólfið. Það var
gegn eðli glímunnar.
En gætirþú tuskað t.d. júdómann
til?
Það yrði náttúrlega engin mynd á
þeim bardaga. En Jóhannes á Borg
hafði alla undir þegar hann var að
keppa við menn sem stunduðu
aðrar bardagaíþróttir, hvort sem
það vorujúdómenn,gísk-rómversk-
ir glímumenn eða karate-menn.
Glíman er hentugt tæki til þess
að verja sig ef á mann er ráðist og
ekkert síðra sjálfsvarnarkerfi en
hvað annað.
Hvers vegna glíma konur ekki?
Þær hafa gert það. Uppúr 1970
tóku nokkrar vaskar konur sig til og
fóru að æfa glímu. En það var
einhver tregða hjá gömlu köllunum
í stjórn Glímusambandsins og þeir
vildu aldrei leyfa þeim að keppa né
gera þær að fullgildum meðlimum í
sambandinu. Körlunum hefur sjálf-
sagt fundist glíman það karlmann-
leg íþrótt að glímandi konur væru
óvirðing við íþróttina.
Sama ástæðan hefur sjálfsagt
legið að baki því að ungum drengj-
um var meinað að keppa allt þar til
fyrir stuttu.
Að lokum, trúir þú því aö glíman
muni deyja út?
Ég vil náttúrlega ekki trúa því. En
einsog ástandið er í dag þarf maður
að beita öllum viljastyrknum til þess
að trúa á framtíð glímunnar.
/
NT Sunnudagur 27. september 7
W/
í þessum mánuði er þess minnst
víða um heim, að 100 ár eru liðin frá
fæðingu danska eðlisfræðingsins Ni-
elsar Bohrs (1885-1962). Bohr varð
fyrst og fremst frægur fyrir framlag sitt
til svokallaðrar skammtafræði og hlaut
m.a. Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir
sínar á því sviði árið 1922. Fyrir utan
eigin rannsóknir var hann þekktur fyrir
það að draga að sér unga og efnilega
vísindamenn sem settu fram ýmis
veigamestu nýmæli skammtafræðinn-
ar.
Búast má við því að margir séu litlu
nær, þótt orðið skammtafræði sé
nefnt. Hér verður því reynt að svara í
stuttu máli spurningunni sem felst í
fyrirsögn þessarar greinar, þannig að
almennur blaðalesandi geti orðið
nokkru fróðari.
Skammtafræði er sú kenning í nú-
tíma eðlisfræði sem beitt er til að fjalla
um atóm (frumeindir) og þaðan af
smærri efnisagnir, svo sem rafeindir
(electrons). Þannig getur skammta-
fræðin gert grein fyrir því, hvernig
frumeindir frumefnanna koma saman
og mynda sameindir (molecules) í
efnasamböndum. Einnig gefur hún
lýsingu og skýringu á eiginleikum
frumeinda, svo sem stærð þeirra og
massa. Sömuleiðis koma þá fram
skýringar á ýmsum eiginleikum frum-
efnanna sjálfra, svo sem litrófi Ijóss og
annarrar rafsegulgeislunar frá þeim,
rafleiðni, breytilegri hegðun þegar hita-
stigi er breytt, og á efnafræðilegum
eiginleikum.
Skammtafræðin erönnurmeginstoð
nútíma eðlisfræði, sem hefur orðið til
á þessari öld. Hin stoðin er afstæðis-
kenning Einsteins, sem hefur af ein-
hverjum ástæöum orðið miklu frægari,
þó að hún komi síst meira við sögu í
eðlisfræði. Afstæðiskenningin fjallar
um annað svið reynslunnar, þ.e. um
hlut sem nálgast Ijóshraða, sem og um
þyngdarsvið. Menn hafa reynt mikið til
þess að finna kenningu sem tæki yfir
smásæjar agnir sem nálgast Ijós-
hraða, og tengdi saman skammta-
fræði og afstæðiskenningu í einni
kenningu. Það hefur gengið heldur
erfiðlega, þótt nokkuð hafi miðað á
síðustu 1 -2 áratugum.
