NT - 27.10.1985, Side 21
NT Sunnudagur 27. september 21
Hafþór Júlíusson:
Opið bréf til þeirra er unna
sannleikanum um náttúrunnar furðuverk
Ég hefi nú leitað fyrir mér um
alllangt skeið, innan takmarkana
þekkingar minnar og þess tíma er
daglaunamanni er skammtaður til
frírra iðkana, bæði flett mörgum
bókum og eins leitað til mætra
manna er mér eru fróðari um faunur
heims, en einskis orðið vísari um
upphaflegan ásetning minn, er var
sá að finna í fornum heimildum
eður nýrri einhverjar þær frásagnir
er kynnu að greina frá dýri því er
mér birtist eina febrúarnótt á síðast-
liðnum vetri er ég lá sofandi í rúmi
mínu. Hefir þessi árangursleysa
mín valdið mér vonbrigðum og
jafnvel sárindum, þar sem hér er
um að ræða ekki síður merkilega
skepnu en beinhákarl ellegar lang-
víu, ánamaðk eður skógarbjörn, en
um þessi dýr fann ég ógrynnin öll í
lærðum bókum og eins fékk ég um
þau ókeypis fyrirlestra hjá nátt-
úruunnandi kunningjavini mínum,
sem fræddi mig margt um lifnaðar-
háttu þessara sem og annarra
dýrategunda er ég vissi ekki áður,
en sem ég á sjálfsagt eftir að búa
að lengi.
En vegna þeirrar furðulegu þagn-
ar er umlykur tilvist þessa dýrs, hefi
ég fundið mig knúinn til að stinga
niður penna og reyna á sem
gleggstan og skilmerkilegastan hátt
að lýsa því eins og það birtist mér
er ég stóð augliti til auglits við það
á liðnum vetri. Það sem langt er nú
umliðið og ef til vill kann einhverju
að hafa skolast til í mínu minnis-
dapra höfði og kannski ekki síður
sökum þeirra aðstæðna er gerðu
fund þennan mögulegan, kann lýs-
ing mín á skepnunni í einstaka
smáatriði að vera ónákvæm og
jafnvel skökk, en öll helstu atriði trúi
ég að séu sannleikanum
samkvæm, enda var stefnumót mitt
við dýrið það áhrifaríkt að ég get
enn þann dag í dag séð það
Ijóslifandi fyrir hugskotssjónum
mínum, þó það valdi mér síður en
svaþægindum.
Nú kann einhvern að furða að lítt
menntaður maður ryðjist fram á völl
og taki að gaspra um jafn lærð
vísindi og náttúrufræði, og eins
kann ýmsum að þykja að lýsing mín
standist ekki þær kröfur sem gerðar
eru til greiningar á piöntum og
dýrum náttúrunnar, en þeim mönn-
um vil ég svara því að ætlun mín
með greinarkorni þessu er ekki sú
að básúna vit mitt ellegar athyglis-
gáfu, heldur er tilgangurinn sá að
vekja athygli á skepnu þessari og
því hversu erfitt virðist að afla sér
heimilda um hana og eins það að ef
einhver lesandi kynni að minnast
þess að hafa rekist á sama dýr eða
einhvert líkrar náttúru, þá gæti hann
síðar bætt við fátæklega lýsingu
mína. Þannig mætti, eftir því sem
fleiri vitni gæfu sig fram, fá haldbetri
útlistun á dýrinu, en það hlýtur að
vera kappsmál allra upplýstra
manna að fá sem gleggsta vitneskju
um dýrategund þessa og náttúru
hennar, því á meðan ekki er tekið
vísindalega á slíkum málum er
hætt við að allskyns hindurvitni og
hræðslukenndar sagnir spinnist
upp og haldi alþýðu allri niðri á lágu
plani fávisku og ótta við hið ókunna.
Og það vona ég að allir séu mér
sammála um að göfugasta markmið
vísindana er að uppljóma myrkvað-
an heim fáfræðinnar.
En frásögn mín er á þessa leið.
