NT - 27.10.1985, Qupperneq 23
Þessu fylgir mikil ábyrgö. Ef ein-
hver nemandi minn færi út í bæ og
berði á fólki, þá þætti mér sem ég
bæri ábyrgö af þeim atburði. Ég hef
beðið fólk að hætta æfingum vegna
þess að mér hefur ekki tekist að
breyta afstöðu þess. Þegar ég hef
reynt allt sem ég get til að fá fólk til
þess að breyta hugsunarhætti sínum
og einsýnt er að ekkert undir sólinni
fær það til þess, þá get ég ekki annað
en látið það fara.
Þjálfunin er ekki einungis líkamleg
heldur reyni ég að láta þjálfun hugar
og handar fylgjast að. Það kann að
vera að goju hafi tapað einhverju af
sínu innsta eðli en við reynum að
varðveita það. Gogen Yamaguchi,
meistari minn í Japan, hefursent mér
bréf þar sem hann segir að ég sé einn
af fáum kennurum á Vesturlöndum
sem varðveiti hinn sanna anda karate
og ef hann segir það þá er andinn
vissulega til staðar.
Hvers vegna fórstþú sjálfurað æfa
karate?
Ég fór að æfa karate að hluta til
vegna þess að ég vildi læra að
berjast og heillaðist af getu karate-
mannanna, en mest heillaði mig samt
hinn mikli agi og harkan í æfingunum.
Ég safnaði nægum peningum til þess
að geta hætt að vinna og helgaði mig
æfingum algerlega. Ég held að ég
hafi fengið svart belti eftir 15 mánuði
(vanalega tekur það meira en 5 ár),
enda æfði ég uppá hvern dag, jafnvel
á sunnudagsmorgnum. Síðan ferð-
aðist ég um Asíu og lærði fleiri kerfi,
m.a. „Tailenskt box“ og æfði eins og
vitlaus maður.
Og þú hefur æft alla tíð síðan?
Hver og einn finnur sér tilgang með
lífinu. Og allt frá byrjun fann ég að
minn tilgangur snerist um karate. Líkt
og dansari sem veröur að dansa
vegna innri þarfar, þá iðka ég karate.
Þegar ég geri kata eða berst gleymi
ég mér algerlega og það kemst
ekkert annað að en það sem ég er að
gera og löngunin til þess að ná
fullkomnun í því sem ég er að fást
við. Oft man ég ekki hvað gerist á
slíkum augnablikum. En það er ekki
hægt að lýsa þessu með orðum, eina
leiðin er að gera karate.
Ég gef mig allan í þetta. Og það að
vera kennari er stöðug áskorun. Það
streyma til mín nemendur og líkt og
myndhöggvarinn lítur á leirinn, þann-
ig lít ég á nemendurna sem efnivið
til þess að búa til karate-menn. Jafn-
vel þó það vanti á þá báðar hendur
þá er hægt að gera eitthvað úr þeim.
Ég reyni aö kenna með allri tilveru
minni. Eg get ekki verið stirður og
með ístru. Hver mundi trúa mér. Þess
síður get ég gengið um rænandi og
ruplandi. Þetta þýðir ekki að ég sé
dýrðlingur, en til þess að geta verið
kennari sem tekið er mark á þarf
maður að vera fordæmi, ekki aðeins
með líkamlegri getu heldur ekki síður
með lífsmáta mínum.
Karate stefnir að því að gera menn
að betri einstaklingum og mér dettur
ekki í hug að ég sé kominn á leiðar-
enda. Ég stefni að því á sama hátt og
ég stefni að tæknilegri fullkomnun í
karate. Tækni mín er ekki fullkomin,
ég er ekki fullkominn og ég veit ekki
einu sinni hvað fullkomnun er.
En ég reyni og það er þessi leit
sem karate er.
Og þú æfir enn á fullu ?
Ójá. Ég hef aldrei verið betri en
núna og stefni að því að verða ennþá
betri þegar ég verð fimmtugur.
NT-mynd: Sverrir.
Er engin leið að stunda karate án
þess að gefa sig allan?
1 Jú, auðvitað. Ég hef marga nem-
endur sem æfa bara einu sinni til
tvisvar í viku vegna heilsunnar. Ætli
það séu ekki 70% af nemendum
mínum sem æfa einungis til þess að
halda sér í formi. Ég kenni allskonar
fólki úr öllum þjóðfélagsstéttum og á
öllum aldri. Ég hef líka fatlaða nem-
endur, handalausa, hálf-blinda
o.s.frv. Allt þetta fólk nýtur þess að
koma og reyna á sig. Síðan fær hver
og einn sitt útúr karate allt eftir því
hvernig hann eða hún lítur á málin.
Að lokum, hvernig er íslenskt kar-
ate á vegi statt?
Ég get einungis talað um goju, þá
karate-menn sem hafa verið undir
minni stjórn síöastliðin rúm tvö ár.
Þeir hafa farið ótrúlega langa leið á
skömmum tíma. Ekkert land sem ég
þekki til er í jafn mikilli framþróun.