Skammtafræðin varð til og mótaðist
á fyrstu þremur áratugum þessarar
aldar. Tilefni þess var svonefnd kreppa
í eðlisfræði um aldamótin. Þegar kom
fram á seinni. hluta 19. aldar, fóru að
koma fram mælingar og athuganir,
sem og nýjar hugmyndir, er sýndu að
hefðbundnar eðlisfræöikenningar áttu
ekki við þegar komið var í hinn smá-
sæja heim atómsins. Þetta gilti m.a.
um sjálfa atómhugmynd 19. aldar,
sem hafði upphaflega orðið til sem
hjálparhugtak í efnafræði í byrjun
aldarinnar. Atómhugtakið reyndist vel
til að skýra t.d. hlutföllin sem ríkja
þegar efni ganga í efnasambönd, en
það vakti hins vegar erfiðar spurningar
til að mynda um það, hvort frumeind-
irnar væru raunverulega efnisagnir
með nánar tilgreinda eiginleika eða
ekki. Þegar lotukerfi Mendeljeffs kom
fram um 1870, höfðu menn heldur
■engar skýringar á því hvernig eiginleik-
ar frumefnanna breyttust með reglu-
bundnum hætti þegar þeim var raðað
eftir massa eða þyngd atómanna.
Á síðari hluta 19. aldar hugkvæmd-
ust mönnum ýmsar snjallar aðferðir til
þess að fá hugmynd um stærð ein-
stakra frumeinda eða sameinda og
þar með um það, hve margar af
þessum eindum væru í hverju tilteknu
efnismagni. Sem dæmi um þessar
aðferðir má nefna það að taka tiltekið
rúmmál af olíu og athuga hversu
stóran flöt olían þekur ef henni er hellt
á vatn. Ef gert er ráð fyrir að olían
breiði einmitt svo mikið úr sér að
olíulagið verði „ein sameind“ á þykkt,
má nota þetta til að meta stærð
sameindanna.
Þrátt fyrir öfluga andstöðu lengi
framan af, voru flestir eðlisvísinda-
menn orðnir sannfærðir um raunveru-
lega tilvist frumeinda og sameinda,
. skammíafræði?
þegar komið var fram undir síðustu
aldamót. Eitt af því sem átti að ein-
kenna atómið var varanleiki þess og
ódeilanleiki, sem felst einmitt í gríska
orðinu atomos. Það kom því eins og
skrattinn úr sauðarleggnum, þegar
menn komust að þvi í tilraunum á
síðustu 5'árum 19. aldar, að atómið
var hvorki ódeilanlegt né varanlegt.
Annars vegar fannst rafeindin á þess-
um tíma (J.J. Thomson), en hún er
eimitt hluti frumeindarinnar. Hins veg-
ar uppgötvuðu menn geislavirkni efna
og komust að þvi, að þar væru frum-
eindirnar að skipta sér af sjálfsdáðum.
í fyrstu reyndu menn að sjálfsögðu
að gera sér hugmyndir eða líkön um
atómið, sem samrýmdust fyrri kenn-
ingum um efnið og hegðun þess. Var
þar fyrst og fremst um að ræða
svokallaða aflfræði Newtons, sem
hann hafði sett fram u.þ.b. tveimur
öldum áður. Hún hafði reynst afar vel
og orðið mjög áhrifamikil, jafnvel utan
eðlisfræðinnar. Einnig var þarna um
að ræða rafsegulfræði Maxwells, sem
hann setti fram á 7. áratug 19. aldar.
Þar er gerð heildstæð og býsna sann-
færandi grein fyrir rafkröftum, segul-
kröftum, rafsegulbylgjum eins og Ijósi,
o.s.frv.