Það var sem ég stæði við jaðar
dökkblárrar auðnar og svarts hafs,
og hversu undarlega sem það kann
Þó ég sé maður óvanur dráttarlistarbrögðum finnst mér skylt og rétt að birta með greinarkorni mínu þá
mynd er ég dró upp stuttu eftir fund minn við dýrið. Þessar fátæklegu línur áttu að tákna sköpulag skepnunnar,
en ég vil biðja menn lengstra orða að taka hana með fyrirvara sökum bernskra hæfileika minna í teikningu.
H.J.
að hljóma, fannst mér sem hluti
vitundar minnar stæði að baki mér,
þannig var ég ekki einn heldur
tvískiptur og jafnvel margskiptur,
og virðist mér er ég leiði hugann
aftur sem ég hafi verið marg eðlað-
ur, það er að sérhver hluti minn hafi
haft sjálfstæðan þankagang. En
mitt eigið ásigkomulag snertir ekki
meginefni frásagnarinnar, nema
vera skyldi að ýmsum sálfræðing-
um og öðrum þeim er telja að
skynjun mannsins á hinum efnis-
lega heimi sé ætíð háð hugarhrær-
ingum og sé jafnvel einungis föl
endurmyndun tilfinningasveifla
mannskeþnunnar sem lítur hann
hverju sinni, þætti fengur að fá uppí
hendurnar hráefni til þess að hæða
mína sannanlegu sýn og telja hana
sökum þessa ómark og ekki til
annars hlutar nýtanlega en að sýna
fram á hversu hált ég standi á hinu
sálarlega heilbrigðissvelli. En þessir
menn og aðrir með keimlíkanhugs-
unarhátt hafa það sér helst til and-
legrar skemmtunar að útlista ýmsar
mögnuðustu og dýrlegastar kraft-
myndir náttúrunnar sem einhvurs-
lags glettur sálarlífsins og hefi ég
jafnvel heyrt algáða menn halda því
fram að þegar postular og læri-
sveinar Krists horfðu á sinn gamla
vin stíga upp til himna, hafi í
rauninni ekkert gerst annað en það
að þessar fjörutíu sálir hafi skyndi-
lega í galsakasti brugðið á leik og
dregið húsbændur sína á asnaeyr-
unum og í raun allan hinn kristna
heim allar götur síðan, og skýringu
sína kalla hinir mætu menn galsa-
kast í hópi. En ég ætia ekki að hætta
mér útí deilur við menningarvita er
kunna að vilja taka upp hanskann
fyrir einhverja þá kenningu er kann
að bera svip af ofansögðu, því
deilur við slíka menn er lýjandi verk,
því oft virðist manni sem þeir hafi
sett sér vörð við sálarhliðið sitt er
hleypi engu í gegn nema fánýtum
staðreyndum um einskis verða
hluti, svo aðrir magnaðir spilli ekki
góðri skipulagningu á tóminu fyrir
innan.
En áfram skal ég halda með
frásögnina.
Ég stóð sem sagt þarna á jaðrin-
um og snéri baki í hafið og horfði
inn að miðju auðnarinar, sem mér
virtist sendin og yfirborðið líkast
eðalsteinum eða glerbrotum er glitr-
aði á, þó mér sé ekki Ijóst hvaðan
sú birta kom er orsakaði gljáann,
því á himnafestingunni sem hvelfd-
ist yfir auðnina og bar sama lit og
hún greindi ég engan Ijósgjafa og
annað var sem ekki síður var at-
hyglisvert, og það var hversu nærri
mér himinninn var, það var öllu
líkara að ég stæði inní veglegum
sal en undir þerum himni, en þó er
ég viss umað svo var ekki því ég
fann fyrir kraftþrunginni hreyfingu
er lék um hvelfinguna, ekki ósvip-
aða norðurljósum, en þetta var á iði
er augu mín greindu ekki, heldur
skynjaði ég hreyfinguna meir sem
titring ellegar suð. Að baki mér var
hafið, lygnt og sem olíukennt,
myrkvað og þögult, og þaö var sem
það veitit mér öryggiskennd að hafa
slíkan bakhjarl, en um leið læddist
um mig uggur, því ég vissi sem var
að hljóðlegt ástand þess þá gat á
einni svipstundu umbreyst og ægi-
máttur þess brotist fram og svift upp
öllu lauslegu og dregið til sín niður
í djúpið og mætti þá aumt manntetur
biðja heitt til góðra vætta um hval
líkan þeim er barg Jónasi forðum.