Ef hægt er að líkja því saman við
t.d. þróun í bílaiðnaði þá má segja að
íslendingar hafi ekið Ford T-model
þegar ég kom hingað fyrst á meðan
aðrir óku Porsche. En eftir þessi
rúmu tvö ár þá geta íslendingar
jafnvel handleikið Porsche.
Þeir hafa barist við toppmenn í
Evrópu og gengið vel. Á síðasta ári
unnu þeir til verðlauna á alþjóðlegum
mótum og ég er viss um að þau verða
fleiri á þessu ári.
Fyrir 12 árum hafði enginn heyrt
minnst á karate á Islandi, en ég er
viss um að innan skamms eigi íslend-
ingar eftir að verða sterk þjóö í
karate. Allavega ef þeir halda sama
hraðanum og þeir hafa gert.
Jóhannes Karlsson
Viðtal við Ingo de Jong
NT Sunnudagur 27. september 23
l“^ll
Verslunareigendur!
Innkaupastjórar!
I áratugi hefur Söluskrifstofa KEA selt margs konar vörur til verslana, stofnana og þeirra sem vilja gera góö
innkaup á vönduðum vörum á hagstæðu verði. Við getum útvegað þér vörur frá eftirtöldum fyrirtækjum:
Frá Kjötiðnaðarstöð KEA:
Allar tegundir af kjöti - s.s. lambakjöt,
nautakjöt, hangikjöt, svinakjöt og kjuklingar.
Einnig býöur Kjötiðnaðarstöð KEA alls konar
unnar kjötvörur, þar með taldar fjöldi
áleggstegunda. Nú getur þú fengið kjötið
meðhöndlað á ýmsan hátt og það kemur til þin
pakkað i lofttæmdar umbúðir.
Frá Brauðgerð KEA:
Brauðgerð KEA framleiðir allar tegundir af
matarbrauðum - auk þess sem fyrirtækið
hefur gott útval af kökum og tertum.
Brauðgerð KEA hefur yfir að ráða mjög
góðum vélakosti og úrvals starfsfólki - sem
gerir sitt besta til að útvega þér þær vörur sem
þú óskar eftir.
Frá Smjörlíkisgerð KEA:
Borðsmjörliki, bökunarsmjörliki, kókossmjör
og kökufeiti. Frá Smjörtíkisgerö KEA kemur
Flóru smjörliki, sem þegar hefur sannað
ágæti sitt. Fyrirtækið framleiðir einnig herta
sojaoliu sem notuð er til djúpsteikingar á
matvælum - s.s. kjöti, kartöflum og laufabrauði.
Frá Kaffibrennslu Akureyrar:
Braga katfi - frá Kaffibrennslu Akureyrar
þarf vart að kynna. Vinsældir þess hér á landi
segja sitt um gæði framleiðslunnar. Nú slðast
kom fyrirtækið fram með Santosblöndu. Hefur
þú reynt hana? Þá minnum við á Ameriku kaffi,
Kolombia kaffi og koffinlausa Braga kaffið.
Frá Mjólkursamlagi KEA:
Vantar þig fjölbreytt úrval mjólkurvara?
Pá færðu vörumar hjá Mjólkursamlagi KEA.
Sifellt er verið að fitja upp á einhverju nýju
hjá Mjólkursamlagi KEA og má nefna
drykkjarjógúrt sem dæmi. Einnig er rétt að
minna á Tropicana. Pessi úrvals ávaxtasafi er
einmitt framleiddur hjá Mjólkursamlagi KEA.
Frá Efnagerðinni Flóru:
Ávaxtasafi, marmelaði, sultur, steiktur laukur,
poppmais, kakó, ýmsar kryddtegundir og
bökunarvörur. Flóra Iramleiðir einnig þrjár
tegundir af fljótandi jurtaolium til
djúpsteikingar: Sojaolia, Sólblómaolia og
Jarðhnetuolía.
Frá Efnaverksmiðjunni Sjöfn:
Sjöfn framleiðir alls konar tegundir af ræsti- og
hreinsiefnum, en auk þess framleiðir Sjöfn
málningu, sem landsþekkt er fyrir gæði, og
Úretan quartz gólfefni. Hjá Sjöfn getur þú
fengið svamp af ýmsutn gerðum og stærðum.
Nýlega hóf Sjöfn framleiðslu á Bamba bleium
og dömubindum.
Þú ættir að
slá á þráðinn!
Það borqar siq!
Söluskrifstofa KEA
Hafnarstræti 91-95
602 Akureyri.
BÆNDUR
Graskögglarnir eru góður kostur,
ódýrt og kjarnmikið islenskt fóður
#
Vekjum sérstaka athygli að graskögglum
blönduðum innlendum fóðurefnum,
svo sem meltu, fiskimjöli og byggi.
#
Leitið nánari upplýsinga
í verslunum og hjá söluaðilum
i
GRASKOGGLAVERKSMIÐJAN FLATEY
Mvrarhreppi
Sími: 97-8592
' FÓÐUR OG FRÆ
Gunnarsholti
Sími: 99-51189
STÓRÓLFSVALLARBUIE
Hvolhreppi
Sími: 99-8163
FÓÐURIÐJAN
Ólafsdal
Dalasyslu
Sími: 93-4954