Því er skemmst frá að segja, að
tilraunir manna til að fást við atómið á
grundvelli hefðbundinna kenninga
mistókust. Mótsagnir og þverstæður
komu sífellt fram þegar þetta var reynt
og þeim fjölgaði með nýjum athugun-
um. Hið sama á við um ýmis fyrirbæri
sem tengjast geislun hvers konar. Eitt
frægasta dæmiö um slikt er geislun frá
svokölluðum svarthlut, en það er hlutur
sem gleypir alla geislun sem á hann
fellur og endurkastar engu beint. í
rannsóknum manna á slíkum hlutum
kom m.a. í Ijós að hefðbundin eðlis-
fræöi gat ekki einu sinni gert grein fyrir
þeirri hversdagslegu reynslu að hlutir
skipta litum þegar þeir eru hitaðir upp
(frá rauðglóandi yfir í hvítt). Þessi gáta
leystist árið 1900 með lögmáli Plancks
um svarthlutargeislun, en þar var að
hann að gera ráð fyrir svokallaðri
skömmtun orkunnar. Er oft sagt að þá
hafi skammtafræðin fæöst, þó að lang-
ur vegur væri til þess að hún yrði
fullmótuð sem vísindakenning.
Á næstu þremur áratugum varð
atburðarásin á þessu sviði mjög hröð.
Ýmist komu fram nýjar tilraunir og
athuganir þar sem nýjar furður komu í
Ijós í hegðun atóma og atómagna, eða
menn voru að þreifa sig áfram í átt til
heildstæðra kenninga sem hægt væri
að nota til að henda reiður á þessu öllu.
Einn merkasti áfanginn á þessari
leið var atmómlíkan Bohrs, sem hann
setti fram árið 1913, m.a. á grundvelli
frægrar tilraunar sem Nýsjálendingur-
inn Rutherford hafði gert tveimur árum
áður. Samkvæmt því átti atómið að
vera þannig saman sett, að í því miðju
væri tiltölulega þungur kjarni, en kring-
um hann sveimuðu rafeindirnar, sem
eru miklu léttari. Brautir þeirra fylgdu
reglum heföbundinnar eðlisfræði,
svipað og þegar reikistjörnur sveima
um sól, að öðru leyti en því að
einungis komu fyrir brautir sem hlíttu
nánar tilgreindum skilyrðum. Þessi
skilyrði fólu m.a. í sér að orka rafeind-
anna gat aðeins tekið ákveðin gildi:
orkan er skömmtuð sem kallað er.
Samkvæmt rafsegulfræði Maxwells
áttu rafeindirnar að geisla frá sér orku
og falla smám saman inn i kjarnann.
Bohr tók sér einfaldlega þá forsendu
að þetta gerðist ekki, án þess að geta
rökstutt hana nánar. Hins vegar gerði
hann ráð fyrir því að Ijós eða önnur
rafsegulgeislun færi skyndilega af
einni leyfilegri braut á aðra þar sem
orkan væri minni. - Með þessu ein-
falda líkani gat Bohr skýrt ýmis þekkt
fyrirbæri t.d. í litrófi vetnis, en þó var
Ijóst nokkurn veginn frá byrjun að
líkanið gat alls ekki svarað öllum
spurningum sem menn vildu fá svör
við.
Gáta skammtafræðinnar leystist
ekki til hlítar fyrr en á árunum 1925-6,
er þeir Heisenberg og Schrödinger
settu fram heildstæðar kenningar, er
gátu gert grein fyrir nánast öllum
þekktum fyrirbærum atómanna. Kenn-
ingar þeirra virtust í fyrstu afar ólíkar,
en þegar nánar var að gáð reyndust
þær jafngildar. Á næstu árum festust
þessar kenningar í sessi og við búum
að þeim enn þann dag í dag á sínu
sviði, eins og áður var sagt.
Ýmislegt furðulegt og óvænt kom
fram á þessum árum, þegar menn
voru að kljást við gátur atóma og
skammta. - Þannig höfðu menn talið
sig finna óyggjandi rök fyrir því á 19.