En fyrir framan mig, á miðri
auðninni, lá feiknstórt dýr, stærra
en ég hefi nokkurn tímann séð eða
getað ímyndað mér að til væri og
var það mun tröllvaxnara en bein
dinosaurusa fornalda, er sjá má á
náttúrugripasöfnum víða erlendis,
gefa til kynna um stærð þessara
risa aftan úr bemsku lífs á jörðunni,
en skepnan er ég sá tel ég að hafi
verið spendýrsættar og því alls
óskyld hinum útdauðu eðlum. Mér
veittist erfitt að gera mér grein fyrir
vaxtarlagi búks og útlima, því bæði
vat að dýrið lá niðri með höfuðið
ofan á framlöppunum, ekki ólíkt og
værðarlegir hundar gera, og eins
var líkaminn alsettur löngum, grá-
um hárum, annarlega gljálausum
og lífvana, einna líkust steinsteypu
að áferð, þannig að frá þeim stað er
ég stóð á virtist skepnan sem ólögu-
legt hrúgald, með hæðum og
lægðum, svo allar útlistanir á sköpu-
lagi skrokksins í uppistandandi
stellingu gætu ekki oröið annað en
getgátur einar og því hugsanlega
leitt af sér meiri villu en upplýsingu,
en slíkar gildrur vil ég eindregið
forðast í lengstu lög. En um höfuð
dýrsins og ásjónu get ég verið
vissari, þar sem það snéri að mér
andlitinu og gaumgæfði ég það af
meiri nákvæmni en aðra hluta
skepnunnar, og eins var að hún var
sýnu snögghærðari frá höku til enn-
is en annars staðar um líkamann og
því auðveldara um vik að gera sér
grein fyrir ásýnd þess en búksins og
útlimanna. Höfuðið stóð beint út frá
herðunum og virtist mér háls vera
lítill sem enginn, heldur var sem
enni og haka væru samvaxin
skrokknum og var hvoru tveggja
aftur sveigt, eyru sá ég engin og
hafa þau því verið smá eða einungis
hlustholur, kjafturinn sat lágt á and-
litinu, víður en þunnvaraður og
varirnar litlausar, nefið var smátt og
stóð lítið fram af andlitinu, en nasa-
holurnar stórar og andaði dýrið í
gegnum þær meðan kjafturinn var,
aftur, fyrir ofan nefið voru augu
skepnunnar, stór, vatnsmikil og grá,
og virtist dýrið eiga í erfiðleikum
með að halda þeim opnum, þvi það
lygndi þeim aftur, um leið og fóru
kiprur og grettur um andlitið og
fylgdu því hljóð ekki ósvipuð þeim
og þegar köttur malar, nema hvað
af þessum hljóðum stafaði
ísmeygjulegum óhugnaði, svo
maður fékk beyg í brjóst, án þess
að geta þekkt hvað það var er
maður óttaðist.
En þrátt fyrir þá illu strauma er
lágu frá dýrinu, var eitthvað sem
hélt athygli minni fastri við andlit
þess og þá sérstaklega augun, sem
virtust fanga augnaráð mitt og stóð
ég sem negldur í fæturna og ein-
blíndi inn í litlausa dýpt þeirra, og
að stuttum tíma liðnum fannst mér
sem allur líkami minn dofnaði og
einhver hjúpandi sljóleiki yfirtæki
mig allan, augnalokin þyngdust og
brátt fór ég að lygna augunum aftur
á sama hátt og skepnan og samtím-
is henni.
En á meðan þessu fór fram,
fannst mér sem ég skynjaði mátt-
leysi mitt utan frá og ég tók einnig
eftir því að litir umhverfisins, jafnt
auðnarinnar sem himinfestingarinn-
ar, dofnuðu samstiga því sem það
dávald er skepnan virtist vera að ná
á mér óx, og tók nú sá saman
safnaði ótti er hafði vaxið innra með
mér allt frá því ég leit dýrið að finna
sér farveg, ég áttaði mig á því að
hér var um líf eða lífleysi að tefla og
að ég þyrfti að beita allri minni orku
til að losna undan dávaldi skepn-
unnar.
Ég tók það ráð að grípa báðum
höndum fyrir augun og loka þeim,
en þá varð sem sprenging inni í
höfðinu á mér og skerandi sársauki
braust fram og allt varð rautt fyrir
sjónum mínum, en hnjáliðirnir kikn-
uðu, svo ég féll niður á auðnina, og
fann nú fyrst fyrir hversu köld hún
var viðkomu og fannst mér það
svalandi og deyfa sársauka minn
og hræðslu. En um leið og ég hafði
gripið fyrir augun rak dýrið upp langt
öskur, dimmt og rykugt, og virtist
það hanga í loftinu og brátt greindu
eyru mín ekki hvaðan það kom,
heldur var sem það hjúpaði hlustirn-
ar, það var þungur hávaði og nötraði
ég allur undan honum. Ég gat nú
ekki setið á mér að líta upp til að
reyna að átta mig á hvað væri að
gerast, því mér fannst sem ég væri
fallandi niður í dimmt og alltumhylj-
andi tóm, og sá ég þá hvar skepnan
lá með ginið glennt upp og var það
óhugnanlega stórt og kjafturinn allur
víðari en ég hafði gert mér grein
fyrir áður, en þó fannst mér það
furðulegra að ginið virtist samvaxið
búknum og sýndist mér ég sjá upp
undir hrygg og niður eftir rifjum
dýrsins og var það sem tómt að
innan.
Mér hafði nú vaxið svo máttur og
kjarkur að ég stóð uppá fæturna
aftur og linnti skepnan þá öskrunum
og tók að horfa sömu augum til mín
og áður, en ég gætti þess að horfa
aldrei beint inn í þau, heldur horfði
ýmist til hliðar við dýrið ellegar beint
niður fyrir fætur mínar. Er frá leið fór
ég að veita athygli litbrigðum í
auðninni og á himinfestingunni er
mér höfðu veriö hulin áður og
mögnuðust þau því meir sem ég
horfði á, og einnig fann ég nú fyrst
fyrir svalandi golu af hafinu, og
fannst mér sem þetta yrði til þess
að máttur minn styrktist og hætta sú
er mér stóð af dýrinu dvínaði, enda
var sem það smækkaði jafnt því
sem umhverfið varð máttugra.
En þegar hér var komið rofnaði
sýnin og ég vaknaði upp með öran
hjartslátt, og sem lurkum laminn af
þreytu, og tók það mig langan tíma
að jafna mig, bæði á sál og líkama,
eftir þessa óskemmtilegu.en þó
forvitnilegu reynslu.
Ég hefi nú reynt að lýsa dýrinu og
viðskiptum mínum við það á sem
réttastan hátt og gætt þess að lita
frásögnina ekki í stíl við spennu-
sagnir og annan uppdiktaðan
skáldskap, þó óvönduðum mönnum
þættu eflaust efnisatriði hennar gefa
tilefni til slíks. En ég vil minna
á að tilgangur minn með birtingu
þessarar greinargerðar er fyrst og
einungis vísindalegur og til þess
eins ætlaður að koma upplýsingum
á framfæri er ekki virðast hafa verið
fyrirliggjandi fyrr en núna og eins til
þess að hvetja þá er kunna frá
stefnumótum sínum og þessarar
eða líkrar skepnu að segja, að
liggja ekki á reynslu sinni, heldur
koma fram og auðga þekkingu-
mannsins á dýrasafni náttúrunnar.
En það er grunur minn að alltof
margir beri svipaðar upplifanir með
sjálfum sér af ótta við að falsvís-
indamenn muni reyna hvað þeir
geta til að troða uppá þá geðveikl-
unarstimplinum og afneita öllu því
er gerir ráð fyrir að náttúran sjálf sé
flóknari og stórfenglegri en þeirra
lífsbældi hugur ræður við.
En það ætla ég að vona að enn
finnist m.enn er trúi því að vísindin
séu til þess að upplýsa um og
greina náttúruna, en ekki til þess að
lítillækka hana.
Skrifað í Reykjavík í síðustu
viku sumars árið 1985.