öld, að Ijós og önnur rafsegulgeislun
væri bylgjur en ekki agnir. Menn höfðu
m.a. séð í tilraunum með Ijós ýmis
konar fyrirbæri sem einkenna bylgjur,
svo sem að það beygði fyrir horn, þó
að beygjan væri að vísu oft lítil vegna
þess hve bylgjulengd Ijóssins er lítil.
Það kom því mjög á óvart þegar
Einstein sýndi fram á það árið 1905,
að Ijósið hagar sér stundum eins og
agnir.
Hitt mátti ekki síður furðu sæta,
þegar franski eðlisfræðingurinn de
Broglie setti fram þá hugmynd árið
1925, að efnisagnir eins og rafeindin
hegðaði sér sumpart eins og bylgja.
Þessi tilgáta var staðfest í tilraun
tveimur árum siðar, auk þess sem
stoðum var rennt undir hana með
skammtafræði Schrödingers sem áður
var getiö. Samkvæmt henni hafa allar
efnisagnir eins konar bylgjueðli, sem
kann að birtast þegar svo ber undir.
Hins vegar er bylgjulengdin sem fylgir
venjulegum hlutum hins daglega lífs
svo lítil að fyrirbæri sem tengjast
bylgjueðlinu koma ekki fram, jafnvel í
nákvæmustu mælingum.
Þetta tvíeðli agnar og bylgju á sem
sagt við á báða vegu: Það sem við
töldum vera ögn kemur stundum fram
sem bylgja, og það sem við höfðum
áður litið á sem bylgju birtist stundum
sem ögn. Samkvæmt túlkun Bohrs og
annarra er það fyrirkomulag tilraunar-
innar sem ræður því, hvort það verður
bylgjueðli eða agnareðli viðfangsefnis-
is (Ijóss eða rafeinda) sem fram kemur
í henni.
Frægasta atriði skammtafræðinnar
er líklega svonefnt óvissulögmál Heis-
enbergs. Samkvæmt því er t.d. ekki
hægt að ákvarða bæði stað og hraða
einhverrar agnar á sama tíma með
eins mikilli nákvæmni og vera skal,
heldur er margfeldi óvissunnar í stað
og óvissunnar í hraða alltaf stærra en
ákveðin föst tala. Til þess að viö getum
sagt fyrir um hreyfingu agnarinnar
með ótakmarkaðri nákvæmi, er hins
vegar nauösynlegt samkvæmt hefð-
bundinm aflfræði að unnt sé að mæla
upphaflegan stað og hraða með eins
mikilli nákvæmni og vera skal. Slíkar
nákvæmar forsagnir eru því ógerning-
ur samkvæmt skammtafræðinni. Þetta
hefur mörgum þótt erfiður biti að
kyngja, bæði þeim sem hafa kynnt sér
skammtafræði sem leikmenn, og eins
sumum eðlisfræðingum sem hafa
sökkt sér niður í furður skammta-
fræðinnar.
Segja má að skammtafræðin feli í
sér heimspeki sem kenna má við
löghyggju, þ.e. að allt sem gerist lúti
náttúrulögmálum. Hins vegar segja
þau lögmál ekki fyrir um alla hluti
samkvæmt skammtafræðinni. Hún
fellur því ekki undir heimspeki nauð-
hyggjunnar, þ.e. að allt sem gerist
verði af nauðsyn. Aflfræði Newtons og
ýmis önnur hefðbundin eðlisfræði fell-
ur hins vegar undir slíka nauðhyggju,
sem varð því afar áhrifamikil á 19. öld
og lengi fram á þá tuttugustu, hvort
sem menn gera sér það alltaf Ijóst eöa
ekki. Má vel vera að það séu þessi
meðvituðu og ómeðvituðu áhrif nauð-
hyggjunnar sem valda því, að ýmsum
veitist enn þann dag í dag býsna erfitt
að skilja eða fallast á grundvallaratriði
skammtafræðinnar.
Þorsteinn Vilhjálmsson, eðlis-
fræðingur.